Morgunblaðið - 08.11.1987, Page 25

Morgunblaðið - 08.11.1987, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 B 25 Rikshaw Þetta er alvörutónlist! Cock Robin til íslands ☆ ☆ ☆ ☆ Ég vona að ég sé ekki að móðga neinn þegar ég segi að hér sé á ferðinni alvörutónlist. Ekki svo að skilja að aðrir séu ekki að semja eða flytja alvörutónlist, en tónlist Rikshaw er soldið öðru vísi en það sem maður heyrir yfir- leitt hér 6 skerinu. Þetta er ekki frumlegasta plata, sem komið hefur út á l'slandi og hún markar heldur ekki vatnaskil f sögu vest- rænnar rokktónlistar, en það er eitthvað við hana sem aðgreinir hana frá flestu öðru íslensku og lætur svona Ifka vel f eyrum. Illar tungur kunna að segja að það séu bara hinir ensku textar, sem láti svo framandlegir í eyrum, en svo er ekki. Það er miklu, miklu meira. Það sem einkennir þessa plötu öðru frem'ur er fagmennska. Lag- asmíðarnar eru nær undantekn- ingarlaust markvissar og grípandi. Hljóðfæraleikur er allur fumlaus og án stæla, en piltarnir sýna samt svo sannarlega hvað í þeim býr. Útsetningar eru einnig sérlega vandaðar, stundum jafnvel um of, því örlítið meiri hráleiki hefði líka notið sín betur. Gagnrýnandi verð- ur þó að játa að hann sefur ágætlega á næturnar þrátt fyrir þetta smáatriði. Ekki er hægt að segja að einn ákveðinn stíll sé yfirgnævandi á plötunni — Rikshaw er óhrædd við að reyna fyrir sór, án þess að plat- an sé einhver hrærigrautur. Og í því felst einn aðalstyrkleiki þessar- ar skífu — hún er heilsteypt í gegn. Við eigum vafalítið eftir að sjá mörg lög af þessari plötu á vin- sældalistum útvarpsstöðvanna. Lög eins og „Get What I Want“, R I K S H A W Hl | „Ordinary Day“ og „Same as Be- fore“ hafa allt til þess að bera — hvert á sinn hátt. Hafa verður þó í huga að þessi plata var gerð fyr- ir útgáfu erlendis og maður hlustar aðeins öðruvísi á hana fyrir vikið. Það eina sem ég óttast er að plat- an skeri sig ekki nóg úr suður í siðmenningunni. Sú athygli sem Sykurmolarnir hafa fengið að und- anförnu ætti þó ekki að spilla fyrir og ef menn kunna á annað borð ennþá að meta vandað rokk þá hef ég engar áhyggjur af framtíð Rikshaw. Bandaríska poppsveitin Cock Robin er væntanleg til íslands og heldur sveitin hér tónleika 29. nóvember næstkomandi á vegum Split Promotions. í Cock Robin eru þau Peter Kingsberry og Anna LaCazio. Rob- in semur öll lög og texta, leikur á hljómborð og syngur, en Anna leik- ur á hljómborð og syngur. Sveitin var stofnuð fyrir rúmum þremur árum af Peter og Önnu, en með þeim hafa ýmsir tónlistarmenn starfað. Sveitin hefur gefið út tvær plöt- ur og margir hér á landi kannast við lagið Just Around the Corner sem náöi miklum vinsældum í sumar. Með Cock Robin leikur blús- sveitin Solid Silver, sem er hljóm- sveit Bobby Harrison, og einhver íslensk hljómsveit. Ámi Matthíasson Gaui: Gamalt vín ☆ Gaui er ungur piltur, sem nýverið sendi út sína fyrstu plötu. Fyrst góðu fréttirnar: Gaui hefur sæmileg- ustu rödd, syngur vel og umslagið er til fyrirmyndar, bæði hvað varðar útlit og flestar upplýsingar (hver er Bubbi Marthens?). Þá ber að geta þess að platan er verulega vel út- sett. Slæmu fréttirnar eru þær að plötuna skortir allan frumleika. Áhrif frá vísnasöng Bubba Morth- ens eru augljós og einhvern veginn fær maður það á tilfinninguna að maður hafi heyrt þetta allt áður. En hattur galdrameistarans fer læri- sveininum bara ekki jafnvel og eigandanum. Textasmíðar Gauja eru sérkapítuli. Hendingar eins og: Þegar nóttin er komin breytir himininn um lit. Úlfar relqa slóðir og þjóta með hraðans þyt missa einhvernveginn marks. Og þegar hann tekst til við heimsósóm- ann fyllist maður bara þreytu: Við vitum að allir Ijúga. Klíkunni leyfist að smjúga. Sakleysi manna þeir sjúga. Sambönd má nota til að kúga. Ég hélt að það væri búið að af- greiða þessa dagskrá í eitt skipti fyrir öll. Svo er því miður greinilega ekki. Ein stjarna fyrir viðleitni. Heimibstæki sem bíða ekki! -■ ;y ij - - :• ísskápnr þvottavcl þurrkar eklavél frystikistá Nú er ekki eftir neinu aö bíöa, þú verslar í Rafbúö Sambandsins fyrir 100 þúsund og getur þá keypt öll heimilistækin í einu, valiö sjálfur hverttæki af ótal gerðum í pakkann, bætt sjónvarpi, videotæki eöa hrærivél viö og skipt greiðslum jafnt niöur á 24 mánuði. Engin útborgun og fyrsta greiösla eftir einn mánuð. Enginn íslenskur raftækjasali hefur boðið slík kjör - hvorki fyrr né síðar. Haföu sam- band við Rafbúö Sambandsins strax - það er ekki eftir neinu að bíöa. HAFSSS a þessum kjorunr &SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 Siml 687910

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.