Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
B 39
Eitt af verkum Lýðs; Gói.
Málverkasýning
á Kjarvalsstöðum
LÝÐUR Sigurðsson hefur opnað
sýningu á Kjarvalsstöðum og
sýnir þar 19 verk.
Lýður er fæddur 27. maí 1952 á
bænum Glerá í Kræklingahlíð við
Akureyri. Lýður lauk gagnfræða-
prófí frá Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar árið 1970. Árið 1971 hóf
hann nám í húsgagnasmíði og út-
skrifaðist frá Iðnskólanum á
Akureyri haustið 1974. Um 1970
hóf Lýður að sækja myndlistarnám-
skeið sem haldin voru á Akureyri
á kvöldin. Árið 1982 flutti Lýður
til Reykjavíkur og hóf þá að sækja
kvöldnámskeið við Myndlistarskól-
Lýður Sigurðsson.
ann í Reykjavík í tvö ár undir
handleiðslu Hrings Jóhannessonar.
Lýður hélt einkasýningu í Gallerí
Háhól á Akureyri 1977 og í Iðnskól-
anum á Akureyri 1982. Einnig
hefur hann tekið þátt í samsýning-
um á Norðurlandi og UM sýning-
unni að Kjarvalsstöðum 1983.
Sýningin á Kjarvalsstöðum er
opin alla daga kl. 14.00-22.00 og
lýkur sunnudaginn 22. nóvember.
Kanaríeyja-
kvöld á Operu
Haldið var upp á Kanaríeyjadaga
á veitingahúsinu Óperu nú í
síðustu viku, þar sem hljómsveit
frá Kanarieyjum lék fyrir matar-
gesti.
Boðið var upp á mat og drykk
að hætti Kanaríeyjamanna við und-
irleik tríósins „Los 3 Argones", en
liðsmenn hljómsveitarinnar höfðu
einnig hönd í bagga við matargerð-
ina. Þeir félagar Antonio, Jesus, og
Armando hafa leikið saman í 26
ár, og eru þeir mörgum íslenskum
ferðamönnum á Kanaríeyjum góð-
kunnir, því þeir spila fyrir gesti í
hellaskoðunarferðum þar, sem
margir hafa farið í.
Kanaríeyjavikan stóð yfír frá
þriðjudegi til laugardags, en það
er stefna hjá veitingahúsinu að
hafa alþjóðlegar matargerðarvikur
u.þ.b. einu sinni á mánuði. Fram-
undan eru m.a. færeysk og japönsk
vika hjá Óperu, en nákvæm tíma-
setning á þeim hefur ekki verið
ákveðin.
Hafnarfjörður:
Hvers vegna var ekið á?
LÖGREGLAN í Hafnarfírði
óskar eftir að hafa tal af vitnum,
sem gætu upplýst aftanákeyrslu
þar í bæ þann 21. október sl.
Óhappið varð um kl. 12 á hádegi
miðvikudaginn 21. október. Blá
Mitsubishi-bifreið var stöðvuð við
gangbraut á Reylqavíkurvegi, á
móts við hús númer 66. Cherokee-
jeppi, rauður á lit, lenti aftan á
bifreiðinni og eru ökumenn ekki
sammála um ástæður. Ung stúlka,
sem var að ganga yfír brautina,
gæti ef til vill upplýst eitthvað um
það, eða önnur vitni ef einhver eru.
Rannsóknarlögreglan í Hafnarfírði
þiggur allar slíkar upplýsingar með
þökkum.
KAFFIHÚSIÐ í KRMMGLUNNI
Kaffihlaðborð
í dag
milli kl.
13 og 19
píanóleikur