Morgunblaðið - 26.08.1987, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 26.08.1987, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Hafnarfjörður — blaðberar Blaðbera vantar í Setbergshverfi strax. Upplýsingar í síma 51880. Fasteignasala óskar eftir starfsmanni til allra almennra skrifstofustarfa, þ.e. vélritun, símavörslu, sölumennsku o.frv. Um er að ræða hálfsdags starf. Vinnutími eftir hádegi. Umsóknir með sem ýtarlegustum upplýsing- um um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. sept. merkt: „Fasteignasala — 4620“. Blaðberar — Selfoss Blaðberar óskast. Æskilegt að þeir geti borið út fyrir hádegi. Upplýsingar í síma 1966 eftir kl. 18.00. Iltagttitltffifrft Morgunblaðið Blaðberar óskast víðs vegar um borgina frá 1. september. Sjá nánar auglýsingu annars staðar í blaðinu. Upplýsingar í afgreiðslu Morgunblaðsins, símar 35408 og 83033. Sænskumælandi leiðbeinandi óskast að nýrri meðferðarstofnun á vestur- strönd Svíþjóðar. Ráðningartími er 6 mánuðir til 1 árs. Þeir sem hafa áhuga leggi inn nafn og síma- númer á augld. Mbl. merkt: „Á — 5325“ sem fyrst. Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Okkur vantar gott fólk til starfa við eftirtalin störf: • Eldhús 75% vinna frá kl. 8.00-14.00. • Heimilishjálp 100% vinna — hlutastarf kemur til greina. • Verslun — afgreiðsla — innnkaup. 50% starf frá kl. 13.00-17.00. Upplýsingar gefur forstöðumaður á staðnum virka daga frá kl. 10.00-14.00. Tónlistarkennarar Tónlistarskólinn á Sauðárkróki óskar að ráða flðlukennarar fyrir nemendur á 1. til 4. stigi sem einnig gæti tekið að sér kennslu byrj- enda í píanóleik. Frítt húsnæði og svo athugið að til greina kemur að ráða kennara frá Stór-Reykjavíkursvæðinu sem kæmi einu sinni í viku. Vinsamlega hafið samband við skólastjóra Evu Snæbjarnardóttur sem veitir nánari upp- lýsingar í síma 95-5415. Skólanefnd Hótel Stykkishólmur vill ráða fólk til hótel- starfa Framreiðslumann, í gestamóttöku, veitinga- sal og til ræstinga. Við bjóðum örugga atvinnu allt árið og mikla aukavinnu. Hótel Stykkishólmur er nýtískulegt hótel staðsett í Stykkishólmi sem er einn snyrtileg- asti kaupstaður landsins í aðeins 214 km fjarlægð frá Reykjavík. Góðar samgöngur og gott vegakerfi. Góður grunnskóli með góðum kennurum eru á staðnum. Allt þetta gerir Stykkishólm áhugaverðan til búsetu. Ef þið hafið áhuga á vinnu og fallegu umhverfi þá hafið samband við Sigurð Skúla í síma 93-81330. Hótel Stykkishólmur Tæknifræðingur Véltæknifræðingur með vélstjórapróf og sveinspróf í vélvirkjun óskar eftir starfi. Upplýsingar í síma 99-4822. Stýrimenn — skuttogari Réttindamann vantar á Arnar Hu-1 til afleys- inga. Framtíðarstarf fyrir réttan mann. Upplýsingar í síma 95-4690. Skagstrendingur hf, Skagaströnd Fálkaborg — Breiðholti Starfsfólk með uppeldismenntun og/eða reynslu af uppeldisstörfum óskast nú þegar eða eftir nánara samkomulagi til starfa á Fálkaborg sem er blandað dagvistunar- heimili í alfaraleið. Hafið samband við Auði, forstöðumann, í síma 78230 fyrir hádegi. Drífandi fólk Okkur vantar röska menn til starfa í bók- bandi, bæði bókbindara og aðstoðarmenn. Mikil vinna því jólabókaflóðið er hafið. Vinsamlega hafið samband við verkstjóra milli kl. 16.00 og 18.00 næstu daga. íllfll Prentsmiðjan Oddi hf., Höfðabakka 7, 110 Reykjavik. sími83366. Frá grunnskóla Njarðvíkur Enn vantar einn kennara við grunnskóla Njarðvíkur. Óskað er eftir kennara í raun- greinum en annað kemur þó til greina. Upplýsingar veitir Gylfi Guðmundsson skóla- stjóri í síma 92-14380 (hs.) eða 92-14399 (vs.) Skólanefnd. Garðabær Blaðbera vantar í Flatir, Silfurtún, Kjarrmóa og Mýrar. Upplýsingar í sími 656146. fNtfgniiHiiMfr Vinsælt veitingahús í Reykjavík óskar eftir að ráða starfsfólk til afgreiðslustarfa. Unnið er á vöktum. í boði eru góð laun fyrir rétta aðila. Öllum umsóknum verður svarað og fullum trúnaði heitið. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 28. ágúst merktar: „Veitingahús — 930“. Fiskvinnslustörf Okkur vantar vant fólk í snyrtingu og pökkun nú þegar og síðan í síldarfrystingu með haustinu. Nú er um að gera að hlaupa til og afla upplýsinga því færri komast að en vilja þegar síldarfrysting hefst. Við rekum verðbúð og mötuneyti. KASK fiskiðjuver, Höfn Hornafirði, sími 97-81200. Dagvistarheimilið Hálsaborg v/Hálsasel Lausar eru fóstrustöður við dagvistarheimilið Hálsaborg. Til greina kemur að ráða annað uppeldismenntað starfsfólk. Ennfremur er óskað eftir aðstoðarfólki m.a. í eldhús. Um er að ræða heilsdags- og hlutastörf. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 78360. Hrafnista Reykjavík Starfsfólk óskast í eldhús og borðsal. Vinnutími frá kl. 8.00-16.00. Upplýsingar í síma 689323. Barnaheimili á staðnum. Skínandi fréttamaður óskast Fréttastofa Stjörnunnar óskar eftir að ráða snjallan fréttamann. Hugkvæmni og dugnaður skilyrði. Góð vinnuaðstaða, góð laun, góðar fréttir, skínandi stjörnufréttir. Umsóknir merktar: „Skínandi fréttamaður“ sendist Stjörnunni, Sigtúni 7, sími 689910, fyrir næstu helgi. Stýrimaður Stýrimaður óskast á dragnótabát. Upplýsingar í síma 94-7708 og hjá L.Í.Ú í síma 29500. i i i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.