Morgunblaðið - 20.09.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
Upplýsingar í nýju riti Sögnfélagsins:
Sjávarútvegssýningin:
„Rétt að stínga
tánni í vatnið“
- segir Þráinn Þorvaldsson
formaður útflutningsráðs
„DRAUMURINN er vissulega sá
að þegar menn, hvar sem er í
heiminum, fari að huga að kaup-
um á fiskiðnaðartækjum muni
ísland og islensk tækni koma
fyrst upp í huga þeirra," sagði
Þráinn Þorvaldsson formaður
Útflutningsráðs íslands, þegar
hann var inntur eftir þýðingu
sjávarútvegssýningarinnar fyrir
íslenskar útflutnignsgreinar.
Þráinn kvað gildi sýningarinnar
einkum felast í tveimur atriðum. í
fyrsta lagi væri hún mikilvægur lið-
ur í því átaki íslenskra framleið-
enda, að afla íslandi þess orðspors
að vera leiðandi í tækni tengdum
fiskiðnaði. Miklu skiptir að menn
fái á tilfínninguna að íslendingar
hafi eitthvað að bjóða fram yfir
aðra á þessu sviði. I öðru lagi hafi
það ýmsa kosti að fá erlenda við-
skiptavini hingað til lands. Það er
ódýrara, og auðveldar nýjum og
óreyndum fyrirtækjum sem ekki
ráða við að sækja slíkar sýningar
erlendis að kynna vörur sínar. Það
gæti svo orðið kveikja að því að
þau færu utan til slíkra sýninga
síðar.
„Það er jafnframt afar mikilvægt
að fá viðskiptavinina inn í íslenskt
umhverfí," sagði Þráinn. „Ég þekki
það frá ullariðnaðinum, sem ég
starfaði töluvert fyrir hér áður, að
eftir að menn höfðu heimsótt ísland
og séð landið urðu þeir yfirleitt
mjög hrifnir og mun jákvæðari
gagnvart íslenskum vörurn."
„Tæki til fískiðnaðar er sú út-
flutningsgrein sem mestur vöxtur
Samið við lífeyrissjóðina um vexti af skuldabréfum Húsnæðisstofnunar:
Samkomulag um 7% vexti um-
fram verðbólgu fyrir árið 1988
hefur verið í að undanfömu. Ég tel
hins vegar að þetta sé bara upphaf-
ið og við séum rétt að stinga tánni
í vatnið. Við getum því verið mjög
bjartsýnir á framtíðina," sagði Þrá-
inn Þorvaldsson.
Morgunblaðið/Bjami
Fulltrúar fjármálaráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og samtaka lífeyrissjóðanna undirrita samkomulag
um vexti af skuldabréfum Húsnæðisstofnunar ríkisins.
biðtími kæmi ekki í ljós fyrr en þá..
Um 4-500 manns hafa sótt um lán
að jafnaði á mánuði síðan loforð
voru síðast send út í byijun mars.
Pétur Blöndal formaður Lands-
sambands lífeyrissjóðanna sagði við
Morgunblaðið að samkomulagið
væri viðunandi fyrir sjóðina að frá-
töldum tveimur atriðum en um þau
lögðu samtök lífeyrissjóðanna fram
sérstakar bókanir. í annarri bókun-
inni var því ákvæði í skuldabréfun-
um mótmælt að bréfín misstu
verðtryggingu við framsal og í hinni
var lífeyrissjóðunum ráðlagt að
gera ekki samninga nú fyrir árið
1990.
Pétur sagði að verðtryggingar-
ákvæðið skerði verulega möguleika
sjóðsstjórna til að ráðstafa íjármun-
um lífeyrissjóðanna auk þess sem
slíkt ákvæði væri nær einsdæmi í
skuldabréfum. Varðandi hitt atriðið
sagði Pétur að miklar umræður
væru í gangi um stöðu húsnæðis-
kerfisins og mesti gallinn á því
talinn sá langi biðtími sem nú er
eftir lánum, eða 2-3 ár. Því væri
verið að gera ráðstafanir til að
stytta þann biðtíma með því að
þrengja hóp rétthafa og um leið
væri óþarfi að semja við lífeyrissjóð-
ina svo langt fram í tímann.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra sagði að þeir vextir
sem samið hefði verið um væru
mjög háir fyrir árið 1988 en miðað
við ávöxtunarkjör á lánsfjármarkaði
væru þeir óhjákvæmilegir í óbreyttu
kerfí. Þo kæmi fram í samkomulag-
inu sú stefnuyfírlýsing að reyna að
minnka vextina á næstu árum. Það
segði sig hinsvegar sjálft að svona
háir raunvextir til viðbótar verð-
tryggingu á svona miklu fjármagni
köllaði á endurskoðun á útlánavöxt-
um og þar hefði félagsmálaráðherra
kynnt hugmyndir um að breyta
sjálfvirkninni í útlánakerfínu, þann-
ig að þeir sem teljast vera í for-
gangshópi, þe. kaupa í fyrsta sinn
eða eru að stækka við sig af eðlileg-
um fjölskylduástæðum, bæru
minnstan skaða, en þeir sem notið
hefðu verulegra vaxtaniður-
greiðslna og ættu skuldlitlar eignir
fyrir yrðu að sæta markaðskjörum.
Enn nokkrar vikur í útgáfu lánsloforða
SAMKOMULAG var undirritað á
föstudag milli samtaka lífeyris-
sjóðanna og stjórnvalda um vexti
af skuldabréfum sem lífeyris-
sjóðirnir kaupa af Húsnæðis-
stofnun ríkisins á næstu þremur
árum. Á næsta ári, 1988, er gert
ráð fyrir að bréfin beri 7% fasta
vexti umfram verðtryggingu til
15 ára með föstum greiðslum. Á
árinu 1989 bera bréfin 6,5%
vexti, og 6,9% vexti ef ákvæði
eru í bréfunum að segja upp
vaxtakjörum eftir 3 ár. Þá var
samið um 6,1% ársvexti árið 1990
og 6,5% vexti ef ákvæði eru um
3 ára uppsagnarfrest vaxta.
Hægt er að endurskoða vexti
áranna 1989 og 1990 ári áður en
þeir eiga að taka gildi.
Samkomulag með þessum vaxta-
tölum hefur legið fyrir í nokkrar
vikur en Sigurður E. Guðmundsson
forstjóri Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins sagði við Morgunblaðið eftir
undirritun samninganna að þama
hefðu verið geysilega miklir hags-
munir í húfí, þar sem gert er ráð
fyrir að skuldabréfakaup lífeyris-
sjóðanna nemi 6,1 milljarði á árinu
1988 og 20-30 milljörðum króna
alls á þeim þremur árum sem sam-
komuiagið nær til. Því hefðu allir
aðilar viljað gefa sér góðan tíma.
Sigurður sagði að nú myndi Hús-
næðisstofnun leita eftir samningum
við lífeyrissjóðina í landinu á gmnd-
velli samkomulagsins og það tæki
nokkrar vikur. Að því búnu væri
hægt að senda út lánsloforð til
umsækjenda að því tilskildu að þá
liggi fyrir hvort breyting verði á
útlánareglum stofnunarinnar og
endanlegur lánsloforða§öldi eða
Frá vigslu Langholtskirkju.
Vígsluafmælis Lang-
holtskirkju minnst í dag
ÁRLEGA minnist Langholtssöfn-
uður vígslu kirkju sinnar sem
næst 16. september og verður
það gert við hátíðarguðsþjónustu
í dag sunnudag, 20. september,
kl. 14.00.
Þessi siður er vel við hæfi, svo
einstætt hús sem kirkjan er, hljóm-
ur, látleysi og fegurð slík að engum
Kauptilboðið í Sam-
bandshúsið:
Sambandið fær
lengri frest
SAMBANDIÐ hefur fengið
lengri frest til að skoða kauptil-
boð það sem fjármáláðuneytið
hefur gert í Sambandshúsið við
Sölvhólsgötu í Reykjavík. Upp-
haflega var gert ráð fyrir að
tilboðinu, sem lagt var fram 18.
ágúst sl. 18. september.
Guðjón B. Olafsson forstjóri
Sambandsins sagði að að fyrirtækið
hefði talið sig þurfa örlítið lengri
tíma til að skoða ýmis atriði og því
fengið frest til að svara tilboðinu
um ótiltekinn tíma.
blandast hugur um að ytir peim var
vakað sem helgidóminn reistu.
Sumir halda að það hafí verið tilvilj-
un að kirkjan er orðin eftirsóttasti
tónlistarsalur landsins, en ég er
sannfærður um að þar hafí sá guð,
er yfír okkur vakir, haldið í hönd
með hönnuðum og verkmönnum.
Að venju verður meira í guðs-
þjónustuna borið en aðra daga og
að þessu sinni verða gestir okkar
drengjakór aðalkirkjunnar í Grims-
by. Hann er sagður feiknagóður,
margsinnis komið fram í BBC.
Formaður sóknamefndar, Ingimar
Einarsson, mun flytja ávarp í upp-
hafí guðsþjónustunnar. Starfsfólk
kirkjunnar, organisti, kór og prest-
ur munu leggja sitt fram að venju.
Kl. 15 hefst svo í safnaðarheimilinu
íjáröflunarkaffi kvenfélags safnað-
arins og þeir sem áður hafa mætt
vita að þær skera meðlætið ekki
við nögl, blessaðar konumar.
Láttu það eftir þér að mæta og
bjóddu einhveijum sem þér þykir
vænt um með þér og hjálpaðu okk-
ur þannig til að gera þetta að
eftirminnilegum degi, söfnuðinum
til uppbyggingar og Guði til dýrð-
ar. Að því vill Langholtskirkja,
kirkja Guðbrands biskups, vinna.
— Sig. Haukur Guðjónsson
'finurit Söguíchgs l‘)S7-
Irskur svikari ræð-
ismaður á Islandi
THOMAS Reynolds ræðismaður Breta hér á landi
hafði fortíð og persónuleika sem tæpast hæfa
manni i hans stöðu. Reynolds var ræðismaður á
íslandi 1817-22.
Ofangreint kemur fram í grein eftir Önnu Agnars-
dóttur sagnfræðing sem birtist í nýju tímariti sem
Sögufélagið hefur nú hafíð útgáfu á. Nafn ritsins er
„Ný saga“ og með útgáfu þess fer Sögufélagið að
nokkm leyti inn á nýjar brautir. Stefna útgefenda er
sú að greinamar í ritinu séu skemmtilegar og auðlesn-
ar jjótt hvergi sé kvikað frá fræðilegu kröfum.
I megindráttum má skipta efni ritsins í tvennt.
Annars vegar em sjálfstæðar greinar, hins vegar
fastir þættir s.s. „Sjónarhóll - Eigi skal höggva“ sem
Indriði G. Þorsteinsson ritar að þessu sinni eða „Af
bókum" sem Helgi Skúli Kjartansson skrifar. Af Sjálf-
stæðum greinum má nefna: „Frjálslyndi kemur ekki
í eitt skipti fyrir öll“ eftir Gunnar Karlsson eða „A
Heimdalli 1898 - varðgæsla og veisluhöld" eftir Heimi
Þorleifsson.
Það er ásetningur Sögufélagsins að „Ný saga“
komi framvegis út árlega á vorin en tímaritið „Saga"
verður áfram gefið út með hefðbundnu sniði að haust-
lagi eða fyrri part vetrar.
Tímaritið er myndskreytt og telur rúmar 100 bls.
og verður félögum í Sögufélaginu ritið í pósti en einn-
ig verður það fáanlegt í bókaverslunum.