Morgunblaðið - 01.08.1987, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987
o t\/i n nn — atwinna ntwi 'nna o twinr r a — a twinnn — — atwinna
d i vii II id divn ii id divi i ii id diviin í vu ii id — di viíIIid
Vélvirki
Þrítugur vélvirki óskar eftir vellaunuðu starfi.
Hef starfað við vélaupptekt, nýsmíði og lítil-
lega við innflutning. Margt kemur til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 7.
ágúst merkt: „Starf — 6044.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Akranes óskar að ráða þrjá hjúk-
runarfræðinga í 100% vinnu.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 93-12311.
Hjúkrunarforstjóri.
Fínull hf.
í verksmiðju okkar í Mosfellssveit vantar
okkur starfsmenn í eftirtalin störf:
Kembingu, spuna, prjón, saum og pökkun.
Góð laun. Vinnutími frá kl. 8.00-16.00.
Fríar ferðir frá Kópavogi og Reykjavík.
Nánari upplýsingar í síma 666006.
Vantar þig bifvéla-
virkja?
23ja ára bifvélavirki, sem er að hugsa sér
til hreyfings með haustinu, vantar vel laun-
aða og góða vinnu. Hefur meirapróf og
réttindi á krana ásamt ýmiskonar starfs-
reynslu.
Upplýsingar í síma 93-71357 á kvöldin.
Kennarar
Kennara vantar að grunnskólanum í Sandgerði.
Kennslugreinar: íslenska, danska, enska og
almenn kennsla.
Húsnæðisfyrirgreiðsla.
Við leitum að frísku fólki sem vill taka þátt í
tilraunum okkartil að gera skólann okkar betri.
Upplýsingar gefa Guðjón Þ. Kristjánsson,
skólastjóri í síma 92-37436 og Ásgeir Bein-
teinsson, yfirkennari í síma 92-37801.
Starfmann
Starfsmann vantar í Skólavörubúðina,
Laugavegi 166.
Um er að ræða starf í 4 mánuði. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf nú þegar.
Umsóknir sendist Námsgagnastofnun, póst-
hólf 5192, 125 Reykjavík.
„Au pair“ til Noregs
Hress, ábyggileg stúlka óskast til ungra
hjóna með 2 börn (hún íslensk) sem fyrst í
6 mánuði og lengur ef vel gengur. Búa rétt
fyrir utan Osló.
Umsóknir merktar: „Au pair — 4030" sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. ágúst.
Tónlistarskóli
Gerðahrepps
óskar eftir fiðlukennara — klarinettkennara
fyrir næsta skólaár.
Vegna barnsburðarleyfa vantar einnig kenn-
ara í hálft starf, fyrir jól, í forskólakennslu
og kennara í heila stöðu, eftir jól, í píanó-
kennslu og fleira.
Upplýsingar veitir Björk í síma 92-27211.
Afgreiðsla
— sölustarf
Vantar tvo starfsmenn til sölu á happa-
þrennu, lottó og öðrum happdrættismiðum.
Vinnutími mánudaga — laugardaga frá kl.
9.30-19.30. Tvískiptar vaktir. Ráðning frá 13.
ágúst.
Umsóknir sem greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 6.
ágúst merktar: „Happdrætti — 6052".
Garðabær
Iðnfyrirtæki í Garðabæ óskar að ráða starfs-
kraft til almennra skrifstofustarfa. Vinnutími
frá kl. 07.00 til kl. 12.00.
Umsóknum með upplýsingum um umsækj-
anda verði skilað á auglýsingadeild Mbl. fyrir
7. ágúst merkt: „Garðabæ — 858“.
Grunnskólinn á
Flateyri
Tvo kennara vantar að grunnskólanum á Flat-
eyri. Um er að ræða kennslu í 7.-9. bekk,
erlend mál og raungreinar.
Upplýsingar í síma 94-7645.
Skólastjóri.
Banki — tollur
Stórt fyrirtæki óskar eftir að ráða starfskraft
í innflutningsdeild.
Verksvið: Banka- og tollútleysiningar og
fleira.
Þarf að geta hafið störf fljótlega.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir föstudag-
inn 7. ágúst nk., merkt: „V — 4601".
Vörumóttaka
Okkur vantar starfsmenn í vöruskemmu okk-
ar við vörumóttöku og frágang. Starfsmenn
þurfa að geta hafið störf strax.
Mötuneyti
Okkur vantar vana manneskju í mötuneyti
okkar í einn mánuð í afleysingar. Þarf að
geta hafið störf strax.
Upplýsingar á skrifstofu.
Vöruflutningamiðstöðin,
Borgartúni 21.
Skrifstofustarf
óskast
Karlmaður með mikla alhliða reynslu í skrif-
stofustörfum, óskar eftir áhugaverðu og
krefjandi framtíðarstarfi. Hefur m.a. reynslu
í færslu tölvubókhalds, launaútreikningi, toll-
skýrslugerð, erl. bréfaskriftum o.fl.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Framtíð — 6051".
Góð laun íboði fyrir
áhugasamt
starfsfólk
Axis hf. framleiðir húsgögn og innréttingar
fyrir innanlandsmarkað og til útflutnings.
Við viljum ráða áhugasama og vandvirka
karla og konur í eftirtalin störf:
1. Almenna vinnu við samsetningu og frá-
gang framleiðsluvara.
2. Vélavinnu.
3. Lagerstörf.
Upplýsingar hjá framleiðslustjóra.
AXIS
AXIS, AXEL EYJÓLFSSON HF.
SMIÐJUVEGUR 9,
200 KÓPAVOGUR, SlMI 43500
Starf á sýningu
Nokkrir sýnendur á sýningunni Veröldin ’87,
sem verður í Laugardalshöll dagana 27.
ágúst til 6. sept. nk., hafa óskað eftir því,
að Kaupstefnan hf. verði þeim innan handar
um að ráða sölufólk í sýningarbása þeirra.
Við óskum því eftir að komast í samband
við áhugasamt fólk á aldrinum 20-35, ára
sem kemur vel fyrir og getur selt.
Vinsamlegast sendið umsóknir merktar:
„Sýning — 4078“ til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 6. ágúst nk. með upplýsingum um ald-
ur, menntun, fyrri störf og Ijósmynd.
Forstöðumaður
Leikskólinn í Ólafsvík auglýsir eftir forstöðu-
manni. Um er að ræða fullt starf, en til
greina kemur þó, að tveir skipti starfinu á
milli sín.
Áskilið er að umsækjendur séu með fóstru-
menntun. Mjög góð fríðindi í boði.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu Ólafsvíkurkaupstaðar í síma 93-61153
og hjá Guðrúnu Aðalsteinsdóttur í síma
93-61366.
Hótel í
miðborg Oslóar
óskar að ráða til sín fólk til ræstinga á her-
bergjum. Óskað er eftir rösku, áhugasömu
fólki með einhverja kunnáttu í Norðurlanda-
málum og ensku. Húsnæði getur fylgt.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
eigi síðar en 1. sept. nk.
Skriflegar umsóknir ásamt meðmælum sendist:
Hotel Bondeheimen,
c/o Kristín Einarsd. Rygg,
Rosenkrantzgate 8,
0159 - Oslo 1, NORGE.
Utflutningsfyrirtæki
á fatnaði
óskar eftir ráða starfskraft í fullt starf.
í starfinu felst:
- Umsjón með öllum innkaupum fyrirtæk-
isins,
- ábyrgur fyrir öllum afhendingum til við-
skiptavina,
- vinna við framleiðslu- og birgðabókhald
fyrirtækisins í tölvu.
Hér er um að ræða starf, sem býður upp á
mikla framtíðarmöguleika, en gerir jafnframt
miklar kröfur til viðkomandi.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „Á — 851“ fyrir 10. ágúst.