Morgunblaðið - 20.09.1987, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
KVIKMYNDAHATIÐ
Ár hinnar kyrru sólar
Rok spokjnego slonca
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Leikstjórn og handrit Krys-
ztof Zanussi. Kvikmyndataka
Slawomir Idzial. Tónlist Wojci-
ech Kilar. Hljóð Wieslawa
Dembinska. Aðalleikendur
Maja Komorowska, Scott Wil-
son, Hanna Skarzanka, Daniel
Webb. Pólsk/Bandarísk/V—
Þýsk. 1984. 108 min. Enskt/
pólskt tal. Enskur texti.
Pólverjar nefna fyrsta friðará-
nð eftir seinni heimsstyijöldina
Ár hinnar kyrru sólar, og af því
dregur myndin sitt dramatíska
nafn. Árið 1946 stóðu yfir þjóð-
flutningar í hinu stríðshijáða ríki.
Sovétmenn sölsuðu undir sig
væna sneið af Austurhlutanum í
stríðslok en Pólverjar endur-
heimtu í vestri landsvæði af
Þjóðverjum. Meðal þeirra tug-
þúsunda sem urðu að flytja
búferlum yfir landið þvert og endi-
langt voru öldruð kona og fertug
dóttir hennar, Emelía. Þær kynn-
ast bandarískum hermanni,
Norman að nafni og takast ástir
með honum og Emelíu. Hann vill
taka mæðgumar með sér til
Bandaríkjanna en versnandi sam-
búð milli austurs og vesturs
kemur í veg fyrir að svo megi
verða.
Að öðrum myndum ólöstuðum
er Ár hinnr kyrru sólar ein athygl-
isverðasta og hlýjasta myndin á
Kvikmyndahátíð í ár. Zanussi
dregur upp eftirminnilega mynd
af sterkri konu í máli og mynd.
Lýsir á ljúfan og mannlegan hátt
ástarsambandi sem fyrirfram var
dauðadæmt. Maja Komorowska,
sem leikið hefur í einum níu mynd-
um Zanussi, túlkar hina óbugandi
og skynsömu Emelíu á þann hátt
að maður getur ekki ímyndað sér
aðra leikkonu í hlutverkinu og
Wilson er einkar vel valinn í hlut-
verk hins hægláta, trausta
Bandaríkjamanns. Þessir leikarar
báðir hæfa að auki svo vel í hlut-
verki sín í útliti og fasi að þau
eru dagsönn fyrir augliti áhorfan-
dans.
Ár hinnar kyrru sólar er óvenju-
leg mynd í marga staði. Það er
ekki á hverjum degi sem okkur
býðst að sjá kvikmynd sem fjallar
um ástir fólks sem búa í gjörólík-
um þjóðfélögum en eru, þegar
allt kemur til alls ósköp venjuleg-
ar manneskjur með sínar þrár og
tilfinningar, þrátt fyrir frábrugðið
umhverfí.
Kai í baráttu við illu öflin.
Snædrottningin
Lumikuningatar
Leikstjóri Paivi Hartzell.
Handrit P. Hartzell eftir æv-
intýri H.C. Andersen. Hljóð
Paul Jyrala. Tónlist Jukka
Eureka
Leikstjóri Nicolas Roeg.
Handdarit Paul Mayersberg,
byggt á mlisskáldsögu Mars-
hall Houts. Kvikmyndataka
Alex Thomson. Hljóð Paul Le
Mar. Tónlist Stanley Myers.
Aðalleikendur Gene Hack-
man, Theresa Russell, Rutger
Hauer, Mickey Rourke, Ed
Lauter, Joe Pesci. Bresk,
1983. 129 min.
Þessi fáséða mynd Roegs
Qallar um gullgrafara, (Gene
Hackman), sem eftir áralanga
leit að gulli á túndrum norðurs-
ins finnur geysilega gullæð sem
gerir hann að einum ríkasta
manni veraldar. Síðan hverfum
við fram í tímann, eða fram á
fímmta áratuginn. Hackman er
einn voldugastur manna, á sína
eigin eyju í Karabíska hafínu og
dóttur (Theresu Russel), sem
hann unnir hugástum. En hún
er gift spraðabassa, (Rutger
Hauer), sem Hackman hefur
megna ímugust á. „Fyrst hélt
ég að þú værir á eftir dóttur
minni, síðan gullinu, en nú veit
ég að þú ert á eftir sál minni,“
segir Hackman.
Og fleiri óveðursský hrannast
upp yfír einkalífí auðmannsins.
Mafían sendir útsendara sinn,
(Mickey Rourke), til að festa
kaup á hluta eyjunnar undir
spilavíti, en Hackman vill ekki
selja, þó svo hann viti að glæpa-
lýðurinn „taki ekki nei fyrir
svar“. Honum er það ljóst að
það vantar mikið á að allt sé
falt fyrir gull, það er inntak
myndarinnar. Hann hefur
nauðgað móður náttúru, sprengt
sig inn í hana, tætt og rifíð.
Og allt um kring eru yfírnátt-
úrleg tákn og merkingar, sem
og í flestum öðrum myndum
Roegs. Framvindan er hnykkjótt
en aldrei leiðinleg. Og hópur al-
deilis frábærra leikara skilar vel
sínu, með hina ungu og fögru
frú Roeg, Theresu Russell í far-
arbroddi.
Rutger Hauer í einu sínu fyrsta
alþjóðlega hlutverki i Eureku.
Sunnudagur 20. sept.
15 Komiðogsjáið
18 GingerogFred
20.30 ÁR HINNAR KYRRU SÓLAR
23 Makkaróní
Salur B(118)
15 Snædrottningin
17 Fanginfegurð 19
(La Belle Captive) 21
19 Hún verður að fá’ða 23
21 Nautabaninn (Matador)
23 Nautabaninn (Matador) 15
Salur C (80) 17
15 Heimili hinna hugrökku
17 Hryðjuverkamenn
19.05 Hryðjuverkamenn
21.10 Hún verður að fá’ða
23 Eureka 15
17
Mánudagur 21. sept. 19
15 Fanginfegurð 21.15
17 ROSSO 23
DAGSKRA
laugard. 19. sept.—miðvikud. 23. sept.
19.05
21
SKUGGAR í PARADÍS
Ár hinnar kyrru sólar
Hasarmynd (Comic Magazine)
Salur B(118)
Snædrottningin
Hryðjuverkamenn
Hryðjuverkamenn
Matador
Salur C (80)
Hún verður að fá’ða
Hún verður að fá’ða
Ginger og Fred
Sagan um virkið Súram
Ginger og Fred
Þriðjudagur 22. sept.
15 Heimili hinna hugrökku
17 Markleysa (Insignificance)
19 Markleysa (Insignificance)
21 Markleysa (insignificance)
23 Markleysa (Insignificence)
Salur B (118)
17 Gríptu gæsina (Eat the Peach)
17 Sagan um virkið Súram
19 Genesis
21 Rosso
23 Skuggar í Paradis
Salur C (80)
17 Teresa
17 Teresa
19 Gríptu gæsina (Eat the Peach)
21.05 Genesis
23 Gríptu gæsina (Eat the Peach)
Miðvikudagur 23. sept.
15 Hún verður að fá’ða
17 Komiðogsjáið
19.30 Skuggar í paradís
21 Frosni hlébarðinn
23.10 Yndislegurelskhugi
Salur B (118)
15 Græni geislinn (Le Rayon Vert)
17 Eureka
19.20 Græni geislinn (Le Rayon Vert)
21.05 A.K.
22.30 Bemskuminningar
Salur C (80)
16 Heiðahellar (Heidenlöcher)
17 Heiýahellar (Meidenlöcher)
19 Heiðahellar (Heidenlöcher)
21 Eureka
23 Græni geislinn
Linkola. Aðalleikendur Satu
Silvo, Outi Vanionkulma. Se-
bastian Kaatrasalo, Tuula
Nyman, Eski Hukkanen.
Finnsk. 1986. Enskur texti.
88 mín.
Þrátt fyrir að undur falleg
ævintýri H.C. Andersens hafi
uppá flest það að bjóða sem
þarf til góðrar kvikmyndagerð-
ar, eru þau sárafá sem fest
hafa verið á kvikmyndafílmu.
Ahugaleysi framleiðenda á
bamaefni veldur kannski mestu
þar um. En fínnski leikstjórinn
Paivi Hartzell bætti nokkuð úr
er hún kvikmyndaði eitt fræg-
asta ævintyri Andersen,
Snædrottninguna, á síðsta ári
og hlaut myndin Anjalankoski
verðlaunin sem besta, finnska
mynd ársins 1986.
Snædrottningin segir frá
leiksystkinunum Kai og Gerðu.
Kai er rænt af Snædrottning-
unni með íshjartað sem flytur
hann til heimkynna sinna,
langt, langt í norðri. Hún þarf
nefnilega á litlum dreng að
halda til að ná yfírráðum í heim-
inum. En Gerða litla kemst á
sporið og með hjálp góðra vætta
nær hún að bjarga vini sínum
úr greipum Snædrottningarinn-
ar illu, eftir margskonar
ævintýri.
Hartzell hefur lagt á það
megináherslu að reyna að halda
andblæ ævintýrisins og tekst
það að sumu leyti. Myndin er
ákaflega falleg að sjá en skelf-
ing endurtekningargjöm og
hreinlega vemmileg þegar verst
lætur. Stúlkan sem leikur Gerðu
er ósköp hugnanleg, lítil hnáta
og ég er ekki í minnsta vafa
um að Snædrottningin á greiða
leið að hjörtum smáfólksins. En
við hin eldri skulum gleyma
samanburðinum á myndinni og
ævintyrinu.
Ath. upphafsstafir: leikstjórar við-
staddir.
Feitletrað: síðasta sýning.
Strætisvagnar nr. 4 og 6 frá Hlemmi.
Miðasala: Forsala í söluturninum á
Lækjartorgi kl.10—17 virka daga.
Miðapantanir i Laugarásbfói: fyrir
hádegi f sfma 38150 eftir kl. 14.00 f
síma 32075.
Miðasala f Laugarásbfói kl. 14.00.