Morgunblaðið - 01.08.1987, Síða 23

Morgunblaðið - 01.08.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 23 STEFÁN FRIÐBJARNARSON IV Hér verður ekki fjallað um starfs- hætti Alþingis, samkvæmt nýjum þingsköpum, sem verið hafa um- ræðuefni fyrr í þessum pistlum. Það er hinsvegar ekki úr vegi að drepa á eitt veigamikið atriði. Samkvæmt stjómarskrá lýðveldisins er Alþingi friðheilagt . Enginn má raska friði þess né frelsi. Þannig má ekki - meðan þing stendur -, svo afmarkað dæmi sé tekið, „taka neinn alþingismann fastan fyrir skuldir án samþykkis þeirrar deildar, er hann situr í, né heldur setja hann í varðhald eða höfða mál á móti honum, nema hann sé staðinn að glæp. Enginn alþingismaður verður krafínn reikn- ingsskapar utan þings fyrir það, sem hann hefur sagt í þinginu, nema þingdeidin, sem í hlut á, leyfí. Ennfremur eru alþingismenn ein- göngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum." (íslandssaga Einars Laxnes). Alþingi og þingheimur standa hinsvegar frammi fyrir viðvarandi þjóðardómstóli, sem kveður upp dóma á fjögurra ára fresti eða tíðar í almennum kosningum. Fjölmiðlar, sem tröllríða íslenzku samfélagi, sjá dyggilega um það, að ekkert fari fram hjá misvökulum almennings- augum. Og „það er smátt sem hundstungan fínnur ekki“, segir máltækið. Alþingi fær því sína gagnrýni ómælda. Þrátt fyrir það vill þjóðin ekki missa nöldrið sitt, ef svo má að orði komast. Enda er Alþingi homsteinn lýðræðis, þingræðis og þegnréttinda. Þennan homstein má að vísu móta betur að samtíð og framtíð. En hann á að vera íhaldssamur og breytast hægt. Flan er aldrei til fagnaðar. Borgarráð: Hugmynda- samkeppni umbætta umgengni BORGARRÁÐ hefur vísað til umsagnar umhverfismálaráðs og skólamálarráðs, drögum að hugmyndasamkeppni um bætta almenna umgengni í borginni. Að sögn Bjöms Friðfinnssonar framkvæmdastjóra lögfræði- og stjómsýsludeildar, er starfandi nefnd á vegum borgarráðs, sem fjallað hefur um hugmyndasam- keppni með það í huga að bæta almenna umgengni í borginni. f drögum nefndarinnar er lagt til að samkeppnin verði haldin um ný ruslaílát á staumm í borginni og ný slagorð í líkingu við „Hrein torg fögur borg“. Nefndin leggur til hugmyndasamkeppnin verði almenn en að auki verði grunn- skólabömum gefinn kostur á þátttöku. Leiðrétting Undir baksíðumynd af trétöflu, sem fannst við fomleifauppgröft í Viðey í blaðinu í gær láðist að geta ljósmynd- arans, sem tók myndina af töflunni. Nafn hans er Hans U. Vollertsen. Beðizt er velvirðingar á þessu. Landlæknir: Bæklingnr ætlaður ferða- mönnum í utanlandsferð Skordýr bera ekki eyðnismit Heilbrigðisyfirvöld hafa gef- ið út bælding sem ætlaður er ferðamönnum er hyggja á ferðalög til hitabeltislanda og annarra landa. í bæklingnum er lögð áhersla á hvemig veij- ast á eyðni. í frétt frá Landlæknisembætt- inu segri, að í skýrslu frá alþjóða- heilbrigðisstofnuninni frá því í mars síðastliðnum, kemur fram að eyðni hefur aukist meir meðal fíkniefnaneytenda en samkyn- hneigðra. Meðal fíkniefnaneyt- enda ber mikið á ungum konum sem eru á aldrinum 20 til 29 ára og eru vændiskonur. Því ber að beina forvamaraðgerðum mest að þeim hópi. Þá kemur fram að tölur frá ít- alíu sýna að 58% vændiskvenna í Aviano, sem neyta eiturlyfja, eru með jákvæða mótefnamælingu gegn eyðniveirunni. Talið er að svipað hlutfall sé í mörgum öðrum borgum í S-Evrópu og í Afríku. I fréttinni segir enn fremur að ferðamenn og aðrir veiti því fyrir sér hvort skordýr sem nærast á blóði manna geti borið eyðnismit. „Slíkar vangaveltur eru skiljanleg- ar þar sem eyðni smitast með blóðblöndun og vitað er að sumir smitsjúkdómar geta borist með skordýrum. Útbreiðsla eyðnismits nieðal Afríkubúa bendir hins vegar ekki til þess að skordýr stuðli að útbreiðslu sjúkdómsins. Smit af völdum eyðni er mjög sjaldgæft meðal bama undir 15 ára aldri nema hjá þeim yngstu sem hafa smitast af móður í meðgöngu eða við fæðingu. Tíðni smitsins fer síðan ört vaxandi eftir að ungling- ar fara að stunda kynlíf. Böm á þeim aldri sem smit er hvað fágæt- ast verða mest fyrir biti af völdum moskítóflugna. Einnig má benda á að eyðnismit er fágætt meðal einstaklinga sem komnir em yfír sextugt. Ef skordýr skipta máli við út- breiðslu sjúkdómsins væri út- breiðsla sjúkdómsins með öðmm hætti en hann er. Þá ber þess að geta að aldrei hefur verið sýnt fram á að smitun hafí átt sér stað til manna með skordýmm." (Úr fréttatilkynningu) PANASONIC F0T0RAFHLAÐAN Sú rétta í myndavélina. Rafborgsf. s.11141. loridaferðirnar eru alltaf að lækka í verði, þökk sé hagstæðum samning- um Ferðaskrifstofunnar Polaris og beinu flugi Flugleiða. Florida er sam- nefnari fyrir sumar og sói allt árið. eiðin liggur beint til Orlando og þaðan er ekið til St. Petersburg og dval- ið í góðu yfirlæti við Mexicoflóann. kkar farþegar láta vel af hótelunum Alden og Lamara. Allar hótelíbúð- irnar eru með vel búnu eldhúsi, smekklegum húsgögnum, sjónvarpi og öllum þægindum. Og ekki má gleyma sundlaugunum og hótelgörðunum." eynslan sýnir að viðskiptavinir Polaris kunna að meta lága verðið og góðu þjónustuna. Starfsfólk Polaris vinnur fyrir þig. nnifalið í þessu ótrúlega verði er flug, akstur til og frá flugvellinum í Orlando og hótelgisting. isney World, Epcot Center og Sea World eru ævintýrastaðir sem gera ferðina ógleymanlega fyrir unga sem aldna. Pantið fljótt, því í fyrra seld- ust ferðirnar upp á svipstundu. Ilt þetta færðu fyrir 23.900.-pr. mann (miðað við 2 fullorðna og 2 börn í íbúð) eða 33.610.- pr. mann (miðað við 2 fullorðna í studio). Já, það er einmitt þess vegna sem fólk talar um Ferðaskrifstofuna Polaris. * Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Flugvallarskattur er ekki innifalinn. FERÐASKRIFSTÖFAN POLAR/S Kirkjutorgi 4 Sfmi 622 011 POLARIS visriiais

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.