Morgunblaðið - 26.08.1987, Síða 4

Morgunblaðið - 26.08.1987, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson Maður slasaðist litillega i hörðum árekstri í Njarðvík í gær og eru tvær bifreiðar illa famar eftir, þar af önnur ónýt. Sá ekki bendingar lögreglu HARÐUR árekstur tveggja bif- reiða varð á mótum Reykjanes- brautar og Grænásvegar í Njarðvík siðdegis i gær. Einn maður meiddist Iitillega og bif- reiðarnar varð að draga á brott. Áreksturinn varð um kl. 17 í gær. Lögreglumaður var við um- ferðarstjórn á gatnamótunum þegar tvær bifreiðar bar þar að. Annar ökumaðurinn virðist ekki hafa tekið eftir merkjum lögreglu- mannsins heldur ekið viðstöðu- laust áfram og því skullu bifreiðarnar saman af miklu afli. Annar ökumaðurinn slasaðist lítil- lega, en bifreiðamar eru mjög illa farnar og er önnur talin ónýt eftir. VEÐURHORFUR í DAG, 26.08.87 YFIRLIT á hádegi í gœr: Um 600 km suður af Hornafirði er 1005 mb lægð á hreyfingu suðsuðaustur, en hæðarhryggur skammt vestur af landinu þokast austur. Við Hvarf hefur myndast lægð sem mun hreyfast norðaustur. Veður fer lítið eitt hlýnandi. SPÁ: í dag verður suðvestan gola eða katdi og skýjað um mest allt land. Rigning eða súld um vestanvert landið en þurrt að mestu um landiö austanvert. Hiti 9—16 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA FIMMTUDAGUR ÖG FÖSTUDAGUR: Suðvestlæg átt og vætusamt um sunnan og vestanvert landið en úrkomulítið norðaustanlands. Fremur hlýtt, einkum á norðaustur og austurlandi. TÁKN: Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y. Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / r / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El = Þoka — Þokumóða », » Súld CO Mistur —Skafrenningur jV Þrumuveður t \ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 9 alskýjað Reykjavík 11 léttskýjað Bergen 19 léttskýjað Helsinki 13 léttskýjað Jan Mayen 6 léttskýjað Kaupmannah. 19 skýjað Narssarssuaq 13 hálfskýjað Nuuk 8 rlgning Osló 15 skýjað Stokkhólmur 15 skýjað Þórshöfn 10 skýjað Algarve 23 heiðskfrt Amsterdam 20 skýjað Aþena 30 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Berlín 25 skýjað Chicago 15 rigning Feneyjar 25 þokumóða Frankfurt 18 skýjað Glasgow 18 skýjað Hamborg 20 þokumóða LasPalmas 28 léttskýjað London 13 rignlng LosAngeles 17 alskýjað Lúxemborg 13 skúr Madríd 25 léttskýjað Malaga 30 helðskfrt Mallorca 28 léttskýjað Montreal 14 skýjað NewYork 18 skýjað París 13 rigning Róm 28 léttskýjað Vfn 27 léttskýjað Washington 18 skýjað Winnipeg 10 alskýjað Hækkun líf- eyris um 12% Stór hluti lífeyrisþega nær lágmarkslaunum HEILBRIGÐIS- og trygginga- ráðherra, Guðmundur Bjarna- son, kynnti í gær hækkun á bótum almannatrygginga. Lífeyrir, tekjutrygging og heim- ilisuppbót hækka um 12% frá og með 1. september og er að því stefnt að þessar greiðslur ásamt öðrum tekjum verði ekki lægri en lágmarkslaun i landinu. Einstaklingar hafa frá 1. júní 1987 fengið 25.222 krónur í trygg- ing;abætur frá Tryggingastofnun ríkisins hafi þeir ekki haft önnur laun en frá 1. september hækkar þessi upphæð í 28.300 krónur. Heildarlífeyrir einstaklinga hækkar því um 3.078 krónur á mánuði sem felst í hækkun á heimilisuppbót. Heimilisuppbót er fyrir þá einstakl- inga sem einir hugsa um heimilis- reksturinn og njóta þar af leiðandi ekki fjárhagslegs hagræðis af sam- býli við aðra. Heildarlífeyrir hjóna sem bæði njóta fullra bóta hækkar úr 35.904 kr. á mánuði í 39.978 kr. á mán- uði. Þessi hækkun felur í sér að tekjutrygging hjóna er hækkuð til jafns við tekjutryggingu tveggja einstaklinga og er á þann hátt dreg- ið úr því misræmi sem verið hefur á milli einstaklinga og hjóna. Al- mannatryggingalögin gera ráð fyrir því að lífeyrir hjóna skuli nema 90% af lífeyri tveggja einstaklinga. Fram kom hjá ráðherra að vitað væri um einstaklinga sem búa við erfið kjör og munu áfram verða með lífeyri undir lágmarkslaunum, en það er sá hópur einstaklinga sem er í sambýli við aðra og fær því ekki greidda heimilisuppbót. Sagð- ist ráðherra hafa farið fram á það við Tryggingastofnun ríkisins að hún greiddi uppbót á lífeyri þeirra einstaklinga sem enn eru undir lág- markslaunum og sýnt er að ekki komast af án frekari aðstoðar. Sérs- taklega þarf að sækja um frekari aðstoð til Tryggingastofnunar ríkis- ins. Þær hækkanir á bótum almanna- trygginga sem gildi taka um næstu mánaðamót kosta ríkissjóð 74 millj- ónir króna sem er 16 milljónum minna en ráð var fyrir gert. Þær ná til til um 1000 bótaþega, en allt að 2000 kunna að eiga rétt á hækk- un bóta. Fiskmarkaðir: Gott verð á gáma- fiski í Bretlandi Meðalverð á þorski yfir 41 krónu á markaðnum í Hafnarfirði MJÖG gott verð fékkst fyrir gámafisk á uppboðsmörkuðum í Bretlandi í gær, en þá voru seld um 317 tonn á samtals 22,3 millj- ónir króna eða 70,47 krónur á kílóið að meðalverði. Þar af voru um 204 tonn þorskur og var meðalverð 67,19 krónur á kílóið, 56 tonn af ýsu á 79,02 krónur að meðalverði og fyrir 37 tonn af kola fengust 73,83 krónur að meðalverði. Gott verð fékkst einnig fyrir þorsk á íslensku fisk- mörkuðunum í gær, í Hafnarfirði voru seld 18,5 tonn fyrir 41,46 krónur að meðalverði og Engey RE seldi 117,5 tonn á Faxamark- aði í gær og fékkst 37,07 krónur fyrir kílóið að meðalverði. Ottó N. Þorláksson RE seldi 187,5 tonn af þorski í Hull á mánu- dag fyrir samtals 9,4 milljónir króna og var meðalverð 50,13 krónur á kílóið, sem er heldur lítið, og að öllu jöfnu minna í skilaverði en það verð sem fékkst fyrir þorskinn á ístensku fiskmörkuðunum í gær. Þá voru seld um 248 tonn af gámafíski á Bretlandsmarkaði á mánudag fyrir 15,4 milljónir króna, eða 62,09 krónur að meðalverði. Af aflanum voru um 152 tonn þorskur á 53,61 að meðalverði, 45 tonn ýsa á 80,99 krónur að meðal- verði og 37 tonn karfi á 74,01 krónu að meðalverði. Loðnuverð í yfimefnd EKKI tókst samkomulag um loðnuverð á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins í gær og var ákveðið að vísa málinu til yfir- nefndar. Yfirnefnd skipa tveir fulltrúar frá hvorum aðila, selj- endum og kaupendum, og einn oddamaður, sem verður Bene- dikt Valsson, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun. Fundur hefur verið boðaður í yfirnefnd á morgun, fimmtudag. Tvö loðnuskip eru nú komin á miðin norður af Húnaflóa, Huginn VE og Gullberg VE, en samkvæmt upplýsingum loðnunefndar hafa þau ekki orðið vör. Mun það vera ætlun þeirra að sigla norður undir 70 breiddargráðu þar sem færeysk loðnuskip hafa haldið sig að undanf- ömu. Tvö önnur loðnuskip, Öm KE og Jón Kjartansson SU em á leið á miðin og er reiknað með að um tíu skip verði komin á miðin í lok þessarar viku. Loðnuverksmiðjan á Þórshöfn hefur auglýst móttöku á loðnu og er þar laust pláss fyrir um 2.000 tonn. Verksmiðjan tók til starfa í fyrrahaust og bræddi um 25 þúsund tonn á síðustu loðnuvertíð. Að- spurður um hvaða verð verksmiðjan hyggðist greiða fyrir loðnuna sagði Jóhann A. Jónsson framkvæmda- stjóri að ákvörðun þar að lútandi færi eftir niðurstöðu yfirnefndar varðandi loðnuverð. Leiðrétting í viðtall við Sigrúnu Bjarna- dóttur frá Hesteyri í síðasta sunnudagsblaði ruglaði undirrit- aður blaðamaður saman nöfnum tveggja bræðra. Guðmundur Albertsson er látinn fyrir mörgum ámm, en það var yngsti bróðir hans, Ólafur Alberts- son, sem jarðsettur var í Hesteyrar- kirkjugarði skömmu áður en viðtalið fór fram. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á því. - E.Pá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.