Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR L ÁGÚST 1987
KHTHREin
merkið tryggir góða vöru.
Ertu að leita að:
Gervitunglamóttökuloftneti, kapal eða
loftnetskerfi sjónvarps eða útvarpsloft-
neti, loftnetsmagnara, sjónvarpskapal
(tvær gerðir), jarðkapal 7, 10, 15 mm?
ÞÁ HEFUR KATHREIN RÉTTA
EFNIÐ FYRIR ÞIG.
OG VANTIR ÞIG
AÐSTOÐ HAFÐU ÞÁ SAMBAND.
Einnig:
Stentor kallkerfi og TOA magnarakerfi.
Glamox flúrskinslampa.
RCA transistora, IC rásir og díoður.
4, 7 og 12 víra skermaður tölvukapail.
Georg Ámundason & Co.,
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík.
Sími 687820.
4|
En
Jóhann á raun-
hæfa mögnleika
Skák
Margeir Pétursson
JÓHANN Hjartarson á nú raun-
hæfa möguleika á því að verða
einn af þeim þremur þátttakend-
um sem komast áfram af milli-
svæðamótinu í Szirak í
Ungveijalandi. Tíu umferðum af
sautján er lokið og Jóhann er í
öðru til fjórða sæti. Takist þetta
verður hann annar íslendingur-
inn sem kemst í áskorendakeppn-
ina, eins og allir vita náði Friðrik
Ólafsson þeim árangri árið 1958
á miUisvæðamótinu í Portoroz.
Jóhann byijaði mjög vel á mótinu
og var einn efstur eftir sex um-
ferðir. Slæmt tap fyrir heimamann-
inum Adoijan setti hins vegar strik
í reikninginn en nú er Jóhann kom-
inn á fullt skrið aftur og hefur eftir
tapið unnið tvo örugga sigra. í þeim
skákum afgreiddi Jóhann andstæð-
inga sína þannig í b}njuninni að
þeir fengu aldrei möguleika á að
tefla taflið.
Það er hins vegar ekki við neina
liðléttinga að etja í Szirak. Fyrir
ffam voru Beljavsky, Ljubojevic,
Nunn, Portisch, Andersson og Salov
álitnir sigurstranglegastir, en And-
ersson hefur nú heltst úr lestinni
og það er við hina fímm sem Jó-
hann berst nú um eitthvem hinna
þriggja farmiða sem í boði era á
áskorendamótið í Kanada í febrúar.
Að loknum tíu umferðum var
staðan þessi: 1. Beljavsky (Sov-
étríkjunum) 7v.
2-4. Jóhann Hjartarson, Salov (Sov-
étríkjunum) og Nunn (Englandi) 7
v.
5-6. Ljubojevic (Júgóslavíu) og
Portisch (Ungveijalandi) 6v.
7. Milos (Brazilíu) 5v.
8. Andersson (Svíþjóð) 5 v. og ólok-
in skák.
9-10. Benjamin (Bandaríkjunum)
og Velimirovic (Júgóslavíu) 5 v.
11. Christiansen (Bandaríkjunum)
4v. og ólokin skák
12. Marin (Rúmeníu) 4v.
13. Adoijan (Ungveijalandi) 4 v.
14-16. Todorcevic (Mónakó), Flear
(Englandi) og de Villa (Spáni) 3v.
17. Bouaziz (Túnis) 2v.
18. Allan (Kanada) 1 v.
Jóhann á eftir að mæta eftirtöld-
um skákmönnum á mótinu:
11. umferð: Hvítt gegn Todorcevic
12. umferð: Svart gegn Ljubojevic
13. umferð: Hvitt gegn Milos
14. umferð: Svart gegn Benjamin
15. umferð: Hvítt gegn Salov
16. umferð: Svart gegn Allan
17. umferð: Hvítt gegn Beljavsky.
Jóhann virðist ekki eiga eftir erf-
iðari andstæðinga en helstu kep-
pinautar hans. Erfíðastir verða
auðvitað Ljubojevic, Salov og
Beljavsky, en hinn fyrstnefndi
þeirra heftir aldrei reynst nægilega
taugasterkur í lok slíkra móta til
að komast áfram. Jóhann hefur allt-
ént hvítt á Sovétmennina tvo og
hinir fjórir andstæðingar hans ættu
að vera viðráðanlegir. Hann hefur
t.d. unnið þijár síðustu skákir sínar
við Benjamin. Við skulum nú líta á
sigra Jóhanns í tveimur síðustu
umferðum. Þar réð góður byija-
naundirbúningur hans úrslitum.
Hvitt: Jóhann Hjartarson
Svart: Marin (Rúmeniu)
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 --
cxd4 4. Rxd4 — e6 5. Rc3 — a6
6. Be2 - Dc7 7. 0-0 - Rxd4
Svartur vill greinilega forðast
troðnar slóðir, en langalgengast er
að sjálfsögðu 7. — Rf6.
8. Dxd4 - b5 9. Be3 - Bb7 10.
Hfdl - Hc8?
Svartur hefur teflt byijunina of
framlega og ekki hirt um að þróa
kóngsvæng sinn. Eftir öflugt svar
hvíts verður svörtu stöðunni senni-
lega ekki bjargað
11. Bf4! - Dc6 12. a4! - bxa4
Ömurlegur leikur, en kjaminn í
áætlun hvíts er sá að eftir 12. —
b4? 13. Bb5! getur svartur þegar
gefíst upp.
13. Dxal - Rf6 14. Bxa6 - Bxa6
15. Dxa6 - Dxa6 16. Hxa6 - Bb4
17. Rb5 - 0-0
17. — Rxe4? var að sjálfsögðu svar-
að með 18. Hd4!
18. c3 - Bc5 19. Bd6 - Hfd8 20.
Ra7! - Bxa7 21. Hxa7 - Ha8 22.
Hxa8 — Hxa8 23. e5 — Rd5 24.
c4 — Rb6 25. b3 og fáum leikjum
síðar gaf Marin þetta gleðisnauða
endatafl.
I næstu umferð á eftir fékk hinn
nýbakaði enski stórmeistari Glenn
Flear svipaða meðferð. Þar varð
Flear einmitt á sama ónákvæmni
og Jóhanni sjálfum í skák hans við
sovézka stórmeistarann Mikhail
Gurevich á mótinu í Moskvu í júní.
Hvítt: Flear (England)
Svart: Jóhann Hjartarson
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 -
Kristy Swanson og Matthew Laborteaux í myndinni Hættulegur vin-
ur.
sér til það vélmenni. Paul kennir
stundum við háskóla og fram-
kvæmir krafningar því hann er
að rannsaka starfsemi heilans.
Paul er svona 14 ára.
Einn góðan veðurdag skýtur
elliær kerling vélmennið í tætlur.
Um sama leyti er kærasta Pauls
drepin af drykkfelldum föður
hennar. Paul verður svo mikið um
það að hann rænir líkinu, fer með
það á rannsóknarstofuna sína,
opnar á því höfuðkúpuna og tyllir
tölvukubb úr kollinum á vélmenn-
inu sínu oná heila kærastunnar.
Svo lokar hann aftur og stendur
uppi með hallærislega unglinga-
Frankenstein um fermingaraldur
Kulkmyndlr
Arnaldur Indriðason
Hættulegur vinur (Deadly
Friend). Sýnd í Bíóborginni.
Stjörnugjöf: ★.
Bandarísk. Leikstjóri: Wes
Craven. Handrit: Bruce Joel
Ruben. Framleiðandi: Robert
M. Sherman. Kvikmyndataka:
Phil Lathrop. Tónlist: Charles
Bernstein. Aðalhlutverk: Matt-
hew Laporteaux, Kristy
Swanson og Michael Sharrett.
Látið ykkur ekki bregða en
svona er söguþráðurinn í hryll-
ingsmyndinni Hættulegur vinur
(Deadly Friend), sem sýnd er í
Bíóborginni:
Paul (Matthew Laporteaux) á
vélmenni sem getur allt. Paul bjó
myndaútgáfu af Frankenstein.
Stúlkan lifnar við, hálft andlitið
er þakið bláum augnskugga svo
að það fari ekki framhjá neinum
að stúlkan hafí verið dáin, hún
labbar eins og R2D2 og drepur
þá sem hún kemst í tæri við.
Hvað eru menn tilbúnir að
ganga langt í því að sjóða saman
unglinga- og hryllingsmynd?
Hryllir um 14 ára gamlan heila-