Morgunblaðið - 08.10.1987, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
Ráðstefna um
umhverfismál
OPIN ráðstefna um umhverfis-
mál, undir yfirskriftinni „ísland
er ekki eyland", verður haldin á
vegum Alþýðubandalagsins
sunnudaginn 11. október í Gerðu-
bergi í Breiðholti. Gestur íáð-
stefnunnar er Chris Bunvan,
formaður CADE umhverfisvernd-
arsamtakanna.
Dagskrá ráðstefnunnar hefst
klukkan 10 með ávarpi Hjörleifs
Guttormssonar, alþingismanns, um
umhverfismál á fslandi, en auk hans
taka til máls um þetta efni Andrés
Amalds beitarþolsfræðingur, Jón
Ólafsson haffræðingur og Stefán
Thors, skipulagsstjóri ríkisins.
Að loknum hádegisverði verða
flutt erindi um ísland og alheiminn,
og mun géstur ráðstefnunnar, Chris
Bunvan, fjalla um hættuna sem
stafar af geislamengun hafsins.
Chris Bunvan er formaður CADE
samtakanna, sem berjast gegn
stækkun kjamorkuversins í Dounray
á Skotlandi.
Einnig munu Sigurbjörg Gísla-
dóttir efnafræðingur, Þorsteinn
Vilhjálmsson eðlisfrasðingur, og
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur flytja
erindi, en ráðstefnunni lýkur klukk-
an 17.
Iðnþróunarfélag
Austurlands:
Upplýsingarit
um fyrirtæki
og stofnanir
Iðnþróunarfélag Austurlands
hefur gefið út nýtt upplýsingarit
um austfirsk fyrirtæki, stofnanir
og félagasamtttk og er titill bókar-
innar „Lykill að Austurlandi."
Bókinni verður dreift I hvert hús
og 611 fyrirtæki á Austurlandi.
Tilgangurinn með útgáfu bókar-
innar er m.a. að kynna austfirskt
atvinnulíf, vörur og þjónustu.
Bókin er 192 bls. og hefst á inn-
gangi um atvinnulíf, menningu og
mannlif á Austurlandi. Þungamiðja
bókarinnar er fyrirtækjaskrá þar sem
finna má upplýsingar um allflest fyr-
irtæki, stofnanir og félagasamtök í
fjórðungnum. Þessum kafla bókar-
innar er skipt niður eftir póstnúmer-
um helstu þéttbýlisstaða í flórðungn-
um og oftast er birt götukort af
viðkomandi stað. Einnig eru þar upp-
lýsingar um mannflöldaþróun, at-
vinnuskiptingu og tekjur á hveijum
stað.
Aftast í bókinni er þjónustuskrá
þar sem fyrirtækjum og félögum er
raðað niður eftir starfsemi. Einnig
eru í bókinni vegakort af flórðungn-
um, tafla með vegalengdum milli
staða og listi yfir helstu stofnanir,
samtök og sjóði iðaðarins.
(Úr fréttatilkynningu)
Nú kraumar í pottinum, því
sem ekki gengu út síðasta laugardag, leggjast
við fyrsta vinning á laugardaginn kemur.
Spáðu í það!
-milljónir, á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111