Morgunblaðið - 24.07.1987, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1987
Ættleidd?
Reuter.
F)'ölskyldan á þessari mynd býr í borginni Beirút, í hinu stríðshijáða
landi Líbanon. Fayez Awarki, bankastarfsmaður og kona hans, eiga
bömin þijú sem með þeim eru á myndinni. í gær lýstu hjónin því yfir
að þau óskuðu eftir því að gott fólk í einhveiju Evrópulandi ættleiddi
bömin þeirra. Á þann hátt mætti forða þeim frá sprengjuhvin og
blóðsúthellingum, sem em daglegt brauð í Beirút. Sögðust foreldram-
ir ekki eiga heitari ósk en þá að bömin þeirra fengju að alast upp við
frið og öryggi, en eins og sakir stæðu þá væri líf þeirra samfelld
martröð.
í gær var efnt til allsherjarverkfalls í Líbanon, til þess að mót-
mæla ástandinu í landinu, sem fyrir nokkmm ámm gat státað sig
af mestu velmegun í Mið-austurlöndum.
Gengi
Iran-Frakkland
Miinnlegt samkomulag um
lágmarks tengsl landanna
Agreiningur þó mikill enn
París, Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Frakklands, Jean-Bernard Raimond, sagði
í gær að frönsk og írönsk stjómvöld hefðu náð munnlegu samkomu-
lagi um að Ítalía og Pakistan myndu gæta hagsmuna rikjanna hvors
í annars garð eftir að stjórnmálasambandi þeirra var rift síðastlið-
inn fostudag. Hann tók þó fram að enn ætti eftir að staðfesta
samkomulag þetta. Á meðan þessu fór fram hélst umsátur um sendi-
ráð ríkjanna í París og Teheran, en það hefúr nú staðið í sjö daga.
gjaldmiðla
London, Reuter.
VERÐ á japönskum hlutabréfum
hækkaði nokkuð á alþjóðlegum
mörkuðum i gær eftir að hafa
fallið undanfarnar vikur. Að
öðru leyti var lítið um sviptingar
og sigling olíuskipanna inn á
Persaflóa án þess að til átaka
hafi komið virtist hafa róandi
áhrif á olíuverðið sem verið hef-
ur óstöðugt.
Sterlingspund kostaði 1,6010
Bandaríkjadali en að öðru leyti var
gengi helstu gjaldmiðla þannig að
einn dalur kostaði:
1,3223 kanadíska dali,
1,8555 vestur-þýsk mörk,
2,0892 hollensk gyllini,
1,5385 svissneska franka,
38,45 belgíska franka,
6,1725 franska franka,
1342 ítalskar lírur,
151,10 japönsk jen,
6,4575 sænskar krónur,
6,7725 norskar krónur og
7,0375 danskar krónur.
Gullúnsan kostaði 455,00 dali.
Skilyrði fyrir því að hægt sé að
ræða um heimför sendiráðsstarfs-
manna ríkjanna var það að ríkin
kæmu á óbeinu sambandi eins og
því sem hér um ræðir. Raimond
lagði þó áherslu á það að upphafleg
orsök deilunnar hefði ekki gleymst
og að sendiráðstúlkurinn Wahid
Gordij yrði að hlíta dómskvaðningu
hryðjuverkadómstóls.
„Gordij verður að fara að frönsk-
um lögum áður þessi vandi verður
leystur." íranir vísa þessu á bug
og segja Gordij njóta friðhelgi
stjómarerindreka. Til þess að svara
þessu hafa íranir því sakað Paul
Torri, ræðismann Frakka í Teheran,
um njósnir og svartamarkaðsbrask.
Innanríkisráðherra Frakklands,
Charles Pasqua, neitaði í gær fregn-
um hins vinstrisinnaða dagblaðs
Libération um að gagnnjósnadeild
leyniþjónustunnar hefði bendlað Ir-
an við hryðjuverkaölduna í fyrra.
Þá létust 13 manns og á þriðja
hundrað manns slösuðust. „Við höf-
um aldrei tengt máiið íranska
ríkinu,“ sagði Pasqua. „Það sem er
öruggt er að þeir sem hafa verið
handteknir vegna málsins voru ná-
tengdir íslömskum heittrúarsam-
tökum."
Franska lögreglan hefur enn í
haldi þijá líbani vegna málsins og
er talið að þeir verði yfirheyrðir af
Gilles Boulouque rannsóknardóm-
ara, en hann er einn helsti uppræt-
andi hryðjuverkastarfsemi í
Frakklandi. Það var hann sem
kvaddi Gordij fyrir rétt á sfnum
tíma, en það olli því að upp úr sauð.
London:
Skotið á gagnrýnanda
írönsku sljórnarinnar
Lögreglan viðbúin fleiri árásum
Talsmaður lögreglunnar sagði að
liðsveitir hennar yrðu í viðbragðs-
stöðu en ekki búin skotvopnum. í
janúar síðastliðnum féllu 13 smá-
bændur í kröfugöngu í Manila fyrir
vopnum lögreglunnar er bændumir
hugðust krefjast jarðnæðisumbóta
þegar í stað.
Jaime Tadeo ávarpar fúnd smábænda. Reuter
Jarðnæðislögin á Filippseyjum:
Sótt að Aquino írá
hægri og vinstri
Nýju lögin sögð markleysa
Manila, Reuter.
Vinstrisinnuð samtök smábænda á Filippseyjum vöruðu í gær við
því að uppreisnarmenn kommúnista myndu hagnast mest á jarðnæðis-
tilskipunum Aquinos forseta og stjórnarembættismaður sagði að
herskara lögfræðinga eða fólks með nokkra lögfræði þekkingu
þyrfti til að framfylgja lögunum.
„Uppreisnarmenn kommúnista takanna sem hafa um 750 þúsund
munu fá byr undir báða vængi", manns innan sinna vébanda. Hann
spáði Jaime Tadeo, formaður sam- sagði fréttamönnum að smábændur
myndu telja sig nauðbeygða til að
grípa til vopna gegn stjóminni ef
hún léti verða af því að reka mörg
þúsund bláfátæka smábændur af
jarðarskikum sem þeir hafa lagt
undir sig víða um landið. Hann
bætti því við að í dag myndi fjöldi
smábænda fara í kröfugöngu í höf-
uðborginni Manila og mótmæla
„þessari stjóm Aquinos og Banda-
ríkjamanna sem er andvíg bænd-
um“.
Aquino verður einnig fyrir gagn-
rýni frá hægri og hafa margir
landeigendur undirritað mótmæla-
skjal með eigin blóði. Áður hafa
borist fregnir því að landeigendur
séu að koma á laggimar vopnuðum
sveitum til að veija búgarða sína.
Aquino lætur mikinn hluta valda
sinna í hendur nýkjömu þingi eftir
nokkra daga. Tilskipun hennar frá
því í fyrradag hefur þó lagagildi
og sagði forseti fulltrúadeildar
þingsins í gær að tilskipunin yrði
rædd á þeim vettvangi en líklega
yrðu fáar breytingar gerðar á henni
áður en hún yrði send öldungadeild-
inni þar sem lagasetningin verður
fullmótuð. Stjómarandstæðingur-
inn Blas Ople sagði í gær um
tilskipunina að hún væri svo al-
mennt orðuð að tilgangur Aquinos
hefði greinilega verið sá að komast
hjá því að taka raunverulega,
pólitíska ákvörðun.
Rafmagns-
laust í Tókýó
Tókýó, Reuter.
RAFMANGSLAUST varð um
stund í Tókýó í Japan í gær,
skömmu eftir hádegi. Allt sem
knúið er áfram með rafmagni
stöðvaðist, s.s. járnbrautarlestir,
tölvur kauphallarinnar og lyftur.
Yfirvöld telja að geysimikil notk-
un loftkælitækja hafi valdið því að
kerfíð bilaði, en í gær var heitasti
dagur sumarsins til þessa og mæld-
ist hitinn 35 stig á Celsíus. Ekki
er vitað um nein óhöpp, en lög-
reglu- og slökkviliðsmenn fengu
nóg að starfa við að bjarga fólki
sem lokað var inni í lyftum.
London, Reuter.
Stjómmálafréttaritari af pa-
lestinskum stofiii varð fyrir
skotárás í London í fyrrinótt og
særðist hættulega. Maðurinn
starfar fyrir dagblað er styður
málstað Palestínuaraba og hefúr
verið harður gagnrýnandi
klerkastjórnarinnar í íran. Lund-
únalögreglan var í viðbragðs-
stöðu í gær og er óttast að fleiri
árásir fylgi í kjölfarið.
Fréttaritarinn, A1 Naji al Ad-
hami, starfar fyrir dagblaðið al
Qabas sem gefið er út í London.
Talsmaður blaðsins sagðist telja að
al Adhami hefði verið látinn gjalda
andstöðu sinnar við klerkastjómina
en Frelsissamtök Palestínuaraba
(PLO) ásökuðu síðar í gær ónefnda
leyniþjónustu arabaríkis um árás-
ina. Lögreglan leitaði enn tilræðis-
mannsins er síðast fréttist.
Fyrir tæpri viku var skotið á
Amirhussein Amir-Parviz sem eitt
sinn var ráðherra í ríkisstjóm keis-
arans en veitir nú forstöðu skrif-
stofu irönsku þjóðarhreyfingarinn-
ar, sem Shahpur Bakhtiar stjómar.
Bakhtiar var forseti írans fyrst eft-
ir byltinguna gegn keisaranum en
var seinna hrakinn úr landi af
mönnum Khomeinis erkiklerks.
Hópur, sem nefnir sig Verði
íslömsku byltingarinnar, lýsti árá-
sinni á Amir-Parviz á hendur sér.
Reuter
íranskur sendiráðsmaður á lóð sendiráðsins í París les hér franskt
dagblað — brúnaþungur að vonum.