Morgunblaðið - 26.08.1987, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 26.08.1987, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1987 > REYKJAVIKURMARAÞON Morgunblaöið/Einar Falur Ánægðir feðgar eftir hlaupið, Ey- steinn ásamt sonunum Kristini Jóni og Axeli Þór. Fjörugir féðgar Það var enn kjarnorkukraftur í Kristni Jóni, Axeli Þór og pabba þeirra Eysteini Haraldssyni skömmu eftir skemmtiskokkið. Þó hélt Axel að pabbi sinn hefði platað sig áfram með að lofa hon- um vatni í hveiju fótmáli, en málið var bara það að þeir sáu aldrei vatnsstöðvarnar og luku keppni þyrstir mjög. „Eg lofaði honum allan tíma hvíld, þegar við fyndum vatn. En við sáum aldrei neina með svala- drykk, þannig að við hlupum hvíldarlaust í mark,“ sagði Ey- steinn. „Við erum vanir að hlaupa saman á íþróttavelli í Kópavogi og stundum förum við 4-5 kíló- metra við Elliðaárnar. Við höfum samt lítið hlaupið undanfarið vegna ferðalaga. Það var vonlaust fyrir mig að halda í við Kristinn, sem átti nóg eftir í lokin. Þetta var stórksotlega gaman og hlaup- ið eykur samheldni okkar,“ sagði Eysteinn. > Prófessorar lýstu staðháttum og sögu bæjarins á hlaupum Morgunblaðið/RAX Bandaríkjamennirnir sem nutu leiðsagnar íslenskra prófessora meðan á hlaupinu stóð. að voru ófaír Bandaríkja- menn meðal þáttakenda í hálfmaraþoninu og undu sér hið besta, þrátt fyrir erfiðið. „Við fengum strax góða íslenska hlaupafélaga. Tveir voru prófess- orar og lýstu fyrir okkur stað- háttum og sögu bæjarins á hlaupum," sögðu hjónin Frank og Stephanie Herold. „Við erum öðru sinni á Islandi og trúum varla hvað það hefur rignt lítið - ekkert síðasliðna þtjá daga.“ „Ég kom nú útaf pylsunum sem þið seljið hér, þær eru frábærar, þær bestu í heimi og fást allsstað- ar á landinu. Mig bráðlangaði í eina fyrir ræsingu hlaupsins!" sagði Frank. „Við erum alveg búinn, því við hlaupum allt árið um kring. Við lærðum svolitla íslensku á leiðinni hjá prófessorn- um okkar. Okkur fannst klukkur vanta á leiðinni, t.d. á 5-8 km fresti, svo við vissum ekki stöðuna nógu vel. Hún skipti samt ekki máli, skemmtunin var aðalmálið." Eddy Marcia var í félagi við þau Frank og Stephanie. „Það var góð tilfinning að heyra íslensku áhorf- endurna hvetja okkur áfram. Við skyldum ekki hvað fólkið var að segja en skyldum samt. Skokk er mjög vinsælt í Bnadaríkjunum og í smábæjum eru haldin mörg mót. Ég gæti keppt um hveija helgi í mínu fylki, Oregon, og geri mikið af því. Brautin hér var frábær og mótið vel skipulagt. Svo er loftið og tærleiki lita alveg frábær, nokkuð sem Ameríkanar sjá ekki oft.“ Morgunblaöiö/Einar Falur Gunnar og Sólveig ásamt sonum sína, Árna Kristni og Herði. Blakmeistari með fjölskyldunni Meðal skemmtiskokkaranna var einn af íslandsmeistur- um Þróttar í blaki mörg undanfar- in ár, Gunnar Arnasson. Hann skokkaði með allri fjölskyldunni, eiginkonunni Sólveigu Jóhanns- dóttur og sonum sínum Arna Kristni og Herði. „Kristinn var fljótur í förum og erfitt að halda í við hann,“ sagði Gunnar. Jóhanna kvaðst skokka með nokkrum vinkonum. „Við vorum fyrst 12-15 kerlingar að skokka saman, en erum nú þijár, því miður, þetta er það holl hreyf- ing,“ sagði hún. Noel Johnson kemur í mark í skemmtiskokkinu. Morgunbia«ið/Einar Faiur Beint úr millilanda- flugi í skokkið Fáir eru duglegri að hlaupa en Bandaríkjamaðurinn Noel Johnsson, sem hleypur reglulega um langan veg þrátt fyrir háan aldur, en hann er 88 ára gamall. Hann lét sig ekki muna um það að koma beint frá New York, drífa sig rakleiðis eftir að flugvélin lenti til Reykjavíkur með langferðabif- reið á keppnisstað í miðbæ Reykjavíkur. Síðan hljóp hann í skemmtiskokkinu, léttur á brá. „Eg reyni alltaf að bæta mig og gefst aldrei upp á því að hlaupa,“ sagði Noel. „Maginn var ekki í góðu standi í hlaupinu, ég er bú- inn að éta og drekka of mikið heima, maginn er orðinn siginn. Eg þarf að æfa meira til að koma honum í stand. Það ættu allir, ungir sem aldnir að táka þátt í þessum hlaupum, ég kem aftur að ári, svo mikið er víst.“ Fjögurra á fullri ferð - Halldór Svavar Sigurðsson viljugur í skemmtiskokkinu Móðir hans Halldórs Svavars Sigurðssonar átti fullt í fangi með að halda í við hann í skemmti- skokkinu, slíkur var vilji snáðans. En móðir hans, Ingunn St. Svavars- dóttir, passaði upp á strákinn, þar til á lokasprettinum að hann stakk hana af á leið í endamark. Þau mæðgin voru ein úr fjölskyld- unni, faðirinn Sigurður Halldórsson og dæturnar Kristveig og Krist- björg hlupu öll og luku keppni. Þær systur eru ekki ókunnar hlaupum, Kristbjörg keppti á landsmótinu á Húsavík. „Þetta var geysilega gam- an,“ sagði Ingunn. „Eg var svolítið hrædd um Halldór, hann fór svo hratt og bílarnir voru nærri. Hann fékk klapp á kollinn á leiðinni frá mörgum hlaupurum og fannst það gaman hvað gömlu kallarnir voru góðir við hann. Við hjónin hlaupum talsvert saman og krakkarnir eru alltaf á hlaupum," sagði Ingunn. Það fékkst ekki orð uppúr Halld- óri, þar sem hann sogaði svaladrykk af krafti nýkominn í mark. Hann kinkaði þó kallaði þegar hann var spurður hvort hlaupið hefði verið létt og skemmtilegt. Knár en smár strákurinn. Á myndinni til hliðar er Qölskyldan samankomin eftir hlaupið: frá vinstri, Kristveig, Hall- dór, Ingunn, Halldór og Kristbjörg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.