Morgunblaðið - 26.08.1987, Síða 1
/
56 SÍÐUR
190. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Sakamenn gera
uppreisn á Elbu
n i v nrnrn M
mmmm
Róm, Reuter.
ÁTTA dæmdir sakamenn,
vopnaðir byssum og hnífum,
tóku 16 manns í gislingu í gær
í fangelsi bæjarins Porto
Azurro á eyjunni Elbu. Kallað
var á lögreglulið frá Ítalíu og
var enn setið um fangelsið er
Morgunblaðið fór í prentun í
gærkvöldi.
Fangamir kreQast þess að þeim
verði fengin þyrla til afnota en
áður höfðu þeir krafíst báts til að
flytja þá til meginlandsins. Að
sögn embættismanna halda
mennimir til í sjúkradeild fangels-
isins en um 400 fangar veija
dögum sínum innan múra þess.
Talsmaður ítalska dómsmála-
ráðuneytisins sagði sakamennina
hafa tekið fangelsisstjórann og
16 starfsmenn í gíslingu. Fang-
amir hótuðu að myrða gíslana
væri ekki gengið að kröfum
þeirra. Sjónarvottar sögðu að tveir
gíslanna væra hlekkjaðir við rimla
eins fangelsisgluggans og sæju
umsátursmenn greinlega til
þeirra.
Giovanni Goria, forsætisráð-
herra Ítalíu, átti tvívegis fund með
ráðherram stjómar sinnar og yfír-
mönnum lögregluliðs og var
afráðið að fá dómara einn til að
reyna að tala um fyrir föngunum.
Fangamir átta afþlána allir
langa fangelsisdóma. Leiðtogi
þeirra er nýfasistinn Mario Tuti,
sem dæmdur var í lífstíðar fang-
elsi fyrir að hafa myrt tvo lög-
regluþjóna. Félagar hans hafa
einnig gerst sekir um hin verstu
óhæfuverk.
Verðandi
geimfari
Mae C. Jamison, sem er þritug að aldri
og hefur starfað sem læknir í Los
Angeles, hefur verið valin til að taka
þátt í þjálfun geimfara á vegum
Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna.
Hún er fyrsta blökkukonan sem valin
er til starfans og var myndin tekin í
Johnson-geimferðastöðinni þar sem
þjálfunin fer fram.
Reuter
Mesta rigning í París íheila öld
Fótgangandi vegfarendur á Champs Elysees, aðalgötu Parísar, ganga með spenntar regn-
hlífar í úrhellinu fram hjá auðum sætum útikaffihúss. Mikið rigndi um alla Evrópu í gær
og fyrrinótt og létu sjö menn lífið í Belgiu, Sviss og á Ítalíu. Veðurfræðingar í París sögðu
að aðfaranótt þriðjudags hefði mælst mesta rigning í heila öld í höfuðborg Frakklands.
Sjá fréttir af óveðrinu á bls. 24 og 25.
Afvopnunarviðræður risaveldanna í Genf:
Bandaríkj astj órn kynnir
nvjar tillögnr um eftirlit
Meðal- og skammdrægar flaugar upprættar á þremur árum
Genf, Washington, Reuter.
SAMNINGAMENN risaveldanna í Genf komu saman til fundar í gær
og lögðu fulltrúar Bandaríkjastjórnar fram nýja tillögu varðandi
eftirlit með því að ákvæði hugsanlegs afvopnunarsáttmála verði virt.
Að sögn bandaríska dagblaðsins The Washington Post er í veigamikl-
um atriðum komið til móts við kröfur Sovétstjómarinnar.
í frétt The Washington Post
sagði að bandarískir leyniþjónustu-
menn og bandamenn stjómar
Ronalds Reagan i Vestur-Evrópu
hefðu lagst gegn því að sovéskir
eftirlitsmenn fengju að rannsaka
hemaðarlega mikilvæga staði vest-
an Jámtjaldsins. Að sögn blaðsins
hafa Bandaríkjamenn ákveðið að
faila frá afdráttarlausri kröfu um
að eftirlitsmenn megi hvenær sem
er rannsaka verksmiðjur Sovét-
manna þar sem meðaldrægar
kjamorkuflaugar era smíðaðar.
Talsmenn Bandaríkjastjómar í
Genf og Washington staðfestu að
lagðar hefðu verið fram breyttar
tillögur en báru til baka að um ein-
hliða tilslakanir væri að ræða af
hálfu Bandaríkjamanna. Phyllis
Oakley, talsmaður stjómarinnar í
Washington, sagði að samkvæmt
tillögunum væri gert ráð fyrir að
öllum skammdrægum flaugum yrði
eytt innan árs eftir undirritun
samnings. Meðaldrægar flaugar
skyldi á hinn bóginn uppræta innan
þriggja ára. Staðfesti hún einnig
að tillögum varðandi eftirlit hefði
verið breytt á þann veg að fallið
hefði verið frá ýmsum skilyrðum
varðandi eftirlit með framleiðslu
lqamorkuflauga Sovétstjómarinn-
ar. Einnig kvað hún Bandaríkja-
stjóm hafa lagt fram nýjar tillögur
um eftirlit með þeim flaugum sem
fyrir væra í vopnabúram stórveld-
anna.
Terry Shroedér, talsmaður sendi-
nefndarinnar í Genf, sagði nýju
tillögumar vera svar við tilkynningu
Mikhails Gorbachev Sovétleiðtoga
frá síðasta mánuði þess efnis að
Kremlveijar væru reiðubúnir að
fallast á algera upprætingu meðal-
og skammdrægra flauga í Evrópu
og Asíu. Shroeder sagði það lengi
hafa verið skoðun bandarískra
ráðamanna að allt eftirlit yrði mun
auðveldara ef samið yrði um algera
eyðingu þess háttar vopna. Tillög-
umar sem lagðar hefðu verið fram
í gær væru til þess fallnar að auð-
velda og tryggja eftirlit.
Mikhail Gorbachev lagði til í gær
að efnt yrði til sérstaks fundar leið-
toga þeirra ríkja sem eiga sæti í
Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
þar sem rædd yrðu afvopnunar- og
efnahagsmál. Bandaríska dagblaðið
Los Angeles Times kom þeim orð-
rómi á kreik á mánudag að
Gorbachev hygðist vera viðstaddur
setningu Allshetjarþings Samein-
uðu þjóðanna í New York í næsta
mánuði og væri reiðubúinn að ræða
við Reagan forseta að því loknu.
Bæði Bandaríkjamenn og Sovét-
menn hafa borið þessar fréttir til
baka.
N-Svíþjóð;
Isaldar-
loftslag
ríkjandi
ÍSALDARLOFTSLAG ríkir
í norðurhluta Svíþjóðar. Frost
er í jörðu, fuglar deyja og
gróðurinn springur ekki út
fyrr en í ágúst, að því er seg-
ir í frétt í vestur-þýska
dagblaðinu Die Welt.
Að sögn Leifs Kullmann við
háskólann í Umeá er veðurfarið
nú einsdæmi á þessari öld. Þetta
minnir helst á hina svokölluðu
litlu ísöld frá 1150 e.K. til
miðrar 19. aldar. Þá var vaxt-
artími plantna tveimur mánuð-
um skemmri en eðlilegt má
teljast. Sumur voru köld og vot-
viðrasöm og miklir fimbulvetur.
Uppskerubrestur reið yfír
Evrópu, milljónir manna sultu.
Kollmann segir í viðtali sem
birtist í Die Welt á sunnudag
að mörg tré hafí fellt barr sitt
nú í sumar og engir vaxtarsprot-
ar séu á birkinu. í héraðinu
Norrland bregst uppskeran
þriðja árið í röð; komakrarnir
hafa breyst í mýrarpytt. Dag-
lega hringir fólk í sænska
náttúrafræðisafnið og lýsir
áhyggjum sínum vegna þess að
gróðurinn blómstrar ekki.
Fuglsungar fijósa í hel og
nokkrar fuglategundir eru
horfnar úr Norður-Svíþjóð.
Veður- og skógræktarfræð-
ingar telja að loftslag í norður-
hluta Skandinavíu hafi versnað
smám saman síðasta aldarfjórð-
unginn og minniháttar ísöld sé
skollin á.
Tyrkland:
94 íranskir bylting-
arverðir handteknir
Ankara, Reuter.
TYRKNESKIR embættismenn yfirheyrðu í gær 94 íranska byltingar-
verði, sem handteknir voru innan landamæra Tyrklands á sunnudag.
Að sögn tyrkneskra dagblaða hugðust íranirnir vinna skemmdar-
verk á olíuleiðslum íraka nærri landamærunum.
Tyrkneska dagblaðið Milliyet
skýrði frá því í gær að byltingar-
verðimir hefðu farið yfir landamæri
Tyrklands á sunnudag og verið
handteknir skömmu síðar. Sagði í
frétt blaðsins að mennimir hefðu
óskað eftir leyfí til að fara um þess-
ar slóðir. Mennirnir vora færðir til
yfirheyrslu í bænum Hakkari en
samnefnt héráð liggur að landa-
mæram Tyrklands og íraks.
Undanfama mánuði hafa harðir
bardagar verið háðir í norðurhluta
íraks. Hafa stjórnarhermenn og
skæruliðar kúrda, sem njóta stuðn-
ings írana, tekist þar á. Tyrkneska
dagblaðið sagði kúrda hafa verið í
röðum þeirra sem handteknir voru.