Morgunblaðið - 01.08.1987, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987'
13
Kjörin hafa batnað
mikið síðan í vetur“
Morgunblaðið/BAR
Þórunn S. Jónsdóttir, afgreiðsludama í Hagkaupi: Vinnuaðstæður
eru alltaf að batna.
- segir Þórunn S.
Jónsdóttir af-
greiðsludama hjá
Hagkaupi
ÞÓRUNN Steinunn Jónsdóttir
hefur unnið 28 ár við afgreiðslu-
störf hjá sama vinnuveitanda og
afgreiðir nú í fatadeild Hag-
kaups á Laugavegi. Þar hefur
hún verið síðustu fjórtán árin.
í vetur voru gerðir nýir kjara-
samningar á flestum sviðum at-
vinnulífsins, þar á meðal til handa
félögum í Verslunarmannafélagi
Reykjavíkur, og þykir það ekki
tíðindi. En í þetta skipti sögðust
samningamenn leggja sérstaka
áherslu á að hækka launin við tekju-
lægstu hópana. Félagar í VR verða
að teljast þar á meðal. Þórunn var
því spurð að því hvort kjör hennar
eftir batnað eftir samningana.
„Kjörin hafa batnað mikið síðan
í vetur,“ sagði Þórunn, „en það er
nú svo, að ég á ekki íbúð og þarf
að leigja og þegar búið er að borga
alla reikninga ná endar illa saman.
Mig minnir að ég hafi verið með
um 26 þúsund á mánuði fyrir samn-
inga, en nú er ég með um 40
þúsund."
- Heldurðu að kaup verslunar-
fólks sé svipað launum annarra
ófaglærðra stétta?
„Já, við erum með nokkuð svipað
kaup eftir því sem ég hef lesið í
blöðunum.“
- Ætlarðu að gera eitthvað sérs-
takt í tilefni frídagsins og langrar
helgar?
„Eg ætla ekkert að gera. Eg er
að fara í sumarfrí helgina á eftir
og fer upp í Húsafell í sumarbústað
sem Hagkaup á þar.“
- Ertu ánægð í vinnunni?
„Já, ég er mjög ánægð. Vinnuað-
stæður eru alltaf að batna og hér
eru mjög góðir vinnufélagar og jrfír-
menn. Og eigendumir eru nú alveg
sérstakir. Ég hef líka gaman af
afgreiðslustörfum."
- Hefur aldrei hvarflað að þér á
28 árum að skipta um starf?
„Jú, það hefur komið fyrir. Þegar
ég var ung langaði mig að mennta
mig og verða hjúkrunarkona, en ég
veiktist sjálf af berklum og það
varð aldrei úr því.“
Það verða að vera vaktaskipti
ef opnunartíminn lengist
# Morgunblaðið/BAR
Asta Oskarsdóttir með fatastrangana í röðum fyrir framan sig* og
aftan í Vogue á Skólavörðustíg.
-segir Ásta
Oskarsdóttir af-
greiðslukona hjá
versluninni Vogne
ÁSTA Óskarsdóttir hefur unnið
í fimmtán ár hjá versluninni
Vogue á Skólavörðustíg, sem sel-
ur meðal annars allskyns fata-
efni. Við spyijum Ástu hvort
kjör hafi batnað frá siðustu samn-
ingum. „Kjörin hafa ekkert
batnað hjá þeim sem eru búnir að
vera lengi í starfí með samningun-
um í vetur. Það voru þeir, sem voru
nýbyrjaðir og með lægri laun en
við, sem hækkuðu. Munurinn á
launum okkar og þeirra hvarf al-
veg, en mér fínnst ekki annað en
réttlæti í því að lengri starfsaldur
sé einhvers metinn. Þess vegna
hækkaði Vogue sjálft kaupið við
okkur sem verið höfum lengi."
- Er fólk yfirborgað hjá Vogue?
„Nei, mér er að minnsta kosti
borgað samkvæmt taxta, fyrir utan
leiðréttinguna sem Vogue gerði eft-
ir samningana og ég nefndi áðan.“
- Og hvemig gengur að lifa af
laununum?
„Ég hef fyrirvinnu þannig að
þetta gengur, en ég gæti ekki lifað
af þeim ein með böm. Laun verslun-
armanna hafa frekar dregist aftur
úr en hitt. Þetta eru ekki góð laun
miðað við þá sem vinna styttri
vinnutíma. Fyrir nokkmm ámm
vom laun betri í verslunarstétt, en
ætli það eigi ekki við annars staðar
líka.“
- Hvemig líst þér á opnunartíma
verslana eins og hann er ráðgerður
í Kringlunni, til 19.00 á hveiju
kvöldi, 20.00 á föstudögum og frá
9.30 til 18.00 á laugardögum?
„Þetta er ekki hægt fyrir mann-
eskju sem vinnur allan daginn í
verslun. Það verða að vera vakta-
skipti. Þetta er aldeilis enginn bót
verð ég að segja. Nú er tekið af
fólki aftur það sem búið er að beij-
ast fyrir lengi, sumsé styttri
vinnutíma. Flestir aðrir en verslun-
arstéttin eiga frí á laugardögum.
Hvemig eigum við til dæmis að
kaupa inn sem vinnum allan daginn
í verslun."
- Em verslunarmenn á Skóla-
vörðustígnum kvíðnir yfir tilkomu
Kringlunnar?
„Eg hef ekki orðið vör við það.
Þótt Kringlan sé stór og mikil verð-
ur allaf fólk sem fer í bæinn til að
versla. Þegar nýjabmmið er farið
af þessu færist þetta í svipað horf
aftur.“
- Ætlarðu að breyta til þessa
löngu fríhelgi?
„Ég flýg til Bandaríkjanna á
föstudaginn í sumarfrí og verð því
í Chicago um helgina."
Ólafía Sigurðardóttir afgreiðir í Víði Austurstræti.
Morgunblaðið/Sverrir
Helga Sigurðardóttir afgreiðir í blómabúð.
Eg er komin af
verslunarfólki
Helga Sigurðardóttir afgreiðir
í blómabúðinni Blóminu í Hafn-
arstræti. Hún sagði að foreldrar
sínir væri verslunarfólk og hefði
hún því verið viðloðandi verslun-
arstörf af einhverju tagi frá því
hún var krakki.
Þegar Helga var spurð um launa-
kjör verslunarmanna sagði hún að
sér þætti þau frekar bágborin.
„Kaup eftir launataxta VR er það
lágt að varla er hægt að framfleyta
sér á því. Það getur vel verið að
smærri verslanir borgi sínu starfs-
fólki eitthvað umfram taxta en það
er ömgglega ekki gert í stórmörk-
uðunum og verður starfsfólkið þar
því að láta sér nægja taxtakaupið"
sagði Helga.
Hún sagðist ekki hafa fylgst
sérstaklega með þróun kjaramála
verslunarfólks undanfarin ár en
sagðist þó halda að þau hefðu stað-
ið í stað undanfarið eftir að hafa
tekið kipp fyrir nokkmm ámm.
Aðspurð um opnunartíma versl-
ana sagði Helga að fólk virtist ekki
gera sér fullkomlega grein fyrir því
að lengri opnunartími hefði óhjá-
kvæmilega í för með sér hærra
vömverð. „Flestum fínnst eflaust
þægilegt að geta verslað um helgar
en það er spuming hvað fólk segði
ef því væri sagt að það leiddi til
hærra vömverðs. Annars er ég ekki
hlynnt því að fólk vinni of langan
vinnudag því verslunarstörf geta
verið mjög þreytandi þegar fólk
verður að standa upp á endann all-
an daginn".
Að lokum var Helga spurð að
því hvort hún tæki sér frí frá vinnu
á frídegi verslunarmanna. Hún
sagðist ætla að gera það í þetta
sinn en hefði ekki alltaf gert það.
Helga verður þó ekki í algjöm fríi
um helgina þar sem hún mun vinna
að því gera upp gamalt hús á með-
an hún er í fríi frá verslunarstörfun-
um.
Guðfinna Agnarsdóttir vinnur á skrifstofu Málarabúðarinnar.
Það er mikið um
yfirborganir
Á skrifstofu Málarabúðarinn-
ar hittum við Guðfinnu Agnars-
dóttur sem hefur unnið þar í tíu
ár. Hún sagði sín kjör vera ágæt
I dag þar sem hún fengi ekki
greidd laun samkvæmt taxta VR.
„Það er augljóst að það fram-
fleytir engin fjölskyldu á taxta-
laununum og eru flestir þeirra
meðlima sem ég þekki í VR yfir-
borgaðir að einhverju leyti.“
Aðspurð um hvemig henni litist
á að lengja vinntíma verslunarfólks
sagðist Guðfínna vera því andvíg.
„Ég held að flestir sjái sér fært að
versla á þeim tíma sem verslanir
em opnar núna. Það væri kannski
' lagi að lengja vinnutímann ef af-
greiðlusfólki væri skipt niður á
vaktir sem væm ekki lengri en átta
tímar“.
Guðfínna sagðist ætla taka sér
frí á frídegi verslunarmanna enda
tæki hún þessa hefð alvarlega. Hún
sagði að verslunarfólk ætti að sýna
samstöðu og sameinast um að halda
þessari hefð við. Sjálf kvaðst hún
ætla að taka það rólega og slappa
af um helgina.