Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Heildverslanir
Félagasamtök
eru að leita að hagfræðinema á síðasta
námsári eða hagfræðingi í hlutastarf.
Verkefnin eru fjölþætt, einkum á sviði kjara-
samninga.
Starfið gæti orðið fullt starf á næsta ári.
Umsóknum ber að skila á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 20. nóv. merktar: „F - 4210“.
Bókari
Starfið felur í sér merkingu fylgiskjala, inn-
slátt, afstemmingar, úrvinnslu upplýsinga
fyrir fjármálastjóra ásamt sérverkefnum á
bókhaldssviði. Bókhaldið er tölvuvætt.
Bókarinn þarf að vera menntaður á verslun-
arsviði og hafa haldgóða reynslu af bók-
haldsstörfum. Verður að geta unnið
sjálfstætt og skipulega. Tölvuþekking nauð-
synleg. Æskilegur aldur 25-35 ára.
Móttaka
Starfið felur í sér móttöku, símavörslu, að-
stoð við vélritun, ritvinnslu og skráningu.
Starfsmaðurinn þarf að hafa aðlaðandi fram-
komu, vera þjónustusinnaður og helst hafa
einhverja reynslu af almennum skrifstofu-
störfum. Æskilegur aldur 30-40 ára.
í boði eru sjálfstæð störf hjá stórum og
traustum fyrirtækjum.
Nánari upplýsingar veitir Holger Torp.
Skriflegum umsóknum skal skilað á skrif-
stofu okkar fyrir 14. nóvember.
Starfsmannastjórnun ■■■i^A
Ráöningaþjónusta III
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Srmar 681888 og 681837
Sjúkraliðar
- dagvinna
Sjúkraliði
óskast á sótthreinsunardeild Landspítalans.
Upplýsingar hjá hjúkrunarframkvæmda-
stjóra, sími 29000-508 og hjúkrunarforstjóra
sími 29000-487.
Aðstoðarlæknir
óskast til starfa á Rannsóknastofu Háskólans
í meinafræði til eins árs frá og með 1. des-
ember 1987. Æskilegt er að umsækjendur
hafi nokkra reynslu í líffærameinafræði. Ætl-
ast er til að aðstoðarlæknirinn taki þátt í
vísindalegri rannsóknavinnu í líffærameina-
fræði auk daglegra þjónustustarfa við
stofnunina.
Umsóknir er greini menntun og starfsreynslu
sendist starfsmannastjóra Ríkisspítala fyrir
20. nóvember nk.
Upplýsingar veita yfirlæknar í síma 29000.
Fóstrur
Nýtt og glæsilegt skóladagheimili óskar eftir
góðri og áhugasamri fóstru, nú þegar eða
eftir áramót.
Komdu, skoðaðu og spjallaðu við okkur á
skóladagheimilinu Mánahlíð.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Guðrún
Bjarnadóttir. Vinnusími 29358. Heimasími
14149.
Fóstrur - starfsmenn
Erum að opna tvær nýjar deildir og vantar
því fóstrur og starfsmenn til starfa strax á
Sólhlíð við Engihlíð.
Upplýsingar gefur Elísabet Auðunsdóttir í
síma 29000-591 eða heimasíma 612125.
RÍKISSPÍTAIAR
Ríkisspitalar eru stór og fjölbreyttur vinnustaöur og þar starfa um
3.000 manns; viö rannsóknir, lækningar, hjúkrun, endurhæfingu
og aðstoð við sjúklinga og aöstandendur þeirra. Starfsemi Ríkis-
spítala fer fram á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu; á
Landspitala, Kleppsspitala, Vífilsstöðum, Kópavogshæli, auk
hjúkrunarheimila víðs vegar í Reykjavik. Kristnesspítali og
Gunnarsholt eru einnig rekin af Ríkisspítölum.
Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur
leitar að hæfu fólki til starfa sem fyrst.
Starfsreynsla á ferðaskrifstofu og/eða við
ferðamál nauðsynleg.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með
sem algjört trúnaðarmál.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„Ferðaskrifstofa Reykjavíkur - 4214“ fyrir
13. nóvember.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Húsgagnasmiður
- offsetprentari
Óskum eftir húsgagnasmið eða góðum verk-
manni á smíðaverkstæði.
Mjög góð laun í boði fyrir réttan mann.
Óskum einnig eftir offsetprentara.
Góð laun í boði.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
okkar.
Sjáumst.
Miðlunin
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Armúla 19 • 108 Reykjavík • 45 689877
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóri óskast á togarann Hafnarey SU
110 sem gerður er út frá Breiðdalsvík.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
um áramót.
Húsnæði verður útvegað á staðnum.
Nánari upplýsingar veittar í Ráðgarði.
Umsóknum um starfið skal skila til Ráðgarðs.
RAÐGARÐUR
RÁÐNINGAMIÐLUN
NÓATÚNI I7,105REYKJAVÍK, SÍMI (91)686688
Afgreiðsla
- skammtímastarf
Fyrirtækið er sérverslun með þroskaleik-
föng.
Starfið felst í afgreiðslu, eftirliti með lager
og innkaupum, ferðum í toll og banka ásamt
öðru tilfallandi.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
menntun frá Fósturskóla íslands eða hafi
reynslu af uppeldisstörfum.
Vinnutími er frá kl. 13.00-18.00.
Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvember
nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
A'leysmga- og rádnmgaþjonusta /■
Lidsauki hí
Skólai'ordustig la - 101 Reykjavik - Simi 621355
Sölumenn vantar
til að selja ritsöfn og bókaflokka, bæði í hluta-
starf og fullt starf.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi bíl til um-
ráða. Góðir tekjumöguleikar.
Upplýsingar í símum 12573 - 656095 -
689133.
MJÓUCURSAMSALAN
Bitmhálsi 1, pósthólf 635, 121 Reykjavik.
Bifreiðaverkstæði
Mjólkursamsalan óskar að ráða aðstoðar-
verkstjóra á verkstæði. Bifvélavirkjamenntun
og starfsreynsla nauðsynleg. Einnig bifvéla-
virkja til almennra starfa á verkstæði. í boði
eru framtíðarstörf hjá traustu fyrirtæki. Góð
vinnuaðstaða. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf fljótlega.
Skriflegar umsóknir þar sem fram komi ald-
ur, menntun og fyrri störf sendist starfs-
mannahaldi MS fyrir 15. nóvember nk.
Gott tækifæri!
Starfinu má líkja við stöðu ráðskonu.
Við leitum að starfskrafti er hefur til að bera
dugnað, hraustleika, vandvirkni og stundvísi.
Á móti bjóðum við spennandi framtíðarstarf
og mjög góðar tekjur fyrir réttan aðila.
Upplýsingar um fyrri störf og aldur óskast
lagðar inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir 12.
september merktar: „S - 2802“.
Deildarstjóri
Fyrirtæki er rótgróið og traust bifreiðaum-
boð í Reykjavík.
Starfssvið deildarstjóra er að annast rekstur
varahlutaverslunar, hafa umsjón með inn-
kaupum og starfsmannahaldi auk annars
tilheyrandi.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi hald-
góða þekkingu og reynslu af sambærilegum
störfum. Áhersla er lögð á skipulags- og
stjórnunarhæfileika. Skilyrði er góð tungu-
málakunnátta auk verslunarmenntunar.
Umsóknarfrestur er til og með 13. nóvem-
ber nk. Ráðning verður fljótlega.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skóla^ordustig 1a - 101 fíeykjavik - Simi 621355
Bókarar
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur á
skrá umsækjendur með haldgóða bókhalds-
þekkingu og reynslu af tölvunotkun hjá:
• Öflugu innflutningsfyrirtæki miðsvæðis í
Reykjavík.
• Endurskoðunarskrifstofum í Reykjavík.
• Smærra innflutningsfyrirtæki uppi á
Höfða.
í öllum ofangreindum tilvikum er um heils-
dagsstörf að ræða. Æskilegt er að viðkom-
andi geti hafið störf fljótlega.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skólavördustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355
4