Morgunblaðið - 08.10.1987, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
43
Stjórnarfundur á Orkustofnun (OS). Jakob Bjðrnsson orkumálastjóri fremst, Gunnar Björnsson starfs-
mannastjóri t.h., Jónas Elíasson formaður stjómar OS, Jón Guðmar Jónsson skrifstofustjóri á OS og
þeir Valdimar Kr. Jónsson og Þóroddur Th. Sigurðsson stjórnarmenn í stjóra OS. — Ljósm. Oddur
Sigurðsson.
starfsemi. Engin hitaveita hefur svo
komist á laggimar að Orkustofnun-
armenn hafi ekki verið með í ráðum.
í öllum fjórðungum hefur stofnunin
komið við sögu í vatnsveitumálum
og á fiskeldissviðinu hefur hún lagt
gjörva hönd á plóg í flestum sýslum
landsins. Alþingi á að vera með í
ráðum þegar svona starfsemi er
skrúfuð niður. Það undrar mig mjög
að jafn reyndur og klókur embættis-
maður og Jakob Bjömsson orku-
málastjóri, skuli einungis hafa sagt
— „Já ráðherra" — þegar hann var
beðinn um lista yfir nöfn starfs-
manna sinna til niðurskurðar.
Stjórn OS á að
segja af sér
Á fundi starfsmanna OS sama
dag og uppsagnahryðjan dundi yfir,
var samþykkt samhljóða, og með
öllum greiddum atkvæðum, áskor-
un á stjóm OS um að hún segði
þegar af sér. Ástæðan fyrir þessari
áskorun var ekki stundarreiði
starfsmanna. í rauninni hefði
stjómin átt að segja af sér ótilkvödd
strax og ljóst var að henni hafði
mistekist að verja stofnunina og
starfsmenn hennar þeim áföllum
sem svona fjöldauppsagnir eru.
Staða stjómarinnar og tiltrú manna
á henni styrkist ekki af þeim hags-
munatengslum sem tveir af þremur
stjómarmönnum, þeir Jónas Elías-
son og Valdimar Kr. Jónsson, eru
í við stofnanir og fyrirtæki sem eru
samkeppnisaðilar OS. Ég vil ekki
trúa því að þessi tengsl hafi ráðið
nokkru um úrslit mála en þau valda
þó ótvírætt bæði almennri tor-
tryggni og trúnaðarbresti. í þriðja
lagi helgast afsjaða starfsmanna
OS til stjómar stofnunarinnar af
því að þetta er ráðherraskipuð
stjóm og það er gömul og ný reynsia
að svona póiitískir kommissarar eru
jafnan til bölvunar þegar þeir ru
settir til að vasast í málunum. Ég
veit ekki hvað embættisafglöp em
ef undir þau flokkast ekki tiltæki
eins og þau að tjúka í fjöldaupp-
sagnir á grundvelli ósamþyklrtra
frumvarpsdraga. Það eru hins veg-
ar jafn gömul sannindi, að á íslandi
segja embættismenn og pólitíkusar
ekki af sér þótt þeir hafi framið
bæði afglöp og bommertur, og
stjómarformaður Orkustofnunar
hefur lýst því yfir, við lltinn fögnuð
orkustofiiunarmanna, að hann
hyggist alls ekki segja af sér.
Blórabög-glar
Það er algengt þegar svona mál
dynja yfír, að menn fara að leita
að blórabögglum til að svala reiði
sinni á í hita leiksins. Þess vegna
vil ég taka skýrt fram að ég tel
ekki að uppsagnimar seú runnar
undan riQum stjóm Orkustofnunar
og ennþá síður orkumálastjóra. Ég
gagnrýni stjómina einungis fyrir
að hafa ekki getað forðað þessari
uppákomu, fyrir að hafa ekki barist
nógu vasklega í kerfínu og fyrir
að hafa ekki beint sínum breiðu
spjótum út á við, í sókn eftir óskert-
um fjárframlögum og nýjum
verkefnum. Ég gagnrýni stjórnina
fyrir uppgjöf sína og fyrir að beina
spjótunum inn á við, að starfsmönn-
um Orkustofnunar í algerlega
ótímabærum og flausturslegum nið-
urskurðaraðgerðum.
Orkustofnun hefur lengi mátt
þola baknag ýmiskonar, jafnt innan
embættismannakerfísins, stjóm-
málaflokka og jafnvel meðal
almennings. Orsakimar eru æði
misgrundaðar. Stundum hefur hún
átt gagnrýni skilda en oftar er hún
þó byggð á misskilningi á hlutverki
Orkustofnunar eða ranghugmynd-
um um almenna rannsóknarstarf-
semi eða barasta á öfund út í
þróttmikla stofnun sem skákar af
og til öðmm stofnunum og grípur
verk og verk frá verkfræðistofum
og verktakaþjónustum. Fram undir
þetta hefur baknagið ekki gert
neinn skaða, nú er hefur það hins
vegar orðið til tjóns.
Hlutverk Orku-
stofnunar
Það hefur oft heyrst sagt upp á
síðkastið að nú sé búið að virkja
meira en nóg bæði í jarðhita og
vatnsafli; hlutverki OS sé því nán-
ast lokið. En þetta er meinlegur
misskilningur. Orkustofnun er ekk-
ert venjulegt verktakafyrirtæki.
Orkustoftiun er rannsókna- og ráð-
gjafarstofnun sem starfar sam-
kvæmt orkulögum. Henni er skylt
að hafa jafnan á reiðum höndum
gmndvallarupplýsingar um orku-
lindir landsins og haldgóða þekk-
ingu á gmnnvatni og fleiri
náttúmgæðum. Þessa lagaskyldu
hefur OS átt erfítt með að uppfylla
vegna þess að hún hefur verið í
önnum við að leysa aðkallandi
vandamál orkugeirans, t.d. við
rannsóknir fyrir einstakar hitaveit-
ur og við virkjanaframkvæmdir.
Nú þegar verkefni dragast saman
á þessum sviðum gefst tóm til að
sinna gmndvallarrannsóknunum og
ef til vill tóm til að minnka það bil
sem er milli íslands annarsvegar
og nágrannalandanna hins vegar.
íslendingar em áratugum á eftir
frændþjóðunum í þekkingu á landi
sínu. Það er menningarsögulegur
skandall að ekki skuli vera til al-
mennilegt jarðfræðikort af landinu.
Orkurík og stórmerkileg jarðhita-
svæði eins og t.d. við Laugarvatn
og í Haukadal hafa aldrei verið
kortlögð eða rannsökuð til neinnar
hlítar, það hefur aldrei verið friður
til þess fyrir hitaveituframkvæmd-
um út um alit land og ýmsum
skyndiuppákomum sem leysa þarf
í bráða hasti. Þekking á gmnn-
vatnskerfum landsins er afar
gloppótt vegna þess að það er ekki
fyrr en nú á „fískeldisöld" að hag-
nýt þýðing þessarar þekkingar
hefur orðið mönnum ljós. Nú þegar
færi gefst á að ráða bót á þessum
málum þá er því ekki sinnt heldur
er niðurskurðarsveðjan keyrð af
afli í þá stofnun sem er best í stakk
búin til að sinna þessum hlutum og
ætti að framkvæma þá lögum sam-
kvæmt.
Tapaöur tími er
tapaö fé
Ýmsir virðast halda að rannsókn-
arstarfsemi sé unnt að reka eins
og hvert annað hænsnabú og láta
dægursveiflur á markaðnum ráða
rekstrarstærðinni; Qölga eitt árið,
fækka það næsta og stöðva jafnvel
reksturinn ef viðskiptin gerast dauf.
Þessu er best að svara með orðum
Jónasar Elíassonar sjálfs í síðustu
ársskýrslu Orkustofnunar. Þar er
hann merkilegt nokk að vara við
frekari samdrætti en orðinn var í
árslok 1986. Jónas skrifar: —
„Orkustofnun hefur á að skipa mjög
hæfu starfsliði með langa og verð-
mæta reynslu á sviði orkurann-
sókna, og mikilvægt er að viðhalda
þeim grundvallarrannsóknum sem
heyra undir stofnunina. Með hlið-
sjón af því að rannsóknir á orkuiind-
um landsins eru mjög tímafrekar
og vissir þættir þeirra, svo sem
mælingar vatnsfalla, eru þess eðlis,
að þeim þarf að sinna samfellt allan
ársins hring, er ástæða til að sporna
við fótum og tryggja að unnt verði
að sinna þessum grundvallarþáttum
sem skyldi. Tapaðan tíma er erfitt
að vinna upp á þessu sviði“—. Svo
mörg voru þau orð. Óhætt er að
segja að í þeim er mun meiri skyn-
semi, en í uppsagnarbréfunum sem
Jónas lét skrifa 6 mánuðum síðar.
Það er hættulegur misskilningur,
og e.t.v. landlæg skammsýni, að
rannsóknir sem ekki skila peninga-
legum hagnaði þegar í stað séu
vísindaleikur sem þjóðin hafí ekki
efni á. Hið rétta er að rannsóknir
og þróunarstarfsemi eru grundvöll-
ur nútíma tækniþjóðfélagsins.
Spamaður í þessum efnum hefur
alltaf hefnt sín fyrr eða síðar í als-
kyns vanþróunarvandamálum og
fáfræði. Því fé sem varið er til
vísinda og þróunarstarfsemi má
jafna við arðbæra framtíðarfj árfest-
ingu.
Höfundur erjarðfræðingur &
Orkustofnun og sérfræðingur í
grunn vatnsrannsóknum.
Innilegar þakkir sendi ég vinum og vanda-
mönnum og öllum þeim, sem glöddu mig meÖ
heimsóknum, gjöfum og hlýjum kveöjum á
85 ára afmœli mínu 24. sept. sl.
Guö blessi ykkur öll.
Ása Ó. Finsen,
Akranesi.
Hugheilar kveÖjur og þakkir til œttingja og vina,
sem glöddu mig á 70 ára afmcelisdaginn minn,
I. október, og geröu hann ógleymanlegann.
GuÖ blessi ykkur.
Þórdís Sigurðardóttir,
Grindavík.
Innilegar kveÖjur og þakkir til allra þeirra, sem
glöddu mig meÖ heimsóknum og gjöfum á
60 ára afmœlisdaginn 18. september sí.
LifiÖ heil.
Ari F. Guðmundsson.
Sýning
á myndalistum yfir framleiðsluvörur frá
Suður-Kóreu
Til sýnis verða myndalistar yfir flestar þær
vörur sem framleiddar eru í Suður-Kóreu,
s.s. rafmagnsvörur, rafeindabúnað,
vefnaðarvörur, íþróttarvörur, skófatnað,
gjafavörur, leikföng, leðurvörur,
eldhúsáhöld o.fl. o.fl.
Sýningin verður haldin í fundasal Félags
ísl. stórkaupmanna dagana 13. og 14.
október og verður opin báða dagana frá
kl. 13.00-18.00
Framkvæmdastjóri Korean Trade Center
í Osló, hr. Boom-Sun Lee, verðurtil
viðtals báða dagana.
Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofu
F.Í.S., sími 10650 og hjá ræðismanni
Suður-Kóreu, Árna Gestssyni, sími
681555.
UTGERÐARMENN
— ' u 'h-\
\ f
j cL-T Á
-l-“ -\ 'ö .
Getum nú boðið hand höfum
úreldingarleyfa þessa vönduðu
norsku fiskibáta.
Ganghraði allt að 20 sjómilur.
Lengd: 10 metrar.
Breidd: 3,30 metrar.
Djúprista: 1,45 metrar.
Dekkplúss: 15,6 fm.
Lestarrými: 7 rúmmetrar.
Verð og greiðslukjör hagstæð.
Bátslíkan til sýnis á staðnum.
BENCOhi
Lágmúla 7, sími 91-84077.