Morgunblaðið - 15.08.1987, Page 10

Morgunblaðið - 15.08.1987, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 Umsjónarmaður Gísli Jónsson 400. þáttur Steinunn Eyjólfsdóttir Það sem skiptír máli í 353. þætti svaraði ég spumingu á þennan veg: „Um beygingu ættamafna get ég ekki gefið neina algilda reglu. Sjálfum er mér tamt að setja á þau eignarfall- sendingu í flestum tilvikum. Ég tala t.d. um greinar Ævars Kvarans og heildverslun Þorsteins Blandons, kenn- ingar Níelsar Dungals og ríkisstjóm Gunnars Thoroddsens. Hitt verð ég að játa, um ættamöfn sem enda svo ókven- lega sem á -son og -sen, að þá hef ég ekki eignarfalls-ess á kvennanöfnum. Þá segi ég til dæmis: Þulur Theódóru Thoroddsen. Hér verð ég því að skírskota mjög til smekks manna." Að svo komnu hef ég ekki miklu við þetta að bæta frá eigin brjósti. Mér finnst alveg sjálfsagt að tala um stjóm- artíð Kristjáns Eldjáms, prédikanir Jóns Vfdalfns og bækur Ömólfs Thorlaciuss eða Thorlaciusar. Hitt verð ég að játa, að vandinn eykst þegar kemur að viðumefnum eins og Kolka. Ég held ég myndi þó tala um ljóð Páls Kolku fremur en Páls Kolka. Ég er enn sama sinnis um kvennanöfnin. Mér er ómögulegt að tala um greinar Kristínar Thoroddsens eða ljóð Jakobínu John- sons (hún var reyndar Vestur-fslend- ingur). Og fleira kemur til. Ég held að of mikill eignarkeimur yrði að eignar- fallinu, ef talað væri um embætti Beru Nordals eða leik Eddu Kvarans. En nú vill svo vel til að ég get dregið mjög úr vangaveltum um þetta efni. ★ Ingólfur Pálmason cand. mag. hefur verið svo vinsamleg- ur að senda þættinum bækling sinn Um ættarnöfn og erlend mannanöfn í íslensku. í þessu vandaða riti er fjallað gaum- gæfílega um þetta vandamál, beygingu slíkra nafna, og mig langar til að vitna ofurlítið til þessa rits. Dæmi sem við Ingólf- ur látum okkur vel líka: 1) „Ötulleik og framkvæmd- arsemi Magnúsar trésmiðs Sigfússonar Blöndals, æðsta templars stúkunnar...“ (Suðri 31. des. 1886). Gestur Pálsson var ritstjóri Suðra. 2) „ Síra Jón Bj amason hefur nýlega ritað alllangt mál um Biflíuljóð síra Valdimars Briems ...“ (Dagskrá 10. apríl 1897). Einar Benediktsson stjómaði Dagskrá. 3) „Um þá lærðu Vídalína er gefíð út af dr. Jóni Þorkels- syni... framan við Vísnakver Páls lögmanns Vídalíns 1897 . ..“ (Jón Helgason. Jón Ólafsson frá Grunnavík, Kh. 1926, bls. 301). 4) „Bjöms M. Ólsens verður framar öllu minnzt sem vísinda- manns.“ (Sigurður Nordal. Áfangar II. Rv. 1944, bls. 18). 5) „Nú hófst þriðja æviskeið Gríms Thomsens." (Jónas Jóns- son. Saga íslendinga VIII. bindi, Rv. 1955, bls. 231). 6) „Samtöl Matthíasar Jo- hannessens birtust undir efnis- heitinu í fáum orðum sagt.. .“ (Eiríkur Hreinn Finn- bogason. M. Samtöl I. Rv. 1983, bls. 5). 7) „Önnu í Kærleiksheimil- inu svipar til Sigríðar í sögu Jóns Thoroddsens ...“ (Matth- ías Viðar Sæmundsson í Skírni 1983, bls. 20). 8) „Skáldskapur Sigurðar Nordals varð aldrei nema auka- geta með öðmm ritum hans.“ (Ólafur Jónsson í Skími 1981, bls. 117). 9) „Nýfrétt er frá Khöfn lát Jóns kaupm. Norðmanns frá Akureyri.. .“ (ísafold 1908, bls. 122). Björn Jónsson var ritstjóri Isafoldar. 10) Gísli Rúnar Jónsson í hlutverki Guðmundar Schev- ings sýslumanns ...“ (Sigurður Hróarsson. Lesbók Mbl. 17. maí 1986). ★ Mig langar til að gefa In- gólfí Pálmasyni orðið í sam- felldu máli: „Ég hef fjöldamörg dæmi um það frá starfí mínu í framhalds- skólum, bæði sem prófdómari og kennari, hversu staða eign- arfalls er veik í nútíma íslensku. Hér á hirðuleysi um beygingu ættamafna og erlendra manna- heita vafalítið nokkra sök. I ritgerð eftir mann á þrítugsaldri rakst ég á þessa setningu í vor, efnið var úr Gíslasögu Súrssonar: „Næst liggur Ieið Gísla til Hergilsey." Setningar sem þessar tala sínu máli.“ Áður en ég gef Ingólfí orðið enn, langar mig til að láta þess getið, að það var fyrst fyrir örskömmum tíma sem ég gerði mér grein fyrir veikleika eignar- fallsendingarinnar. Ég sann- færðist um hana við að hlusta á fjölmiðla. Ég veit að beyg- ingafræði hefur verið homreka í ýmsum skólum upp á síðkast- ið. Þar er breytinga þörf. Og enn segir Ingólfur Pálma- son að lyktum í bæklingi sínum: „Þó að ættamöfnum hafi fjölgað síðustu áratugina virðist vegur þeirra ekki hafa aukist að sama skapi. Æ fleiri hugs- andi mönnum verða nú ljós þau vandkvæði sem þau skapa í íslensku málkerfí og ég lít svo á, að það sé aðeins spuming um tíma, hvenær málfræðingar og fræðsluyfírvöld láta þau mál, sem hér hafa verið til umræðu, til sín taka. Margir íslendingar sem borið hafa ætt- amöfn hafa lagt þau niður í seinni tíð, vafalítið til stuðnings hinum foma nafnsið. Slíkt mót- vægi gegn sveiflum tískunnar er tungunni afar dýrmætt. Ég óttast þó, að þeir aðilar sem nú gerast forgöngumenn um beygingarleysi ættamafna og erlendra mannaheita þykist þegar standa með pálmann í höndunum og fari brátt að vitna í ættamöfn sem beygingar- lausan flokk orða í íslensku. Slíkt ábyrgðarleysi væri í stíl við ýmislegt annað sem nú er látið viðgangast. Það er von mín að þau vanda- mál sem drepið hefur verið á í þessu spjalli verði umhugsunar- efni sem flestra þeirra karla og kvenna er hafa iðkun íslensks máls sér til atvinnu eða afþrey- ingar. Það væri núlifandi kynslóð til vansa að horfa að- gerðarlaus á augljós málspjöll ágerast daglega fyrir augum sér.“ ★ P.s. Ofmælt var í næstsíðasta þætti að Indriði gullsmiður reisti Indriðahús; hann eignað- ist það og átti þar heima, en Bertel Borgen sýslumaður hafði reist það. Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Steinunn Eyjólfsdóttir: BÓKIN UTAN VEGAR. Útlit og hönnun: Elisabet Anna Cochran. Teikn- ingar: Guðrún Svava Svavars- dóttir. Bókrún 1987. Bókin utan vegar er ljóðaflokkur um viðkvæmt efni. Móðir yrkir um son sinn sem lést af slysförum tvítugur að aldri. Svo langt er um liðið að unnt er að gera efninu skil án beiskju. Með því að fjalla um hið einkalega er höfðað til annarra sem orðið hafa fyrir sömu eða líkri reynslu og um leið allra þeirra sem láta sig mannleg vandamál og harma varða. Steinunn Eyjólfsdóttir hefur sent frá sér nokkrar bækur: smásagna- safn, ljóð og bamasögur. Bókin utan vegar er aðeins kver, en engu að síður samið af innri þörf og tölu- verðum metnaði. í fjórða kafla Bókarinnar utan vegar er þetta að fínna: Spekingar hafa keppst við að vísa okkur veginn veg dyggðanna veg hamingjunnar veg viskunnar. Hve margir þeirra hafa fætt af sér nýtt líf? Lífið. Ef við skiljum að það er það eina það einasta eina sem skiptir máli alltaf og allstaðar þá þurfum við ekki vegina þeirra. Þá getum við fundið lífið sem er það sama og sköpunin sem er það sama og Guð utan vegar alveg eins og dauðann. Eða kannske vegna dauðans? Vegsömun lífsins og verðmæta þess er það sem Steinunni Eyjólfs- dóttur liggur á hjarta að koma til skila. Það tekst henni í Bókinni utan vegar. Söknuðurinn kallar fram einlægni, hin sára reynsla nógu mikinn þroska til að fara að öllu með gát. En að baki orðanna eru heitar tilfínningar. Svipmyndir frá samskiptum móð- ur og bams verða lifandi. Ég nefni sjöunda kafla þar sem segir frá örlögum hunds, hvemig bam bregst við þegar dýr er drepið. Einnig tíunda kafla sem lýsir líka sorg- legri reynslu bams. Sömuleiðis sautjánda kafla sem segir frá kirkjuferð móður og sonar á jólum og sonurinn styður móður sína í snjónum og hálkunni og gefur henni fagra minningu. Svo eru það draumar næturinnar sem eru betri en dagurinn vegna þess að þeir færa syrgjendum glaðlegar minn- ingar um hinn látna, samanber áttunda kafla. Sumt í Bókinni utan vegar geldur þess að vera endurtekið um of og einnig skortir markvissara orðalag á stöku stað. Kaflamir eru mjög misjafnir, sumir þeirra veigaminni en aðrir. Lesandinn fínnur að það er skáld sem á margt ólært sem hér tjáir reynslu sína og tilfinning- ar. Én það hve þessi litla bók er heil og sönn lyftir henni yfír torfær- ur og gerir hana eftirminnilega þrátt fyrir allt. SIMAR 21150-21370 Til sýnis og sölu auk annarra eigna: S01USTJ LARUS Þ VALDIMARS L0GM J0H Þ0RÐARS0N HDL Skammt frá Landakoti — laus strax Kingsley, Kinski og Kvennabúrið 5 herb. glæsileg íb., um 140 fm. Nýtt eldh., nýtt bað, nýtt sérþvottah. Sérhiti. Suðursv. 20 fm. Öll sameign eins og ný. Ib. er skuldlaus í 15 ára steinhúsi á stórri lóö meö sér bdastæði. Með frábærum greiðslukjörum Úrvalsibúðir 3ja og 4ra herb. í smíðum við Jöklafold í Grafarvogi. Full- búnar u. trév. í júlf næsta ár. Öll sameign frágengin. Byggjandi Húni sf. Rúmgóð íbúð við Laugateig 2ja herb. í kj. 61,8 fm nettó. Sérinng. Sérhiti. Glæsileg lóð. Ákv. sala. Verð aðeins kr. 1850 þús. gegn góðri útborgun. Stórt og glæsilegt raðhús í smíðum á útsýnisstað i fremstu röð við Funafold. Tvöf. bílsk. Allur frágangur fylgir utanhúss. Byggjandi Húni sf. Húsið er áætlaö íbhæft í ágúst-sept. næsta ár. Nokkrar ódýrar íbúðir sem gætu hentað námsfólki og öðrum frumbýlingum m.a. í: Hlíðum, Vesturbæ, Telgum og igamla Austurbænum. Vinsaml. leitið nánari uppl. Heimar — Vogar — nágrenni Til kaups óskast góð 4ra-5 herb. íb. eða íbhæð með bílsk. eða bílskrétti. Einbhús eða raðhús með íb. af þessarri stærö æskilegast. Miklar og góðar greiðslur. Losun eftir 6-18 mánuði Góð 3ja-4ra herb. íb. óskast til kaups, helst í Austurborginni. Traustur kaupandi. Hagkvæm skipti 3ja herb. íb. með sérinng. óskast til kaups. Ib. i lyftuhúsi kemur til greina. Má vera í Reykjavík eða Kópavogi. Skipti möguleg af einbhúsi af meðalstærö. Nánari uppl. trúnaðarmál. Opið á morgun, laugardag, A I |kJ| ÉJJ Ikl |k| ki.n.ootiiki. 16.00. Ml m C li PBM FASTEIGMASAL AH LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370 Nastassia Kinski í myndinni Kvennabúrið. KVIKMYNDIR Arnaldur Indriðason Kvennabúrið (Harem). Sýnd í Regnboganum. Stjömugjöf: ★. Frönsk. Leikstjóri og handrits- höfundur: Arthur Joffé. Fram- leiðandi: Alain Sarde. Kvikmyndataka: Pasqualino de Santis. Helstu hlutverk: Nastass- ia Kinski, Ben Kingsley, Dennis Goldson og Zohra Segal. Það er svosem nóg af hæfileik- aríku kvikmyndaliði í kringum frönsku myndina Kvennabúrið (Harem), sem sýnd er í Regnbogan- um. Ben Kingsley, sem er frábær leikari og eftirminnilegur úr Gandhi fer með annað aðalhlutverkið; Nast- assia Kinski, sem er aldrei betri en þegar hún vinnur með góðum leik- stjórum (og hún er svo heppin að hafa gert mikið af því), eins og Wim Wenders í Paris-Texas og Polanski í Tess, leikur á móti hon- um; kvikmyndatökumaðurinn er ítalinn Pasqualino de Santis, sem unnið hefur með mönnum eins og Scola og Zeffírelli; leikmyndahönn- uðurinn er Alexandre Trauner, sem unnið hefur við kvikmyndagerð síðan 1932 með mönnum eins og Welles og Huston, Zinnemann og Billy Wilder. En þetta er fyrsta rrynd franska leikstjórans Arthur Joffé, sem skrifar einnig handritið að henni, og maður fær á tilfinning- una að þessu ágæta liði hafi verið sóað, því myndin er innihaldsrýr og iítt áhugaverð. Joffé hefði þurft að æfa sig á nokkrum myndum áður en hann gerði þessa. Ef hann hefur einhveija frásagn- arhæfíleika njóta þeir sín ekki í þessari mynd. Hún byijar í New York. Við sjáum Diane (Kinski) á leið í vinnuna, sjáum hana í vinn- unni (hún vinnur í Kauphöllinni), sjáum hana fara til spákonu og sjáum hana kveðja einhveija vini sína sem voru að gifta sig. Svo sjáum við að henni er rænt á leið út til Frelsisstyttunnar og okkur gæti ekki staðið meira á sama. Við vitum ekkert um hana, hver hún er, hvemig hún er eða hvaðan hún kemur. Hún gæti þess vegna hafa sprottið uppúr hatti töframanns. Og við eigum lítið eftir að kynnast henni það sem eftir er myndarinnar. Allt í einu er klippt þar sem ak- feitur geldingur, sem kemur seinna í ljós að dreymir stundum um þriðja kynið, er að bera hana inn í kvenna- búr einhversstaðar í Arabalöndun- um. Diane sýnir lítil viðbrögð. Seinna fær hún eitt og eitt reiði- kast og spyr konumar í kvennabúr- inu hvað sé að gerast en þær em í jafnmiklu myrkri með það og við. Svo kemur í ljós að olíuprinsinn Selim (Kingsley) hefur haft auga- stað á Diönu lengi og var eiginlega ekki að ræna henni heldur vildi hann aðeins spyija hana hvort hún vildi giftast sér en gat ekki bara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.