Morgunblaðið - 20.09.1987, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1987
37
Úr trúartónlist í soul
__________Blús______________
Árni Matthíasson
Trúartónlisdn (gospel-tón-
List) varð að soul- tónlist með
tímanum og margir af fremstu
soul-söngvurum Bandaríkjanna
eru upprunnir í trúartónlist-
inni. Þar má nefna Sam Cooke
sem dæmi, en hann var einn
fremstí trúartónlistarsöngvari
síns tima áður en veraldlegur
auður freistaði hans. Dæmi um
útgáfu á trúartónlist má finna
hjá útgáfufyrirtækinu Vee Jay
og þegar hlýtt er á upptökur
frá fyrirtækinu sem Charly-
útgáfufyrirtækið hefur gefið
út má glöggt heyra þróunina
yfir i soul-tóniistína.
Að vísu var Vee Jay ekki merk-
asta útgáfufyrirtækið sem gaf út
trúartónlist, en þrátt fyrir það tók
félagið upp margt framúrskarandi
tónlistar. Sú tónlist er vel kynnt
á safnplötunni Jesus is the Ans-
wer. Fremstu söngflokkar þar eru
The Swan Silvertones, sem betur
verður sagt frá hér á eftir, og The
Staple Singers, sem einnig fá ítar-
legri umfjöllun á eftir. Aðrir
söngflokkar sem markverðir eru
á plötunni eru The Five Blind
Boys of Alabama, The Highway
QC’s, The Caravans og The
Harmonizing Four. The Caravans
var einn þekktasti söngflokkurinn
sem tók upp efni fyrir Vee Jay,
en flokkurinn var eingöng skipað-
ur konum. The Harmonizing Four
var aftur á móti karlakvartett sem
skipaður var nær sömu söngvur-
um í fjörutíu ár, en kvartettinn
var stofnaður vel fyrir heimsstyij-
öldina síðari. Fyrstu upptökur
voru þó ekki gerðar fyrr en 1943.
The Staple Singers
Söngflokkurinn The Staple Sin-
gers var stofnaður af Roebuck
Staple, sem hafði lengi átt við
trúartónlist án þess þó að helga
sig tónlistinni að fullu. Hann hafði
fullan hug á að taka upp trúratón-
list sem aðal lifíbrauð og þegar
honum varð ljóst að bömin hans
voru fyrirtaks efni í trúarsöngvara
setti hann saman sönghópinn The
Staple Singers og hóf að æfa.
Roebuck lék á gítar og söng bak-
rödd, Mavis var aðalsöngkona og
Cleotha og Purvis sungu bakradd-
ir. Yngsta systkinið, Yvonne, slóst
síðar í hópinn.
Sönghópurinn komst á samning
hjá Vee Jay 1955 og tók upp 40
lög fyrir Vee Jay fram yfír 1960.
Þá freistaði auður svo að hópurinn
fór að syngja veraldlega tónlist,
enda var mikið fé í húfí.
Charly gaf út fyrir nokkru plötu
með safni af upptökum frá Vee
Jay árunum og þar er að fínna
marga perluna. Það er gítarleikur
Roebuck og söngur Mavis sem
gerir lögin að öðru og meiru en
venjulegum trúartónlistarsöngv-
um eins og t.d. í lögunum Don’t
Drive Me Away og Downward
Road. Á plötunni má einnig fínna
lagið This May Be the Last Time
sem Mick Jagger hefur sennilega
verið að hlusta á tæpum áratug
síðar er hann samdi samnefnt lag.
Er viðlagið það sama í báðum
laganna þó innihaldi sé ólíkt.
Annað lag sem lagað var að popp-
tónlist er lagið Stand By Me sem
Staple- fjölskyldan flytur á plöt-
unni, en Leiber og Stoller sniðu
úr því lag sem Ben E. King átti
eftir að gera frægt og sem var
reyndar á vinsældalistum í Bret-
landi ekki fyrir löngu.
Um 1960 fór Staple-fjölskyldan
að taka upp tónlist þar sem Jesú
var að engu getið og það eina sem
að baki lá var sókn eftir veraldleg-
um auði. Það varð til þess að
kirkjan afneitaði The Staple Sin-
gers sem trúarsöngsveit.
The Svan Silvertones
The Svan Silvertones var radd-
kvintett karla sem sungu allt frá
acapella trúarlögum í lög sem
voru nærri soul tónlist með ein-
földum undirleik. Aðalsöngvarinn
Claude Jeeter bar tónlistina uppi
með falsettusöng sem er hreint
ótrúlegur á köflum. Gott dæmi
um það eru lög eins og Stand
Up and Testify og Brighter Days
Ahead. Það var Jeeter sem stofn-
aði söngsveitina og leiddi hana. í
upphafí var áherslan lögð á acap-
ella söng en þróunin leiddi sveitina
í átt að soul tónlistinni líkt og svo
margar álíka sveitir og hefur Jeet-
er verið nefndur faðir soul tónlist-
arinnar líkt og Ray Charles. Hvað
um það er víst að fáir söngvarar
hafa verið stældir meira en Claude
Jeeter er stældur í soul tónlist-
inni. Jeeter hætti að syngja og
gerðist prestur sem hann er enn
í dag. Með því má segja að dagar
The Swan Silvertones hafí verið
taldir.
Áður hafa verið nefnd lögin
Stand Up and Testify og Brighter
Days Ahead, en önnur góð lög á
plötunni, sem heitir Get Your
Soul Right, eru At The Cross og
titillagið. Ekki má síðan gleyma
laginu That Day at Cavalry sem
er eitt af bestu lögum sveitarinn-
ar, en það lag er á safnplötunni
sem nefnd var í upphafi.
The Svan Silvertones
Ahugafólk um sorg:
Kvöldvaka
í Templara-
höllinni
SAMSTARFSHÓPUR áhuga-
fólks um sorg og sorgarviðbrögð
heldur kvöldvökui Templarahöll-
inni þriðjudaginn 22. september
kL 20.00.
Á dagskrá kvöldvökunnar eru
tveir fyrirlestrar sem þeir sr. Sig-
fínnur Þorleifsson sjúkrahússprest-
ur og Páll Eiríksson læknir flytja.
Eftir fyrirlestrana verður fyrir-
spumum svarað og almennar
umræður, m.a. um formlega stofn-
un samtakanna.
Aðgangur er ókeypis og opið öllu
áhugafólki.
Ekki HENDA
hundrað þúsund krónum.
Sól gos - meiriháttar gos
Tannlæknastofa
Hef opnað tannlæknastofu á
Eiðistorgi 15.
Ragnar Ó. Steinarsson,
tanniæknir, sími 611888.
Immm GENGISBREF
Skipholti 50 C,
sími 688123.
ORUGG AVOXTUN
Verðbréfasjóður Hagskipta hf. hóf nýlega útgáfu sk. Gengisbréfa
Helstu kostir Gengisbréfa eru:
• Há ávöxtun — Ársávöxtun er nú 14,5% umfram
verðbólgu
• Enginn binditími
• Ekkert innlausnargjald tekið við innlausn bréfanna
Skráð er daglegt gengi bréfanna — Gengi 18.09/87 er 1.0433
Verð á gengisbréfi að nafnvirði kr. 5.000.OO er kr. 5.217.oo
Verð á gengisbréfi að nafnvirði kr. 50.000.oo er kr. 52.170.oo
Nánari upplýsingar veita: Kristján V. Kristjánssón, viðskiptafræðingur
Sigurður Örn Sigurðarson, viðskiptafræðingur.
Það er ekki eingöngu veggtennis hjá okkur,
því við erum að byrja með þrælfjömga og
hressandi músíkleikfimi fyrir alla, á öllum
aldri.
Ath. Fyrsti tíminn er ókeypis
Lára og Ásta stjóma tímunum
SIMI:
19011
Tími:
Mánud. kl. 17.30
Þriðjud. kl. 17.30
Miðvikud. kl. 17.30
Fimmtud. kl. 17.30
VEGGSPORT hf.
Veggtennis og íþróttamiðstöð
Seljavegi 2 101 Reykjavík
sími: 19011
VEGGTENNIS
Eigum ennþá lausa tíma í hádeginu
virka daga og svo á laugardögum
s og sunnudögum.
c
Ath.
Erum í
Vesturbænum