Morgunblaðið - 26.08.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987
23
Frá hátíðarhöldunum í Ólafsvík
Ólafsvík:
Almenn ánægja ríkjandi
að hátíðarhöldum loknum
Ólafsvfk.
ÞAÐ ER mál manna að mjög vel
hafi til tekist með hátíðarhald
Ólafsvíkinga á verslunarafmæl-
inu vikuna 15.-22. ágúst. Einkum
eru heimamenn ánægðir með hve
margir brottfluttir komu i heim-
sókn i gömlu byggðina sína.
Sumir þeirra komu tvisvar. Þeir
gestir sem fréttaritari hefir hitt
að máli hafa lýst sig afar ánægða
með dagskrána, endurfundi vina
og svo það hve miklar framfarir
hafa orðið í bænum.
Á afmælisdagskránni bar hæst
opinber heimsókn forseta íslands,
frú Vigdísar Finnbogadóttur, sem
greinilega á hug og hjörtu fólksins
í landinu vegna óþvingaðs virðu-
leika í framkomu. Bros hennar er
líka eitt þeirra sem getur „dimmu
í dagsljós breytt". Eindæma veð-
urblíða var á meðan á heimsókn
forsetans stóð sem og reyndar alla
vikuna.
Sögusýningin vakti mikla at-
hygli. Þar gengu margir á vit
gamalla minninga við skoðun á
gömlum myndum og munum úr
starfi og leik og varði fólk miklum
tíma í grunnskólanum þar sem sýn-
ingin fór fram. Þar var einnig
sýriing á málverkum sem sumar-.
gestir úr hópí listamanna unnu.
Flest verkanna seldust strax við
opnun sýningarinnar.
Ekki verður annað sagt en að
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Rannveig Albertsdóttir sleppir nokkrum seiðum i eitt kerið sem var
táknrænn vottur um að stöðin væri tekin til starfa.
samvinnu við önnur fyrirtæki um
frekara eldi seiðanna.
Cristian Thommesen stjórnar-
formaður Seafood Development
AS sagði ástæðuna fyrir áhuga
þeirra á fjárfestingu á Islandi vera
þá að hér væru góðar aðstæður
sem ekki væru fyrir hendi í Nor-
egi. Það væri því tilvalið að nýta
norskt fjármagn og íslenskar að-
stæður og mynda samvinnu um
fiskeldið. Hann sagði að í athugun
væri að reisa stóra eldisstöð, Lind-
arlax, á Vatnsleysuströnd. Eddie
Thorp framkvæmdastjóri Seafood
Development sagði að þessi sam-
vinna Islendinga og Norðmanna
leiddi til góðrar nýtingar á mögu-
leikum Islands í fiskirækt og
hagkvæmrar framleiðslu.
Framkvæmdir við stöðina á
Hallkelshólum gengu mjög hratt.
Hafist var handa í október á
síðasta ári og um áramótin var
klakhús komið í gagnið. Jarðvinna
vegna eldishússins hófst í nóvem-
ber, og hluti hússins var tekinn í
notkun í mars.
Gísli Hendriksson á Hallkels-
hólum hefur í mörg ár alið með
sér þá hugmynd að nýta jarðhitann
og kaldavatnslindirnar á jörðinni
til laxeldis. Hann sagðist vera yfir
sig ánægður með þennan áfanga
og það hversu allt hefði tekist
vel, uppbyggingin og rekstur
stöðvarinnar í byijun. Rannveig
Albertsdóttir kona Gísla sagði
ánægjulegt að finna hlýja strauma
frá sveitungum og sagðist vona
að þetta framtak yrði sveitinni til
framdráttar. Undir það tóku þeir
sem fluttu ávörp í hófinu á Borg.
Þar sagði einn ræðumanna. „Við
erum vitni að því hvernig nýta
má náttúruauðlindir til að styrkja
byggðirnar."
Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Þorkell
Forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir kom I opinbera heimsókn til
Ólafsvíkur í tilefni hátíðarhaldanna.
ráðamenn þjóðarinnar hafi sýnt
Ólafsvík fulla sæmd. Tveir ráð-
herrar, Þorsteinn Pálsson forsætis-
ráðherra og Jón Baldvin Hannibals-
son fjármálaráðherra, auk
eiginkvenna. voru meðal gesta og
fluttu ávörp á kvölddagskrá við
vígslu félagsheimilisins. Fleiri góðir
gestir voru, svo sem alþingismenn
og sveitarstjórnarmenn sem fluttu
ávörp og gáfu gjafir. Myndarleg
dagskrá var á þessari samkomu.
Séra Guðmundur Karl Ágústsson
vígði húsið. Viðar Gunnarsson, sem
hér er uppalinn, söng nokkur lög
og hlaut mjög góðar undirtektir.
Kirkjukór Olafsvíkur flutti frum-
samin lög eftir Elías Davíðsson
tónlistarkennara við texta eftir Ottó
Árnason og Jón Arngrímsson. Þá
voru dansaðir þjóðdansar, kveðnar
lausavísur og nemendur Grunnskól-
ans fluttu sögu byggðarlagsins í
leikgerð og lestri. Húsfyllir var og
var talið að allt að 1.000 manns
hafi verið á Klifi. Almenn ánægja
var ríkjandi hjá fólki og mátti sjá
fólk heilsast sem ekki hafði hist
jafnvel í áratugi.
Sunnudaginn 16. ágúst var for-
seti íslands við hátíðarmessu í
Ólafsvíkurkirkju. Séra Guðmundur
Karl Ágústsson predikaði, kirkjukór
Ólafsvíkur söng og Viðar Gunnars-
son söng einsöng við mikla hrifn-
ingu kirkjugesta. Var guðsþjónust-
an afar hátíðleg og hreif
kirkjugesti. I nóvember í haust
verður þetta fallega guðshús 20 ára
og mun þess þá minnst veglega.
Sitthvað fleira var á döfinni þessa
helgi svo sem hátíðarfundur bæjar-
stjórnar Ólafsvíkur, samkoma í
Sjómannagarðinum er forseti ís-
lands lagði blómsveig að styttu
sjómannsins og gróðursetti tré.
Heimsókn forsetans lauk svo
síðdegis. Bærinn var fánum prýdd-
ur alla vikuna og ýmislegt gert til
hátíðarbrigða. Má þar nefna að út-
varpsstöð hefur verið starfrækt um
kvöld og helgar. Efni hennar var
létt tónlist, viðtöl og fleira. Þá hafa
skátar haft tívolí fyrir börnin og
svona mætti lengi telja. Síðastliðinn
laugardag var svo haldin mikil
veisla í Sjómannagarðinum þar sem
eldsteikt kjöt var á boðstólum með
meiru. Það var bæjarstjórnin og
kvenfélagið sem sáu um veisluna
sem var fjölsótt enda sama ein-
dæma góðviðrið n'kjandi. Um
kvöldið var svo glæsileg flugelda-
sýning á höfninni. Blasti hún við
öllum bæjarbúum og nágrenninu.
Um 800 manns sóttu svo dans-
leik í félagsheimilinu á Klifi á
laugardagskvöld. Hljómsveitin
Klakabandið lék fyrir dansi, af-
mælisnefnd bæjarins tók á móti
fólkinu og allar konur fengu hvíta
„nelikku“ nælda í barminn. Dans-
leikur þessi fór hið besta fram. Nú
hafa hátíðarfánarnir verið teknir
niður og fólk snýr sér alfarið að
dagsins önnum. Eins og að framan
sagði eru allir mjög ánægðir með
afmælishaldið. Enn og aftur má
segja að blessuð veðurblíðan hafi
verið einn þeirra gesta sem hvað
mesta gleði vakti. Hér eru menn
vissulega minnugir þess að lítt
væri fært að stunda útisamkomur
við slæm veðurskilyrði svo sem þeg-
ar Stóri-Sunnan fer um torg með
tilheyrandi vatnsgangi.
— Helgi
Vinnuslys
í Vogunum
MAÐUR slasaðist alvarlega þeg-
ar hann féll af vinnupöllum
skömmu eftir hádegi í gær.
Maðurinn var að vinnu við ný-
byggingu að Skútuvogi 11. Hann
var fluttur á slysadeild Borgarspít-
alans og er þungt haldinn.
4-