Morgunblaðið - 09.07.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.07.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1987 Björn íbala Reuter PANDABIRNAN Rong Rong er nú stödd í hol- lenskum dýragarði til að safna fé til styrktar samtökum, sem hafa að markmiði að bjarga bræðrum hennar og systrum af Panda-kyni frá útrýmingu. Þrátt fyrir að gegna störfum fyrir svo háleitan málstað lét Rong Rong virðuleikann lönd og leið í sumarhitanum í Hollandi í gær og fékk sér sæti í vatnsdallinum sínum til að kæla sig. Amnesty International: Mannréttinda- brot í Rúmeníu London. Reuter. STJÓRNVÖLD í Rúmeníu hafa ítrekað gert sig sek um brot á mannréttindum, að því er fram kemur í skýrslu samtakanna, Amnesty International, er út kom í London á þriðjudag. Sendi- ráð Rúmeníu þar í borg vildi ekki segja neitt um málið við fréttamenn. I skýrslunni segir að sérstaklega sé um að ræða brot á rétti manna til að tjá skoðanir sínar, ferðast úr landi, fá réttláta málsmeðferð fyrir dómstólum og það að sæta ekki pyntingum eða annarri illri og auð- mýkjandi meðferð af hálfu opin- berra aðila. Nefnd eru fjölmörg dæmi um brot á þessum mannrétt- indum og nöfn þolenda tilgreind. Nicolae Ceausescu, leiðtogi rúm- enska kommúnistaflokksins, hefur stjórnað landinu sem einvaldur síðan 1965. Hann hefur um langt skeið haft það orð á sér að vera hvað harðastur í hom að taka aust- ur-evrópskra stjórnarherra, þegar um er að ræða viðbrögð við andófi heima fyrir. Sovétríkin: Andófsmenn setja á stofn umræðuhópinn „Glasnost" Moskvu, Reuter. í fyrradag stofnuðu nokkrir sov- éskir andófsmenn, flestir nýkomnir úr fangelsi eða vinnu- búðum, umræðuhóp er þeir kalla „Glasnost". Á fyrsta fundi hóps- ins var þess krafist að lög, sem leyfa að pólitískir fangar séu hafðir í haldi, yrðu afnumin. Nafn hópsins er dregið af hinni nýju stefnu Gorbachevs Kremlar- leiðtoga, en hún á að stuðla að opnara og lýðræðislegra þjóðfélagi. Margir stofnenda umræðuhópsins tóku einnig þátt í stofnun tímarits með sama nafni í síðustu viku. Einn af andófsmönnunum, Lev Timofeyev, sagði fréttamönnum að umræðuhópurinn og tímaritið væru ætluð sem vettvangur fyrir þá, sem vildu ræða mál á borð við trúmál og vistfræði, sem enn væri lítt hreyft opinberlega, þi’átt fyrir aukið tjáningarfrelsi undir stjórn Gorbac- hevs. Timofeyev sagði að andófsmenn- irnir ynnu fyrir opnum tjöldum. Sovéskum fréttamönnum hefði ver- ið boðið á stofnfundinn, en enginn þeirra hefði látið sjá sig. Hópurinn mun nú gera hlé á störfum sínum, en hefja regluleg fundahöld á hálfs mánaðar fresti í september. Andófsmennirnir samþykktu áskorun, sem þeir sögðust ætla að senda Æðstaráðinu, þess efnis að lög um varðhald pólitískra fanga verði lögð niður. I lögunum væru meðal annars greinamar frægu um „and-sovéskan áróður“ og „rógburð um ríkisvaldið" sem fangelsissök. Sergei .Kovalov, fyrrum ritstjóri blaðs andófsmanna, sagði á fundin- um: „Þúsundir manna hafa verið fangelsaðar, ekki vegna þess að þær hafi drýgt glæp, heldur vegna pólitískra ástæðna ríkisvaldsins. Því miður getum við ekki sagt að þessu hafí linnt." Nánast allir andófsmennirnir sátu í fangelsum eða refsibúðum fyrr á árinu, en vom náðaðir sam- kvæmt skipun frá Kreml. Timofey- ev og Sergei Grigoryant, sem átti íbúðina þar sem fundurinn fór fram, sátu í fangelsi fyrir að gefa út „samizdat“-blaðagreinar, þ.e. greinar, sem bannaðar em af stjórnvöldum. Alexander Ogorodn- ikov var settur inn fyrir að skipu- leggja námskeið um kristna trú. Ogorodnikov sagði að er hann hefði hlotið náðun, hefðu leynilög- reglumenn KGB sagt við hann: „Það er aðeins verið að sjá aumur á þér. Það hefur ekkert breyst og þú gætir lent í fangelsi aftur." Kiwanis-hreyfingin: Ekki lengur karlaklúbbur Washington, Reuter. Alþjóðasamband Kiwanis- félaga hefur ákveðið að afnema þá reglu, sem gilt hefur í 72 ár, að einungis karlmenn megi vera félagar. Hér eftir verður konum og körlum gert jafn hátt undir höfði. Lagabreytingin var samþykkt á alþjóðaþingi Kiwanis-félaga, sem fulltrúar _frá 70 löndum sóttu, 5,636 talsins. Á milli 80 og 90% þeirra vom breytingunni samþykk. Sams konar ályktun árið 1977 fékk að- eins atkvæði 15% þingfulltrúa en í fyrra vom 47% henni fylgjandi. „Eg tel, að þessi breyting gefi Kiwanis-klúbbunum tækifæri til að auka starf sitt í þágu samfélagsins enda láta konur æ meira til sín taka í atvinnulífinu og stjórnmál- um,“ sagði Frank Dinoto, forseti hreyfingarinnar. Kiwanisfélagar um allan heim em 310.000 talsins og leggja þeir víða mikið af mörkum til ýmissa þjóðþrifamála. Á síðasta ári söfn- uðu þeir í þessu skyni um 73 rhilljónum dollara. Tölvusalan til Sovétríkjanna: Brundtland biður Kongsberg griða Nýju Dclhi, Washington, Reuter. GRO Harlem Brundtland, for- sætisráðherra Noregs, skoraði i gær á Bandaríkjastjórn að grípa ekki til aðgerða gegu norsku Kongsberg-verksmiðjunum, sem seldu Sovétmönum háþróaðan tölvubúnað. Bandarískur emb- NÚ FER AD HITNA I KOLUNUM Þaö er tilhlökkunarefni að byrja grillveislurnar aftur. Góöur matur, fjör og útivera. Þig vantar kannski hitt og þetta i grillið: kol, vökva, áhöld, bakka eöa jafnvel sjálft grillið. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Á næstu Essostöð finnur þú allt sem þarf... nema grillmatinn! Grillkol 2,3 kg Grillkol 4,5 kg Grillvökvi 0,51 Grillvökvi 1,01 Grill 225 kr. 434 kr. 75 kr. 120 kr. frá 2076 kr. Grillahöld og griUbakkar i úrvali. Olíufélagið hf Danmörk: Tóbaksneysla dregst saman um 1% á ári SÍGARETTUREYKINGAR dragast saman um 4,5% á ári í Danmörku. Forráðamenn Skandinavisk Tobakskompagni telja, að ástæðan sé erfitt efna- hagsástand, en læknar eru á öðru máli. Þeir halda því fram, að skýringin sé sú, að sífellt fleiri sláist í hóp þeirra, sem hætta að reykja. Ef fram heldur sem horfir, verða Danir reyklaus þjóð innan ekki langs tíma, því að ár hvert hættir um eitt prósent danskra reykingamanna að reykja. Sam- kvæmt tölum frá Skandinavisk Tobakskompagni hefur árssala fyrirtækisins dregist saman um 330 milljónir vindlinga eða 4,5%. „Það hefur dregið úr reyking- um á Vesturlöndum almennt,“ segir Pilip Tonnesen, læknir á Bispebjerg-spítalanum, í viðtali við Jyllands Posten nýlega. „Og nú er þessi þróun einnig að gera vart við sig í Danmörku." Forráðamenn Skandinavisk Tobakskompagni skýra samdrátt- inn með því, að ráðstöfunarfé dansks almennings hafi minnkað og þess vegna reyki fólk minna. Philip Tannesen er á öðru máli: „Samdrátturinn á sér tvíþætta skýringu: Annars vegar er það, að fleiri hætta að reykja. Það hefur verið staðfest með rann- sókn, sem er marktæk fyrir allt landið. Hins vegar er sú stað- reynd, að unga kynslóðin er ekki eins ginnkeypt fyrir reykingum og hin eldri." Philip Tonnesen telur einnig, að skipulögð barátta á móti reykingum sé farin að bera árang- ur. „Haldi fram sem horfir, mun þessi þróun hafa mikil áhrif á við- gang krabbameinssjúkdóma, einkum þó lungna- og hálskrabba- meins,“ segir Heine Hoi Hansen, yfirlæknir á Finsens-sjúkrahús- inu, og hann heldur áfram: „En við förum fyrst að verða áþreifanlega vör við þessa breyt- ingu eftir 15-20 ár. í rauninni þarf þetta ekki að koma á óvart, því að sama þróun hefur átt sér stað í Bandaríkjunum og Eng- landi, og hlaut að gæta hér í Danmörku fyrr eða síðar." Per Vagn-Hansen yfirlæknir, sem starfar á vegum aanska heil- brigðisráðuneytisins, segir, að einnig sé vert að veita athygli annarri þróun, sem eigi sér stað samhliða minnkandi reykingum: „Það verður reykingamönnum sífellt erfiðara og erfiðara að valda öðrum óþægindum og angri með tóbaksreykingum sínum, og það getur einnig átt sinn þátt í því, að fólk reykir rninna." ættismaður sagði í gær, að Norðmenn og Japanir hefðu nú samvinnu við Bandaríkjamenn um að koma í veg fyrir útflutn- ing mikilvægs búnaðar til Sov- étríkjanna. Brundtland, sem nú er í Indlandi í þriggja daga heimsókn, sagði fréttamönnum, að það myndi bitna á vörnum Noregs og tengslunum við Bandaríkin og önnur Nato-lönd ef Bandaríkjastjórn bannaði inn- flutning frá Kongsberg-verksmiðj- unum og gerði þær gjaldþrota þar með. Sagði hún, að norska stjórnin myndi sjálf ákveða refsiaðgerðir gegn fyrirtækinu þótt það væri raunar í ríkisins eigu. Paul Freedenberg, aðstoðarvið- skiptaráðherra Bandaríkjanna, sagði á fréttamannafundi í gær, að stjómvöld í Japan og Noregi hefðu bmgðist vel við áskorunum um hert eftirlit með útflutningi tölvubúnað- ar til Sovétríkjanna. Toshiba- fyrirtækið japanska seldi Sovét- mönnum hátæknibúnað eins og Kongsberg-verksmiðjurnar og hef- ur nú öldungadeildin samþykkt að banna innflutning beggja fyrirtækj- anna í fimm ár. Er bannið þó ekki orðið að lögum enn og ólíklegt tal- ið, að svo verði. Formenn stjórnarandstöðuflok- kanna í Noregi, þeir Rolf Presthus, formaður Hægriflokksins, og Carl I. Hagen, formaður. Framfara- flokksins, hafa krafist þess að stjórnin gefi norska Stórþinginu nákvæma skýrslu um alla þætti Kongsbergsmálsins. Þeir segja að þingið verði síðan að meta hvort það eigi að skipa nefnd til að rann- saka málið, ekki síst hvort stjórn- mála- og embættismenn hafi gerst brotlegir í tengslum við það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.