Morgunblaðið - 08.11.1987, Page 2

Morgunblaðið - 08.11.1987, Page 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 Si Það líður nú að lokum heimsóknar minnar til íslensku sjómannanna á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna. Augljóst er orðið að vegna íjarlægðar og erfíðra samgangna verða veiðistöðvamar við Aluetin-eyjaklasann suðvestur af Alaska ekki heimsóttar. En erfítt er að yfírgefa Seattle, miðstöð krabbaveiðanna, án þess að líta við hjá Karli Hansen, vélsmið. Karl hefur um áratugaskeið þjónað fískiskipaflotanum. Hann lærði jámsmíði í Héðni, en flutti út með íjölskyldu sína 1962, þegar hann gafst upp á skömmtunarkerfí borgarstjómarinnar í Reykjavík, að því er hann sjálfur sagðL aukinn vöxt í lifnna. Um það bil sem lifrin var svo að kæfa veslings gæs- ina var henni slátrað og lifrin matreidd eftir kúnstarinnar reglum fyrir fagnandi sælkera, sem komu víðsvegar að úr heiminum til að bragða á herlegheitunum. Berfætta geitastúlkan í skóginum Dag einn varð Valdimari litið upp frá gæsinni, sem hann var að troða í matarleifum. Sá hann þá hvar tötralega klædd stúlka berfætt rölti á eftir geitahjörð inn í skóginn. Valdimar gaf gæsinni smá frí og elti stúlkukindina inn í skóginn. Þar heillaðist pilturinn beinlínis af þess- ari öskubusku sinni og hefur varla litið af henni síðan. Getur þó varla talist að þetta hafí verið fyrsta stúlkan sem suðumesjamaðurinn fæddur vestur á flörðum hafí litið augum. Til þess að geta haft geita- stúlkuna sína nær gæsagarðinum byggði hann kofa úr kassafjölum fyrir þau og þar fæddist þeim svo dóttir í fyllingu tímans. Seinna upp- götvaði pilturinn svo að stúlkan var ekki jafn umkomulaus og útliti benti til. Því hún var milljóneradóttir af Allir sjómenn þekkja Kalla Hansen og smiðjuna hans. Hann hefur þjónustað krabbabátana í Seattla síðan 1962. Strönd Kyrrahafsins er viða sæbrött. Á annesjum má víða sjá vita sem þennan til að leiðbeina sjómönnum um úfið hafið. Fékk ekki lóð Hann sagðist hafa reynt að fá lóð undir íbúðarhús í Reykjavík árum saman án árangurs en orðið að horfa upp á þá sem voru í náðinni fá lóð- ir aftur og aftur. Karli vegnar vel í Seattle og segir hann megin ástæð- una vera þá, að þar sé ekki spurt um ættartengsl heldur atgervi. Hann býr nú í einbýlishúsi í góðu hverfí og á jámsmiðju við höfnina. í gegnum árin hefur aðalstarfíð fa- iist í almennri þjónustu við físki- skipaflotann, en þó hefur hann oftast verið með einhveija nýsmíði. Það nýjasta er kraftblökk fyrir krabbabátana, sem gerir það að verkum að hægt er að hafa margar gildrur tengdar saman á einum vaði. Aður var hver gildra með sér uppi- hald og var það miklu tafsamara við dráttinn en nú er. Vegna tengsla sinna við sjómenn- ina er hann fljótari að lagfæra og breyta framleiðslu sinni en stórfyrir- tækin sem of oft vinna án beinna tengsla við notenduma. Lærði söng hjá Ragnari H. Ragnar Á skrifstofunni hjá Hansen vinn- ur einn maður, Bill Kristjánsson. Bill er fæddur í Ameríku af íslensku foreldri og þótt hann hafí einungis komið til íslands sem gestur talar hann lýtalausa íslensku. Á sínum yngri árum lærði hann söng hjá ungum tónlistarkennara í Norður- Dakota. Söngkennarinn heitir Ragnar H. Ragnar. Ragnar hélt svo til Islands í seinni heimsstyijöldinni sem hermaður í Bandaríkjaher til að veija gamla landið fyrir nasist- um. Ragnar féll þar, þó ekki fyrir byssukúlum óvinarins, heldur fyrir ungri glæsilegri stúlku norðan úr Mývatnssveify Sigríði Jónsdóttur. Þau fluttu til ísafjarðar þar sem þau hafa stjómað tónlistarskóla og verið mikilvægustu aflvakamir í menn- ingarlífí bæjarins. Bill Kristjánsson var formaður í íslendingafélaginu í Seattle. Hann taldi að flöldi íslend- inga þar um slóðir væri um 5.000 manns. Það jafngildir því að aðeins 6 kaupstaðir á Islandi hafa fleiri íbúa. V ertí ðarkokkur úr Grindavík Eftir að hafa staldrað við hjá Kalla _ Hansen góða morgunstund ekur Óli Skagvík mér niður í miðbæ, þar sem við höfum frétt af íslensk- um matreiðslumanni á einum þekktasta matsölustað borgarinnar. Hátt uppi í einum af hæstu skýja- kljúfum borgarinnar er veitinga- staðurinn Mirabeau. Dýr, glæsilegur matsölustaður, þar sem helstu mennimir úr viðskiptalífí staðarins bjóða mönnum gjaman til hádegis- verðar. Á trönum við innganginn stóð skilti sem sagði að Mirabeau restaurant væri hreykið af að kynna nýjan yfírkokk, G. Valdimar Bjama- son. Það er orðin nokkuð löng leiðin hjá þessum vertíðarkokki úr Grindavík upp á 46. hæð í Seattle-First National byggingunni, en fjölbreytt og skemmtlegt. Valdimar varð að eigin sögn hundleiður á kokkaríinu í Grindavík og ákvað að leggjast í víking. Eftir einhveija dvöl í Kaupmannahöfn hélt hann suður á bóginn og fékk sér vinnu við eldamennsku á litlum veitingastað j Suður-FVakklandi. Aðalvinnan var að troða mat í ali- gæsir, með aðstoð trektar, til að fá Japönsk loftvama- byssaá eyjunni Kiska. gyðingáættum frá Bandaríkjunum, sem hafði fengið nóg af alsnægtun- um. Eftir nokkra dvöl í Frakklandi fluttu þau vestur með sumarlangri viðdvöl á íslandi, þar sem Valdimar kokkaði ofan í túrista á litlu hóteli úti á landi við góðan orðstír. Þegar vestur að Kyrrahafí kom, innritaðist hann í hótel- og veitinga- skóla í San Francisco. Að námi loknu útskrifaðist hann svo þaðan með láði. Elísabet önnur kom og þakkaði fyrir Eitt af verkefnum Valdimars var að elda fyrir Elísabetu Englands- drottningu í veislu sem hún hélt þegar hún var á ferð á Kyrrahafs- ströndinni. Eftir matinn gerði hún sér ferð í eldhúsið til að þakka Valdi- mar og samstarfsfólki hans fyrir eldamennskuna. Nú er hann ráðinn yfírkokkur á Mirabeau í Seattle og er jafnframt tæknilegur ráðgjafí eigandans. Eftir góða máltíð þama bauð Valdimar okkur í smá ökuferð um borgina, þar sem hann sýndi okkur meðal annars stærsta safn víski- tegunda í heiminum. Hann ók okkur í hvítum Cadillac, sem tengdapabbi hafði sent honum, þegar bfllinn var orðinn of gamall og úreltur fyrir hann. Okkur virtist hann vel brúk- legur þótt hann væri að verða tveggja ára gamall. Eftirmáli Nú var skipulagðri dagskrá ferð- arinnar að mestu lokið ef eitthvað gat talist skipulagt í þessari ferð. En ég hafði það svona S bakhönd- inni að athuga sagnir af því að þingmaður af hinu háa Alþingi fs- lendinga, sem var reyndar orðinn öreigi áður en þingmennskunni lauk, hafí farið til Ameríku um síðustu aldamót og ekki linnt ferðum fyrr en í litlu sjávarþorpi vestur við Kyrrajiaf. Þingmaður þessi hét Þórður Magnússon kenndur við Hattardal í Álftafirði vestra. En þaðan hafði hann hrakist öreiga að Eyri í Skötufírði, þar sem hann lifði sem tómthúsmaður. Magnús sonur hans flutti vestur um haf 1892 og sendi föður sínum farareyri ári seinna, síðar sendu þeir svo konu Þórðar og dóttur peninga til vestur- farar. Mér skyldist að afkomendur þessa fólk byggi á stað sem heitir Point Roberts í nágrenni Seattle. Ekki tókst mér þó að fínna staðinn á korti og vissi því lítið í hvora átt- ina skyldi halda. Óli Skagvík kom þá aftur til hjálpar. Sagðist hafa hugboð um hvar staðurinn væri og næsta dag vorum við lagðir á stað norður þjóðvegi 5. Vestmann kóngur Við landamæri Kanada stendur sjávarplássið Blaine. Það minnti mig á Bolungarvík að því leyti að þar ræður konungur ríkjum líkt og gerð- ist í Bolungarvík á tímum Einars Guðfínnssonar. Þessi kóngur er þó ekki bolvískur heldur frá Vest- mannaeyjum eins og nafnið bendir til. Mér var sagt að Vestmann, en svo heitir maðurinn, réði flestum atvinnufyrirtækjum þama og léti mikið að sér kveða. Þrátt fyrir ítrek- aðar tilraunir tókst okkur óla þó ekki að hafa upp á honum þá stund sem við stönsuðum. í stað þess heimsóttum við elliheimilið Stafholt, sem Vestur-íslendingar byggðu af myndarskap fyrr á öldinni. Þama em nú einungis eftir þijár konur af íslenskum ættum, þær Lovise Guðmunds, Olga White og Freyja Boume. Kunnum ekki islensku Starfsfólkið þama var ákaflega elskulegt og almannatengsla full- íslenskir sjómenn á Kyrrahafí: Hafa veitt þar í hundrað ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.