Morgunblaðið - 08.10.1987, Blaðsíða 44
- 44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987
Suðumes:
Flugvöllur fyrir fjar
stýrðar flugvélar
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Guðmundur og Gísli athuga vélina áður en hún fer í loftið.
KefUvík.
FLUGVÖLLUR með þrem braut-
ur er rétt norðan við Keflavík
og segja þeir sem nota völlinn
að hann sé einn sá besti sinnar
tegundar. Hér er ekki um þá
gerð flugvallar að ræða sem
manni dettur fyrst í hug, heldur
er þetta flugvöllur sem áhuga-
menn um fjarstýrðar flugvélar
hafa búið til og nota fyrir vélar
sínar.
Gísli Hauksson í Njarðvík er mik-
ill áhugamaður í gerð fjarstýrðra
flugvéla og á hann einnig einar 6
slíkar sem hann hefur smíðað á
þeim 5 árum sem hann hefur stund-
að þetta sport. „Ég nota hvert
tækifæri sem gefst yfir sumartím-
ann til að koma hingað með flug-
vélar mínar og láta þær fljúga,"
sagði Gísli í samtali við Morgun-
blaðið um daginn. Þá notaði Gísli
góðan dag til að fljúga einu af
flugmódelunum.
Gísli sagði að þetta hefði verið
erfítt í byijun, því hann hefði ekki
haft mikla tilsögn og orðið að þreifa
sig áfram af sjálfsdáðum. „Það er
alveg sérstök tilfínning að fljúga
þessum vélum, sérstaklega þegar
maður hefur náð nokkurri stjóm.
Það tók mig þó talsverðan tíma og
nokkur óhöpp að ná tökum á fjar-
stýringunni þannig að ég á að baki
talsverða reynslu."
Guðmundur Sveinsson í Keflavík
fékk flugbakteríuna í sumar og
hefur notið leiðsagnar Gísla, en
þeir sem hafa átt leið til Sandgerð-
is og Garðs á góðviðrisdögum í
sumar hafa veitt þeim félögum at-
hygli þar sem þeir láta farkosti sína
fljúga um loftin blá og þeir geta
látið vélamar gera hinar ótrúleg-
ustu kúnstir.
- BB
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
í viskubrunni genginna kynslóða,
„íslenskum orðtökum", segir:
„Betra er heilbrigði,
en hvörskyns sælgæti. “
Heilbrigði og sælgæti má auðveld-
lega sameina, því útbúa má sælgæti
úr hversdagslegasta hráefni, að
ógleymdu „fjallalambinu“. Meðfylgj-
andi réttur er unninn upp úr ind-
verskum kjötrétti. Hann er
bragðmildur enda fékk hann
★ ★★★ á heimavelli með viður-
kenningu sem „sælgæti". Réttur
þessi ætti að lyfta brúnum bænda.
O
FYSKUR KOSTAGRIPUR
BETUR BÚINN ENN NOKKRU SINNIFYRR
Ef Hœöarstilling á ökumannssœti
0T Hliöarspeglar meö innistillingu
Éf Litaöar rúður
GZf Innri búnaður sami og í GOLF GT
Ef 5 gira handskipting
□ Snúningshraöamœlir
mHEKLA HF
Laugavogt 170-1/2 Sirni 69SS00
Petta er
Lambagúllas
með gijóna pílafí
700 g lambakjöt,
2 laukar,
2 hvítlauksrif,
3 msk. matarolía,
5 tómatar,
1 tsk. karrý,
V4 tsk. kanill,
1/8 tsk. engifer,
1 tsk. salt,
V8 bolli vatn,
1 ten. kjötkraftur,
1 lítil dós tómatkraftur.
1. Laukurinn er skorinn í fremur
grófa teninga. Hvítlauksrif eru
pressuð eða söxuð. Matarolían er
hituð á pönnu og er laukur og
hvitlaukur látinn krauma í feitinni í
nokkrar mínútur. Kryddið; karrý,
kanil, engifer og salt, er sett með
lauknum og steikt með í 1 mínútu.
2. Kjötið er skorið í teninga og
þerrað, það er síðan steikt með
lauknum og kryddinu í u.þ.b. 5
mínútur, eða þar til það hefur bland-
ast vel kryddinu. Tómötunum er
brugðið í sjóðandi vatn í u.þ.b. 1
mín. svo hægt sé að fletta af þeim
hýðinu. Þeir eru síðan skomir í ten-
inga og settir með Iqötinu ásamt
vatni og kjötkrafti.
3. Kjötið er soðið við fremur væg-
an hita í 1 klukkustund. Þá er
tómatkrafturinn settur út í sósuna
og soðið með í 15 mínútur til við-
bótar. Þá á sósan að vera orðin
hæfílega þykk og kjötið vel meyrt.
Salti er bætt við eftir smekk.
Á meðan kjötrétturinn er að sjóða
er pílafíð útbúið.
Grjóna-pílaf
2 msk. matarolía,
1 laukur,
1 hvítlauksrif,
1 rauð paprika,
1 bolli grjón,
2‘/4 bolli vatn,
J/4 tsk. karrý,
salt,
(1 dós baunir).
1. Laukurinn er skorinn smátt,
hvítlauksrif er pressað eða fínsaxað.
Paprikan er skorin í sundur, fræ og
hvítar himnur fjarlægðar, hún er
síðan skorin í litla bita.
2. Matarolían er hituð í potti og
eru laukur, hvítlaukur og paprika
látin krauma í feitinni við vægan
hita í 5 mínútur á meðan græn-
metið er að mýkjast upp. Karrýi er
bætt út í ásamt gtjónunum og steikt
með í u.þ.b. 1 mínútu. Þá er vatnið
sett með i pottinn og lítið eitt af
salti. Lok er sett yfír pottinn og pílaf-
ið soðið í 15 mínútur.
Grænum baunum má bæta út í
pílafíð.
Verð á hráefni
700 gr lambagúllas .... kr. 462,00
31aukar ............ kr. 20,00
5tómatar ........... kr. 70,00
1 rauð paprika ..... kr. 40,00
1 dós tómatkraftur . kr. 9,50
gijón ............. kr. 16,00
kr. 617,50