Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 Mexíkó: Flugvél skall á hraðbraut Mexíkóborg, Reuter. FLUTNINGAFLUGVÉL með átta manns og sautján sýningarhesta innanborðs steyptist til jarðar nálægt Mexikóborg í fyrrakvöld og lenti á hraðbraut. Mikil umferð var á veginum og fleiri en þijátíu manns fórust á jörðu niðri er flugvélin þeyttist logandi á bíla, heim- ili og veitingahús við vegarbrúnina. Þrír fórust með vélinni sjálfri, einn af fjögurra manna áhöfn og tveir af flórum farþegum. Fimmtán hestar drápust í slysinu. Flugvélin, sem var af Boeing 377-gerð og smfðuð á fímmta ára- tugnum, tilheyrði mexíkanska smáflugfélaginu Aero Caribe. Hún var nýkomin frá Belizeborg, höfuð- borg nágrannaríkisins Belize. Hún millilenti í Mexíkóborg til þess að taka hestana og fjóra mexíkanska embættismenn um borð og átti síðan að fljúga til Miami. Að sögn sjónarvotta stóð reykur aftur úr hreyflum vélarinnar er hún hóf sig til lofts frá flugvellinum í Skorið í nef- ið á Reagan Washington, Reuter. Mexíkóborg. Skömmu síðar lenti vélin í þrumuveðri og að sögn þeirra, sem á horfðu, sáu þeir hana verða fyrir eldingu. Síðan þögnuðu hinir fjórir hreyflar vélarinnar, hún fleytti kerlingar á tijám og braut nokkur niður, sleit svo niður há- spennulínu og skall niður á hrað- brautina og sprakk. „Við fundum jörðina skjálfa," sagði einn sjónar- votta. Fleiri en þijátíu manns fórust, sem ýmist voru akandi í bflum á hraðbrautinni, sátu á vinsælu veit- ingahúsi við vegarbrúnina eða bjuggu í nálægum húsum. Björgunarmenn fundu lík í 26 sviðnum bílflökum. Nokkur hundr- uð hermenn leituðu einnig í brakinu í fyrrinótt, en um miðjan dag í gær sögðust þeir vonlausir um að fínna þar fleiri á lífí. Reuter Hjálparsveitir Rauða krossins bera burt á börum lík eins hinna fjör- utíu, sem fórust í slysinu. í forgrunni liggur hræ eins hestanna, sem vélin flutti. Einn mesti kókaín- fundurí söguBanda- ríkjanna Chicago, Reuter. BANDARÍSK yfirvöld hafa gert upptæk nær 2.300 kg. af kókaíni, sem komið hafði ver- ið fyrir í ávaxta- og græn- metiskössum í vöruhúsi einu í Chicago. Er verðmæti þess- ara fíkniefna talið vera allt að 250 millj. dollara. Þetta er eitt mesta magn fíkniefna, sem gert hefur verið upptækt í einu í Bandaríkjunum. Edwin Meese, dómsmálaráð- herra Bandaríkjanna, skýrði sjálfur frá þessu í gær. Sagði hann, að forstjóri vöruhússins, aðstoðarmaður hans og tveir vörubflstjórar hefðu verið hand- teknir. Tveir þessara manna eru frá Kolumbíu, en hinir eru frá Kúbu. Lögreglumenn fylgdust með því, er fíkniefnunum var skipað upp í Florida og síðan flutt með vörubflum fyrst til New York en síðan til Chicago. : Zimmermann gagnrýnir i mannréttindabrot Sovétmanna Vin, Reuter. WARREN Zimmermann, aðlfull- ' trúi Bandaríkjanna á Mannrétt- ; inda og öryggismálaráðstefnunni t í Vin, gagnrýndi Sovétiúenn harð- lega f gær fyrir mannréttindbrot. Lagði hann fram nýjar tillögur, sem miða að þvi að afnema allar hindranir á ferðafrelsi fólks. Zimmermann sagði, að þrátt fyrir nokkrar tilslakanir sovézkra stjóm- valda við að láta pólitfska fanga lausa og leyfa fleirum að flytjast úr landi, þá hefðu þrír síðustu mánuðir valdið vonbrigðum. „Við upphaf þessa þings vissum við um 131 pólitfskan fanga, sem látinn hafði verið laus. Síðan hefur þessi tala hækkað, en eftir því sem yið bezt vitum, þá hefur hún ,ekki énn náð 200." Zimmermann sagði, að aðgerðir Sovétmanna einkenndust af „svikn- um loforðum." Hélt hann því fram, að enda þótt fjöldi gyðinga hefði aukizt, sem nú fengi árlega að flytj- ast frá Sovétríkunum, þá væri hann helmingi minni en á áninum 1970 - 1980. Samkvæmt tillögum Bandaríkja- manna nú bera að viröa til fulls óskir fólks um að fá að flytja úr landi. Felldar verði niður hömlur á brott- flutningi fólks, sem rökstuddar eru með tiliiti til öryggishagsmuna við- komandi rfkis. Zimmermann taldi upp mörg til- felli, þar sem sovézkum þegnum hefði verið meinað að flytjast úr landi sök- um þess að þeir eða foreldrar þeirra hefðu haft aðgang að ríkisleyndar- málum allt að því 16 ár aftur f tfmann. Reuter Hryðjuverk á Filippseyjuki Mannréttindaráðstefnan í Vín: Filippseyskur lögreghunaður. liggur fallinn fyrir utan lögreglu- stöð, sem skæruliðar kommúnista réðust á f gær. Tveir félagar hans féllu einnig i árásinni. Aðrir tveix- verðir Inganna vorii felld- ir annars staðar á eyjunum í gær. Hryðjuverk kommúnista hafa færst f aukana eftir að þingið tók til starfa f sfðustu viku og eru hersveitir stjómarinnar því vel á verði. Ramos, yfirmaður hersins, sagði þó f gær að vopn og byssupúður myndu aldrei bijóta skæru- liðana á bak aftur ein og sér, höfuðatríði væri að bæta kjör alþýðunnar og gera hana ánægða með tilveruna. REAGAN Bandarílgaforseti und- irgekkst i gær minniháttar skurðaðgerð á nefi. Við rannsókn f vikunni kom f Ijós að hann var með húðkrabbamein á nefínu og læknar ákváðu að fjarlægja það. í gærkvöldi var talið að Reagan þyrfti kannski að gista á sjúkrahúsi f nótt, en ekki er talið að eftirköstin verði nein að ráði. Læknir Reagans segir að krabbameinið sé ekki hættu- legt og breiðist ekki út. Reagan birtist opinberlega í fyrra- dag með plástur á nefinu og sló á létta strengi við blaðamenn. „Það er alltaf hlegið að neflnu á mér,“ sagði hann. „Ég var of mikið úti í sólinni og það þarf aðeins að krukka í nef- broddinn á mér.“ Reagan hefur tvisvar áður gengist undir svipaða aðgerð. Brottrekstur KGB-manna frá Noregi: Reuter Thorvald Stoltenberg, utanríkis- ráðherra Noregs, á fréttamanna- fundinum sfðastliðinn fimmtu- dag, þegar tilkynnt var um brottrekstur KGB-mannanna. Norsk yfirvöld reyndu að halda málinu leyndu Frá Tore Johansen, fréttaritara Morgunblaðsins i Ósló. NORSK stjómvöld reyndu að Gang hinn 22. júli varð þess halda brottrekstri Sovét- mannanna fjögurra leyndum, en fregn í blaðinu Verdens valdandi að fréttaleyndin var rofin. í fréttinni var upplýst að verslunarfulltrúinn Valeri I. Rechetnikov væri KGB- maður og stundaði njósnir á norskri grund. Talsmaður utanríkisráðuneytis- ins vildi hvorki neita því né játa að frétt VG hefði orðið til þess að Sovétmenn ákváðu að grípa til gagnaðgerða og lýsa tvo norska stjómarerindreka óvelkomna til Sovétríkjanna, en þar með reyndist ógjömingur að halda málinu leyndu. Það hefur áður gerst í Noregi að Sovétmönnum hafl verið vísað úr landi án þess að það hafl verið játað opinberlega. Ástæðan er sú að norsk stjómvöld hafa kosið að flrra Sovétmenn álitshnekki til þess að samskipti landanna bíði ekki varanlegt tjón af. Meðal þeirra, sem hafa gagniýnt þessi vinnubrögð er Káre Willoch, formaður utanríkis- máladeildar Stórþingsins og fyrr- verandi forsætisráðherra, en hann telur ekki forsvaranlegt að halda málum sem þessum leyndum — Sovétmenn verði að vita hvað njósnastarfsemi geti haft í för með sér. „Menn verða að gera greinarmun á því að fresta opinberun máls og að halda því algerlega leyndu," sagði forsætisráðherrann fyrrver- andi, sem ennfremur hefur verið orðaður við framkvæmdastjóra- stöðu NATO þegar Carrington lávarður lætur af störfum. „Það getur verið rétt að fresta því að skýra frá málum sem þessum til þess að komast hjá fjaðrafoki og úlfaþyt, en að mínu viti á almenn- ingur heimtingu á að vita málavexti eins fljótt og kostur er.“ Willoch var ekki þekktur fyrir að fara leynt með brottrekstur erlendra sendifull- trúa í stjómartíð sinni. Gert var ráð fyrir því að Rússam- ir tveir, sem eftir voru í Ósló, þeir Rechetnikov og Korpusov, flygju til Moskvu í dag, en öllum að óvörum fóm þeir, án þess að kveðja kóng eða prest, síðdegis í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.