Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 rokksíðan Umsjón: Andrés Magnusson Rokkuð samviska - kvöldstund með hljómsveitinni U2 ( lokin sungu 16 þúsund manns einum rómi: „How long to slng this song? — Hve lengi þarf að syngja þetta lag? Það var söngur án undir- leiks og stemmningin í œtt við vakningarsamkomu — fólkið kyrjaði þessa spurningu á biðjandi hátt eins og það vœri hrœtt við að brjóta þá samkennd sem söngurinn skapaði. En allt tekur enda og fljótlega fór hver um sig með spurninguna svar- lausa út í svalt náttmyrkrið. U2 hafði lokið sínu hlutverki í bili. Spurninguna er að finna í tveimur af þekktari lögum hljómsveitarinnar, „Sunday Bloody Sunday" og „40“, og þeir félagar hafa heitið því að spyrja svo lengi sem enn renna upp bióðugir sunnudagar. „Við erum að vona að við getum bráðum hætt að syngja þessi lög,“ sagði Bono söngv- ari sveitarinnar og textasmiður, en ekki er fyrirsjáanlegt að honum verði að þeirri ósk sinni. Á meðan heldur U2 áfram krossferð sinni um heiminn, krossferð sem alls staðar hefur fyllt hús, meira að segja hér inni í hinum friðsælu miðvesturríkjum Banda- ríkjanna. Strákunum fjórum úr Dyflinni hefur gengið betur að ná eyrum umheims- ins en Joyce, Shaw, Yeats og Swift samanlagt. Þeir eiga það sammerkt með þessum þjóðskáldum íra að hafa einhvern boðskap að flytja, að vera stöðugt leitandi. Enn hafa þeir þó ekki fundið það sem þeir leita að, ef marka má texta eins frægasta lagsins þeirra. En þeir hafa fundiö frægðina svo um munar og eru sér vel meövit- andi um það. Samt er engu líkara en þeir hálfpartinn kinoki sér viö allri dýrkuninni þar sem þeir ganga dökk- klæddir fram á sviðið og hefja tónleik- ana. Það er rétt eins og þeir séu nýkomnir inn af götunni í Dyflinni. En það brennur í þeim einhver smitandi hugsjónaeldur (sem sumum finnst þeir reyndar selja heldur dýru verði). Hann birtist í háttbundinni, nánast sefjandi músíkinni sem í kyngimögnun sinni minnir á frum- stæða helgisiði. Hann birtist líka í áleitnum textum Bonos, textum sem eru fullir af tilfinningahlöðnum tákn- um og æpandi spurningum. Og hann Nr. Flytjandi—titill venjul. verð afslverð 1. La bamba - Úr mynd 799 719 2. Sting - Nothing like the Sun 1.099 879 3. MichaelJackson-BAD 799 719 4. Yes-BigGenerator 799 719 5. HörðurTorfason - Hugflæði 899 809 6. BeeGees-ESP 799 719 7. Bruce Springsteen - Tunnel of love 799 719 8. UoydCole-Mainstream 799 719 9. PetShop Boys—Actually 799 719 10. Mike Oldfield — Islands 799 719 11. Terence Trent D’Arby - Introdusing 799 719 12. The Smiths - Strangeways, here we come 799 719 13. Cock Robin—After here through midland 799 719 14. Grafik-Leyndarmál 899 809 15. BryanFerry-BeteNoire 799 719 16. Hooters-Onewayhome 799 719 17. Rickshaw-Rickshaw 899 809 18. Kiss - Crazy, crazy nights 799 719 19. George Harrison - Cloud nine 799 719 Þú gerir ekki betri kaup Tilboðvikunnar Sting — Nothing like the Sun Tvöföld Venjul. verð 1.099,- Tilboðáverð 879,- Póstkröfuþjónusta. Rauðarárstíg 16 s. 11620 og 28316 Símsvari opinn allan sólarhringinn. Sími 28316. Góðþjónusta. ☆ STEINAR HF ☆ Austurstræti, Glæsibæ, Rauðarárstíg, Strandgötu og Hagkaup, Kringl- unni. Pó8tkröfusími 11620 og 28316 (símsvari). birtist í ákafri viðleitni hljómsveitar- innar til aö ná til áheyrenda, til að fá þá til að hugsa með sér, til að finna til, til að taka þátt. Takmarkiö virðist að hver áheyrandi fyrir sig upplifi hugljómanir í ætt við þær sem sögu- persónur Joyce urðu fyrir; hann verði ekki samur á eftir. Og það viröist takast Alveg frá fyrstu mínútu standa allir sem staðið geta, klappa, öskra, syngja og fram- leiða engu minni hávaða en hljóm- sveitin þegar því er aö skipta. Rafmögnuðustu augnablik tónleik- anna voru einmitt þegar hljpmsveit- inni tókst að beina athygiinni frá sjálfri sér. Hvernig var það hægt? Jú, Bono sagði til dæmis söguna af hljó- munum þremur. Hann tók sér kassagítar í hönd og gerði grín að spilakunnáttu sinni. Hann kynnti aðeins þrjú grip, C, A og G. En með þessum þremur hljóm- um væri hægt að breyta heiminum. Síðan skoraöi hann á einhvern að koma og hjálpa sér að breyta heimin- um meö því að spila þessa þrjá hljóma á gítarinn. Það liðu nokkur augnablik og það var eitthvað að gerast í kösinni. Svo bar fjöldinn ung- an pilt á örmum sér upp á sviðiö og þar spilaði hann með U2 í nokkrar Plötudómar Bono syngur lagið „Where the Streets Have No Name“; texti hlaðinn myrkum táknum. mínútur. Þetta vakti feikilega lukku. Einn af okkur fókk að spila á gítarinn hans Bono! U2 tókst einnig að virkja fjöldann með því að láta hann syngja tilfinn- ingahlaðin stef. Þannig fengu þeir fólktil að syngja „In the name of love“ — í nafni ástarinnar — fyrir John Lenn- on, Steven Biko og Martin Luther King. Síöan fluttu þeir Bítlalagið „Help“ tileinkað Winne Mandela, konu hins fangelsaða Nelsons Mand- ela í Suður-Afríku. Hámarki náðu tónleikarnir þó ekki fyrr en hljómsveitin var klöppuð upp í fyrsta sinn. Þá flutti hún lagið „Bul- let the Blue Sky“ í miklu magnaðri útsetningu en er á plötunni („The Joshua Tree“). Með aöstoð tilkomu- mikillar Ijósasýningar, Ijósgeisla sem sveifluðust nöturlega um allan sal, tókst strákunum að búa til ótrúlega hráslagalega stríðsstemmningu. Það var engu líkara en maður væri mætt- ur í ógnvekjandi skæruhernað Mið-Ameríku. En þótt oft væri svartsýnistónn í lögum og textum drengjanna frá Dyfl- inni náðu þeir að koma þeirri kennd áleiðis að leiðina að Joshua trénu, sem varðar veginn til fyrirheitna landsins, finnum við helst ef við sam- einumst um að búa til betri heim. Þeir bentu á eina leið í því sam- bandi: Að ganga í Amnesty Intern- ational. Þannig sýndu þeir að rokkið getur verið samviska nútímans. Texti og mynd: Rúnar Helgi Vignis- son. Fyrir nokkru birtist grein á þessum stað um U2, sem virtist koma við kaunin á aðdáendum sveitarinnar; þeir tóku það til sin sem áttu. Þessi grein birtist til mótvaegis. •rrirmii - . ,i ,..i. 4 « § » » f Lee Scratch Perry Lee Scratch Perry starfaði með Bob Marley og The Wailers í árdaga, áður en Marley varð heimsfrægur. Perry sá upp upptökustjórn og úsetningar á bestu plötum Wailers, African Herbsman og Rasta Revolution. Hann hefur lagt hönd á margt síðan, m.a. gefið út plötur undir eigin nafni. Nýjasta plata Perry, Time Boom X De Devil Dead, sem hann vann með Adrian Sherwood, er ekki langt frá þeim plötum sem hann hefur áður gert. Á plötunni bregöur Perry fyrir sig „dub“ reggae að vanda og útkoman er fyrirtak; úthugsuð óreiða, þar sem áheyrandi eltir samhengið fram og aftur án þess að þreyt- ast. Þetta er plata sem vekur kannski fleiri spurningar en hún svarar, en það er í góðu lagi. Árni Matthfasson nýja plötu eftir nokkuð hlé, plöt- una Clud Nine. Á plötunni hefur hann fengið til liðs við sig Jeff Lynne úr Electric Light Orch- estra og þá Ringo Starr á trommur, Eric Clapton á gítar og Elton John og Gary Wright á píanó. Það gerir það að verkum að hin leiðigjarna tilgerðarlega dulspeki sem drekkt hefur allri hugsun á fyrri plötum Harrison er ekki eins áberandi og áður, enda gefa meðspilararnir sitt. Tónlistin verður aðgengilegri (les: poppaðri) en ekki að sama skapi innihaldsríkari. Á Cloud Nine er að finna létt popplög sem bera þó helstu einkenni George Harrison og eitt laganna, Got My Mind Set on You, hefur farið upp vinsældarlista vestan hafs og austan. Önnur lög eru ámóta og ekki er ótrúlegt að fleiri lög af plötunni eigi eftir að mjakast upp lista. Poppunnendur geta því glaðst en þeir sem töldu mik- ið í hann spunnið sitja eftir með sárt ennið. Ámi Matthíasson finna á plötunni; t.d. í lögunum Stuffin’ Marthas Muffin, sem er beitt ádeila á MTV-tónlistarsjón- varpið, I Hate Banks og l’m Living With a Three-Foot Anti Christ. Tónlistin er síðan sam- bland af sveitablús, rockabilly, pönki, gospeltónlist og rokki; blanda sem hæfir textunum eink- ar vel. George Harrison George Harrison var kannski sá Bítlanna sem hvað nestar vonir tónlistarunnenda voru bundnar við eftir þriggja plötu pakka hans All Things Must Pass. Nú hefur Harrison sent frá sér I M «,• I Mojo Nixon Mojo Nixon og Skid Roper eru tveir villimenn sem starfa saman í Bandaríkjunum að plötugerð og tónleikahaldi. Það er Mojo sem er betri helmingurinn og hann semur nær allt fyrir utan stöku lög eftir aðra sem þeir félagar gjörbreyta í útsetningum. Gott dæmi um það er að finna á plötunni Frenzy, sem kom frá þeim félögum fyrir nokkru. Þar taka þeir helsta lag LSD-áranna, I A Gadda Da Vida, sem Iron Butterfly teygði yfir heila plötuhlið, og gera úr því einnar mínútu og tuttugu sek- úndna lagstúf sem segir meira um hippatímbilið en allar plötur Grateful Dead. Fleira slíkt er að Bruce Springsteen Þegar menn eru orðnir eins miklar stjörnur og Bruce Springsteen er, falla flestir í þá gryfju að halda sig við formúluna og gera plötur sem eru í engu frábruðnar síðustu plötu, nema með nýjum vinsældalögum. Springsteen fellur ekki í þá gryfju, þó honum hefði verið í lófa lagið að gefa út Born in the USA II, III o.s.frv. Nýjasta plata hans, Tunnel of Love, er að vísu dæmigerð Springsteen plata, en hún er samt öðruvísi en flest það sem hann hefur áður gert, nema kannski Nebraska. Bestu lög á plötunni, Ain’t Got You, Spare Parts, Tunnel of Love, Two Fac- es, Brilliant Disguise og When You’re Alone, sýna vel aö það er meira í Springsteen spunnið en alla þá sem lifa á að stæla hann. Það er til marks um skap- andi listamenn að þora að taka áhættu, að þora að breyta út af venju. Textar plötunnar eru svo sér kapítuli út af fyrir sig. Springsteen er ennþá að syngja um sama fólkið, fólk sem hefur orðiö undir í kapphlaupinu, en á þessari plötu er meiri von að finna en áður og gott dæmi um það má finna í laginu Spare Parts. Að mínu mati er Tunnel of Love ein af betri plötum Springsteen og til marks um þaö að hann er enginn meðaljón. Árni Matthfasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.