Morgunblaðið - 16.06.1987, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
47
'Jla.i /aa/tt / /j///
Prenthúsið:
Nýr bóka-
flokkur um
Kent-ættina
PRENTHÚSIÐ hefur hafið út-
gáfu á nýjum bókaflokki, sem
ber heitið Kent-sagan og er nafn
fyrstu bókarinnar Bastarðurinn.
f frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Kent-sagan er viðburðarík og
spennandi ættarsaga. Kent-ættin
upphófst úr sárustu fátækt í
Frakklandi til velgengni og auðs í
Bandaríkjunum. Saga ættarinnar
segir frá fjölskyldu í styrjöldum og
friði, í ást og hatri. Einkenni fólks-
ins af þessari ætt eru hetjulund,
föðurlandsást, ákefð og dugur og
óbilandi trú á eigin getu.
Fyrsta bókin, Bastarðurinn, fjall-
ar um Phillip Charboneau. Hann
uppgötvar að hann er launsonur
ensks hertoga og fer ásamt móður
sinni frá Frakklandi til Englands
að hitta föður sinn og fá staðfest-
ingu á því að hann erfi helming
eigna hertogans að honum látnum."
Höfundur bókanna er Banda-
ríkjamaðurinn John Jakes. Hann
er með MA-próf í bókmenntum frá
Ohio-háskóla og hefur skrifað um
200 smærri skáldsögur og 50 stærri
skáldverk og hlotið ýmis verðlaun
og viðurkenningar.
Hvar þarftu
að dæla?
Hverju þarftu
að dæla?
Fjölbreyttar, öflug-
ar dælur til flestra
verka.
Réttu dælurnar frá
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Danskar revíuvísur
í Norræna húsinu
REVÍUKVÖLD verður í Nor-
ræna húsinu þriðjudagskvöldið
16. júní kl. 21.00, þar sem fluttar
verða danskar revíuvísur frá 3.,
4. og 5. áratugnum.
Þetta eru einkum vísur, sem hin
þekkta revíustjama, Liva Weel,
gerði frægar, en höfundur flestra
þeirra Poul Henningsen, en hann
er ef til vill betur þekktur hér sem
hönnuður PH-lampans.
Það eru nemendur í dönsku við
Háskóla íslands sem standa að
þessu revíukvöldi undir stjóm
danska sendikennarans Lisu von
Schmalensee, en hún hefur sett
saman dagskrána og stjórnar flutn-
ingi.
Flytjendur em Jóna Ingólfsdóttir,
Brynja Runólfsdóttir og Ríkharður
Hördal, en Skarphéðinn Kjartans-
son leikur undir á píanó.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Standast innborganir
og útborganir ekki á
í fasteignaviðskiptum?
Látiö okkur aöstoöa ykkur viö að brúa bilið
hvort sem þið þurfið á fjármagni að halda
eða að ávaxta fé.
Hjá okkur fáið þið faglega og
persónulega ráðgjöf.
VERÐBRÉFAUmSKIPTI
SAMUINNUBANKANS
Bankastræti 7 — Simi: 20700.
■■■■■■■■■HNMNaWHMHMÍ
k£t\Íl£áÍR
iHUL^
’S&mœsmssmmsst
R€h/Ni/Á<>
m--
Á
«*****rm.
SUMARSKÓR
Nýir litir - nýtt útlit