Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Ast
Öll höfum við áhuga á ást-
inni. Flest okkar elskum við
eina eða fleiri manneskjur og
margir eru svo lánsamir að
vera elskaðir af öðrum. Allir
geta viðurkennt mikilvægi
ástarinnar, ekki bara fyrir
þá sök að hún er mikilvægur
þáttur í viðkomu mannkyns-
ins heldur einnig af þeirri
ástæðu að hún göfgar líf
okkar, gefur því gleði, til-
gang og lit. Flestir eru t.d.
sammála því að án ástar sé
lífið tómlegt og grátt, að ást-
in fylgi lífinu.
Sársauki
Þrátt fyrir mikilvægi ástar-
innar er það svo að margir
þora ekki að elska, þora ekki
að gefa eða taka á móti ást.
Það er skrítið að svo skuli
vera en það er að mörgu leyti
eðlilegt. Astinni fylgir oft á
tíðum sársauki.
Ótti
Það er svo með lífið, eins og
einn ágætur maður segir
gjaman, að allri sól fylgir
skuggi. Ástinni sem er lífgef-
andi fylgir hræðsla vjð dauða.
Um Ieið og við finnum til
ástar, finnum við um leið
fyrir ótta við að missa ástvin-
inn. Þeirri hugsun lýstur t.d.
oft niður að ástvinurinn geti
á einhvem hátt horfið. Af-
brýðisemi er og einn angi af
þeirri hræðslu að tapa ást-
inni.
Ástvinamissir
Það er ekki einungis ótti sem
herjar á okkur. Flestir hafa
orðið fyrir þeirri reynslu að
missa ástvini. Ömmur og afar
sem við höfiim elskað hafa
látist, einnig foreldrar, maki
og ættingjar eða kær ástar-
sambönd hafa rofnað. Allir
hafa í raun einhverja reynslu
af ástvinamissi.
Varasamar gryfjur
Þessum skuggahliðum ástar-
innar, því að óttast að missa
eða hafa misst, fylgja
ákveðnar hættur sem
kannski eru ekki augljósar í
fljótu bragði. Ef við hræð-
umst sársauka sem gæti
komið í framtíðinni þá er
hætt við að við höldum aftur
af okkur. Við getum því orð-
ið hrædd við ástina og bælt
niður í okkur tilfinningar. Ef
við gætum okkur ekki getum
við því dofnað og misst hæfi-
leikann til að elska og lifa.
Doði
Gmnur minn er sá að margir
gangi um bæi og sveitir þessa
lands í tilfinningalegum
doða: „Þegar ég var lítill
drengur elskaði ég ömmu
mína svo heitt að dauði henn-
ar lamaði tilfinningar mínar.
Ég hef síðan verið hræddur
við að elska. Það versta er
að lengi gerði ég mér ekki
grein fyrir því.“ Og „Þegar
ég var sautján ára var ég
hrifinn af stelpu sem hafnaði
mér og ég fraus. í tíu ár var
ég tilfinningalaus."
Að þora að elska
Það má segja að sá tilfinn-
ingalegi doði sem fylgir
ástvinamissi sé eðlilegt vam-
arviðbragð líkama og sálar.
Við þurfum að dempa sárs-
aukann og veijast því að slíkt
komi fyrir aftur. En við verð-
um hins vegar að vera
meðvituð um þessi vamarvið-
brögð. Við megum ekki
festast í þeim. Þá glötum við
hæfileika okkar til að lifa.
Við þurfum að þora að koma
fram á nýjan leik, eftir hvert
áfall, vekja tilfinningar okkar
og taka á móti ástinni aftur.
Þetta er sérlega mikilvægt,
því ástin og lífíð haldast hönd
í hönd. Við þurfum að þora
að elfka ef. við viljum lifa.
GARPUR
APAMl \ZAKNAÐU STOA*
V/B þöfífh/OMSr GARfisJ
kdhuhgur/uh BK- £>, NE/
VEKjaqjhh m/uu!
4 OKS&ZéG f/ijhLS
ée HEF! KftAFT/hJN> '
GRETTIR
EG HfeF HPJEINAM SKJOLP, þÖKK
Sd /MiMMISLEysiMU. BG BYRJA
A£? LIFA Upp 'A MVTT.
U7M t7AVf£>2-7
© 1987 United Featúre Sy fés brCkop) ) \^ATVAGL-^^J
mmv-j —í. _
■¥ / 'A \ frP1'- sj 5 o
r\ n Á ■■ ■■■ ■ A ■ D I V/ A MXI im IU M
DRAI 1 MACal dLYANTURINN
FERDINAND
SMAFOLK
YES, MÁAM,0UR TEACHER
TOLP MET0 60SEE THE
NUR5E..SHE THINK5 THERE'5
50METHIN6 UIR0N6 WITH
EYE, ANP UIELL, I...
y
THE U)AV THIN65 HAVE
BEEN SOIN6,1 MAV
NEVER U)INK A6AIN..
rzr
Já, fröken, kennarinn
minn sagði mér að fara til
hjúkkunnar____hann held-
ur að eitthvað sé að mér í
auganu, og ég . .
Ég var bara að blikka,
skilurðu ... svona ...
og...
Nei, fröken, ég blikka ekki Eins og þetta hefur gengið
mikið ... fyrir sig getur verið að ég
blikki aldrei oftar ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
ísland græddi 10 MPa í eftir-
farandi spili á móti ítölum á EM,
þar sem Jón Baldursson og Sig-
urður Sverrisson tóku hart geim,
sem ítalimir á hinu borðinu
slepptu:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ 1095
♦ ÁG1052
♦ 10752
♦ D
Vestur Austur
♦ K832 ... ¥DG74
¥98 ¥ D764
♦ 843 ’ ♦ K9
♦ ÁG108 ♦ 743
Suður
♦ Á6
¥ K3
♦ ÁDG6
♦ K9652
í opna salnum sátu Guðlaugur
R. Jóhannsson og Öm Amþórs-
son í AV gegn Bocchi og Mosca:
Vestur Norður Austur Sudur
Öm Bocchi Guðl. Mosca
Pass Pass Pass 1 grand
Pass 2 tíglar Pass 2 hjörtu
Pass Pass Pass
Italimir spila 15—17 punkta
grand, en Bocchi taldi þó ekki
ómaksins vert að reyna við geim
og lét duga að yfirfæra í hjart-
að. Mosca fékk 10 slagi, eða 170.
Á hinu borðinu var Sigurður
harðari á spil norðurs:
Vestur Norður Austur Suður
Rosati Sigurður Lauria Jón
Pass Pass Pass 1 grand
Pass 2tíglar Pass 2hjörtu
Pass 3 tíglar Pass 4 tíglar
Pass 5 tíglar Pass Pass
Pass
Fimm tíglar eru langt frá því
að vera sjálfunnir, en Sigurður
fékk þægilega byijun: Lauf upp
á ás vesturs og tromp til baka.
Sigurður átt slaginn á gosa
blinds, tók hjartakóng og ás og
lét hjartagosann rúlla yfir, þegar
austur lagði ekki á. Vestur
trompaði, en fleiri urðu slagir
vamarinnar ekki.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu móti í Marseilles
í Frakklandi í sumar kom þessi
staða upp í skák franska alþjóða-
meistarans Kouatly og eina
stórmeistara Norðmanna, Simen
Agdestein, sem hafði svart og
átti leik.
29. — DxcG! (Einfaldur en
skemmtilegur vinningsleikur.
Hvttur tapar manni hvort sem
hann drepur þversum eða langs-
um) 30. Hxc6 — Hxd3 og hvítur
gafst upp. Úrslit á mótinu urðu
þau að sovézki stórmeistarinn
Rafael Vaganjan sigraði örugg-
lega, hlaut 7 v. af 9 mögulegum.
Næstir komu þeir Agdestein,
Kudnn og Maurey með 6 v.