Morgunblaðið - 08.10.1987, Page 50

Morgunblaðið - 08.10.1987, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987 Minning: Ingibjörg Benedikts- dóttir píanóleikari t Innilegar þakkir til allra sem auösýndu mór og fjölskyldu minni samúö og vinarhug við andlát og útför móöur minnar, JÓNÍNU GUNNSLAUGSDÓTTUR frá lllugastöðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks sjúkrahúss Hvammstanga fyrir góða umönnun. Auðbjörg Guömundsdóttir. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og vináttu viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÓSU SIGURÐARDÓTTUR frá Merkigili. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalarheimilunum Skjald- arvík og Hlíö fyrir góöa umönnun. Guðrún R. Jónsdóttir, Gunnar Kr. Jónsson, Þorgerður J. Jónsdóttir, Hólmfríður Jónsdóttir, Páll Jónsson, Jóakim Guðlaugsson, Geirþrúður Júlfusdóttir, Gestur Sæmundsson, Kristján Jónsson, Sigurveig B. Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, SIGURGEIR JÓNSSON bifvélavirki, Bræðraborgarstfg 13, sem lést 25. september, veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu í dag, fimmtudaginn 8. október, kl. 13.30. Magnús, Baldur og Gunnlaugur Sigurgeirssynir. IFRABÆRU URVALI Módelsmíöi er heillandi tómstundagaman, sem stunduð er af fólki á öllum aldri. Vönduðu plastmódelin frá REVELL fást nú í geysilegu úrvali: Flugvélar, bilar, mótorhjól, bátar, geimför, lestirog hús í öllum mögulegum gerðum og stærðum. Póstsendum um land allt *IDHFi 21901, hennar dó af bamsförum frá henni nýfæddri. Áður höfðu þau hjón misst tvo drengi komunga. Sigtryggur bóndi í Gröf, bróðir Benedilrts, og kona hans Jakobína Friðriksdóttir, tóku hana í fóstur og þar dvaldi hún þar til Benedikt giftist Pálínu Þórarinsdóttur, en þá var hún á sjöunda ári. Þau fluttust til Patreksfjarðar þar sem Ingibjörg sleit bamsskón- um til fermingaraldurs. Þess vegna var Patreksfjörðurinn alltaf ofar- lega í huga hennar og hún hafði sérlegt dálæti á að minnast bemskustundanna þar. Um ferm- ingaraldur hennar fluttist flölskyld- an til Hafnarfjarðar þar sem Benedikt gerðist verslunarmaður. Þau reistu sér hús á Vesturbraut 6, sem enn stendur í góðu ástandi. Að eigin sögn vom æskuár Ingi- bjargar áhyggjulaus unaðstími. Stjúpmóðir hennar og hún ólu sam- an gagnkvæma ástúð og sjálfsagt dýpri fyrir þá sök, að stjúpmóður hennar varð ekki bams auðið. Ingi- björg hlaut bestu menntun þeirra tíma, varð gagnfræðingur frá Flensborg með hárri einkunn og lagði þá þegar stund á alvarlegt tónlistamám í píanóleik, lék á hljóð- færi við bíósýningar og aðrar skemmtanir og söng í kómm, því henni var gefin undurþýð og falleg sópranrödd. Fór einnig svo, að hún um tvítugsaldur lagði leið sína til Kaupmannahafnar og nam þar bæði píanóleik og söng jöfnum höndum. Mun hún hafa helgað því námi nokkur misseri. Þegar heim kom sneri hún sér brátt að kennslu í þessum listgreinum. Um tíma var hún tónlistarkennari við Flensborg, en eins og gefur að skilja átti slíkt atorkustarf ekki við svo viðkvæma listalund, sem hún var gædd. Því valdi hún fljótt einstaklingsbundið kennslustarf, þegar það gafst. Komið hefur vfða fram, að listafólk í tónlist hefur minnst hennar sem sérstaklega nákvæms og samvisku- sams kennara, sem lét sér annt um skjólstæðinga sína í hvívetna. Foreldrar hennar urðu ekki lang- líf og frá rúmlega þrítugsaldri bjó hún ein á efrí hæð á Vesturbraut 6. Hún giftist ekki en lagði þeim mun meiri rækt við að viðhalda frændsemistengslum og vináttu- böndum. Hún komst vel af með því ýmist að stefna nemendum heim til sín eða að fara á vit þeirra og naut þá samskipta við frændfólk og vini um leið. Þegar hún aldurhnigin treysti sér ekki lengur til þeirra starfa, leitaði hún til Hrafnistu í Hafnarfirði og fékk þar vist, sem henni var mjög að skapi. Síðustu dægrin var hún flutt helsjúk á sjúkrahús í Hafnarfirði og þar sofnaði hún svefninum langa sátt við guð og menn. Að allra dómi kvaddi göfug sál heiminn. Andrés Davíðsson Ingibjörg lést í St. Jósefsspítala eftir stutta legu en í Hrafnistu í Hafnarfirði hafði hún dvalist síðustu 7 ár ævi sinnar. Hún fæddist í Gröf á Höfðaströnd í Skagafirði og voru foreldrar henn- ar þau Benedikt H. Sigmundsson og Ingibjörg Bjömsdóttir, sem lést við fæðingu hennar. Á þeim tíma var algengara að böm yrðu föður- laus fremur en móðurlaus vegna tfðra skipsskaða, en frændfólk hennar ól hana upp fyrstu 6 árin. Þá hafði faðir hennar flust til Hafn- arfjarðar og gift sig aftur. Það var fróðlegt og skemmtilegt að heyra frænku mína segja frá þessari ferð. Fyrst þurfti hún að fara með smá bátkænu til Sauðárkróks og bíða þar í viku eftir strandferðaskipinu Ceres. Ferðin suður tók 2 vikur og frá Reykjavík þurfti hún að ganga Fædd 24. mars 1900 Dáin 2. október 1987 Ég hygg að ég mæli fyrir munn allra sem þekktu Ingibjörgu Bene- diktsdóttur, að brotthvarf hennar megi líkja við, þegar fögur kvöldsól hnígur niður fyrir sjávarflötinn, en skilar um leið bjarma uppí hvolfin, og lýsir upp margvíslegar myndir. Þannig er minningin um hana í huga vina hennar, bæði mild og litrík. í fjóra vetur kom hún stundvís- lega tvisvar í viku á heimili okkar til að kenna dóttur okkar undir- stöðuatriði í píanóleik og aldrei brást, að hver heimsókn var sem hátíðarstund. Það fylgdi henni blær siðfágunar, snyrtimennsku og æðri menntunarheims, sem skilur kjam- ann frá hisminu. Það kom fram í, að hún lagði gott til allra mála, gætti hófs í tali þegar henni þótti miður farið, en skyldi og þótti vel- gengni annarra gleðiefni. Hún var ættrækin og trygglynd með af- brigðum, en hvorttveggja átti rætur að rekja í uppeldi og skaphöfn. Ingibjörg fæddist í Gröf á Höfða- strönd þar sem foreldrar hennar, Ingibjörg Bjömsdóttir og Benedikt Sigmundsson, vom til heimilis, en svo hörmulega tókst til að móðir Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JENSEY MAGÐALENA KJARTANSDÓTTIR frá Hesteyri, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 10. október kl. 14.00. Jarösett verður í Kirkjuvogskirkjugaröi í Höfnum. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Kirkjuvogskirkju eða aðrar líknarstofnanir. Jón Borgarsson, Guðlaug Magnúsdóttir, Jósef Borgarsson, Lúlla Kristfn Nikulásdóttir, Svavar Borgarsson, Þórey Ragnarsdóttir, Jóhannes Borgarsson, Rósa Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, dóttir og systir, HALLDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR BRIEM, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 10. október kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag fslands eða aðrar líknarstofnanir. Börn, foreldrar og systur. t Móðir mín og tengdamóÁir, INDIANA EYJÓLFSDÓTTIR, Suðureyri, Súgandafirði, lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði 7. október. Kristín Gissuradóttir, Halldór Bernódusson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.