Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBIAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
19
Glaðningnrinn
og skrímslið
eftir Svein Einarsson
Á hverju ári berast borgurum
þessa lands áhrifamikil bréf, sem
fjölmiðlar hafa komið sér saman
um að nefna einu nafni glaðning-
inn. í fyrstu mun þessi nafngift
hafa átt að vera háðsleg fyndni —
gálgahúmor — en af viðbrögðum
við „glaðningnum“ nú í sumar, var
að sjá á mörgum aðspurðum, að
með öllu væri óþarft að hafa þess-
ar gæsalappir utan um nafngiftina
— menn voru hæstánægðir og
undu glaðir við sitt. Og reyndar,
þegar ég sá minn eigin skattseðil,
þá hugsaði ég sem svo, að nú hljóta
einhveijir aðrir að verða glaðir.
Reyndar heyrðust í blöðum fáeinar
hjáróma raddir launafólks, sem
vissi ekki vel, hvemig endar áttu
að ná saman, sérstaklega, ef þeir
höfðu verið svo ógætnir að taka
lífeyrissjóðslán, — en þær raddir
drukknuðu að mestu í almennri
gleði yfir glaðningnum.
Eg hef líka með árunum tamið
mér að kalla fram i huga mér sér-
staka tegund gleði yfir þessari
sendingu. Ég hugsa þá sem svo:
Mikið er það nú gaman, að þú
skulir vera svona aflögufær, að þú
skulir vera sá bógur, að geta látið
þó þetta mikið rakna af hendi til
almenningsheilla. Ég hef meira að
segja, svona af mannlegri forvitni,
stolist til að kíkja í skattskrána,
þegar hún liggur frammi, og orðið
heldur betur upp með mér, er ég
verð þess vísari, að ýmsir, sem ég
get ekki betur séð en hafi alln-
okkm meira umleikis, svona eins
og maður setur mat á náungann
útfrá stöðu og aðstöðu, eignum og
öðmm lifímáta — og kemst að
því, að þeir virðast ekki vera nærri
því eins miklir máttarstólpar og
ég og margt annað launafólk. Ég
verð náttúmlega enn glaðari við
að uppgötva það, að örlögin hafa
unnt mér þess, að leggja umtal-
svert miklu meira í pottinn en þeir,
þó að ég reyndar geti ekki neitað
því að undmn sæki að mér yfir
því, að sumir þessara á ytra borði
árangursríku manna — engin nöfn
nefnd og engar stéttir — skuli vera
svona raunalega illa staddir. Og
sem góðum borgara ber mér að
gleðjast yfir því að geta svona létt
undir með þeim.
En stundum verður þessi undmn
svo ásækin, að mér verður það á
að orða það, hvað það sé nú leiðin-
legt með þennan og þennan, að
hann skuli vera svona illa aflögu-
fær. Þá er hlegið að mér. „Þú
kannt bara ekki á kerfið.“ Og þá
verð ég að játa, að mér hefur sést
yfir, að kerfið sé sérstök náms-
grein. Jafnvel ekki þótt það sé
viðkunnanlegt að hugsa þannig.
„Jú það er allt saman pottþétt,"
er þá sagt við mig, „skattakerfið
er nefnilega æði götótt, ef að er
gáð. Það era ýmsar leiðir að
smjúga í gegnum það net.“ Og svo
„En stundum verður
þessi undrun svo ásæk-
in, að mér verður það
á að orða það, hvað það
sé nú leiðinlegt með
þennan og þennan, að
hann skuli vera svona
illa afiögufær. Þá er
hlegið að mér. „Þú
kannt bara ekki á kerf-
ið.“
em mér sagðar ýmsar af þessum
leiðum, gott ef ekki ein albesta
aðferðin átti að vera sú, að eiga
bát og þykjast gera hann út (þetta
er kannski úrelt með kvótakerfínu
og einhver ný og enn fínni leið
fundin). Ég hef satt að segja aldr-
ei numið þetta vel, enda kannski
ekki endilega haft það að hugsjón
að lækka endilega mína skatta,
heldur kannski fremur, að hver
greiddi það sem honum ber.
En svo gerist það, að ég er í
hálfsdagsvinnu, sem þá er þriðj-
ungi verr launuð en starf, sem ég
hafði áður ^gegnt, og konan at-
vinnulaus. I réttlætis nafni skal
þess getið, að ég hef sjálfur kosið,
að vera aðeins í hálfu fastlaunuðu
starfi, af því að ég ímynda mér
að listamenn þurfi einhvern tíma
að hafa til að sinna slíkum verkum;
einhvern veginn vil ég helst bjarga
mér sjálfur, og hef haft það á til-
finningunni, að aðrir væm betur
komnir að hinum opinbem lista-
mannalaunum. En þá er dálítið illt
í efni, því að okkur hjónum er
gert að greiða á mánuði nákvæm-
lega tilgreint 3.3. sinnum það, sem
ég hef í mánaðarkaup. Og allt í
einu fer ég að skilja þegar menn
em að tala um að vinna fyrir skött-
um sínum, ríkisvaldið gefur mér
ekki færi á að hafa mína eigin
aðferð og ryþma við tekjuöflun.
Og þá einhvern veginn dofnar þessi
gleði yfir að vera einn af máttar-
stólpunum.
Því að í rauninni hefði ég kosið
það, að eiga eitthvað aflögu til
þess að borga niður lífeyrissjóðslá-
nið mitt, eins og vitrir menn hafa
ráðlagt mér, — já ég er einn af
þessum ógætnu, sem hélt að lífeyr-
issjóðimir væm þjónustustarfsemi
fyrir fólkið í landinu. Leikskáldið
Éugene Ionesco samdi einu sinni
frægt verk, sem heitir Amadeus,
eða hvernig á að losna við það.
Þetta það er í rauninni barn, sem
þau hafa eignast eða tekið og hef-
ur þann eiginleika, að það tútnar
þessi ósköpin öll út, svo að þau
em farin að upplifa það sem
skrímsli — það er farið að sprengja
utan af sér hús. Þessu sakleysis-
lega lífeyrissjóðsláni mínu svipar æ
meir til skrímslisins hjá Ionesco.
Reynt hefur verið nýlega að
gera átak fyrir þá, sem standa vilja
í húsbyggingum svo að þeir missi
ekki fyrst allar eigurnar og svo ráð
og rænu. En hafa ekki gleymst
þeir sem em að reyna að lyfta
andlitinu á gömlum húsum svo að
þau verði ekki til skammar í sínum
stöðum í borginni?
Jæja, ég skal segja ykkur ná-
kvæmlega, af hveiju lánið mitt
líkist skrímsli. Það er tekið árið
1981 og var þá að upphæð sem
næst 110 þúsund krónum. Síðan
hef ég í sex ár greitt af því upp-
hæð, sem nú nálgast óðfluga
300.000 krónur. En sjálft lánið
stendur í kr. 634.000. Eg ætla að
endurtaka þetta, því mér finnst
talan vera svo athyglisverð:
634.000. Einhvern tíma nýverið
gekk sú bráðskemmtilega gaman-
saga um gamla konu í Vesturbæn-
um, sem hefði tekið lífeyrissjóðslán
til þess að gera við þakið á húsinu
sínu. En einhvern veginn hafði það
æxlast svo, að það var óþarfi fyrir
hana að vera að dytta þetta að
þakinu — lífeyrissjóðurinn tók
nefnilega af henni húsið!
Bráðskemmtilegt. En svona til
samanburðar, út af þessu blessaða
skrímsli mínu, má geta þess, að
þetta lán hefði fyrir sex ámm num-
ið upphæð, sem nægði til að kaupa
bifeið, sem í dag myndi kosta um
400 þúsund. Mismunurinn er m.ö.
o. hálf milljón. Já, það er bersýni-
legt að einhver kann á eitthvert
kerfi!
Ég veit satt að segja ekki hvern-
ig ég á að enda þessar opinbem
efnalegu játningar. Kannski að
hvetja til viðbragða aðra þá, sem
eiga sér skrímsli. Kannski að
hvetja stjórnvöld til að huga að
þeim, sem hér eiga hlut að máli
og ekki geta flokkast undir hús-
byggjendur, þó að þeir hafi verið
eitthvað að reka nagla í gömlu
húsin sín. Og þó einna helst, að
varpa fram þeirri spumingu, hven-
ær ýmis stjórnmálaleg öfl þessa
lands ætla að standa við þá skyldu
sína, að afnema það skattakerfi,
sem við búum við og finna upp
aðrar aðferðir og réttlátari til að
láta sjóða í okkar sameiginlega
potti. Ekkert minna dugir lengur.
Höfundur er rithöfundur og leik-
stjóri.
RYÐFRÍAR
ÞREPA-
DÆLUR
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SERFRÆÐIÞJÖNUSTA - LAGER
<
cn
Ræðumennska og mannleg samskipti.
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn í kvöld
kl. 20:30 að Sogavegi 69, gengið inn að
norðanverðu.
★ Námskeiöið getur hjálpað þér aö:
★ Öðlast HUGREKKI
og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sann-
færingarkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn, ávinna þér
VIRÐINGU og VIÐURKENNINGU.
★ Talið er að 85% af VELGENGNI þinni séu
komin undir því, hvernig þér tekst að um-
gangast aöra.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
— heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM í skefjum
og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun
gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 82411
0
STJÓRNUIMARSKÓLINIM
% Konráð Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie námskeiðin"
HVAD KOSTAR AÐ HRINGJA?