Morgunblaðið - 16.06.1987, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
3
Raufarhöfn:
Bátar
skpinnidir
við leit að
lyfjum
Raufarhöfn.
TVEIR bj örgnnarbátar voru
teknir í fyrrinótt úr tveim fiski-
bátum sem liggja í Raufar-
hafnarhöfn. Annar báturinn
fannst á botni hafnarinnar en
hinn er ófundinn og er álitið
að sögn lögreglunnar að hann
muni hafa sokkið.
Til að ganga úr skugga um
hvort báturinn hafí sokkið verður
fenginn kafari til að leita í höfn-
inni. Innihald úr öðrum bátnum
hefur fundist. Einn maður hefur
verið handtekinn og hefur hann
játað verknaðinn. Ástæðan er tal-
in leit að lyfjum.
- Helgi
Skagafjörður:
Fjós og hlaða
brunnu í
Villinganesi
Sláttur hafinn
í Blönduhlíð
Varmahlíð.
■ FYRIR helgina varð laus eldur
í bænum Villinganesi I Lýtings-
staðahreppi. Brann þar gamalt
fjós og hlaða. Ollum skepnum
tókst að bjarga áður en eldur-
inn varð þeim að fjörtjóni.
Eidsupptök eru ókunn. Á bæn-
um búa eldri systkini, Aðal-
steinn Eiríksson og systir hans,
Guðrún.
Þó ekki sé verið að lasta veður-
blíðuna eru menn orðnir langeygir
eftir regni hér um slóðir því ekki
hefur komið dropi úr lofti í að
minnsta kosti 6 vikur. Þurrkur
hamlar mjög að gras spretti, og
víða má sjá byrjaðan bruna á
harðbalatúnum. Sláttur er hafínn
á tveim bæjum í Blönduhlíð;
Grænumýri og Stóruökrum.
Nýlega er lokið lagningu bund-
ins slitlags á veginn frá Daufá
að Varmalæk í Lýtingsstaða-
hreppi, og er þá bundið slitlag
þaðan samfellt og að Sauðár-
króki. Fyrirtækið Hagvirki
annaðist verkið, og um leið lögðu
sömu aðilar slitlag á Hólaveg í
Hjaltadal.
Um miðjan maí hófust fram-
kvæmdir um uppbyggingu nýs
vegar yfir Vatnsskarð. Munu þær
framkvæmdir standa yfir allt til
hausts, en í ráði er að byggja upp
í sumar veginn frá Valagerði að
Bólstaðarhlíðarbraut.
P.D.
Sighvatur GK
seldi fyrir 6
milljónir kr.
SIGHVATUR GK seldi í gær-
morgun 118,5 tonn í Hull og var
söluverðmæti aflans 6 milljónir
króna.
Þá seldi Freyja GK fyrir 3,4 millj-
ónir í Bremerhaven á föstudag 58
tonn, og var meðalverð aflans 58,87
krónur, en meðalverð aflans í Hull
var 50,89 krónur.
HILLUEININGARNAR
SVISSNESK
ISLENSK FRAMLEIÐSLA
1985 VAR WOGG VALIÐ:
Hugvitsamleg hönnun WOGG 1 byggir á
ferhyrndum tengistykkjum sem auðvelda mjög alla
Hönnuöur WOGG 1, samsetningu og upprööun og setja sérstakan svip á
Gerd Lange, er vesturpýskur samstæöuna.
innanhúsarkitekt sem hlotiö hefur
Qölda viöurkenninga fyrir hönnun húsgagna og innréttinga.
WOGG 1 hillurnar eru til sýnis í verslun okkar og veitir afgreiöslufólk
þér fúslega allar upplýsingar sem þú óskar.
• BEST HANNAÐA HÚSGAGN ÁRSINS AF
SVISSNESKUM ARKITEKTUM
• FRAMLEIÐSLUVARA ÁRSINS AF
TÍMARITINU SCHÖNER WOHNEN
• BESTA HILLUSAMSTÆÐA ÁRSINS
Á VEGUM ÞÝSKA TÍMARITSINS MD
WOGG I má auöveldlega byggja upp frí-
standandi eöa upp viö vegg. Þú getur valiö þá
upprööun og liti sem þér henta best og viö sníöum
til einingarnar eftir pínu vali. Þú veröur ekki í neinum
erfiöleikum meö aö setja þær saman og getur reitt þig á
aö samsetningin er traust.
Tengistykkin fást
í mörgum litum og
sjálfar hillurnar eru fram-
leiddar úr völdum aski, í viö-
arlit. svörtum eöa hvítlituöum.
G G
WOGG 1 - STÍLHREIN OG PERSÓNULEG LAUSN
KRISDÁN SIGGEIRSSON
Laugavegi 13, 101 Reykjavík.
GYLMIR/SÍA