Morgunblaðið - 16.06.1987, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
49
Góðæri framundan?
eða leikur að hundraðstölum
eftír Ingis Ingason
Á undanfömum vikum og mán-
uðum hefur þjóðin og þjónar
hennar, þingmenn og konur, reynt
að komast að því, hvar meint góð-
æri, sem sagt er að hafi numið hér
land — a.m.k. um stundarsakir —
hafi hafnað. Ýmsir eru sagðir hafa
notið gestrisni þess, en fæstir viljað
við það kannast. Ýmsir launþega-
hópar eru sagðir hafa breitt út
faðminn móti því, en kveðast þó
eigi hafa notið atlota þess enn sem
komið er.
Nú er hins vegar ljóst orðið,
hveijir ætla sér að hremma meint
góðæri. Það er fámennur hópur
fólks, sem kallar sig leiðsögumenn
og er þess albúinn — ef marka má
fréttir — að hrifsa til sín góðærið
í heild sinni og freista þess að troða
því í sína eigin vasa. Eða hvað á
maður að halda, þegar (lög)fróðir
menn koma fyrir alþjóð og tjá
henni, að þessi lýður kreQist um
70% launahækkunar, þegar aðrir
láta sér nægja 20—25% hækkun?
En lítum nú aðeins nánar á málið.
Hið framandi tákn %, sem sagt
er tákna af hundraði, sé það umrit-
að á tungu feðranna, hefur undar-
lega náttúru. Það hækkar lágar
tekjur lítið en háar mikið. Um þetta
mun ekki deilt.
Félag leiðsögumanna samdi hinn
12. maí 1986 við Félag ísl. ferða-
skrifstofa, Kynnisferðir sf. og
Ferðaskrifstofu ríkisins um kaup
og kjör fram til 1. jan. 1987. Það
væri að æra óstöðugan að sefja
þann samning allan hér á prent,
en rétt þykir þó að nefna hér krónu-
tölu þeirra mánaðarlauna, sem um
var samið. Launaflokkar voru 4 og
skyldu menn raðast í þá eftir áður
samþykktu punktakerfi, sem
grundvallaðist nær eingöngu á
starfsaldri. Mánaðarlaunin skyldu
vera sem hér segir:
I. flokkur kr. 22.822,-
II. flokkur kr. 23.963,-
III. flokkur kr. 25.161,-
IV. flokkur kr. 26.419,-
Ofan á þessa umsömdu grunn-
kaupstaxta skyldi reikna orlof;
— 10,17% á 3 fyrstu flokkana en
11,59% á þann 4.
Nú má hveijum bamaskóla-
gengnum lesanda ljóst vera, að 50%
FRA JAPAN
Erum mcö á lagcr flestar stærðir af kúlulegum
frájapanska fyrirtækinu Nachi.
Höfum einnig hjóla- og kúplingslegur í margar
gerðir japanskra bíla.
Mjög hagstætt verð.
JÖTUIMIVf
HÚFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SfMI. 685656 og 84530
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
hækkun á þessa grunnkaupstaxta
mundu gefa frá kr. 34.233—
39.629. Slík laun flokkast víst ekki
undir hálaun í góðærinu margum-
rædda. 70% hækkun mundi á sama
hátt hleypa taxtanum upp í kr.
38.797-44.912.
Það er auðvitað hvers og eins
að meta, hvort áðumefnd mánaðar-
laun em geðveikislega há eða ekki.
Ef til vill þykir ekki óeðlilegt að
tekið sé mið af aðbúnaði, vinnuað-
stæðum og jafnvel ábyrgð leiðsögu-
manna í starfí.
I öllum langferðum þarf leiðsögu-
maðurinn að dvelja fjarri heimili
sínu líkt og sjómaðurinn. Hann þarf
ætíð að vera til taks og bera ábyrgð
á öllum ferðahópnum líkt og skip-
stjóri á áhöfn sinni. í tjaldferðum
býr hann að sjálfsögðu í tjaldi,
hvemig sem viðrar.
Undirritaður brá sér í vikutíma
á humarbát vorið 1983. Hásetahlut-
ur úr þeim túr var rúmar 20.000
kr. Síðan em liðin 4 verðbólgin ár.
Það skal því engan undra, þótt
hann fýsi fremur að ráða sig á sumri
komanda hjá einhveijum útgerðar-
manninum, en einhverri ferðaskrif-
stofunni upp á þau kjör, sem í boði
em.
Höfundur er leiðsögumaður og í
iaunanefnd Félags leiðsögu-
Tilkynning um skuldabréfaútboð og samning um útboðstryggingu.
Lysing hf.
Skuldabréfaútboð
kr. 100.000.000,00
- krónur eitthundrað milljónir -
Útgáfudagur 15. júní 1987
3 ára eingreiðslubréf
Ávöxtunarkrafa 10,8%
Bréfin verða skráð á verðbréfaþingi íslands.
Aðalsöluaðilar eru Landsbanki íslands og Búnaðarbanki íslands,
Útboðstrygging
Lýsing hf. hefur gert samning við
Landsbanka íslands og Búnaðarbanka íslands
um að þeir í sameiningu tryggi að fullu sölu bréfanna í upphafi.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
BDNAÐARBANKl
ÍSIANDS