Morgunblaðið - 08.10.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
I
Morgunblaðið/svpáll
Sr. Pálmi Matthíasson og organistarnir Áskell Jónsson og Jóhann Baldvinsson að lokinni athöfn í
Glerárkirkju á sunnudaginn var.
Glerársókn:
Nýr organleikari tekinn við
Áskell Jónsson lætur af störfum eftir 42 ára starf
VEÐ GUÐSÞJÓNUSTU í Gler-
árkirkju siðastliðinn sunnudag
lét Askell Jónsson formlega af
störfum sem organisti og
stjórnandi kirkjukórsins eftir
að hafa gegnt því starfi sleitu-
laust í 42 ár. í stað hans hefur
verið ráðinn ungur söngstjóri,
Jóhann Baldvinsson, en hann
er nýkominn frá námi í Þýska-
landi.
Við athöfnina söng kirkjukór-
inn undir stjóm Áskels og sonar
hans, Jóns Hlöðvers Áskelssonar,
sem starfað hefur með föður
sínum síðustu tvö árin. Strengja-
sveit úr Tónlistarskólanum lék
með og einsöngvarar voru Helga
Alfreðsdóttir og Eiríkur Stefáns-
son. Kórinn söng meðal annars
upphafið að G-dúr-messu Schu-
berts og tokakórinn úr Jóhannes-
arpassíu Bachs, en Sverrir
Pálsson skólastjóri hafði gert
textana. Jóhann Baldvinsson lék
verk eftir Oskar Borg og í lok
messunnar fluttu hann og Eiríkur
Stefánsson hinum aldna söng-
stjóra gleðióð.
Sóknarpresturinn, séra Pálmi
Matthíasson, lagði í prédikun út
af orðunum „Syngið Drottni nýjan
söng“ og tengdi þau giftudijúgu
starfi Áskels fyrir sókn og kirkju,
kvað sjaldgæft að notið fengist
krafta eins manns í eins langan
tíma og raun sýndi, en jafnframt
væri undarlegt að kveðja fyrir
aldurs sakir mann sem Áskel,
ungan í anda og kvikan á fæti.
Hann færði þeim feðgum, Áskeli
og Jóni, þakkir fyrir gott starf
og bauð nýjan organleikara vel-
kominn til starfa.
Formaður sóknamefndar, Mar-
inó Jónsson, ávarpaði Áskel og
færði honum og konu hans þakk-
ir og gjafír fyrir langt samstarf.
Friðrik Kristjánsson, einn elsti
kórfélaganna, flutti Áskeli kveðju
og gjafír kórsins og sjálfur kvaddi
Áskell með stuttri ræðu og fékk
nýjum organista lyklavöld sín.
Að þessari messu. og athöfn
lokinni var myndarlegt kaffísam-
sæti í tilefni organistaskiptanna
og þar söng kirkjukórinn fjölmörg
lög, allt frá íslenskum þjóðlögum
til negrasálma. Fjölmenni var við
messu og í samsætinu.
Hinn nýi söngstjóri, Jóhann
Baldvinsson, er Akureyringur.
Hann nam fyrst við Tónlistarskól-
ann á Akureyri, þar sem Jakob
Tryggvason og Gígja Kjartans-
dóttir kenndu honum organleik.
Að loknu stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri hélt
hann til náms við Kennaraháskóla
íslands og Tónlistarskólann í
Reykjavík, og lauk þar almennu
kennaraprófí og tónmenntakenn-
araprófí. Síðan var Jóhann
organisti við Fríkirkjuna í Hafnar-
fírði í rúm tvö ár og hélt því
næst til Þýskalands, þar sem hann
hefur stundað nám í kór- og
hljómsveitarstjóm við Tónlistar-
háskólann í Aachen síðustu þrjú
árin.
Fóstrur vilja 33% launahækkun
Þriðjungnr fóstra hefur flúið úr stéttinni á tveimur árum
MIKIL óánægja ríkir nú í röðum
fóstra á Akureyri og ljóst er að
ófremdarástand mun skapast í
dagvistarmálum þar í bæ verði
ekkert að gert til að bæta kjör
þeirra. Fóstrum hefur fækkað
um þriðjung á aðeins tveimur
árum, úr 21 í 14, og liggja nú
þegar fyrir uppsagnir tveggja
forstöðumanna dagheimila í við-
bót, auk að minnsta kosti einnar
fóstru.
Hærri laun sem
ófaglærðir kennarar
Fóstrur hafa sent bréf til kjara-
nefndar STAK og Akureyrarbæjar.
Einnig sendu þær afrit til félags-
málaráðs og bæjarráðs þar sem þær
gerðu grein fyrir stöðu fóstra og
stöðu dagvistarmála almennt. I
framhaldi af því áttu þær fund með
félagsmálaráði sl. mánudag þar sem
_ þær lýstu yfír vaxandi áhyggjum
sínum vegna fólksflótta úr stéttinni
vegna slæmra kjara. Helga Magnús-
dóttir forstöðumaður dagheimilisins
Flúða sagði í samtali við Morgun-
blaðið að fóstrur Ieituðu í vaxandi
mæli í skólana sem ófaglærðir kenn-
arar og byggju þar við betri Ig'ör en
á dagvistarheimilunum. Okkur
finnst að vonum súrt í broti að þær
skuli vera hærra launaðar í skólun-
um sem réttindalausir kennarar
heldur en við sem erum inn á dag-
heimilunum sem fóstrur og forstöðu-
menn.“
Helga sagði að fóstur hefðu feng-
ið góðar undirtektir á fundi með
félagsmálaráði. „Við vonumst til að
eitthvað verði gert áður en vand-
ræðaástand skapast eins og víða
hefur gerst á Reykjavíkursvæðinu.
Þar er búið að loka nokkrum deildum
vegna manneklu bæði fóstra og
ófaglærðs fólks. Við sjáum fram á
að þetta vandamál mun skapast
hér, verði ekkert að gert.“
33% launahækkun
Fóstrur á Akureyri fara fram á
að grunnlaun verði hækkuð um
þriðjung, um 33%. Hugrún Sig-
mundsdóttir formaður Akureyrar-
deildar Fóstrufélags íslands sagði
að með flótta úr stéttinni kæmi auk-
ið álag niður á þeim fóstrum sein
eftir eru. Á tveimur dagheimilum
er ástandið til dæmis þannig að þar
eru aðeins forstöðumenn faglærðir,
en annað starfsfólk er allt ófaglært.
Á öðrum heimilum er málum þannig
háttað að fóstrur vinna oft hálfan
daginn og þá er engin faglærður á
deildunum hinn helminginn úr degin-
um. Það gefur því auga leið að
álagið er mikið á forstöðumönnum
og þurfa þær jafnframt að skipu-
leggja deildarstarfíð, sem annars
ætti að vera í höndum almennra
fóstra. Af þessu hljóta foreldrar
bamanna jafnframt að hafa áhyggj-
ur,“ sagði Hugrún Sigmundsdóttir
formaður Akureyrardeildar Fóstru-
félags íslands.
Helga sagði að byijunarlaun
fóstra væru 43.462 krónur og gætu
forstöðumenn komist hæst í 59.515
krónur eftir 18 ár í starfi og er þá
rúm 13% launahækkun 1. október
tekin með í dæmið. Ef kröfur fóstra
ná fram að ganga um 33% launa-
hækkun, færu byijunarlaunin upp í
57.804 krónur og hæstu laun for-
stöðumanna í 79.155 krónur. Þær
Helga og Hugrún sögðu að dagvist-
arstofnunum héldist ekki einu sinni
á ófaglærðu fólki, þar sem hinn al-
menni vinnumarkaður borgaði betur,
en fyrir þau krefjandi störf sem fram
færu innan dagheimilanna. Þær
sögðu að stór hópur starfsfólks á
leikskólum væru mæður, sem hefðu
lokið sínu uppeldishlutverki heima
fyrir. Þessum konum hefði hinsvegar
farið sífækkandi undanfarið og væri
ekki úr eins stórum hópi að moða
og áður.
Fóstur bíða nú eftir fundi með
kjaranefnd sem er úrslitavald um
laun þeirra að fengnu samþykki
bæjarstjómar.
Verkalýðsfélagið Eining:
15 útlendingar fá
starfsleyfi á Greni-
vík og í Grímsey
STJÓRN verkalýsðsfélagsins
Einingar á Akureyri hefur sam-
þykkt að veita Kaldbaki hf. á
Grenivík leyfi til að ráða allt að
tíu erlenda starfsmenn til fisk-
vinnslustarfa. Jafnframt hefur
stjórnin heimilað fiskverkun
KEA í Grimsey að ráða fimm
Englendinga til starfa. Leyfin
eru veitt til loka maí á næsta ári.
Sævar Frímannsson formaður
Einingar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að leyfín hefðu verið veitt
áður en til áskorunar framkvæmda-
stjómar Verkamannasambands
Islands kom, þar sem skorað er á
aðildarfélögin að hafna umsóknum
um atvinnulejrfi fyrir útlendinga.
Áskoruninni er beint sérstaklega til
félaga, þar sem fískvinnsla er aðal-
atvinnugrein byggðarlagsins.
Sævar sagði að leyfín hefðu ver-
ið veitt vegna þess hve útlit hefði
verið slæmt með rekstur frystihúss-
ins með þeim mannafla sem fyrir
var. Skólar væm nú teknir til starfa
og skólafólk því farið úr fískvinnslu-
störfum. Fiskvinnslustöðvamar
ættu ávallt erfitt uppdráttar á
haustin hvað snerti mannafla. „Við
höfum á undanfömum ámm gefíð
einstaka fyrirtæki leyfí til að fá
erlenda menn í vinnu, en þó í mjög
litlum mæli. Við bendum fyrirtækj-
um hinsvegar á að ekkert atvinnu-
leyfí þurfí til að ráða starfsfólk frá
hinum Norðurlöndunum vegna
samþykktar sem í gildi er á milli
N orðurlandanna. “
„Atvinnurekendur ætla sér fyrst
og fremst að fara að græða á inn-
flutningi erlends vinnuafls og fínnst
mér sjálfsagt og eðlilegt að spoma
við þeirri þróun þar sem þeir vilja
ekki ganga til viðræðna við verka-
lýðshreyfínguna um leiðréttingu á
launum fískvinnslufólks miðað við
það sem aðrir hafa fengið," sagði
Sævar. Stjóm Einingar hefur ekki
borist fleiri atvinnubeiðnir vegna
erlends vinnuafls, en ef þær myndu
berast sagðist Sævar fastlega búast
við að þeim yrði synjað vegna ný-
legrar áskomnar Verkamannasam-
bandsins.
Bæjarstjórn:
Mælir með ráðningu
kvensjúkdómafræðings
BÆJARSTJÓRN hefur sam-
þykkt að beina þeim tilmælum
til fulltrúa Akureyrarbæjar í
stjóm Fjórðungssjúkrahúss Ak-
ureyrar og Heilsugæslustöðvar
Akureyrar að beita sér fyrir því
að ráðinn verði kvenmaður í 60%
starf kvensjúkdómafræðings á
Akureyri sem laust er til um-
sóknar. Jafnframt myndu full-
trúarnir beita sér fyrir því að sú,
sem ráðin yrði fengi aðstöðu á
Fjórðungssjúkrahúsinu til að
gera aðgerðir á sjúklingum
sínum.
Samþykktin kemur í kjölfar fjöl-
menns fundar, sem haldinn var
þann 30. september sl. á vegum
jafnréttisnefndar Akureyrar. Á
fundinum var skorað á heilbrigðis-
yfírvöld að ráða konu í auglýst starf
sérfræðings í kvensjúkdómum við
heilsugæslustöðina og tryggja
henni aðstöðu við sjúkrahúsið. Á
fundi jafnréttisnefndar var jafn-
framt þeim tilmælum beint til
bæjarstjómar að hún stuðli að
framgangi málsins.
Morgunblaðið/GSV
Hluti „rúntsins" á Akureyri í
vetrarskrúðanum í gær.
„Rúntinum“ verði
lokað á næturnar
BÆJARSTJÓRN Akureyrar
hefur samþykkt að loka „rúnt-
inum“ svokallaða í tilrauna-
skyni milli kl. 22.00 á kvöldin
til kl. 6.00 á morgnana í kjölfar
mótmæla sem íbúar í nágrenn-
inu sendu skipulagsnefnd fyrir
skömmu.
Ibúar, sem búa við Hafnar-
stræti, Skipagötu, Brekkugötu og
ofanverða Strandgötu fóru fram á
lokunina vegna ónæðis á þessum
tíma. Ekki er vitað hvenær rúntin-
um verður fyrst lokað, en að öllum
líkindum verður sett merki við
Landsbankann sem bannar umferð
í kringum Ráðhústorgið og út
Skipagötu þegar að því kemur.
Sigurður J. Sigurðsson bæjar-
fulltrúi sagði í samtali við
Morgunblaðið að ekki væri vitað
hvað breytingamar hefðu í för
með sér, en líklega myndi um-
ferðin verða eftir Geislagötunni
eða í nágrenni Sjallans. Nýlega
var stofnað til hugmyndasam-
keppni um hönnun Ráðhústorgs
og reiknað er með að götumynd
Skipagötunnar breytist þá um leið.
Leggja þarf Skipagötuna á ný og
fínna þarf gönguleiðir á milli versl-
ana og bílastæða, að sögn Sigurð-
ar.