Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
47
Þorbjörg Páls-
dóttir — Minning
Fædd 1. janúar 1915
Dáin 15. september 1987
Á morgun, mánudag, verður til
moldar borin amma okkar, Þorbjörg
Pálsdóttir. Hún fæddist í Búlandss-
eli í Vestur-Skaftafellssýslu 1.
janúar árið 1915. Foreldrar hennar
voru Páll Pálsson, kenndur við
Sanda í Meðallandi, og Margrét
Þorleifsdóttir.
Árið 1919 fluttist tjölskyldan að
Söndum í Meðallandi og þar ólst
amma upp ásamt systkinum sínum.
Ung kynntist hún afa, Sigurjóni
Bjömssyni, og giftust þau árið
1935. Elsta bam þeirra fæddist að
Söndum en þau eignuðust níu böm.
Einn son misstu þau á fyrsta ári
og var mikill söknuður eftir hann.
Bömin eru þessi: Rósa, Erla, Sigur-
björg, Páll, Guðmundur, Bima, Jón
Páll og Sigurðyr. Eru afkomendur
þeirra orðnir 45.
Amma og afí fluttust snemma
suður, byrjuðu búskap sinn í Hafn-
arfírði en fóru fljótlega til Reykja-
víkur. Árið 1961 fékk afí stöðvar-
stjórastöðu hjá Pósti og síma í
Kópavogi og fluttust þau að Álf-
hólsvegi 24 þar sem þau hafa búið
síðan. Amma fór að vinna á póst-
húsinu þetta sama ár og vann við
póstaafgreiðslu og seinni árin sem
póstfulltrúi en hætti fyrir aldurs
sakir árið 1985. Höldum við, að
hennar hafí verið sárt saknað af
samstarfsfólkinu.
Amma var stórbrotin kona, vin-
sæl af öllum, sem hana þekktu, og
verður skarð hennar seint fyllt.
Alla tíð var hún allt í öllu innan
fjölskyldunnar og má orða það
þannig, að hjá afa og ömmu í Kópa-
vogi hafí verið miðpunktur tilver-
unnar í augum okkar bamabam-
anna. Enginn fór frá ömmu án þess
að þiggja eitthvað, sama hve stutt
var stansað og ekki gerði hún grein-
armun á smáum eða stórum. Öll
jólin, sem við munum eftir okkur,
var hún með boð á jóladag. Var þá
oft setinn bekkurinn enda fór fjöl-
skyldan alltaf stækkandi og var þá
margt sér til gamans gert.
Stórt skarð er höggvið í fjöl-
skyldu okkar en mestur er söknuður
afa, sem misst hefur sinn lífsföru-
naut. Guð styrki hann og alla
fjölskylduna í þessum mikla harmi.
Sigurjón, Steini og
Hanna Sigga.
Aðfaranótt síðastliðins þriðju-
dags andaðist í Borgarspítalanum
í Reykjavík amma mín, Þorbjörg
Pálsdóttir, Álfhólsvegi 24, Kópa-
vogi, 72 ára að aldri. Hún verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju á
morgun mánudaginn 21. september
kl. 10.30. .
Þorbjörg var fædd á Búlandsseli
í Skaftártungum þann 1. janúar
1915. Foreldrar hennar voru hjónin
Páll Pálsson frá Syðri-Steinsmýri
og Margrét Þorleifsdóttir frá Á á
Síðu.
Þorbjörg var fjórða bam foreldra
sinna af fimm systkinum en þau
voru Páll fæddur 1909 (d. 1983),
Siguijón fæddur 1911, Jón fæddur
1913 (d. 1947) og Jóhanna Katrín
fædd 1917. Auk systkinanna ólst
upp með þeim Margrét Þ. Sigurðar-
dóttir frænka þeirra og varð hún
sem eitt af systkinunum.
Vorið 1919 flutti fjölskyldan frá
Búlandsseli í kjölfar Kötlugoss, að
Söndum í Meðallandi, en þar ólst
Þorbjörg upp. Sandar var á þeim
tíma, og er enn eyja í miðju Kúða-
fljóti.
Aðeins 8 ára að aldri missti Þor-
björg móður sína, en fljótlega flutti
Sigríður Sæmundsdóttir frá Borg-
arfelli í Skaftártungum til Páls
föður hennar sem bústýra og kom
bömunum í móður stað.
Þorbjörg giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum Siguijóni Bjömssyni
árið 1934. Siguijón er ættaður frá
Hryggjum í Mýrdal, en hann var
þá til heimilis á Strönd í Meðal-
landi. Þau fluttust til Reykjavíkur
1935, en þá hafði Siguijón nýlega
útskrifast frá Samvinnuskólanum í
Reykjavík.
Þau hjónin eignuðust 9 böm, en
átta komust til fullorðinsára og lifa
móður sína. Þau eru Sigurrós
Margrét fædd 1934, Erla fædd
1936, Sigurbjörg fædd 1937, Páll
fæddur 1939, Guðmundur fæddur
1945, Birna fædd 1946, Jón Páll
fæddur 1947 og Sigurður fæddur
1950. Alls eru afkomendur þeirra
hjóna orðnir 45 að tölu.
Eftir að amma og afi fluttu til
Reykjavíkur voru þau búsett víðs
vegar um bæinn eins og þá var
algengt, því að á þeim tíma var
ekki óalgengt að flytjast búferlum
vor og haust. Eftir stríð byggðu þau
eitt af fyrstu sænsku húsunum við
Langholtsveg 104 (nú 102) og
bjuggu þar til ársins 1956. Allan
þann tíma vann afi við bögglapóst-
stofyna í Reykjavík.
Árið 1961 fluttust þau til Kópa-
vogs þar sem afi tók við embætti
stöðvarstjóra Pósts og síma. Álf-
hólsvegur 24 var heimili þeirra upp
frá því.
Fljótlega eftir að afi tók við emb-
ætti stöðvarstjóra hóf amma að
starfa við pósthúsið, fyrst við þrif
og ýmis afgreiðslustörf en síðar sem
póstfulltrúi og aðalgjaldkeri allt til
ársins 1985 þegar hún lét af störf-
um vegna aldurs, en sinnti þó
afleysingum eftir það.
Aðaláhugamál ömmu var alla tíð
íjölskyldan sem átti hug hennar
allan. Hún vildi helst alltaf hafa sem
flesta saman komna úr flölskyld-
unni og notaði hvert tækifæri sem
gafst til að hóa hópnum saman.
Þá var gjaman rætt um stjómmál
og þjóðmál almennt, en hún hafði
alltaf ákveðnar skoðanir og hafði
yndi af þvi að sem flestir tjáðu sig
um öll mál. Það vom því oft fjörag-
ar umræður yfir kaffíbollunum sem
hún hafði svo mikla ánægju af að
veita.
Það era margar minningarnar
sem koma upp í hugann nú þegar
amma er dáin, en minningum og
tilfínningum er oft svo erfítt að
koma í orð. Þegar ég kveð nú ömmu
í Kópavogi í síðasta sinn vil ég
þakka alla þá góðsemi og hlýju se
hún sýndi okkur, og allar stundim-
ar sem við áttum saman og munu
geymast svo vel í minningunum.
Guð blessi minningu hennar og
fylgi henni á ókunnum slóðum.
Tryggvi Haraldsson
Anna S. Gunnlaugsdóttir ásamt einu verka sinna.
Morgunblaðið/BAR
Sýnir í Gallerí Borg
ANNA S. Gunnlaugsdóttir sýnir í Gallerí Borg
við Austurvöll. Á sýningunni eru oliuverk unnin
á pappír og striga.
Anna er fædd 12. júní 1957 í Reykjavík. Hún
stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands frá árinu 1974-1978 og útskrifaðist úr
málaradeild. Hún dvaldi í París veturinn 1978-1979
og nam við listaskóla þar. Árið 1981 hóf hún aftur
nám við Myndlista- og handíðaskólann og útskrifað-
ist úr auglýsingadeild 1983. Anna hefur síðan starfað
sem auglýsingateiknari.
Sýningin í Gallerí Borg er opin virka daga kl.
10.00-18.00 og um helgar kl. 14.00-18.00 og lýkur
29. september.
NÁMSKEIÐ Á
NÆSTUNNI
Á næstu vikum
er í boði fjölmörg
námskeið hjá
Tölvufræðslunni
1 -
Ath. Verslunarmannafélag Reykjavíkur styður sína
félaga til þátttöku á þessi námskeið.
Nánari upplýsingar og innritun fer fram í símum
687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28
PC tölvunám
Fyrsti hópur byrjar 28.
sept.
Tölvunámskeið fyrir ungl-
inga
Námskeiðið hefst 12. okt-
óber.
Ritvinnslukerfið Word
Perfect
Framhaldsnámskeið.
Hefst 5. október.
Töflureiknirinn Multiplan
Framhaldsnámskeið.
Hefst12.október.
Ópus hugbúnaður
Tími: 28. sept. til 1. okt.
Fjölnotakerfið Open Acc-
ess
Tími: 5. til 10. okt.
Fjölnotakerfið Framew-
orkll
Tími: 19. til 22. okt.
PC byrjendanámskeið
Næsta námskeið hefst 21.
sept.
Ritvinnslukerfið Word
Perfect
Hefst 28. sept.
Töflureiknirinn Multiplan
Byrjendanámskeið. Hefst
5. okt.
Stýrikerfið MS-DOS
Hefst 28. sept.
Allthugbúnaður
Tími: 29. sept. til 1. okt.
Fjölnotakerfið Symphony
Tími: 12. til 15.okt.
Forritun í dBase III+
Námskeiðið hefst 5. okt.
byrjendanámskeið
FJölbreytt, gagnlegt og skemmtilegt byrj-
endanámskeið í notkun einkatölva.
Leiðbeinandi:
Dagskrá:
• Grundvallaratriði við notkun PC-
tölva.
• Stýrikerfið MS-DOS.
• Ritvinnslukerfið WordPerfect.
• Töflureiknirinn Multiplan.
• Umræður og fyrirspurnir.
Logi Ragnarsson,
tölvufræðingur.
Tími: 2123., 28 og 30. sept. kl. 20-23.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.