Morgunblaðið - 07.07.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 1987
Látúnsbarkar
Eg hef lítt stundað eltingarleik
við málvillur þeirra er koma
fram í ljósvakamiðlunum en ég get
ekki stillt mig um að minnast á
málfar ónefnds stórforstjóra er
mætti í viðtalsþátt á Stjörnunni
síðastliðinn sunnudag. Fyrst hélt
ég að maður þessi væri útlendingur
en ekki benti nú neitt til þess er
leið á spjallið. Málfar þessa stórfor-
stjóra leiðir hugann að því hversu
mikilvæg íslenskukennslan er í
skólakerfi voru. Þar má hvergi
slaka á þótt hinar svokölluðu raun-
greinar og hverskyns viðskipta-
greinar njóti nú mestra vinsælda.
Minnumst þess að hinir kínversku
mandarínar urðu að kunna skil á
skrautskrift og skáldskap ekki síður
en talnaþrautum þegar þeir sóttu
um hin háu embætti.
Látúnsbarkar
Persónulega hafði ég ekki síðri
skemmtan af látúnsbarkaævintýri
þeirra Stuðmanna í Tívolíinu í
Hveragerði en Eurovision þótt
Stuðmenn hafi máski mátt sleppa
því að auglýsa svo grimmt Tívolíið
og Eden. Var virkilega ekki hægt
að vista þátttakendur víðar í milli-
spili en í Tívolíinu? Var ekki gervallt
Suðurlandsundirlendið kjörið leik-
svið með sínum fögru hótelum og
stórbýlum, að ekki sé talað um
söguslóðirnar margfrægu? Þá
fannst mér Jakob þulur fremur
ósmekklega búinn drengurinn, en
prýðilega harðmæltur og vakti at-
hygli mína hversu gott vald hann
hafði á p, t, k í innstöðu á eftir
langa sérhljóðinu. Stjómaði Jakob
keppninni um Hofsósalátúnsbark-
ann af mikilli festu og öryggi.
Sigurvegarinn frá höfuðstað ís-
lensk/anglósaxneska poppsins,
matrósadrengurinn frá Keflavík var
vel að sigrinum kominn, þótt undir-
ritaður hafi náttúrulega staðið með
sínu kísilmálmverksmiðjukjördæmi.
Danski fjöllistamaðurinn vakti og
mikla spennu á mínu heimili er
hann mundaði korðann með munn-
inum og ekki skemmdi íturvaxinn
aðstoðarmaðurinn. Hin beina út-
sending ríkissjónvarpsins smaug
sum sé „beint í æð“ eins og sagt er
á gullaldaríslensku hinni nýju. Og
ekki má gleyma dráttlistarmannin-
um, Haraldi, er gladdi látúnsbarka-
keppenduma með listilegum
grínmyndum rissuðum á augna-
bliki. Og svo var það Möðrudalsjak-
inn er söng aldeilis prýðilega og
hefði ég gjaman viljað sjá þennan
hrausta Austfirðing þreyta aflraun-
ir. Hin ágætasta skemmtun þrátt
fyrir koksýninguna ónotalegu og
fátæklegan klæðnað hljómsveitar-
meðlima og svo var Valgeir Belgíu-
fari fjarri góðu gamni en hann sendi
skeyti frá Borgarspítalanum er
benti til þolanlegrar heilsu.
ÞríeykiÖ
Að aflokinni hinni ágætu látúns-
barkakeppni í Hveragerði brugðu
ríkissjónvarpsmenn á leik og
smeygðu inní dagskrána viðtali
tveggja fréttamanna við oddvita
hinnar nýbökuðu ríkissjórnar
islenska lýðveldisins. Fannst mér
heldur dauft yfir Þorsteini forsætis-
ráðherra og þá enn frekar
Steingrími utanríkisráðherra en Jón
Baldvin íjármálaráðherra lék á als
oddi enda tókst honum á elleftu
stundu að nappa því háa embætti
frá fjármálakandídatinum marg-
nefnda. Já, það er órætt refskák-
borð stjómmálanna þvi einsog hann
Steingrímur blessaður sagði: Það
er kraftaverk ef okkur tekst að
framkvæma öll ákvæði þessa mál-
efnasamnings! Sem fjölmiðlarýnir
vona ég nú bara að ákvæðið er lýt-
ur að eflingu innlendrar dagskrár
ijósvakamiðlanna nái fram að
ganga. Síðastliðið sunnudagskveld
sannaði ríkissjónvarpið gildi slíkrar
menningarstefnu enda var þar
venju fremur vandað til verka.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Stjarnan:
Sá hlær best
■■■ Á miðnætti í
Rás 1:
Glugginn
00 kvöld fær tón-
—" listin hvíld í
nokkrar mínútur á Stjöm-
unni. Þá ætlar Jóhann
Sigurðarson leikari að lesa
söguna Sá hlær best eftir
Larry Powell í þýðingu
Gylfa Gröndal. Sagan fjall-
ar um til hvaða ráða
grindhoraður bókhaldari
tekur þegar hann er laminn
til óbóta eftir að hafa lent
í árekstri á mesta annatí-
manum í augsýn allra.
Gylfi Gröndal
þýðandi
sögunnar.
■i í sumarbyrjun
30 kom út bók í
Svíþjóð sem
vakið hefur mikið umtal.
Alva — ævi konu, heitir
hún og er minningarrit um
Ölvu Myrdal, skrifað af
dóttur hennar. Bókin hlýt-
ur að skoðast sem varnarrit
fýrir Ölvu en fáum árum
fyrir dauða hennar lýsti
sonur hennar, rithöfundur-
inn Jan Myrdal, henni afar
illa. í þættinum Glugga-
num í kvöld á rás 1 ætlar
Steinunn Jóhannesdóttir að
fjalla um bækur beggja
systkinanna og rekja ævi-
feril Ölvu og Gunnars
Myrdal í stórum dráttum.
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR «
7. júlí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktín — Hjördis
Finnbogadóttir og Óðinn
Jónsson. Fréttir eru sagðar
kl. 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Fréttayfirlit kl. 7.30 og
síðan lesiö úr forustugrein-
um dagblaðanna. Tilkynn-
ingar lesnar kl. 7.25, 7.55
og 8.25. Guðmundur Sæ-
mundsson talar um daglegt
mál kl. 7.20. Fréttir á ensku
sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Dýrin í Bratthálsi”
saga með söngvum eftir
Ingebrigt Davik. Kristján frá
Djúpalæk þýddi. Heiðdis
Norðfjörð les (2).
9.20 Morguntrimm. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Ég man þá tið. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson. (Þátt-
urinn verður endurtekinn að
loknum fréttum á miðnætti.)
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Breyt-
ingaaldurinn, breyting til
batnaðar. Umsjón: Helga
Thorberg.
14.00 Miödegissagan: „Franz
Liszt, örlög hans og ástir"
eftir Zolt van Hársány. Jó-
hann Gunnar Ólafsson
þýddi. Ragnhildur Stein-
grimsdóttir les (16).
14.30 Óperettutónlist.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Afríka — Móðir tveggja
heima. Sjötti þáttur. Um-
sjón: Jón Gunnar Grjetars-
son. (Endurtekinn þáttur frá
sunnudagskvöldi.)
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síödegistónleikar.
17.40 Torgið
Umsjón: Þorgeir Ólafsson
og Anna M. Sigurðardóttir.
18.00 Fréttir. Tílkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Ðaglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Guð-
mundur Sæmundsson
flytur.
Glugginn — Úr sænsku
menningarlífi. Umsjón:
Steinunn Jóhannesdóttir.
20.00 Hljómsveitarsvitur
a. Dansar frá Kasské eftir
Leos Janacek. Fílharmoniu-
sveitin í Brno leikur: Jiri
Waldhaus stjórnar.
b. „Töfrasproti æskunnar",
svita nr. 2 eftir Edward Elg-
ar. Fílharrnoníusveit Lund-
úna leikur; Sir Adrian Boult
stjórnar.
20.40 Réttarstaða og félags-
leg þjónusta. Umsjón:
Hjördís Hjartardóttir. (End-
urtekinn þáttur frá deginum
áður.)
21.10 Barokktónlist
21.30 Útvarpssagan: „Leikur
blær að laufi'' eftir Guð-
mund L. Friöfinnsson.
Höfundur les (21).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Leikrit: „Brot úr sek-
úndu" eftir Dennis Mcln-
tyre. Þýðandi: Birgir
Sigurðsson. Leikstjóri: Stef-
án Baldursson. Leikendur:
Sigurður Skúlason, Valdi-
mar Örn Flygenring, Pálmi
Gestsson, Tinna Gunn-
laugsdóttir, Róbert Arn-
finnsson og Helgi
Björnsson. (Endurtekið frá
fimmtudagskvöldi.)
23.45 islensk tónlist.
Pianókonsert eftir Jón Nor-
dal. Gísli Magnússon og
Sinfóníuhljómsveit íslands
leika; Páll P. Pálsson stjórn-
ar.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
Umsjón. Þórarínn Stefáns-
son. (Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
01.00 Veðurfregnir.
SJÓNVARP
Næturútvarp á samtengd-
um rásum til morguns.
ÞRIÐJUDAGUR
7. júlí
00.10 Næturvakt útvarpsins,
Magnús Einarsson stendur
vaktina.
6.00 I bitiö. — Snorri Már
Skúlason.
Fréttir á ensku sagðar kl.
8.30.
9.05 Morgunútvarp rásar 2.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Umsjón:
Leifur Hauksson og Gunnar
Svanbergsson.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og Erla
B. Skúladóttir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tekið á rás. Ingólfur
Hannesson og Samúel Örn
Erlingsson lýsa leik Vals og
KR í 1. deild íslandsmótsins
í knattspyrnu karla á Val-
svelli.
22.05 Háttalag. Umsjón:
Gunnar Salvarsson.
00.10 Næturvakt útvarpsins.
Gunnlaugur Sigfússon
stendur vaktina til morguns.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
6>
ÞRIÐJUDAGUR
7. júlí
18.30 Villi spæta og vinir
hans. 25. þáttur. Banda-
rískur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Ragnar Ólafsson.
18.55 Unglingarnir i hverfinu.
Sjötti þátfur. Kanadískur
myndaflokkur i þrettán þátt-
um. Þýðandi Gunnar Þor-
steinsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn. Umsjón:
Guðmundur Bjarni Harðar-
son og Ragnar Halldórsson.
Samsetning: Jón Egill Berg-
þórsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Bergerac. Breskur
sakamálamyndaflokkur i tiu
þáttum. Þriðji þáttur í nýrri
syrpu um Bergerac rann-
sóknarlögreglumann á
Ermarsundseyjum. Þýðandi
Trausti Júliusson.
21.35 Saga tískunnar. (Story
'of Fashion.) Annar þáttur.
Breskur heimildamynda-
flokkur í þremur þáttum um
sögu þess minningarfyrir-
bæris sem tiska nefnist. í
öörum þætti er fjallaö um
tískusviptingar á á.unum
1920 til 1950. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir. Þulur Björg
Jónsdóttir.
22.35 Leyniþræöir. (Secret
Society). Þriðji og fjórði þátt-
ur umdeilds, bresks heim-
iidamyndaflokks. Þýðandi
Bogi Arnar Finnbogason.
23.35 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
7. júlí
§ 16.45 Uppreisn Hadleys
(Hadley's rebellion).
Bandarísk sjónvarpsmynd
með Griffin O’Neal, Charles
Durning, William Devane og
Adam Baldwin í aðalhlut-
verkum. Leikstjóri er Fred
Walton. Sextán ára sveita-
strákur fer i úrvalsskóla fína
og ríka fólksins. Þar lendir
hann fljótt utangátta en
hann trúir því statt og stöð-
ugt að hann geti nýtt
afburða íþróttahæfileika
sína til að sigra heiminn.
18.20 Knattspyrna
— SL-mótið — 1. deild.
Umsjón: Heimir Karlsson.
19.30 Fréttir.
20.00 Miklabraut (Highway
to Heaven). Bandarískur
framhaldsþáttur meö Mich-
ael Landon og Victor
French i aðalhlutverkum.
Jákvætt viðhorf og bjartsýni
eru aðalsmerki Jonathans
Smith á ferðum hans um
heiminn.
§ 20.50 Betra seint en aldrei
(Long time gone). Bandarísk
sjónvarpsmynd með Paul
Le Mat, Will Wheaton og
Ann Dusenberry í aðalhlut-
verkum. Leikstjóri er Robert
Butler. Nick yfirgaf konu
sina og tveggja ára son til
þess að lifa hinu Ijúfa lífi.
Þegar fyrrverandi eiginkonu
hans býðst starf í Miðaust-
urlöndum, kemur það i hans
hlut að sjá um soninn. Þeir
lenda í ýmsum ævintýrum
sem verða til þess að styrkja
samband þeirra.
§ 22.20 Oswald réttarhöldin
(The Trial of Lee Harvey
Oswald). Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur í 5
hlutum. 2. þáttur. Menn
voru felmtri slegnir og í
miklu uppnámi þann 22.
nóvember 1963, en þá var
John F. Kennedy, forseti
Bandaríkjanna, myrtur. Lee
Harvey Óswald var grunað-
ur um moröiö, en aldrei var
hægt að sanna eða afsanna
sekt hans, þar sem hann
var sjálfur myrtur á leið til
réttarins. I þessum þáttum
eru réttarhöldin sett á svið,
kviödómur skipaður og í lok
kveðinn upp dómur yfir Lee
Harvey Oswald.
§ 23.25 Tískuþáttur. Umsjón:
Anna Kristín Bjarnadóttir.
§ 00.05 Skuggalegt samstarf
(The silent partner).
Kanadísk mynd frá 1978
með Elliot Gould, Christop-
her Plummer og Susannah
York i aðalhlutverkum. Leik-
stjóri er Daryl Duke. Maður
nokkur gerir sig liklegan til
að ræna banka. En yfirgjald-
keri bankans deyr ekki
ráöalaus og ákveður að
stinga vænni fúlgu undan
sjálfur. Myndin er gerð eftir
sögu Anders Bodelsen.
§ 1.50. Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
7. júlí
07.00—09.00 Pétur Steinn og
morgunbylgjan. Pétur kem-
ur okkur réttu megin framúr
með tilheyrandi tónlist og
lítur yfir blöðin. Isskápur
dagsins?
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir á léttum nótum.
Sumarpopp allsráöandi, af-
mæliskveðjur og spjall til
hádegis. Litið inn hjá fjöl-
skyldunni á Brávallagötu
92. Fréttir kl. 10.00 og
11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Þor-
steinn spjallar við fólkiö sem
ekki er í fréttum og leikur
létta hádegistónlist. Fréttir
kl. 13.00.
14.00—17.00 Ásgeir Tómas-
son og síðdegispoppið.
Gömlu uppáhaldslögin og
vinsældalistapopp í réttum
hlutföllum.
Fréttir kl. 14.00, 15.00,
16.00.
17.00-19.00 Hallgrimur
Thorsteinsson í Reykjavík
siðdegis. Leikin tónlist, litið
yfir fréttirnar og spjallað við
fólkiö sem kemur við sögu.
ísskápur dagsins endurtek-
inn.
Fréttir kl. 17.00.
18.00-18.10 Fréttir.
19.00-21.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaöi
Bylgjunnar. Flóamarkaður
milli kl. 19.03 og 19.30.
Tónlist til kl. 21.00.
Fréttir kl. 19.00.
21.00—24.00 Sumarkvöld á
Bylgjunni með Þorsteini Ás-
geirssyni.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar — Bjarni Ólafur
Guðmundsson. Tónlist og
upplýsingar um veður og
flugsamgöngur.
ÞRIÐJUDAGUR
7. júlí
7.00— 9.00 Inger Anna Aik-
man. Morgunstund gefur
gull i mund og Ingerervökn-
uð fyrir allar aldir með
þægilega tónlist, létt spjall
og viðmælendur koma og
fara.
Stjörnufréttir kl. 8.30. Fréttir
einnig á hálfa tímanum.
9.00—12.00 Gunnlaugur
Helgason fer með gaman-
mál, gluggar í stjörnufræðin
og bregður á leik með hlust-
endum.
Stjörnufréttir kl. 11.55.
Fréttir einnig á hálfa timan-
um.
12.00—13.00 Pia Hansson at-
hugar hvað er að gerast á
hlustunarsvæði Stjörnunn-
ar, umferöarmál, íþróttir og
tómstundir og einnig kynn-
ing á einhverri íþróttagrein.
13.00—16.00 Helgi Rúnar
Óskarsson. Gamalt og gott
leíkið af fingrum fram með
hæfilegri blöndu af nýrri tón-
list.
16.00—19.00 Bjarni Dagur
Jónsson. Verðlaunaget-
raunin er á sinum stað milli
klukkan 5 og 6, siminn er
681900.
Stjörnufréttir kl. 17.30.
19.00—20.00 Stjörnutiminn.
The Shadows, Fats Dom-
ino, Buddy Holly, Brenda
Lee, Little Eva, Connie
Francis, Sam Cooke, Neil
Sedaka, Paul Anka.
20.00-21.00 Helgi Rúnar
Óskarsson. Stjörnuspil,
Helgi litur yfir spánýjan vin-
sældarlista frá Bretlandi og
leikur lög af honum.
21.00—23.00 Árni Magnús-
son sér um tónlistarþátt.
Stjörnufréttir kl. 23.00.
23.10—24.00 íslenskir tónlist-
armenn. Hinir ýmsu tónlist-
armenn (og konur) leika
lausum hala í einn tíma með
uppáhaldsplöturnar sínar. í
kvöld: Magnús Kjartansson.
00.00—00.15 Kvennabósinn,
eftir Lawrence E. Orin. Þetta
er spennandi saga fyrir
svefninn. Jóhann Sigurðar-
son leikari les.
00.15— 7.00 Gísli Sveinn
Loftsson (Áslákur.) Stjörnu-
vaktin hafin . . . Ljúf tónlist,
hröð tónlist.
ALFA
K/Utlkf tNtrnrtll.
FM 102,9
ÞRIÐJUDAGUR
7. júlí
8.00 Morgunstund: (
orð og bæn.
8.15 Tónlist.
12.00 Hlé.
13.00 Tónlistarþáttur
lestri úr Ritningunni.
16.00 Dagskrárlok.