Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
Með sólhlíf i Putalandi
Taiwan:
Með sólhlíf í kínversku
Putalandi og vanga-
veltur um fréttamennsku
BLAÐAÚTGAFA á Taiwan verð-
ur að teljast blómleg í betra lagi;
yfir þessar tæpu 20 milljónir,
sem búa þar, rignir 44 milljónum
eintaka á hveijum degi. Þar fyr-
ir utan urmull af vikuritum og
hvers konar skýrslum, sem
stjórnvöld telja okkur hoUt að
lesa. Langstærsta samsteypan
kallast á ensku United Daily
News, sem mér virtist eftir lýs-
ingum að dæma, að hefði undir-
tökin á blaðamarkaði landsins. í
fyrsta lagi er samnefnt dagblað
langútbreiddast í landinu og á
vegum fyrirtækisins koma út á
annan tug blaða og sérrita.
Einn morguninn fór ég í heim-
sókn í United Daily News og þar
var svona ámóta annríki og Vafstur
og á blöðum, hvar sem þau eru í
heiminum. Kóreönsk stúlka, Lina
H. Kae, sem hefur það fasta starf
að leiða gesti og gangandi um rit-
stjómina, var hin elskulegasta. Hún
talar japönsku, mandarin, taiw-
önsku, og kóreönsku reiprennandi.
Kenneth Liu, ritstjóri
En þar sem þekking mín á þessum
tungum var takmörkuð, urðu þetta
skrítnar samræður. Þessari blaða-
samsteypu var komið á fót árið
1951 og blaðamenn eru 540 við
Daily News eitt. Svo mikið skildi
ég. Notkun tölva er auðvitað allsr-
áðandi. Hver hafði skjá fyrir sig.
Mér fannst frábært að horfa á
stúlkumar skrifa inn þessi óteljandi
kínversku. Og vafðist ekki aldeilis
fyrir þeim. Töluvert fleiri karlar
vinna við blaðamennsku en konur.
Samsteypan hefur komið upp alls
konar styrkveitingum og verðlaun-
um og nokkmm sinnum á ári er
efnt til alþjóðlegrar smásagna-
keppni o g starfsmenn njóta almennt
ýmissa hlunninda. Meðal annars
hefur verið komið á stofn orlofs-
og hvíldarheimilum fyrir starfs-
fólkið aðeins fyrir norðan Tapei.
Þangað ætlaði Lina með manninum
sínum um helgina og bauð mér
umsvifalaust að koma og vera næt-
ursakir, eða lengur ef ég vildi og
hún skyldi senda mér aðgöngumiða.
Það gerði hún samvizkusamlega.
Þá var fellibylurinn Alex skollinn á
og hvorki mér né hundunum út sig-
andi.
Eitt virtasta blað landsins og
gefið út af samsteypunni er The
Economic News. Aðalritstjóri þess
Frá Kínaglugga
Flugvöllurinn - og örlítill Búdda
Verið að taka upp kínverskan indjánaþátt
í önnum við innskriftarborðin
Kenneth Liu, hafði sent þau skila-
boð, að hann ætlaði að gefa sér
tíma til að hitta mig. Eftir skoðun-
arferðina fórum við Lina út á
kaffisjoppu að bíða eftir Liu. Eins
og ritstjórum sæmir var hann of
seinn á stefnumótið, En svo kom
hann, snaggaralegur, hlýlegur og
hress og pantaði umsvifalaust bjór
handa okkur að drekka. Og tók til
við að útskýra fyrir mér blaðaútg-
áfu og veldi United Daily News.
Mörg af þessum blöðum hafa út-
breiðslu utan Taiwans, til dæmis í
Bandaríkjunum og Frakklandi og
gervihnattatækni kemur þar að
góðu gagni.
Liu spurði, hvað mér fyndist um
blaðamennsku á Taiwan.Ég sagði,
að mér sýndist fréttamennska hér
ekki frjáls, altjend ekki á vestrænan
mælikvarða. Farið væri kynlegum
höndum um ýmsar fréttir, og leiðar-
amir virkuðu gamaldags. Svo væru
fréttir af atburðum á meginlandinu
í sérstökum tón. Ég lyfti hikandi
glasinu; vonandi hafði ég ekki
móðgað hann? En Liu kippti sér
ekki upp við þessar léttu yfirlýsing-
ar. „Þú hefur ekki lesið blöðin með
réttu hugarfari. Hélztu að þetta
væri lýðræðisríki í venjulegum
skilningi. Nú er margt að breytast,
en við erum ekki famir að venjast
því að skrifa upp á þessu nýju
býti...Kannski er kínversk blaða-
mennska öðruvísi en íslenzk,“sagði
hann en bætti svo við„Og þó.“
Hann hallaði hugsandi undir flatt,
„auðvitað er blaðamennska í eðli
sínu alls staðar eins. Ef hún er
góð. Svo að mér fínnst fróðlegt að
heyra þetta. Ég vona, að þú skiljir,
að ég á erfítt með að tjá mig um
þetta. Málið er viðkvæmt. Ég held
þó, að ég geti sagt, að efnahagsri-
tið, sem ég stýri, virði í meginatrið-
um það bezta og réttasta í
blaðamennsku. Og fjölmiðlum hér
hefur verið uppálagt aðeins tvennt
hingað til: berjast gegn glæpum.
Og vera á móti kommúnisma. Það
em ágætar hugsjónir, en það bæt-
ist vonandi fleira við nú. “
Það var ekki nokkur ástæða til
að koma þessum elskulega manni
í vandræði, enda ég ekki hingað
komin til að hafa í frammi eintóm-
ar útásetningar. Svo að ég sneri
mér að því að spyija hann um ætt-
ir og uppruna. Vinsælt umræðuefni
Taiwana. Liu var fæddur á meginl-
andinu, kom hingað ungur. Hann
hefur margsinnis farið til megin-
landsins, venjulega gegnum Tókíó,
en eftir að Hong Kong leiðin hefur
opnazt býst hann við að nota hana.
Hann sagði það sama og Nancy
Ying, skáld og hefur komið fram í
grein, að ferðir þangað væm fræg-
asta leyndarmál eyjarinnar.
Hann sagðist vita þrennt um ís-
land; Hófí hafði verið Ungfrú
heimur, við ættum Nóbelsskáld í
bókmenntum og höfðum háð og
unnið þorskastríð við Breta.
Taiwanar em ekki aðeins iðnir
blaðalesendur, þeir horfa mikið á
sjónvarp og þar em þijár stöðvar.
Eg brá mér dagstund í þá stærstu
CTS og mér skilst, að fréttir og
fréttatengdir þættir, sem stöðin