Morgunblaðið - 24.07.1987, Side 11
Allen) leikstýrir og skrifar hand-
rit að ásamt Thomas Baum.
Handritið er oft fyndið en
líklega fær John Lithgow, sem
leikur kærasta mömmu ofvitans
og er aðalmaðurinn í kjamorku-
tilraununum, bestu setninguna
þegar hann reynir að lýsa
ástandinu fyrir stráksa eftir að
FBI og herinn er kominn í mál
ið. „Þeir taka þig,“ segir hann,
„og læsa þig inní herbergi og
henda herberginu." Merkilegt
hvað það er alltaf gaman að Lith-
gow í hvaða hlutverkum sem
hann hefur með höndum. Hér
er hann kjamorkuvísindamaður-
inn sem fær eftirþanka, en
Christopher Collet leikur Paul og
er heldur litlaus og seint verður
hann elskhugi á hvíta tjaldinu
því kærastan hans gæti alveg
eins verið að naga girðingarstaur
í kossasenunum.
Brickman heldur vel og fjör-
lega á spöðunum. Myndin hans
er á margan hátt dæmigerð fyrir
tegundina: yfirmaður hersins er
einn af þessum nöglum sem vill
skjóta fyrst og spyija svo, FBI-
liðið stormar um með hávaða og
látum og krakkamir em hetjum-
ar. En hann kryddar líka með
húmor sem lýsir sér skemmtilega
í lokaatriðinu þegar reynt er að
koma í veg fýrir að sprengjan
springi. Mennimir em eftir allt
saman svo frábærlega ófag-
mannlegir og litlir frammi fyrir
gereyðingunni.
persónueinkenni hennar em skýr-
ust, a.m.k. á íslenskum listavett-
vangi þar sem er um nýjung að
ræða. En aðferðin í sjálfu sér er
ævagömul.
Hið sívala form, sem er þunga-
miðja myndanna, getur virkað sem
kyntákn og þróttmikill vöxtur gró-
andans, á móti rýmislegri dýpt og
lífrænum jarðarmögnum.
Það em aðeins sjö verk á sýning-
unni en að hluta til era mögnuð
húsakynnin tekin með í formrænan
leikinn og eykur það áhrifin til
muna. Það er eitthvað mjög trúar-
legt í þessum gagnsæu myndum Inu
Salóme og þær mjmdu vissulega
njóta sín vel, sem rammi andlegra
iðkana í ýmsu formi, því að þær
vekja upp í manni tilfínningu fyrir
guðdóminum og hinu óendanlega.
Og leiti menn einvemnnar og til-
beiðslunnar á miðju sumri er innlit
í nær gaitóma sýningarsali höfuð-
borgarinnar rétta leiðin — þar
fínnur viðkomandi fagran ramma
hugsunum sínum og kenndum.
Ekki síst á sýningu Inu
Salóme. . .
Staðall um
flatarmál
og- rúmmál
húsa
ÚT er kominn í endurskoðaðri
mynd staðallinn ÍST 50 sem fjallar
um flatarmál og rúmmál bygg-
inga. Staðallinn kom fyrst fram
árið 1971 en hlaut aldrei þá kynn-
ingu og útbreiðslu sem þurft hefði
til að hann yrði almennt notaður.
í framhaldi af endurútgáfúnni er
nú gert átak til kynningar á staðl-
inum svo hann verði notaður við
allar stærðarmælingar húsa hér-
lendis.
í frétt frá Iðntæknistofnun segir
að mikils misræmis hafi gætt hér-
lendis við stærðarmat bygginga.
Þannig hafí „fermetri“ gólfflatar í
raun ekki verið stöðluð stærð og því
hafí mikill munur verið á skráðum
stærðum fasteigna allt eftir því hvar
skráningin fór fram, í hvaða tilgangi
hún var gerð og hver reiknaði.
„Við vinnu staðalsins hefur verið
miðað við íslenskar aðstæður en jafn-
framt leitað fanga í stöðlum grann-
þjóða okkar. Útkoman er staðall sem
er einfaldur í notkun og á að nýtast
bæði almenningi og fólki sem atvinnu
sinnar vegna þarf að reikna út stærð-
ir bygginga," segir í frétt Iðntækni-
stoftiunar.
VBPi f.|fj|, Jfe ÍÍlfÖ/,<IUTbf)>
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1987
or
11
Vísindamaðurinn og ofvitinn: Lithgow og Collet í hlutverkum sinum
í myndinni Hættulegur leikur.
Laugarneskirkja og Áskirkja:
Saftiaðarferð á Skál-
holtshátíð á sunnudag
SUNNUDAGINN 26. júlí er fyrir-
huguð safiiaðarferð frá Ás- og
Laugarneskirlgu á Skálholtshátið
sem verður þennan dag. Lagt
verður af stað frá Laugames-
kirkju kl. 10 árdegis en frá
Áskirkju kl. 10.05.
Þátttakendur geta haft með sér
nesti, en í Skálholtsskóla er hægt
að fá keyptar veitingar.
Skálholtshátíðin hefst kl. 14 með
hátíðarguðsþjónustu. Sr. Sváfnir
Sveinbjamarson prófastur prédikar.
En á hátíðarsamkomunni kl. 16.30
flytur ræðu Kristinn Kristmundsson,
skólameistari á Laugarvatni. Einnig
verður flutt vönduð tónlist.
Þáttakendur þurfa ekki að til-
kynna þátttöku fyrirfram, aðeins
mæta við kirkjumar stundvíslega.
Ekið verður um Hveragerði, komið
við á Laugarvatni. Fararstjóri í ferð-
inni verður Þorsteinn Ólafsson.
(Fréttatilkynning)
europe
DlVlNE
heimsóttu
gSíSSS'
módelsa
sumartískuna
herra tra
topPurmn
•EIFARNIR
MMTVA'TE'P1'- -
RElFftRNlK
Opnað kl. 22.00 fyrir boðsgesti, en kl. 23.15 fyrir aðra
sem fagna vilja afmælinu með okkur. BONEY M. koma fram á miðnætti.
Bein útsending BYLGJUNNAR á FM 98,9 frá EVRÓPU hefst kl. 23.30
ÍBYL GJA