Morgunblaðið - 01.08.1987, Page 26

Morgunblaðið - 01.08.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 Málin rædd við Davíð borgarstjóra og Arnfinn Jónsson skólastjóra Vinnuskólans. Þessi sýndi góð tilþrif í dekkjakasti. Liðlega 600 krakkar á lokahátíð Vinnuskóla Reykjavíkur á Þingvöllum Morf^unblaðið/Sigurður Jónsson Keppt var í ýmsum íþróttagreinum, þó ekki hafi þær alltaf verið hefðbundnar. Selfossi. _ VINNUSKÓLI Reykjavíkur hélt lokahátíð sina á Þingvöll- um 30. júlí. Þar skvettu liðlega 600 krakkar úr klaufunum og luku formlega veru sinni í skólanum sem Reykjavíkur- borg stendur fyrir. Krakkam- ir eru á aldrinum 14-15 ára og hafa fengist við ýmis konar verkefni í júní og júlí á vegum vinnuskólans. Þegar flest var í Vinnuskólan- um voru þar 1.100 krakkar við störf. Það eru heldur færri krakk- ar en í fyrra og er ástæðan að sögn forsvarsmanna sú að 15 ára krakkar hafa átt betra með að fá vinnu annarstaðar. Krakkamir hafa í sumar séð um hirðingu á Miklatúni, í Hljóm- skálagarðinum, Fossvoginum og Laugardalsgarðinum. Auk þess hafa stærstu íþróttasvæðin verið undir þeiira umsjá hvað hirðingu snertir. Utlit þessara svæða í Reykjavík ber krökkunum gott vitni en umtalað er hversu snyrti- legt og þrifalegt er á þessum svæðum. Krakkamir í Vinnuskólanum hafa tekið að sér garða hjá elli- lífeyrisþegum og öryrkjum, hreinsað þar og snyrt. Alls eru það um 300 garðar sem unnið hefur verið í og er mikil ásókn í þessa þjónustu. Þá hafa krakk- amir hjálpað til í Viðey við fomleifauppgröft og við vatns- lögn. Vinnuskólinn hefur vakið mikla athygli enda þarf mikið og gott skipulag þegar svo margar vinnuhendur eru annars vegar. Það eru 60 leiðbeinendur sem sinna vinnustjómun auk þeirra sem sjá um yfírstjómina. Skólinn hefur fengið menn í heimsókn erlendis frá sem hafa verið að kynna sér starfsemi skólans. Það var eins og á Þingvöllum við þjónustumiðstöðina væri úti- hátíð í gangi þegar lokahátíðin stóð sem hæst. Fólk var þar í óða önn að grilla pylsur og á flöt- unum voru krakkamir í leikjum. Sumir gengu á stultum, aðrir voru í snaggaralegum fótbolta þar sem snilldartaktar sáust, nokkrir reyndu kúluvarp og aðrir skutu niður dósir meðan krafta- karlar reyndu með sér í víkinga- íþróttum. Sumir tóku það bara rólega og létu fara vel um sig í grasinu og ræddu málin. Davíð Oddsson borgarstjóri heimsótti hátíðina, gekk um svæðið og heilsaði upp á ungling- ana. Þeir krakkar sem rætt var við báru Vinnuskólanum gott orð og voru sammála um að starfs- andinn í hópunum væri svo góður að það væri hreinlega ómissandi að mæta í vinnuna. I ágúst kváð- ust flestir ætla að slappa af fram að skóla en sumir voru búnir að fá sér eitthvað að gera, svona til að drýgja sumarkaupið sem þau sögðu fljótt að eyðast upp. Tvær hljómsveitir spiluðu á lokahátíðinni, Bláa bílskúrsband- ið og Vaxandi með Bjama látúnsbarka innanborðs. Það var því þrumustuð við bílpallinn sem hljómsveitimar spiluðu af og ágæt stemmning. Krakkamir klöppuðu með og sungu öðra hveiju af krafti enda á ferð kraft- mikill blómi Reykjavíkur. Sig. Jóns. Þessar tóku hraustlega undir með iátúnsbarkanum. Hluti hópsins úr Vinnuskólanum á lokahátiðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.