Morgunblaðið - 16.06.1987, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
Stj órnarmyndunarviðræðurnar:
Ennnokkrar
lotur eftir“
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
JÓN BALDVIN Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, telur
að samkomulagsgrundvöllur fyr-
ir stjórnarmyndun Alþýðuflokks-
ins, Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins eigi að
vera fyrir hendi eftir að undir-
nefnd í viðræðum forystumanna
flokkanna þriggja skilaði áliti um
fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum
síðdegis i gær. Hann segir, að
enn muni þó líða nokkrir dagar
þar til úrslit fáist í tilraun hans
til stjórnarmyndunar.
Enginn formlegur fundur um
stjómarmyndun var haldinn í gær,
en Jón Baldvin átti símasamtöl við
þá Þorstein Pálsson og Steingrím
Hermannsson eftir að undimefndin
um efnahagsmál sendi frá sér álits-
gerð, þar sem fram kemur til hvaða
ráðstafana nauðsynlegt er að grípa
í efnahagsmálum á næstunni til að
koma í veg fyrir verðbólguþróun. I
Flugmenn
sömdu
Viðræður í gangi
við aðra flugliða
SAMIÐ var á sunnudaginn I
kjaradeilu Félags íslenskra at-
vinnuf lugmanna og Flugleiða hf.
Hafði samningafundur þá staðið
í 29 klukkustundir.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði að samningurinn
væri á svipuðum nótum og aðrir
samningar sem gerðir hafa verið
að undanfömu. Að öðru leyti vildu
hann og aðrir samningsaðilar ekki
tjá sig um samninginn fyrr en eftir
félagsfund flugmanna á fimmtudag
og ekki tókst, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir, að fá upplýsingar um hann
eftir öðrum leiðum.
Viðræður standa nú yfir við flug-
freyjur, flugvirkja og flugvélstjóra.
Sigurður Helgason sagði að viðræð-
ur hefðu verið vinsamlegar og væri
hann bjartsýnn á að samningar
tækjust á næstu dögum.
nefnd þessari sitja hagfræðingamir
Bolli Héðinsson, Geir H. Haarde og
Jón Sigurðsson. Jón Baldvin
Hannibalsson sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að í
greinargerð nefndarinnar væri að
finna lýsingu á þeim lágmarksráð-
stöfunum sem grípa yrði til. Hann
sagði tillögur nefndarinnar hníga í
rétta átt, en kvaðst mundu ganga
lengra ef hann væri einráður.
„Ég sé ekki betur en að það eigi
að vera samkomulagsgrundvöllur,"
sagði Jón Baldvin. „Islenskir stjóm-
málamenn eiga að vera orðnir
þaulæfðir í því, að bródera svona
efnahagsráðstafanir.“ Hann kvaðst
því lejrfa sér að vona að líkur á
stjómarmyndun Alþýðuflokksins,
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins hefðu aukist eftir að
álit efnahagsnefndarinnar kom
fram í gær. Það myndi hins vegar
skýrast á fundi forystumanna
flokkanna, sem væntanlega verður
í dag, en hafði ekki verið tímasettur
í gærkvöldi. Jón Baldvin sagði að
úrslit stjómarmyndunarviðræðn-
anna mundu þó ekki ráðast í dag.
„Það tekur nokkrar lotur enn, ein-
hveija daga,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Björg Amaradóttir
Kalla þurfti á kranabíl tll að draga jeppann aftur upp á veginn. Nú er unnið að endurbótum á
veginum, en margir bílar hafa farið þarna út af.
Slysagildra á Snæfellsnesi
JEPPI fór út af veginum að
Búðum á Snæfellsnesi á laugar-
daginn. Margir bílar hafa farið
út af veginum á þessum sama
stað og er nú unnið að endur-
bótum þar.
Á laugardag missti ökumaður
jeppa stjóm á bifreiðinni í beygju
sem er á afleggjaranum að Búð-
um. Jeppinn fór út af veginum,
en þijár stúlkur sem í honum
voru, sluppu ómeiddar, enda allar
í bflbeltum. Á sama stað fór bfll
út af veginum um hvítasunnuna
og áður hafa margir bflar farið
þessa sömu leið. Vegurinn þama
er mjög hlykkjóttur, en beygjur á
honum ómerktar. Að sögn lög-
reglunnar á Ólafsvík vinnur
vegagerðin nú að lagfæringum á
veginum og í ráði er að setja upp
merkingar við beygjur og koma
fyrir grindverkum þar sem hættan
er mest.
Útvegsbanki íslands hf
Hlutabréf ríkisins boðin til
sölu á verðbréfamörkuðum
NÍU verðbréfamarkaðir hafa
tekið til umboðssölu hlutabréf
rikisins í Útvegsbanka íslands
hf. Þau verða seld á nafnverði
og eru sérstök lánskjör í boði sé
keypt fyrir meira en eina milljón
króna. Hlutur ríkisins i bankan-
um er um 760 milljónir króna
og er þetta því stærsta hlutafjár-
sala hins opinbera frá upphafi.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Hin nýja vél i flota Flugleiða lendir í fyrsta sinn á Keflavíkurflug-
velli í gær.
Flugleiðir leigja
Boeing 727-200
FLUGLEIÐIR hafa tekið á
leigu Boeing 727-200-flugvéI til
þriggja ára og kom vélin til
landsins í gær. Hún verður á
næstu mánuðum í Evrópuflugi
Flugleiða, bæði í áætlunarflugi
og sólarlandaflugi.
Flugvélin kom hingað til lands
frá Bretlandi þar sem hún hefur
verið undanfamar vikur í stór-
skoðun, að sögn Sigurðar Helga-
sonar, forstjóra Flugleiða. Hún
er í eigu bandarísks fyrirtækis en
hefur undanfarið verið í áætlunar-
flugi í Ástralíu. Að sögn Sigurðar
hafa Flugleiðir, vegna aukningar
í farþegaflutningum, tekið þessa
vél á leigu þar til nýju vélamar
sem fyrirtækið er að festa kaup
á, Boeing 737-400, koma til
landsins.
Lægri hlutir en 100.000 krónur
verða seldir gegn staðgreiðslu. Fyr-
ir hærri fjárhæðum veitir ríkissjóð-
ur lán í formi skuldabréfa til allt
að fimm ára, þó aðeins gegn trygg-
um veðum sem miðast við 70% af
brunabótamati fasteigna. Vextir af
þessum skuldabréfum verða vegið
meðaltal af verðtryggðum lánum
eins og þau eru skráð af Seðlabank-
anum á hveijum tíma. Að sögn
Tryggva Axelssonar lögfræðings í
viðskiptaráðuneytinu er gert ráð
fyrir því að tilhögun þessara við-
skipta og kjör sem í boði eru gildi
til 15. nóvember næstkomandi en
verði þá endurskoðuð.
Ekki hefur gefist tóm til að
prenta hlutabréf Utvegsbankans.
Verða væntanlegum kaupendum
ríkishlutabréfanna því afhent
skírteini þar sem kveðið er á um
að ríkissjóði beri að afhenda hand-
hafa gild hlutabréf fyrir 1. maí á
næsta ári. Tryggyi benti á að hlutir
í bankanum falli undir reglur um
skattafrádrátt, þó svo að hann komi
fæstum til góða á „skattlausu" ári.
Hluthafar í Útvegsbankanum
nálgast átta hundruð. Fiskifélag
íslands er næststærsti hluthafinn,
með tvö hundruð milljónir króna en
aðrir hluthafar skipta með sér 36
milljónum króna. „Margir hafa lýst
því yfir og þá einkanlega í dag-
blöðum, að þeir séu reiðubúnir að
kaupa hlut í bankanum. Hvað það
þýðir er aftur annað mál. Hvort
spumingin snýst um vilja, peninga
eða hvoru tveggja er erfitt að segja
um á þessu stigi," sagði Tryggvi.
Hann sagði að nokkrir aðilar hefðu
skrifað sig fyrir hlut í ráðuneytinu
á meðan þessi sala var undirbúin,
en þar væri þó um lágar upphæðir
að ræða.
í hópi þeirra verðbréfasala sem
ákveðið hafa að taka hlutabréfin
til sölu eru Samvinnubankinn,
Landsbankinn, Verðbréfamarkaður
Iðnaðarbankans og Útvegsbankinn.
Aðrir sölustaðir verða Kaupþing,
Hlutabréfamarkaðurinn, Fjárfest-
ingarfélag íslands, Ávöxtun og
Kaupþing Norðurlands.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ:
Hótanir Sjómannafélagsins um
málsókn á misskilningi byggðar
„VIÐ teljum þessa fyrirhugðu málsókn Sjómannafélags Reykjavík-
ur byggða á misskilningi. Þeir byggja málflutning sinn á málsgrein
í lagafrumvarpinu sem var felld út í meðferð Alþings og er því
ekki í lögum um sjómannadag,“ sagði Kristján Ragnarsson, for-
maður Landssambands íslenskra Útvegsmanna í samtali við Morg-
unblaðið um þau ummæli formanns Sjómannafélags Reykjavíkur,
að félagið myndi hefja málsókn gegn þeim útgerðarfyrirtækjum
er hefðu látið skip sín sigla á sjómannadaginn.
í nýsettum lögum um sjómanna-
daginn segir að dagurinn skuli vera
almennur frídagur sjómanna. Það
gildir þó ekki um skip sem ætla
að sigla með afla sinn eða „ef mikil-
vægir hagsmunir eru í húfí og
samkomulag tekst þar um milli
útgerðar og skipshafnar".
„Við túlkum lögin þannig að
útgerðarmönnum sé heimilt að gera
samkomulag við sjómenn um að
sigla á sjómannadaginn, án af-
skipta verkalýðshreyfingarinnar,
og leggjum áherslu á, að slíkt verði
einungis gert í undantekningartil-
fellum, eins og var nú um þessa
helgi," sagði Kristján.
Deilan milli LÍÚ og Sjómannafé-
iags Reykjavíkur stendur aðallega
um fiskiskipin Jón Baldvinsson,
Náttfara RE, Ottó, Þórshamar GK,
Helgu RE, Helgu RE II, sem voru
á veiðum á sjómannadaginn og
farskipið Akranes, sem sigldi að-
faranótt mánudags.
„Við erum ekki sammála túlkun
útgerðarmanna og teljum að ekki
sé heimilt að láta skip sigla nema
með samþykki áhafnarinnar,"
sagði Birgir Björgvinsson hjá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur. „Við
vitum um áhafnir sem vildu ekki
sigla en voru látnar gera það þrátt
fyrir það. Við förum því í hart með
þetta. Við ætlum að láta reyna á
þetta, það er skýlaus réttur sjó-
manna að eftir þessum lögum verði
farið."