Morgunblaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987 Morgunblaðið/Bjami Sigurður Helgason forstjóri og Sveinn Sæmundsson sölustjóri innan- landsflugs, með skrúfuna úr Waco flugvélinni, sem var fyrsta vél félagsins. Flugleiðir: Sýning á 50 ára afmæli atvinnu- f lugs á Flugleiðir efna til sýningar í til- efni hálfrar aldar afmælis atvinnuflugs á íslandi 9. til 11. október næstkomandi. Sýningin verður á hótel Loftleiðum og utanhúss, þar sem flugvélar verða til sýnis. Þá munu Flugleið- ir lækka flugfargjöld fram og til baka innanlands um helming, dagana 8., 9. og 10. október. Sýningunni er ætlað að veita yfírlit yfír 50 ára flugsögu félagsins og er hún þrískipt. I fyrsta lagi er sögusýning sem byggð er upp með myndum og textum, auk líkana af flestum tegundum þeirra flugvéla sem flugfélagið hefur haft í notkun. Þá verður sýnd 45 mínútna mynd- band, „Svipmyndir úr fluginu". Annar hluti sýningarinnar ber-heit- ið „Flugleiðir í dag“. í honum er leitast við að sýna í hnotskum umfang félagsins og ýmislegt í tæknilegri uppbyggingu þess. Gerð verður grein fýrir áfangastöðum íslandi félagsins innan- og utanlands, flug- flota og farþegaþjónustu, kynnt farskráningarkerfí Flugleiða og ýmis starfsemi sem ber venjulega ekki fyrir sjónir almennings. í þriðja hluta sýningarinnar verður reynt að skyggnast inn í framtíðina og sýndar myndir af nýjustu flugvélum Flugleiða. Flugleiðir hafa fest kaup á sams- konar vélum og voru notaðar í upphafí farþegaflugs. Það eru Waco flugvél sem keypt var 1937 og Stin- son Reliant flugvél, samskonar og tekin var í notkun árið 1944. Þær verða til sýnis á útisvæði við hótel- ið, en leyfí veður það ekki, verða þær til sýnis í flugskýli 1. Afmælissýningin sem stendur yfír í þrjá daga, verður opin frá kl. 16 til kl. 20 á föstudaginn og um helgina verður hún opin frá kl. 10 til kl. 20. Hún er ölium opin og er aðgangur ókeypis. Rætt um skógrækt á Kírkjuþingi í Skálholti Á KIRKJUÞINGI í gær var skýrsla kirkjuráðs rædd, lögð fram tíllaga um stofnun Sið- fræðistofnunar Háskóla íslands og þjóðkirkjunnar og þingsálykt- unartillaga um aðgang fatlaðra að kirkjum landsins. Kirkjuráð lagði einnig fram skýrslu um Skálholt, en í henni er meðal annars nefnd beiðni Skógræktar ríkisins um afnot af leigulandi til skógræktar í landi Skálholts. Kirkj- uráð vísaði beiðninni frá, en í umræðum á þinginu kom fram að menn voru ekki allskostar sáttir við þá afgreiðslu málsins og töldu að Hársnyrting fyrir dömur og herra skógrækt í Skálholti væri verðugt verkefni. Tillaga um stofnun Siðfræði- stofnunar Háskóla íslands og þjóðkirkjunnar var lögð fram af sr. Jónasi Gíslasyni, dósent, en hug- myndin er komin frá guðfræði- og siðfræðistofnun Háskólans. Litlar umræður fóru fram um málið, aðrar en þær að kirkjuþingi hefði ekki gefíst nægur tími til að hugleiða tillöguna og að tillaga um svipaða stofnun, Þjóðmálaráð kirkjunnar, hefði verið lögð fram á síðasta þingi. Málinu var vísað til nefndar. Þingsályktunartillögunni um að- gang fatlaðra að kirkjum landsins var vísað áfram til nefndar og skýrsla kirkjuráðs og reikningar Kristnisjóðs frá síðasta ári sam- þykktir. Kirkjuþing heldur áfram störfum í dag. 86 krónur fyr- ír kola í Hull TOGARINN Júlíus Geirmunds- son ÍS seldi á miðvikudag 168 tonn af fiski, mest þorski í Hull. Meðalverð fyrir aflann var 71,11 krónur á kíló. Meðalverð fyrir gámafisk á þriðjudag var örlítið lægra, 69,75. Fyrir kola fengust 86,22 krónur. Heildarverð fyrir afla Júlíusar var 12 milljónir króna. Fyrir þorsk fengust að meðaltali 69,87 krónur. 73,63 fyrir ýsu og 86,22 fyrir kola. Á þriðjudag voru seldar 460 lest- ir úr gámum. Heildarverð var 32 milljónir króna, meðalverð 69,57. Fyrir þorsk fengust að meðaltali 66 krónur, fyrir ýsu 76,14, 81,04 fyrir kola og 35,09 fyrir karfa. AF INNLENDUM VETTVANGI eftir GUÐMUND SV. HERMANNSSON Sá elsti og reyndasti teflir gegn íslenska nýliðanum JÓHANN Hjartarson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægst- ur þegar hann mætir Viktor Korchnoi í fyrstu umferð áskor- endaeinvíganna i Kanada, í janúar næstkomandi. Af þeim 14 skákmönnum sem þar eigast við hefur Korchnoi langmesta reynslu af slíkum einvígum og hefur komist næst því að næla í heimsmeistaratitilinn. Jóhann tók hinsvegar þátt f reglulegu stórmeistaramóti í fyrsta skipti á þessu ári þegar hann tefldi á IBM-skákmótinu i Reykjavík í febrúar. Jóhann og Korchnoi eru mjög ólíkir við taflborðið. Fyrir það fyrsta er yfír 30 ára aldursmunur á þeim og eins eru þeir ólíkir á velli: Korchnoi er þrekinn meðalmaður sem situr og keðjureykir við skák- borðið og styður gjarnan hendi með sígarettunni á enni sér; Jóhann aft- ur á móti er hár og grannur og hann situr með hnefana kreppta við kinnamar þegar hann hugsar næstu leiki. Það fer þó vel á að þessir skákmenn mætist í áskor- endaeinvígi því Korchnoi hefur alltaf verið íslendingum hugleikinn. Á toppnum í tuttuguár Skákferill Korchnois er orðinn langur og skrautlegur meðan ferill Jóhanns er rétt að byija. Korchnoi varð stórmeistari árið 1956, þá 25 ára gamall, eftir að hann hafði unnið nokkra sigra á alþjóðlegum mótum og 1960 varð hann skák- meistari Sovétríkjanna. Tveimur árum seinna tók hann þátt í áskor- endamóti en það var þó ekki fyrr en 1968 að hann komst í hóp al- bestu skákmanna heims þegar hann komst í úrslit áskorendaeinvíganna. Þrátt fyrir að ýmislegt hafí gengið á hjá Korchnoi síðan má segja að hann haldi enn þessum sessi, 20 árum síðar. Korchnoi hafði þegar á þessum árum komist upp á kant við sovéska kerfíð. Sú deila magnaðist með ár- unum og endaði með að Korchnoi flúði land árið 1976. Þá hafði hann gert bæði sovéska ráðamenn og ýmsa skákmeistara að fíandmönn- um sínum. Eftir flótta Korchnois reyndu Sovétmenn að einangra Korchnoi með því að neita að senda þátttakendur í mót sem hann keppti í og Korchnoi naut þess að sama skapi að vinna fyrrum landa sína í áskorendaeinvígum árið eftir að hann flúði. Kerfisbaráttan hafði góð áhrif Korchnoi barðist lejmt og ljóst gegn Sovétríkjunum og einnig fyrir því að eiginkona hans og sonur fengju að yfirgefa landið. íslending- ar tóku virkan þátt í þessari baráttu Korchnois á sínum tíma og það var viðurkennt að framganga Friðriks Ólafssonar, þáverandi forseta FIDE, hefði haft úrslitaáhrif í því máli sem leystist 1983. Þessi bar- átta kom þó síður en svo niður á taflmennsku Korchnois og 1977 vann hann þrjá landa sína í röð í áskorendaeinvígum og árið 1978 mætti hann Anatoly Karpov í ein- vígi um heimsmeistaratitilinn þar sem ýmislegt gekk á eins og vænta mátti. Korchnoi tapaði einvíginu, Jóhann Hjartarson 5—6 eftir að hafa verið undir 2—5, en í síðustu skákinni teygði hann sig of langt með svörtu og tapaði. Sennilega hefur þetta verið há- tindurinn á ferli Korchnois því Karpov burstaði hann í næsta heimsmeistaraeinvígi. Og þótt Korchnoi hafi unnið mörg sterk mót síðan hefur hann verið mistæk- ur. Þrátt fyrir það hefur hann enn til að bera ódrepandi sigurvilja, sem margir skákmeistarar á hans aldri hafa misst, og er þar nærtækast að nefna Boris Spassky. Aldurinn virðist heldur ekki há honum að marki og árangur hans á þessu ári hefur verið mjög góður, allt frá því hann vann sterkt mót í Wijk aan Zee í Hollandi í janúar ásamt Nigel Short. Og margir yngri menn mjmdu þreytast aðeins af því að lesa listann jrfir þau mót sem Korc- hnoi hefur tekið þátt í á þessu ári. Jóhann vex með hverju móti Segja má að skákferill Jóhanns Hjartarsonar hafi byijað árið 1980 þegar hann varð íslandsmeistari aðeins 17 ára gamall. Fjórum árum seinna náði hann sínum fyrsta áfanga að stórmeistaratitli á Bún- aðarbankaskákmótinu sem hann vann, tveimur vikum síðar náði hanri öðrum áfanga á Reykjavíkur- skákmótinu og þriðja og síðasta áfangann fékk hann árið eftir á Norðurlandamótinu. Eftir að stórmeistaratitlinum var náð virtist Jóhann gefa sér smá tíma til að ná andanum, en á þessu ári hefyr Jóhann vaxið með hveiju móti. Á IBM-mótinu í febrúar gekk Jóhanni ekkert of vel, enda hafði hann aldrei áður tekið þátt í móti af þeim styrkleika. Jóhann vann þó bæði Korchnoi og Short, tvo stigahæstu menn mótsins. Skömmu síðar varð Jóhann í öðru sæti á svæðamóti í Noregi og fékk þar með þátttökurétt í millisvæðamóti. í júní tók Jóhann þátt í mjög sterku móti í Moskvu og náði þar þriðja sæti þrátt fyrir að hann væri æfing- arlítill eftir próflestur. Síðan tók millisvæðamótið í Ungveijalandi við og þar náði Jóhann 1.-2. sæti og skaut aftur fyrir sig ekki ómerkari skákmönnum en Portich, Nunn, Beljavski, Andersson og Ljjubojevic, sem allir hafa um og yfír 2.600 skákstig. Kostnaðurinn nemur einni milljón króna Enn eru rúmir þrír mánuðir fram að einvíginu en þegar er farið að huga að undirbúningi Jóhanns og Viktor Korchnoi ljóst er að Skáksamband íslands mun rejma að spara ekkert til að Jóhann geti undirbúið sig sem best. Gert er ráð fyrir að einn, eða jafn- vel fleiri, úr hópi íslensku stórmeist- aranna muni aðstoða Jóhann í Kananda og er þar aðallega talað um Margeir Pétursson. Einnig munu þeir sennilega flestir aðstoða Jóhann við undirbúninginn fyrir einvígið. Þráinn Guðmundsson forseti Skáksambands íslands sagði við Morgunblaðið að áætlaður kostnað- ur vegna þátttöku Jóhanns í ein- víginu væri um ein milljón króna og þarf Skáksambandið að standa straum af þeim kostnaði. „Skák- sambandið á auðvitað enga peninga til þessa en við erum að undirbúa ýmiskonar söfnun og stofnun af- rekssjóðs og auk þess vonum við að þjóðin muni hjálpa okkur eins og þegar Friðrik Ólafsson stóð í svipuðum sporum," sagði Þráinn. Hvaða möguleika á Jóhann? En hveijir eru möguleikar Jó- hanns á að sigra Korchnoi í ein- víginu? Menn hafa eðlilega farið varlega í sakimar og bent á gífur- lega reynslu Korchnois í einvígum sem þessum. Sjálfur vildi Korchnoi ekki gera mikið úr þessari reynslu í samtali við Morgunblaðið, sem birtist á öðrum stað í blaðinu, og sagði að ef skákmaður tefli vel á annað borð muni hann sýna styrk sinn, hvort sem um væri að ræða mót eða einvígi. Ef skákstigin eru höfð til hliðsjónar ætti Korchnoi þó að vinna því hann hefur 2.630 en Jóhann er skráður með 2.550 þótt hann hafí raunar um 2.590 í raun. Bæði Korchnoi og Jóhann fóru hægt í sakimar þegar þeir voru spurðir álits á andstæðingnum. Þó var athyglisverð sú skoðun Korc- hnois að einvígið væri allt of stutt og bæði honum og Jóhanni yrði það mikil ánægja að tefla tvöfalt lengra einvígi. Hann hefur því greinilega trú á úthaldinu. Korchnoi sagði einnig að honum hefði orðið það ljóst á skákmótinu í Reykjavfk í febrúar að Jóhann væri mjög efni- legur skákmaður; „Hann á örugg- lega bjarta framtíð fyrir sér í skákinni," sagði Korchnoi. Jóhann sagðist sjá fram á mjög skemmtilegt einvígi. „Ég held að það sé mun skemmtilegra að tefla einvigi við Korchnoi en flesta í hópnum í Kanada en hann hlýtur þó að vera einn sá erfíðasti vegna reynslu sinnar," sagði Jóhann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.