Morgunblaðið - 16.06.1987, Page 20

Morgunblaðið - 16.06.1987, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987 Njörður P. Njarðvík, rithöfundur: Menn gefa öðrum vald með ímyndun sinni lífsskynjun. Ég álít að það verði aðeins gert ef stöðugt er verið að endurvinna þessar goðsagnir. Það sem Snorri Sturluson gerði með EMdu, var að skila þessum arfi til sinnar samtíðar. Hann vann þessa heimsmynd handa sinni samtíð, eins og hann hefur álitið að höfðaði til hennar. Það sem við höfum síðan verið að gera, er að við höfum alltaf verið að láta skóla- ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýndi, í byrjun júnímánaðar, nýtt íslenskt leikrit, „Hvar er hamar- inn,“ eftir Njörð P. Njarðvík. Er hér um að ræða leikrit með söngvum, sem Hjálmar H. Ragn- arsson hefur samið tónlist við og er leikurinn byggður á Þrymskviðu. Flestir íslendingar þekkja Þrymskviðu, söguna um það þegar Þór týndi hamrinum, vopninu sem jafnvel jötnamir óttuðust. Æsir lentu í uppnámi miklu, þvi hvað er Þór hamars- laus? Hann er ekkert eins og fram kemur í leikriti Njarðar þegar Freyja biður alla góða æsi að hjálpa sér og Loki segir: „Það þýðir nú lítið að biðja ham- arslausan Þór sér til hjálpar." Ekki er þó öll von úti fyrir æsi, jafnvel þótt sjálfur Þrymur jötunn hafí stolið hamrinum. Það er að vísu ekki þægilegt, því eins og Loki segir, „það er eins og að stela sjálfri atómsprengjunni frá ameríkönum eða rússum.“ Með þessum samanburði tengir höfund- ur verkið við nútímann og það er ekki í eina skiptið. En Þrymur er alveg til í að skila hamrinum, þótt hann vilji fá annað í staðinn. Hann vill fá Freyju fyrir eiginkonu. Það er því undir Freyju komið, hvort hamarinn fæst aftur í Ásgarð. Völdin sem tilheyrt hafa Þór, í krafti hamarsins, sem er tákn fyrir ofbeldi, eru nú í hönd- um Freyju, hinnar kvenlegu fegurðar. Auðvitað harðneitar Freyja að giftast Þrym, svo Þór á ekki annarra kosta völ en klæðast kvenfötum og blekkja Þrym með því að þykjast vera Freyja. Það dugar honum skammt að vera stór og sterkur strákur í það skiptið. Enda segir Þór í lok leiksins „Nú þegar ég hef hamarinn, þá getur ekkert ógnað mér. En þegar búið var að stela honum, þá gat ég ekki náð honum aftur nema með þvi að láta breyta mér í kven- mann.“ En hvemig sér höfundur valdið og í hveiju felst það? ? „Ég held að hluti af því sem við köllum vald, hljóti að vera ímynd- un,“ segir Njörður. „Menn gefa öðrum vald með ímyndun sinni. Hamarinn er tákn fyrir valdið. Ef hann týnist, þá er maðurinn ekk- ert. Ég held að valdið felist ekki annaðhvort í hinu kvenlega eða karlmannlega, heldur hljóti sam- runi þessara tveggja þátta að koma til. Hinn grófi kraftur dugir ekki einn. Á tímabili látast karlamir, Þór og Loki, geta ráðskast með konuna eins og þeim sýnist. í þessu leik- riti reyni ég að leggja áherslu á að enginn er alveg neikvæður eng- inn alveg jákvæður. Það er einmitt það sem er svo heillandi í norr- ænni goðafræði, að goðin em ekki fullkomin. Þau em öll háð tak- mörkunum. Hvert goð hefur sína kosti og galla. Það er einmitt þetta sem fólk virðist ekki átta sig á með fjölgyðistrú, að hvert goð er tákn fyrir einhvem mannlegan þátt. Óðinn er til dæmis viskan, Þór krafturinn, Baldur sú fegurð sem birtist í breytni. Svo em aðr- ir, eins og Vanir, fulltrúar fyrir höfuðskepnumar, til dæmis Njörð- ur fyrir loft og eld og Freyr ræður fyrir gróðri jarðar, vatninu, jörð- inni og fijómagni hennar. Þessi fjölskylda goðanna mjmd- ar svo saman eina heild og yfir þessari heild í norrænni goða- fræði, er svo afl örlaganna, sem enginn stjómar. Heimurinn tortím- ist vegna siðferðisbrests goðanna. Þeir era að reyna að leysa þau vandamál sem koma upp hveiju sinni, en með lausnum sínum skapa þau sér stærri vandamál í framtíð- inni. Goðsagnimar em náttúmlega einhvers konar viðleitni til að tjá mannlega hegðun, það er, að tjá dulda og djúpa eðlisþætti í okkur, sem við skynjum, en skiljum ekki. Njörður P. Njarðvík, rithöfundur. Goðafræðin setur þetta upp sem dæmisögur. Það er svo ótal margt sem við getum ekki gert ein. Nær- tækasta dæmið er náttúmlega það að skapa líf. Til þess þarf samein- ingu karls og konu. Ég skil þessa goðsögn sem Þrymskviða vinnur úr, sem dæmi- sögu um samtvinnun þessara tveggja eðlisþátta manneskjunnar, sem við köllum karlþátt og kven- þátt. Þeir ganga í gegnum allt okkar líf sem mjúkt og hart. Það er ekki von að Þór, sem er allur í kröftunum, skilji að kveneðlið sem er mjúkt skuli vera sterkara en hans eigið eðli. Norræn goðafræði er afskap- lega heillandi veröld, en hún hefur mikið verið vanrækt. Þessi nor- ræna heimsmynd er upphafleg forsenda fyrir okkar eigin menn- ingu og þessvegna er það, að mínu viti, lífsnauðsynlegt fyrir okkur sem þjóð, að viðhalda þessari nemendur tileinka sér það sem var unnið fyrir 13. aldar fólk. Með mínu verki þykist ég vera að reyna að vinna úr þessu handa okkar samtíð. Hefðum við ekki haft Snorra- Eddu væri þetta algerlega lokaður heimur. Við skulum hugsa um það, að meginhluti Eddukvajða varðveittist í einu einasta handriti, „Konungsbók Eddukvæða,“ Ef þetta hefði ekki varðveist væri uppmni okkar, okkur óskiljanleg- ur. En það sem við höfum verið að gera til að varðveita okkar menningu, er að þvinga fólk aftur f fortíðina. Mér finnst það rangt. Á sínum tíma þótti óviðunandi að gefa út íslendingasögur nema á fræðimannastafsetningu, sem er ekkert annað en umbúðir. Við les- um ekki Njálssögu til að rýna í stafkróka, heldur lesum við Njáls- sögu afþví hún birtir okkur lífssannindi sem em í gildi á með- an manneskjan er til. Ég tók til dæmis eftir því fyrir löngu, að íslenskir krakkar hafa geysilega gaman af goðafræði og ég man eftir því einu sinni, þegar við hjón- in vomm að ferðast um írland með tveimur stelpunum okkar að við þurftum að keyra miklar vega- lengdir. Þá hafði ég ofan af fyrir þeim með því að. endursegja þeim goðasögur sem framhaldssögu. Þær höfðu óskaplega gaman af þessu og tóku ekkert eftir þessum löngu ferðalögum. Landið okkar lifir alveg sérstöku lífi, afþví við vitum hvað gerðist í landslaginu. Þegar maður ferðast um ísland, ferðast um Hvalflörð til dæmis, þá rifjar maður upp fyr- ir sér Kjalnesingasögu og Harðar- sögu og Hólmveija. Svo kemur maður yfir í Borgarfjörð í Egils- sögu og Gunnlaugssögu. Þá talar landið til okkar, segir okkur sífellt sína eigin sögu. Hugsaðu þér til dæmis þegar þú kemur á Þingvöll. Þá lifnar í huga þínum allt sem þar hefur gerst. Segjum svo að þú kæmir á Þingvöll og vissir ekkert. Þetta held ég að _sé ein af skýringum þess hvað íslendingar era fast- bundnir sínu landi. Annað dæmi er þegar verið er að leggja vegi og það er sneytt framhjá álfabyggðum. Þá er ekk- ert aðalatriði hvort álfar em þama til, eða ekki. Aðalatriðið er að þess- ir staðir sem, í hugum fólks em tengdir álfum, em fólkinu einhvers virði og þessvegna er staðnum sýnd sú virðing að leggja lykkju á veginn. Þetta gefur sjálfu landinu íslenskt sálarlíf. Ef við hefðum týnt þessu öllu, væri landið dautt. Við væmm gestir í þessu landi, en ekki hluti af því. Það er þessi stórkostlega þrenn- ing sem Snorri Hjartarson benti á, land — þjóð — tunga, sameining íslendingsins, landsins og tung- unnar, sem er að mínu viti íslensk menning. Til að öðlast þessa upp- lifun verður maður að hafa þessa þekkingu. Sá sem ekki hefur þess- ar goðsagnir og íslendingasögur, þessa þekkingu, fyrir honum lifir ekki landið sama lífi. Þetta ætti að sýna hversu mik- ils virði það er fyrir okkur að rækta þetta, annars týnum við þessu öllu og þá er sannarlega búið að stela frá okkur hamrinum." Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir I § ? 1 8 Samband frá skiptiboröi virka daga frá kl. 8:30-16:30 viö: Aðalskrifstofu, Faxaskála, Miðskála, Borgarskála, Landrekstrardeild og Gámadeild. Eimskip, Sundahöfn. Samband frá skiptiboröi virka daga frá kl. 8-17 við: Vöruafgreiðslu í Sundahöfn og Viðhaldsdeild. Flutningur er okkar fag EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.