Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987
15
MANNA
Morgunblaðið/BAR
„Fólk kemur þangað þar sem það er afgreitt eins og persónur en ekki eins og á færibandi.“ Bryn-
hildur Hjálmarsdóttir umkringd leikföngum í versluninni FIDO, Iðnaðarmannahúsinu.
Synd hvernig mið-
bærinn er orðinn
Brynhildur
Hjálmarsdóttir í
verlsuninni FIDO
tekin tali
í Iðnaðarmannahúsinu er gósen-
land barnanna, Ieikfangaversl-
unin FIDO. Þar vinnur
Brynhildur Hjálmarsdóttir. Hún
segir fimm ár síðan að hún kom
út á vinnumarkaðinn aftur eftir
langt hlé á meðan hún sinnti
bameignum og uppeldi. Áður en
hún byrjaði aftur hafi hún verið
nokkuð kvíðin, en hún hafi strax
séð þegar hún var byijuð að það
hafði verið alveg ástæðulaust.
Hún byrjaði í versluninni Smá-
fólki áður en hún flutti sig yfir
í FIDO, en sami eigandi er að
báðum verslununum.
-Er þér borgað samkvæmt taxta
Brynhildur?
„Nei, ég er lítillega fyrir ofan
hann, en það er höfð hliðsjón af
honum þegar mitt kaup er ákveðið."
- Hvemig gengur svo að lifa af
laununum?
„Það færi eftir því hvað ég þyrfti
að sjá fyrir mörgum. Ein gæti ég
það, en með fjölskyldu yrði það
sjálfsagt klippt og skorið."
- Hvað fínnst þér um það að
hafa opið allan daginn á Iaugardög-
um eins og ráðgert er í hinni nýju
Kringlu?
„Mér finnst ágætt að einhveijar
búðir séu opnar á kvöldin einhveija
daga í viku, en að hafa búðir opnar
allan daginn alla daga er vitleysa,
mér finnst eiginlega engin þörf á
því. Kaupmenn ættu að geta samið
um það sín á milli að einhveijir
þeirra hefðu opið frameftir ákveð-
inn dag, aðrir þann næsta og svo
koll af kolli. Nú er ég að tala um
matvöruverslanir. Mér fínnst alveg
ónauðsynlegt að aðrar verslanir en
þær sem versla með lífsnauðsynjar
séu opnar frameftir."
- Búist þið við áhrifum hér af
opnun Kringlunnar?
„Fyrstu vikumar dregur Kringl-
an úr viðskiptum í miðbænum.
Þannig var það þegar Mikligarður
opnaði. En fólk heldur mikilli tryggð
við þá staði þar sem það er vant
að versla og kemur aftur þegar frá
líður.
Annars er það synd hvemig mið-
bærinn er orðinn. Útimarkaðurinn
dregur hann niður. Það er svo mik-
ill sóðaskapur í kringum hann og
allir eru með það sama. Hann ætti
kannski rétt á sér einn til tvo daga
í viku, en ekki alla daga. Svo em
verslanimar líka orðnar alltof ein-
hæfar þar. Það em til dæmis þtjár
bókaverslanir í röð í Austurstræti
og annað er eftir því. Fjölbreytnin
var miklu meiri hér áður, en ég
byrjaði einmitt að vinna verslunar-
störf hér í Reykjavlk í miðbænum
hjá Ragnari H. Blöndal.
- Hvað ætlarðu að gera um helg-
ina?
„Ég ætla að vera heima. Ég er að
fara í frí um mánaðamótin. Þegar
umferðin er svona mikil vil ég ekki
fara út á land. Við maðurinn minn
fömm oft niður í bæ að ganga þess-\
helgi ef veður er gott. Það er svo
friðsælt og gott.“
- Hvemig líkar þér starfið?
„Mér líkar mjög vel að vinna
verslunarstörf, þau em svo lifandi.
Hér myndast tengsl á milli við-
skiptamanns og verslunarmannsins
og það er mikið sama fólkið sem
kemur hingað aftur og aftur. Fólk
kemur þangað þar sem það er af-
greitt eins og persónur en ekki eins
og á færibandi."
Af sérstökum ástæðum eru til sölu nokkrir
TÍVOLÍBÁTAR
(Bumping boats)
Bátarnireru mað 2 ha. Suzuki mótorum og öðru tilheyrandi.
Þeir eru hannaðir til veiða á vötnum og eru mjög stöðugir og
ósökkvandi. Kjörið tækifæri fyrir:
— Fjölskyldur eða samtök til að leigja út.
— Veiðifélög.
— Sumarbúðiro.fl.
Upplýsingar í síma 96-21733 á Akureyri.
HILLUSETT 2 GERÐIR - 2 LITIR
HEILDSÖLUBIRGÐIR
krrdlii
KRISTJÁN ÓLI HJALTASON
IÐNBÚÐ 2. 210 GARÐABÆ
SÍMI 46488
Ljósmyndavörur, Skipholti — Úlfarsfell, Hagamel - Hraðfilman, Drafnarfelli - Filman, Hamraborg Kópavogi - Hjá Óla, Keflavík - Fótó, Vestmannaeyjum -
Ljósmyndastofa Suðurlands, Selfossi — Myndasmiðjan, Egilsstöðum — Ljósmyndastofa Leós, (safirði - Ljósmyndastofa Ólafs Árnasonar, Akranesi - Fuji
Eiðistorgi, Seltjarnarnesi - Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík. ______________________________________________________________________________