Morgunblaðið - 16.06.1987, Qupperneq 63
L
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987
63
Morgunblaðið/Sigurgeir
Mikill mannfj öldi tók þátt
í hátíðarhöldum dagsins.
komuhúsinu. Þar var verðlaunum
og blómum hlaðið á aflakónga og
skipshafnir þeirra. Sigutjón Óskars-
son, skipstjóri á Þórunni Sveins-
dóttur VE, var krýndur Aflakóngur
vertíðarinnar í 10. sinn. Enginn
annar skipstjóri í Eyjum hefur oftar
unnið til silfurskipsins eftirsótta
sem þessu sæmdarheiti fylgir. Þess
vegna var Siguijón heiðraður sér-
staklega af Sjómannadagsráði, svo
og þeir Matthías Sveinsson vélstjóri
og Ægir Sigurðsson matsveinn,
sem hafa verið með Siguijóni öll
þessi ár. Þeir hlutu og allir viður-
kenningu frá útgerð bátsins.
Guðmundur I. Guðmundsson,
skipstjóri á Hugin VE, var krýndur
Piskikóngur Vestmannaeyja en
hann var með mesta aflaverðmæti
báta árið 1986. Logi S. Jónsson,
skipstjóri á Smáey VE, fékk verð-
laun fyrir mestan afla togbáta og
Hermann Kristjánsson, sem ásamt
Sævari Brynjólfssyni er við stjóín-
völinn á aflaskipinu Breka VE, tók
við verðlaunum sem þeir Breka-
menn fengu fyrir mestan afla
togara 1986.
Það var Einar J. Gíslason sem
afhenti öll þessi verðlaun eins og
honum er einum lagið. Þetta var
30. sjómannadagurinn sem Einar
hefur þetta ánægjulega starf á
hendi og í tilefni þess var honum
færð vegleg viðurkenning frá Sjó-
mannadagsráði.
Margir góðir skemmtikraftar
komu fram á skemmtuninni, m.a.
Ómar Ragnarsson, Ragnar Bjama-
son og Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt
undirleikurum. Þau voru öll selflutt
til Eyja frá Stokkseyri á litlum hrað-
fiskibáti þar sem ekki viðraði til
flugs. Hátíðarhöldunum lauk síðan
með dansleikjum.
-hkj.
Keflavík:
isgæslunnar heiðruð
Keflavík.
SJÓMANNADAGURINN var
haldinn hátíðlegur í Keflavík á
sunnudaginn. Hápunktur hátíð-
arhaldanna var þegar þyrla
Landhelgisgæslunnar lenti við
höfnina og áhöfn hennar heiðruð
fyrir frækilega björgun skip-
veija á Barðanum GK sem
strandaði á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi þann 14. mars sl. Áhöfn
þyrlunnar var afhent gjafabréf
fyrir „hjartamonitor" frá Skip-
stjóra- og stýrimannafélaginu
Vísi og Eðvald Eðvaldsson skip-
stjóra Barðans GK þakkaði
björgunarmönnum og færði
þeim að gjöf fjörugijót með
áletrun frá skipshöfn Barðans
GK 475.
Kristján Ingibergsson skipstjóri
og formaður Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Vísis afhenti áhöfn
þyrlu Landhelgisgæslunnar gjafa-
bréfið að upphæð 330 þúsund
krónur og upplýsti að þessari upp-
hæð hefðu félagsmenn safnað á
aðeins 14 tímum. Að þessu loknu
sýndu landhelgisgæslumenn björg-
un úr sjó og af skipi áður en þeir
héldu á braut.
Dagurinn hófst með sjómanna-
messu í Keflavíkurkirkju og um
hádegisbilið var farið í skemmtisigl-
ingu með bæjarbúa á nokkrum
bátum og eftir að Karl Steinar
Guðnason, formaður Sjómanna- og
verkalýðsfélags Suðumesja, hafði
flutt ávarp hófust hátíðarhöldin við
höfnina. Að venju voru sjómenn
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Áhöfn landhelgisgæsluþyrlunnar ásamt Eðvaldi Eðvaldssyni skip-
stjóra, Bergþóri Ingibergssyni stýrimanni á Barðanum og Kristjáni
Ingibergssyni formanni skipstjóra- og styrimannafélagsins Vísis. í
áhöfn þyrlunnar eru talið frá vinstri: Oskar Einarsson læknir, Sigurð-
ur Egilsson flugmaður, Sigurður Steinar Ketilsson stýrimaður, Bogi
Agnarsson flugmaður og Benóný Ásgrímsson flugstjóri.
Skipshöfnin á Happasæl KE sigraði í tveim greinum, reiptogi og
kappróðri.
Synir aflakóngs Keflavíkur Odds
Sæmundssonar skipstjóra á Staf-
nesi KE tóku við aflakóngsbik-
amum fyrir hönd föður síns sem
staddur er erlendis. Oddur og
skipshöfn hans á Stafnesi KE
fiskuðu 929,5 tonn' á netaver-
tíðinni frá áramótum.
heiðraðir og að þessu sinni voru það
þijár aldnar kempur semm tóku við
heiðursmerkjum sjómannadagsins,
Guðjón Jóhannsson, Magnús Karls-
son og Þórður Kristinsson. Skip-
veijar á Happasæl voru sigurvegar-
ar í kappróðrinum og í reiptoginu
og einn úr áhöfninni, Hallgrímur
Rúnarsson, tók þátt í flestum grein-
unum og hlaut sérstaka viðurkenn-
ingu.
Jóhann Björnsson var úrskurðað-
ur sigurvegari í stakkasundinu en
hann og Eðvarð Þór Eðvarðsson,
sundmaðurinn kunni, háðu harða
baráttu um fyrsta sætið. Þriðji varð
Karl Óskarsson.
Þrátt fyrir að sjómannadagurinn
sé lögbundinn voru 15 fiskiskip frá
Keflavík og Njarðvík á sjó að þessu ~
sinni.
- BB
Listamaðurinn Karl Lagerfeld hefur í samvinnu við CHLOÉ-safnið í Paris hannað þessi
gullfallegu matar- og kaflistell ..Kalablómið‘‘sem Hutschenreuther framleiðir úrpostulíni
af bestu gerð.
silfurbuðin
Laugavegi 55, Reykjavík Sími 11066