Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.11.1987, Blaðsíða 28
28 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 Séra Kristján Valur Ingólfsson Biblíulestur vikunnar Sunnudagur: Mánudagur: Þriðjudagur: Miðvikudagur: Fimmtudagur: Föstudagur: Laugardagur: Jóh. 6.35.-37. Jesús á svarið Kól. 3.12.—14. Umberið hvert annað Róm. 8. 26.-27. Andinn biður fyrir okkur Matt. 7.1.—6. Dæmið ekki Matt. 7.7,—12. Biðjið og starfið Matt. 7. 24.-27. Trúið Jóh. 3.16. Trúið á Jesúm, frelsarann U nglingar o g fullorðn- ir einu sinni o g núna spiluð aftur og aftur og hefur syfjandi áhrif. Við nennum hrein- lega ekki að hlusta á hana. Við gerum þá líklega annað tveggja, að horfa stutta stund inn í þennan heim, sem myndin sýndi, en gleyma honum svo af því að hann er ekki okkar heimur, ellegar fara leiðina hennar Margrétar, reyna að kynna okkur málið og komast að niðurstöðu. Umræðan um hinn hrikalega vanda unglinga og foreldra þeirra skyldi hvetja okkur til að taka trú okkar til íhugunar, trú sjálfra okkar og trú bamanna, sem fá ár hvert tækifæri til að kynn- ast kristinni lífsgleði í fermingarstörfum og sækja kirkju. Söfnuðurinn veitir samfélag og skilning milli kynslóða. Ég var um daginn í hópi fólks, sem var ofurlítið að taka hvert annað í gegn í eins miklum kær- leika og því var unnt. Þetta er nú ekkert einsdæmi, hvorki á okk- ar dögum né heldur á okkar landi. Landið er sneisafullt af allskonar námskeiðum, ráðstefnum og fundum, sem eiga að kenna okkur að ná betri tökum á okkur sjálf- um. Þegar hópurinn var búinn að ákveða að hvert og eitt skyldi fá eina jákvæða og eina neikvæða umsögn, aðfinnslu og hrós, eins og það hét einu sinni, snéri Magn- ús sér að Margréti og sagði hlýlega: Margrét mín, á þessum 10 árum, sem við höfum unnið saman, hef ég tekið eftir því aftur og aftur hvað þú færð brennandi áhuga á einhveiju og beitir þér að því öllum stundum í dálítinn tíma en missir svo áhugann á því. Þetta var aðfinnsla. Þú mein- ar hvemig ég fæ eitthvað á heilann og velti mér upp úr því dag og nótt þangað til ég fæ eitt- hvað annað á heilann, sagði Margrét jafn hlýlega. Og Magnús kinkaði kolli. Það er vegna þess, sagði Margrét, að þegar maður fær eitthvað rækilega á heilann, beitir sér reglulega að því, kemst maður að niðurstöðu, sem maður kæmist alls ekki að ef maður hugsaði bara um málið stöku sinn- um og gerði lítið til að kynna sér það og gera sér grein fyrir því. Þess vegna get ég lagt málið frá mér eftir dálítinn tíma og farið að leysa önnur mál. Kannski verð ég svo að taka hitt málið upp aftur seinna af því að það breyt- ist en þá hef ég alveg jafn gaman af því eins og í fyrra skiptið. Heimar, sem við þekkjum ekki Þetta hlýlega rabb kom mér í hug þegar ég um miðja hina vik- una fékk færi á að horfa á seinni hluta myndarinnar um ungling- ana í miðbænum, sem sjónvarpið sýndi. Mér fannst það snaggara- lega gert að bregða við og efna til þess þáttar, bæði myndagerð- arinnar og umræðunnar. Eg sá ekki fyrri hluta myndarinnar. Seinni hlutinn vakti hjá mér sömu viðbrögð sem endranær þegar ég horfi inn í heim, sem ég skyggn- ist annars aldrei inn í. Ég segi við sjálfa mig: Ég trúi þessu bara ekki. En nú veit ég af reynzlu minni að sumt það, sem ég fæst við daglega en blasir ekki við öðrum, sem fást við öðruvísi verk- efni, verður þeim öldungis ótrú- legt. Og þegar ég hætti sjálf að sinna verkefnum, sem voru áður daglegt viðfangsefni mitt, verða þau mér fjarlægari og allur sá heimur sem þau gerðust í. Ég sá því þegar ég heyrði unglingana í sjónvarpsviðræðunum fullyrða oftar en einu sinni við ítrekaðar spumingar fréttamanns að mynd- in væri ekki ýkjur, að ég ætti einfaldlega að trúa þeim. Þetta voru myndir úr þeirra heimi, sem ég bý ekki í, og ég skyldi frekar trúa þeim en furðu og óskhyggju sjálfrar mín. Gamla platan um ung’lingfana En það, sem vakti mér enn meiri furðu, líka óróa, var að að mér þótti allt þetta samtal þessa hlýlega og skýrlega fólks, ungl- inga, kennara, félagsmálastarfs- manns og fréttamanns, vera sama umræðan og fór fram í þjóðfélagi okkar fyrir 20 ámm. Það var, fannst mér, verið að spila gamla glötu, bara með nýjum röddum. Ég minnist umræðna þá, á fund- um og ráðstefnum, um hinn ógurlega vanda unglinganna. Ýmist hikandi og spyijandi ellegar með ábúðarmiklu og dæmandi fasi urðu þessar umræður langar og þreytandi með spurningum og fullyrðingum um orsakir og úr- bætur. Orsakir vom nefndar sem þær að mæður væm famar að vinna úti, heimilin stæðu tóm, foreldrar hefðu engan tíma til að sinna bömum sínum og ungling- um og gæfu þeim peninga í stað kærleika. Það var líka talað þá um drykkfellda foreldra og það var talað um að unglingar hefðu ekki nógu góða aðstöðu í boðleg- um íþróttahúsum eða jafn góðum skemmtistöðum og foreldramir hefðu. Orsakir vom sjálfsagt tald- ar fleiri og sumar raktar til þess að unglingar væm bara svo hræðilega ókurteisir og leiðinlegir og ómögulegir. Fólk varð ekki sammála um hvort ætti að kalla þennan mikla vanda unglinga- vandamál eða foreldravandamál. — verður svæfandi Enn er fólk ósammála um þetta. En þau, sem vom unglingar fyrir 20 ámm og fannst foreldra- kynslóðin heldur slök, em orðin foreldrar eða annað jafn ábyrgt fullorðið fólk. Þau hafa orðið að skipa sér í raðir þeirra, sem þau gagnrýndu harðlega, og þau hafa litlu getað breytt. Þau fundu held- ur ekki svörin. Þess vegna er umræðan næstum alveg eins og hún var fyrir 20 ámm. Þetta veld- ur mér óróa vegna þess að við hættum að taka þessa umræðu alvarlega, hún verður sem sífelld- ur þakleki, gömul plata, sem er — en kemur okkur öllum við Nú er það svo að þessi heimur, þar sem unglingar sækjast eftir víni í miklu ofboði og rústa heim- ili hvort sem er í Vesturbænum eða nýbyggðum úthverfum, getur fyrirvaralaust orðið okkar heimur. Við eigum öll ungt fólk, sem stendur okkur nærri, hvort sem það er böm okkar eða tengt okk- ur á annan máta. Mál ungs fólks em vitanlega mál okkar allra. Mál okkar allra em líka mál ungl- inga. Mál miðaldra fólks, foreldra og annarra, mál aldraðs fólks og bama em líka mál unglinga. Þess vegna þýðir auðvitað ekkert fyrir okkur að láta sem það sé ekki svo, láta sem við getum búið í okkar eigin heimi. Heimar okkar allra skarast á einhvern máta, við höfum öll áhrif hvert á annað. Það, sem við_ segjum og gemm hefur áhrif. Ég held t.d. að það hafi áhrif þegar sagt er í sjón- varpi að ungt fólk sækist eftir víni og rústi heimili. Ég held það geti haft þau hræðilegu áhrif að einhver þeirra, sem ekki sóttust eftir víni, fari frekar að gera það. Því það, sem er gert, verður gert af fleirum og fleirum. Ef það er hins vegar satt að þetta sé svona, þá verður auðvitað að segja það. En þá verðum við líka að gera eitthvað í málinu. Spilum nýja plötu Okkur hefur ekki tekizt að beita aðferðinni hennar Margrétar þótt sum okkar hafí gert það á sínu eigin svæði. Það efast ég ekki um. En bæði þátturinn með sjónvarps- myndinni og samtalsþáttur Sigrúnar Stefánsdóttur á laugar- dagskvöldið í sömu viku hvetja okkur til að komast að niðurstöð- um. Enn sem fyrr vom ungling- amir, heyrðist mér, óvissir um hvaða uppeldi þau kysu sér. Þau vildu bæði aga og frelsi, heyrðist mér. Ætli við viljum það ekki öll? En ef einhver er skyldugur til að aga og stjóma verður hann líka að hafa frelsi til þess. Hvort sem það em foreldrar eða kennarar eða einhveijir aðrir. Og ætli það fólk þurfi ekki eitthvað jákvætt og traust og gott samband við þau, sem þau eiga að sýna þessa miklu ábyrgu leiðsögn? Ég held það bara. Ég er sammála því, sem mér fannst koma fram í þessu sjónvarpsspjalli, sem ég hef vitnað í, að umræða okkar, umhugsun okkar þarf að vera miklu dýpri. Allt samband okkar hvert við annað þarf að takast til gagn- gerðrar athugunar. Allur kærleik- ur okkar, dómar okkar, umtal okkar. Og öll vinna okkar. Við það bæti ég endurskoðun á trú okkar. Ég held þetta gerist ekki nema við fömm að dæmi Margrétar, fáum þetta á heilann um tíma, bara um tíma, beitum okkur að því, kynnum okkur allt, sem við getum og gemm okkur grein fyrir því. Komumst að niður- stöðu og vinnum eftir henni. Þá getum við Iíka lagt málið til hliðar sem útkljáð í bili svo það verði ekki sífellt suð gamallar plötu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.