Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
BLAÐ
Hvanndalabjarg.
Háeni
oghrikajeg
Hvanrídalabjörg
Hvanndalaskrlður.
'
Þrætuskcr
ÞEIR eru margir bæöi afskekktir og eyðiiegir af kimarnir sem
íslendingar hafa tekið sór bólfestu á í gegnum aldirnar.
Nutímamönnum reynist oft erfitt að skilja hvernig venjulegt fólk
fyrr á öldum gat sest að á eyðistöðum sem eru svo hrikalega
afglrtir hömrum og sjó að þangað virðist engum fært nema
fugllnum fljúgandi. Skýringin er að hluta sú að þá hafði fólk annað
gildismat en nú. í harðri baráttu við að sjá sór og sínum farborða
voru hlunnindi jarða og jarðgæði sett ofar lífsgæðum. Hvanndallr,
nyrst í Eyjafjarðarsýslu á milli Hóðinsfjarðar og Ólafsfjarðar, eru
með afskekktustu stöðum á íslandi. Að austan eru þeir girtir af
með hinu hrlkalega Hvanndalabjargi og að vestan með
snarbröttum Hvanndalaskriðum. Að sunnan eru þeir umluktur
háum og bröttum fjöllum og að norðan eru brattir bakkar mót
opnu hafi. Þrátt fyrir þessa miklu einangrun bjó fólk á Hvanndölum,
síðast í lok 19. aldar.
Hvanndalir eru austasta byggð Hvann-
eyrarhrepps og liggja noröaustan í fjalla-
klasanum sem skilur Ólafsfjörð og
Héðinsfjörð. Hvanndalir eru þrjú dalverpi
sem fremur mættu kallast skálir en dalir.
Nyrsti dalurinn heitir Hvanndalur og er
stærstur. Hvanndalur liggur til suðvest-
urs inn í áðurnefndan fjallgarð. Út frá
honum sunnanverðum er vik sem kallast
Selskál. Nafnið bendir til að þar hafi ver-
ið haft í seli til forna enda eru í skálinni
rústir sem renna stoðum undir þann grun.
Innan við Hvanndal og Selskál eru
Hádegisfjall og Miðdegishyrna, hrikaleg-
ar fjallsgnípur. Eins og nöfnin benda til
eru þessi fjöll eyktamörk á Hvanndölum.
Þaj- fyrir innan_er þriðja dalverpið sem
heitir Sýrdalur. Sýrdalur er hömrum lukt-
ur á þrjá vegu en ókleyft bjarg að
framanverðu. Einstig er í dalinn að norð-
anverðu úr Selskál. Einstigi þessu er
auðveldlega hægt að loka með grjóti og
fé sem rekið var í Sýrdal var því vel
geymt. Dalurinn er grösugur í botninum
og þar er afar gott beitiland.
Innan við Sýrdal tekur Hvanndalabjarg
við. Hvanndalabjarg er hæsta standberg
frá sjó á landinu, um 630 metra hár
hamraveggur þar sem það er hæst. Fjal-
lið í heild er þó nokkru hærra eða 755
metrar.
Norðan við Hvanndali eru háir sjávar-
hamrar, ofan við þá flugbrattar skriður
og þar fyrir ofan ófærir klettar. Þetta eru
Hvanndalaskriður.
Sjá einnlg síður 10B-11B