Morgunblaðið - 16.06.1987, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 16.06.1987, Qupperneq 62
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987 62 - .i SJOMANNADA GURINN Morgunblaðið/Sverrir Félagar í björgunarsveitinni Ingólfi og Landhelgisgæslan sýndu list- ir sinar á höfninni. Pétur Sigurðsson, formaður Sjó- mannadagsráðs heiðraði aldraða sjómenn. Talið frá vinstri: Pétur Sig- urðsson, Ólafur Tr. Finnbogason, stýrimaður, Ágúst Nathanaelsson, vélsljóri, Halldór Pétursson, háseti, og Guðmundur Árni Thorlacius, lestunarmaður. V estmannaeyjar: Mikil þátttaka í hátíðarhöldum HÁTÍÐARHÖLD sjómannadagsins fóru fram með hefðbundnum hætti bæði laugardag og sunnudag. Gott veður var um helgina og þátttaka bæjarbúa í hátíðarhöldunum var mikil. Keppt var í hefð- bundnum íþróttum sjómannadagsins, sjómenn voru heiðraðir og dansað fram í morgunsárið. Allar fleytur voru í landi enda löng hefð fyrir því í Eyjum að skip séu í landi þennan dag. Á laugardag var keppt í kapp- róðri, reiptogi, stakkasundi, kodda- slag og tunnuhlaupi í Friðarhöfn og eyjapeyjar sýndu listir sínar í þeirri þjóðlegu íþrótt sprangi. Um kvöldið voru síðan fjölsóttir dans- leikir í fjórum samkomuhúsum. Á sunnudaginn var farin skrúð- ganga frá Stakkagerðistúni að Landakirkju þar sem séra Kjartan Öm Sigurbjömsson flutti sjó- mannamessu. Eftir messu var athöfn við minnisvarða hrapaðra og dmkknaðra á kirkjulóðinni. Eng- inn sjómaður fórst við Eyjar frá síðasta sjómannadegi. Það var Ein- ar J. Gíslason sem annaðist um þessa hefðbundnu athöfn. Síðdegis var útiskemmtun á Stakkagerðistúni. Sigurður Einars- son útgerðarmaður flutti ræðu dagsins og tveir sjómenn voru heiðraðir fyrir langt og heilladijúgt starf á sjónum. Það voru þeir Will- um Andersen skipstjóri og Theódór Ólafsson vélstjóri. Áhöfnin á Sigur- fara VE og Jóhannes Kristinsson hlutu viðurkenningar fyrir björgun- arafrek. Verðlaun vom veitt til sigurvegara úr keppnum laugar- dagsins. Um kvöldið var skemmtun í Sam- Reykjavík: Um 5000 manns tóku þátt í hátíðarhöldumim „Hátíðahöldin í Reykjavík á Sjómannadeginum voru með hefð- bundnu sniði og gengu ágætlega fyrir sig, ég gæti trúað að um 5000 manns hafi safnast þarna saman á hafnarsvæðinu", sagði Guð- mundur Halivarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur við Morgunblaðið. „í tilefni af hálfrar aldar afmæli Hafrannsóknarstofnunar var Reyk- víkingum gefinn kostur á að fara í skemmtisiglingu um sundin í Reykjavík með rannsóknarskipun- um Bjama Sæmundssyni og Áma Friðrikssyni og mæltist það mjög vel fyrir. Ég gæti trúað að hátt í tvö þúsund manns hafi nýtt sér þetta tækifæri og farið í skemmti- siglingu. — * Einnig vakti koddaslagurinn á Akraborgarbryggjunni, sem strák- ar úr Björgunarsveitinni Ingólfí sáu um, mikla athygli. Einnig var keppt til úrslita í kappróðri á Reykjavíkur- höfn, en forkeppni var haldinn sl. laugardag. I karlaflokki bar Sendi- bílastöðin sigur úr býtum en í kvennaflokki stúlkumar úr Emm- essísgerðinni. Meðferð björgunartækja var sýnd af félögum úr björgunarsveit- inni Ingólfi í Reykjavík og tóku þeir þátt í sýningu ásamt Land- helgisgæslunni. Menn dáðust mjög að samspili slysavarnarmanna og Landhelgisgæslunnar en meðal þess sem þeir sýndu áhorfendum var að hífa sjúkrakörfu upp í þyrlu og voru bæði þyrlan og báturinn á allnokkurri ferð“. Að venju voru flutt ávörp og var fulltrúi ríkisstjómarinnar Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra, fulltrúi útgerðarmanna, Ingvar Hólmgeirsson, útgerðarmaður frá Húsavík, fulltrúi sjómanna Ólafur Þór Ragnarsson, frá Sjómannafél- agi Reykjavíkur, og Pétur Sigurðs- son, formaður Sjómannadagsráðs, heiðraði aldraða sjómenn með heið- ursmerki Sjómannadagsins. Koddaslagurinn á Akraborgarbryggjunni var liklega það sem vakti hvað mesta kátínu áhorfenda, eins og gefur kannski að skilja af þessari mynd. „Ég mundi hiklaust segja að 300 erum við frekar ánægð með árang- manns hafi komið við sögu í dag- urinn, þó að við höfum kannski skránni á Sjómannadeginum og ekki verið nógu heppin með veður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.