Morgunblaðið - 09.07.1987, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1987
fclk í
fréttum
Bowie í París
Breski söngvarinn,
lagasmiðurinn
og kvikmynda-
leikarinn David Bowie
er nú á tónleikaferða-
lagi um Evrópu og var
þessi mynd tekin á í
París á f östudaginn þar
sem hann hóf ferðina.
Með honum á myndinni
er vinkona hans sem
syngur bakraddir með
hljómsveitinni.
Reuter
Hjartað að veði
Helena Bonham Carter, sem
leikur aðalhlutverkið í kvik-
myndinni Herbergi með útsýni (A
Room With a Wiew), hefur nú feng-
ið hlutverk í mynd sem gerð er eftir
einni af Qölmörgum ástarsögum
Barböru Cartland.
Barbara Cartland er orðin 86 ára
gömul og hefur skrifað um 450 ást-
arsögur umm ævina. Eftir fjörutíu
ár hefur henni loksins tekist að fá
eina af sögum sínum kvikmyndaða.
Tvö bresk kvikmyndafyrirtæki hafa
sameinast um gerð sjónvarpsmyndar
eftir sögu hennar Hjartað að veði
(A Hazard of Hearts) og mun fjöldi
þekktra leikara fara með hlutverk í
myndinni m.a. Stewart Granger,
Christopher Plummer, Edward Fox,
Diana Rigg, Anna Massey, Eileen
Atkins og Fiona Fullerton.
Aðal kvenhetjuna leikur stjaman
úr Herbergi með utsýni, Helena
Bonham Carter. Hún verður fyrir
því óláni að faðir hennar leggur
hönd hennar að veði þegar hann
reynir að bjarga fjölskylduauðæfun-
um í fjárhættuspili. Hann tapar
spilinu og þar með dóttur sinni í
hendur óþokkans.
Barbara Cartland segir að He-
lenasé eins og sköpuð í hlutverk
hinnar flekklausu kvenhetju; með
postulínshúð, hjartalaga andlit, stór
skínandi augu og rósrauðar varir.
„Það stafar af henni ljóma sakleysis
og hreinleika sem ekki verður leikinn
heldur verður hann að koma inn-
anfrá" segir Cartland.
Helena hefur áður leikið í tveimur
myndum sem vakið hafa athygli;
Lady Jane Gray og Herbergi með
útsýni sem hefur verið sýnd í Regn-
boganum nú í sumar. Þó hún eigi
frægð sína sakleysislegu útliti að
þakka er hún staðráðin í því að losa
sig úr þessum postulínsbrúðu-hlut-
verkum og hefur jafnvel gengið svo
langt að leika lyfjafíkinn lækni í
Miami Viee þáttunum. Hún segist
samt ekki hafa neitt á móti því að
leika í þessarri Cartland mynd. „Ég
hef ekki efni á neinu menning-
arsnobbi. Þetta er saklaus skemmt-
un, svolítill raunveruleikaflótti með
glæsilegu yfirbragði sem hægt er
að hafa gaman af að taka þátt í“.
Helena er af aðalsættum og hefur
það eflaust hjálpað til að veita henni
náð hjá frú Cartland, en kvenhetjur
hennar eru yfírleitt ljósar yfirlitum.
Helena er tuttugu og eins árs gömul
og hóf feril sinn í sjónvarpsleikriti
með því að kaupa sér áheyrn hjá
leikstjóra fyrir 25 pund sem hún
vann í ljóðasamkeppni. Herbergi
með útsýni, síðasta mynd Helenu,
hefur fært henni frægð og frama.
Hún hefur ákveðið að helga sig leik-
listinni og hefur m.a. nýlokið við að
leika í sjónvarpsleikriti fyrir breska
sjónvarpið BBC.
Helena Bonham Carter nýtir
frístundir sínar vel og segist eigin-
lega hafa meira að gera í fríum en
í vinnutímanum. „Mér er mikið í
mun að sóa ekki einni einustu
mínútu af lífi mínu og er núna að
gera lista yfir þær bækur sem ég
vil lesa, myndir og leikrit sem ég
þarf að sjá og myndlistarsýningar
sem ég vil ekki missa af“ segir hin
menningarlega sinnaða unga leik-
kona. Hún er enn ólofuð og býr í
foreldrahúsum en segist þó vera að
leita sér að eigin íbúð.
Leikendur í myndinni Hjartað að veði, ásamt höfundi sögunnar. Sitj-
andi frá vinstri: Helena Bonham Carter, höfundurinn Barbara Cartland
og Diana Rigg. Standandi: Marcus Gilbert og Fiona Fullerton.
Baldur Úlfarsson glóðar gómsætt lambakjöt fyrir viðskiptavini
Kjötmiðstöðvarinnar.
Útigrill hjá
Kj ötmiðstöðinni
Kjötmiðstöðin við Laugalæk í
Reykjavík hefur nú í sumar
boðið viðskiptavinum og öðrum veg-
farendum að bragða á ýmsum
tegundum af kjöti og kryddi, mat-
reiddu á útigrilli. Blaðamaður hafði
samband við Hrafn Backman, eig-
anda Kjötmiðstöðvarinnar, og innti
hann eftir því hvemig þessi kynning
hefði gengið.
„Þetta hefur gengið mjög vel hjá
okkur og fallið í góðan jarðveg hjá
fólki. Við höfum boðið upp á 2-3
tegundir af kjöti í einu og sömuleið-
is höfum við kynnt ýmsar tegundir
af kryddi sem við höfum á boðstól-
um. Þetta hefur örvað söluna mikið,
t.d. á lambakjötinu sem endilega
þarf að nýta betur svo það fari
ekki á haugana eins og gerst hefur
nú undanfarið. Það er reynsla okk-
ar að aukin kynning örvar söluna
og til að vera í takt við tímann
þarf að leggja mikla áhrslu á að
Ástarsöguhöfundurinn Barbara Cartland mundar kvikmyndatökuvél-
ina þar sem hún fylgist með gerð sjónvarpsmyndar eftir einni af
bókum hennar.
COSPER
— Ef þú elskar mig í raun og veru, neitar þú mér ekki
um neitt, sem ég hef ánægju af.