Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
B 41
ELDHÚ SKRÓKURINN
Skyndi-smáréttir
Það er stundum á kvöldin, eftir í fyllinguna eru notuð 2-3 harð-
sjónvarpsgláp, göngnuferð, eða soðin egg, niðursöxuð, um 100
þegar gesti ber að garði, að gr. fínskorin skinka, sama magn
gott er að hafa einhveija smá- af rifnum osti, og þetta hrært út
rétti að grípa til, sem ekki tekur
of mikinn tíma að laga. Hér
koma nokkrar uppskriftir sem
ég rakst á fyrir mörgum árum,
og henta vel við svona tækifæri.
(mynd nr. 1)
Fyllt heilhveiti-
rúnnstykki
í þennan rétt þarf smá bita af
reyktum laxi (mætti notast við
reykta síld), smjör, egg (eitt á
mann), graslauk eða dill, sýrðan
ijóma og majones, og gjaman
steinselju.
Skafíð er innan úr rúnnstykkj-
unum, þau smurð og svo sett sem
snöggvast í heitan ofn til að verða
stökk. í hvert brauð fer eitt harð-
soðið egg, niðursaxað, graslaukur
eða dill eftir smekk, lítil sneið af
reyktum laxi, skorin í bita, og
þetta allt hrært út í majones og
sýrðum ijóma til helminga. Þegar
brauðin hafa verið fyllt með þess-
ari blöndu má gjaman skreyta þau
með steinselju eða graslauk.
Sardínubrauð
Þessi uppskrift er ætluð fyrir
flóra, en sé einhver svangur er
vissara að stækka skammtinn.
Ef ekki, þá er uppskriftin svona:
4 brauðsneiðar, 4 vænar sneið-
ar af osti, 1 dós sardínur, 2
miðlungs laukar, 1 lítil dós tómat-
mauk, smjör. Brauðið er ristað
og smurt. Fínsaxið laukinn, tætið
sardínumar í smá bita og hrærið
þessu saman við tómatmaukið.
Þessari blöndu er svo skipt niður
á brauðsneiðamar, ostsneið lögð
yfír hveija, og brauðið sett í heit-
an ofn, um 250 gráður, þar til
osturinn er bráðinn og orðinn fal-
lega ljósbrúnn.
Fylltar pönnukökur
í pönnukökudeigið fara 125 gr.
hveiti, 2>/2 dl. mjólk, eitt stórt
egg, örlítið salt. Þar sem engin
feiti er í deiginu þarf að smuija
pönnuna undir hveija köku.
í nægilega miklum ijóma til að
það haldist saman. Full skeið af
fyllingu er sett á hveija köku, og
kökunum rúllað saman. Þær svo
settar á smurt eldfast fat og rifn-
um osti dreift yfír. Kökumar loks
settar í um 250 gráðu heitan ofn
og bakaðar þar til osturinn er
bráðinn og fallega ljósbrúnn.
Sveppasamlokur
í skammt fyrir §óra þarf 8
þunnar brauðsneiðar, sem steiktar
eru í smjöri á pönnu og síðan
smurðar þunnt með sinnepi.
Brauðsneiðamar svo lagðar á eld-
fast fat, tvær og tvær saman með
smátt saxaðri skinku á milli. Ofan
á samlokumar eru settir sveppir
sem steiktir hafa verið í smjöri,
og sósu svo hellt yfír. Sósan er
löguð úr 1 matsk. smjöri og IV2
matsk. hveiti sem þynnt er út
með um 3 dl. af mjólk. Sósan lát-
in sjóða í nokkrar mínútur. Þá em
2 matsk. af ijóma og einni eggja-
rauðu hrært út í sósuna og loks
um 100 gr. af rifnum osti. Sósan
svo krydduð með salti og sítrónu-
pipar eftir smekk.
Þegar sósunni hefur verið hellt
yfír er fatið með samlokunum
sett í 250 gráðu heitan ofn í 8-10
mínútur.
Púrrubrauð
Skerið um Vs af meðalstórum
púirustöngli smátt niður og steik-
ið ( um 2 matsk. af smjöri svo
púrran mýkist. Þá er púrran
hrærð saman við um 200 gr. af
fíntsaxaðri skinku, nokkra nið-
urbrytjaða sveppi og 3 matsk. af
tómatmauki. Gott er að þynna
þessa blöndu með hvítvíni, en
einnig má nota soðið af sveppun-
um. Svo er þetta látið þykkna,
blöndunni skipt á 4 ristaðar
brauðsneiðar, og væn ostsneið eða
rifínn ostur sett yfír. Brauðið loks
bakað í 250 gr. heitum ofni þar
til osturinn er bráðinn og fallega
ljósbrúnn.
„Orðið er laust“
Ráð og hugmyndir fyrir ræðufólk
Hörpuútgáfan á Akranesi
hefur gefið út bókina Orðið
er laust — Ráð og hugmyndir
fyrir ræðufólk. Höfundurinn,
Sverre Nyflöt, er þekktur í
heimalandi sínu, Noregi, fyrir
hnyttnar ræður.
„Þessi bók hefur að geyma hag-
nýt ráð og leiðbeiningar fyrir þá
sem þurfa að tjá sig á fundum og
í samkvæmum með snjöllum tæki-
færisræðum. Auk ráða og leiðbein-
inga eru í bókinni smásögur,
skrýtlur og málshættir, sem raðað
er í 30 efnisflokka til þess að auð-
velda notkun hennar," segir m.a. í
fréttatilkynningu frá útgefanda.
„Fjöldi fólks hefur sífelldar
áhyggjur af því að þurfa að halda
ræðu við eitthvert tækifæri, hvort
sem það er í fjölskylduboði, af-
mælisveislu, á vinnustaðafundi eða
í skólanum.
Ef til vill fínnst þér að þú sért
enn enginn ræðusnillingur, en hver
veit nema þú getir orðið það. Hjá
flestum er það spuming um þjálf-
un. Ef þú þarft að halda ræðu þá
er þetta bókin fyrir þig. Segðu fátt
og segðu það vel. Æfíngin skapar
meistarann."
Bókin „Orðið er laust" er 80 bls.
með myndum. Gissur Ó. Erlingsson
þýddi bókina. Prentsmiðjan Oddi
hf. annaðist prentun og bókband.
Orðsending til
Verslunar-
MANNA
í MIÐBÆNUM
Föstudaginn 13. nóvember kl.
14:00 opnar Gula línan upplýs-
ingamiðstöð í Turninum á Lækjar-
torgi. Þangað mun almenningur
leita eftir upplýsingum um vörur
og þjónustu miðbæjarins. Ferða-
fólk (innlent og erlent), fólk af
landsbyggðinni og viö hin sem
erum ekki alveg viss, fáum í Turn-
inum greinagóðar upplýsingar um
vörur og þjónustu þátttakenda í
Gulu línunni. Turninn á Lækjar-
torgi verður þannig samnefhari
fyrir þá fjölþættu þjónustu sem
hægt er að fá í miðbænum.
Pú verður að vera með því það er
sjálfsögð þjónusta við neytendur!
Pú verður að vera með til að
missa ekki af viðskiþtum!
Pú verður að vera með til að taka
þátt í að gera miðbæinn að heil-
steyþtara og eftirsóknarverðara
verslunarsvœði!
Pú verður með af því að skráning
kostarfrá 26 krónum á dag.
VERÐUR ÞÚ MEÐ LÍKA?
62 33 88
I Guli Turninn ;i Ui-kjartorgi