Morgunblaðið - 16.06.1987, Page 9
9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
Dönsku herrafrakkarnir
margeftirspurðu
aftur fáanlegir,
m.a. nýjar gerðir.
GElSíPí
Verð frá kr. 4500.
Aðalstræti 2.
FOSTUOAGUH I2 JUN1 19*7 - TBL 71 AWO
Island er að
kikna undan
mannfjölda
Ummæli um NATO-fund
Fundur utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn
var hér í síðustu viku, er almennt talinn hafa verið árangursrík-
ur. Þar var síðustu hindrunum á vettvangi bandalagsins vegna
samninga um Evrópueldflaugarnar rutt úr vegi. Reykjavíkurblöð-
in brugðust misjafnlega við fundinum. Athyglisverðast er, að
niðurstaða hans gladdi leiðarahöfund Þjóðviljans meira en leið-
arahöfund Dagblaðsins-Vísis (DV). Verður staldrað við það í
Staksteinum í dag auk þess sem litið verður á „stórfrétt" Tímans
vegna fundarins.
DV dásamar
Gorbachev
f forystugrein Dag-
blaðsins-Vfsis i gær segir
meðal annars: „Ráð-
herrafundurinn í Reykja-
vik í siðustu viku auglýsti
fyrir íslendingum,
hversu fótafúin eru orðin
þessi samtök, sem lengi
hafa þakkað sér Evrópu-
friðinn." Eins og af
þessum orðum má sjá
hefur blaðið fyrirvara á
því, að það sér réttmætt
fyrir ráðherra aðild-
arrilq’a Atlantshafs-
bandalagsins að eigna
þessum ríkjum og sam-
tökum þeirra frið i
Evrópu. Af Dagblaðinu-
Visi má helst ráða, að
friðurinn sé Mikhail
Gorbachev að þakka,
sem komst upp á tindinn
i sovéska einræðiskerf-
inu fyrir fáeinum misser-
um. f forystugreininni
segir meðal annars:
„En óneitanlega hafa
siðustu útspil Gorba-
tsjovs sett Nató út i horn.
Þar á bæ virðist skorta
getu til að mæta frum-
kvæðinu að austan með
viðbrögðum og gagn-
frumkvæði, sem endur-
heimti traust Vestur-
landahúa á gagnsemi
hins aldraða og þreytta
bandalags." Þegar þetta
er lesið, kemur fyrst upp
í hugann spurningin um
það, hvar það hafi komið
fram, að Vesturlandabú-
ar hafi glatað trausti á
gagnsemi Atlantshafs-
bandalagsins. í hvaða
ríki bandalagsins eru
kjósendur búnir að glata
trausti á þessum horn-
steini öryggis- og varnar-
málastefnu ríkisins? Ef
rétt er munað hefur þein;
flokkum yfirleitt vegnað
verst í NATO-ríkjunum,
sem hallmæla NATO
mest. Og um „frumkvæð-
ið“ frá Moskvu er það
að segja, að Gorbachev
er ekki aðeins að hverfa
frá yfirlýsingum forvera
sinna í Kreml heldur
einnig sínum eigin. Hann
er nú reiðubúinn að fall-
ast á tillögur, sem NATO
setti fram fyrir mörgum
árum.
Raunar gæti lesandi
forystugreinar DV hald-
ið, að fundurinn i'
Reykjavik hafi ekki verið
haldinn eða ekkert borið
þar til tíðinda, en eins og
þeim er kunnugt, sem
fylgdust með fundinum,
komust menn þar að
sameiginlegri niður-
stöðu, sem gerir Sovét-
mönnum og Bandaríkja-
mönnum kleift að ganga
frá samkomulagi mti
meðaldrægu og skamm-
drægu eldflaugarnar.
Undir lok forystu-
greinarinnar segir: „í
áróðurskapphlaupi aust-
urs og vesturs er nauð-
synlegt, að Vesturlönd
nái á ný frumkvæði i við-
ræðum um gagnkvæma
minnkun vigbúnaðar i
austri og vestri.“ Allir,
sem til þekkja, eru á einu
máli um, að Sovétmenn
töpuðu áróðursstriðinu
um Evrópueldflaugam-
ar. Að það vannst af
Vesturlöndum hefur nú
leitt til þess, að samning-
ar um brottflutning
flauganna er á næsta
leyti. Þetta áróðursstrið
hefur kannski farið fram
hjá DV?
Tímiiuimis-
skilur Reuter
Á forsiðu Tímans
siðastliðinn föstudag
birtist frétt, sem kennd
var við Reuter-frétta-
stofuna. í Tímanum stóð:
„Hin alþjóðlega frétta-
stofa Reuter skýrði frá
þvi í gær, að íslendingar
eigi í mesta basli með að
ráða við verkefni sitt,
sem er sldpulagning á
fundi utanríkisráðherra
Atlantshafsbandalagsins
I Reylqavík. Þrátt fyrir
yfirlýsingar Reuters
gekk allt snurðulaust og
fundurinn var formlega
settur í gær í Há-
skólabíói." Um kvöldið
sneri rikissjónvarpið sér
til ábúðarmikilla starfs-
manna islenska utanrik-
isráðuneytísins og bar
undir þá, hvort þessi
frétt Timans hefði við
rök að styðjast. Þeir
sögðu, að upplýst væri,
að um misskilning væri
að ræða, enda gengi allt
vel og sldpulega fyrir sig.
Furðulegt er, að
Tíminn þurfí að bera
Reuter fyrir sig, þegar
birt er jafn glæsileg fyr-
irsögn og þessi: Island
er að kikna undan mann-
fjölda. Flestir hefðu að
óreyndu talið, að þeir á
Tímanum fyndu fyrir
því, ef svo væri komið
fyrir okkar ágæta landi,
að það væri að „kikna
undan mannfjölda".
Raunar er þetta orðalag
hvergi að finna í skeytinu
frá Reuter.
Þjóðviljinn
bjartsýnni
enDV
Þótt ótrúlegt sé er
Þjóðviljinn vinsamlegri
niðurstöðum NATO-
fundarins en DV. Þar
segir i grein eftír einn
Ieiðarahöfunda á laug-
aradaginn: „Og hvað
kemur svo útúr Nató-
fundinum? Hann reynd-
ist vera merkari en þessir
fundir eru allíyafna. Nat-
óríkin komu sér loksins
aattifln nm einhver svör
við nýjustu afvopnunar-
tíllögum Gorbatsjofs
Sovétleiðtoga eftír
tveggja mánaða japl,
jaml og fuður, sem jafn-
vel helstu Nató-höfðingj-
ar viðurkenna að hafí
veikt bandalagið veru-
lega. Niðurstaða fimdar-
ins var — einsog
fréttaskýrendur bjugg-
ust við — fyrirfram að
samþykkja að Banda-
ríkjastjórn héldi áfram
að semja við Sovétmenn
um tvöfalda núll-Iausn.
Þetta er merkur við-
burður vegna þess að
þetta er í fyrsta skiptí
sem Nató samþykldr
raunhæfar leiðir til af-
vopnunar."
T3
í'i
lattisgetu 12-18
Volvo 240 GL ’87
6 þ.km. Beinsk. (sem nýr) V. 750 þ.
Ford Escort 1300 LX ’86
21 þ.km. 5 dyra. V. 420 þ.
Daihatsu Cuore ’86
8 þ.km. Útvarp + seguib. V. 255 þ.
Saab 900 Turbo ’82
Beinsk., sóllúga. Toppbíll. V. 480 þ.
Dodge Dayotona Turbo Z ’8S
Glæsilegur sportbíll. V. 790 þ.
Porsche 924 '80
Fallegur sportbíll. V. 580 þ.
M. Benz 250 '80
6. cyl. sjálfsk., sóllúga o.fl. V. 480 þ.
Citroen CX 2000 '82
46 þ.km. Gott eintak. V. 370 þ.
Saab 99 GL 4 dyra '83
48 þ.km. 5 glra. V. 380 þ.
Citroen Axel '86
42 þ.km. Útv. + segulb. V. 195 þ.
M. Benz 300 Diesel '79
Beinsk. m/sóllúgu o.fl. V. 430 þ.
Pajero Diesel Turbo (langur) '87
13 þ.km. Sjálfsk. Mikiö af aukahlutum.
V. 1230 þús.
Opel Reckord 2000 '84
63 þ.km. Sjálfsk. o.fl. V. 540 þ.
Honda Civic sport (1.5) '84
50 þ.km. 5 gíra, toppbfll. V. 380 þ.
Rover 3500 '83
70 þ.km. Leöurklæddur o.fl. V. 830 þ.
ílamatíadutinn
Daihatsu Charade Turbo '87
Rauður, ekinn 5 þ.km. 5 gíra m/sóllúgu,
álfelgum o.fl. Verö 450 þús.
Mazda RX7 1981
Blásans, ekinn 66 þ.km. Einn sá besti af
sinni árgerö. Ath.: Skipti á ódýrari. Verö
420 þús.
Buick Skylark Ltd. 2ja dyra '84
Grásans, 6 cyl. (3I), sjálfsk., ekinn 50
þ.km. Fallegur bfll. Verö 550 þús.
Audi 100 1984
Hvítur, 5 gíra, ekinn 65 þ.km. Sóllúga o.fl.
Eftirsóttur bfll m/framdrifi. Verö 680 þús.
(skipt. ódýrari).
Mazda 323 1300 LX '87
Blásans., ekinn aöeins 4 þ.km. Sílsalistar
o.fl. 5 dyra. Verö 390 þús.
Ath: Mikið af bílum á 10-24 mán. greiðslukjörum.
Hefur þú hugað að peningunum þínum...
... í dag?
VERÐBRÉFAMARKADS IÐNAÐARRANKANS
bera nú 9-11% ávöxtun umfram verðbólgu
Þann 7. maí, hóf Verðbréfamark-
aður Iðnaðarbankans rekstur
tveggja nýrra verðbréfasjóða og
sölu á Sjóðsbréfum 1 og Sjóðs-
bréfum 2. Sjóðsbréf 1 eru fyrir þá
sem vilja örugga ávöxtun og upp-
söfnun þar ti! þeir þurfa á fjármun-
um sínum að halda. Sjóðsbréf 2
eru ætluð þeim sem þurfa að lifa af
eignum sínum og hafa af þeim
Verðbréfamarkaður
Iðnaðarbankans hf.
tekjur. Tekjur Sjóðsþréfa 2 umfram
verðþólgu eru greiddar út á þriggja
mánaða fresti, í mars, júní, sept-
emþer og desember ár hvert.
Hjá Verðbréfamarkaði Iðnaðar-
bankans hf. hugsum við um að
ávaxta þeninga - á hverjum degi!
Síminn að Ármúla 7 er 68-10-40.