Morgunblaðið - 08.11.1987, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
ISLENSKIR SJO-
MENN Á KYRRAHAFI
mig langan tíma að afla staðfest-
inga á sannleiksgildi þess. Hann
sagði mér frá stríði milli Japana og
Bandaríkjamanna á bandarísku
landi í siðustu heimsstyijöld. Ég
stóð í þeirri góðu trú að óvinaher
hefði aldrei stigið fæti á bandariskt
iand á þessari öld. En staðreyndin
er, eins og Óli sagði, að Japanir
dvöldu langdvölum á Aleuita-eyjun-
um í seinni heimsstyijöldinni og þar
fór fram hörmulegt stríð þar sem
fleiri hermenn dóu af slysförum og
allskonar vitleysisgangi en vegna
aðgerða óvinarins. Hann hefur kom-
ið í vistarverur Japananna sem þeir
grófu inní Qöll og hæðir meðfram
strandlengju eyjanna og þar er enn
fullt af persónulegum eigum jap-
önsku hermannanna, Ssamt allskon-
ar stríðsvélum. En það er nokkuð
ljóst að Bandaríkjamenn halda þess-
um atburðum ekki á lofti og rit eins
og American Peoples Encyclopedia
ljúga beinlínis um þetta með þögn-
inni.
Sannleiksástin eftir
fundinn í Höfða
Okkur kom saman um það ef
Reagan forseti hefði nú smitast af
sömu sannleiksástinni og félagi
Gorbachev eftir dvölina í Höfða, þá
værum við tilbúnir að fara um Alu-
edin-eyjamar og segja frá því sem
þar ber fyrir augu og ef til vill graf-
ast fyrir um ástæður þess að um
2.000 japanskir hermenn frömdu
sjálfsmorð við Sjálfsmorðaflóa frek-
ar en að falla í hendur óvina
keisarans og hvort það sé rétt að
bandarískir og kanadískir hermenn
hafi skotið hveija aðra til bana í
æðisgenginni innrás þeirra á eyjuna
Kiska þrem vikum eftir að Japanir
yfirgáfu eyjuna?
Oli sagði mér líka sögur af feg-
urð meginlands Alaska og þeirri
paradís ferðamanna sem þar er að
finna. Hann vildi fá íslendinga til
að kynnast þessu framandi landi.
Fyrir þá sem eru orðnir leiðir á
gönguferðum um Homstrandir og
hálendið er tilbreyting að ganga um
skógivaxin Qöll og dali. Hann sagð-
ist vita um laxveiðar þar sem laxinn
væri svo ágengur að veiðimenn
reyndu að finna sér hyli þar sem
þeir gætu verið í friði um stund
fyrir laxinum. Þá sagði hann að
ferð með skemmtiferðaskipi með-
fram strandlengju Suður-Alaska til
Seattle væri ævintýri líkust enda
væri §öldi skemmtiferðaskipa í för-
um þar hvert sumar. Hver veit
lesandi góður nema þú eigir eftir
að skreppa í slíka ævintýraferð með
Óla Skagvík eitthvert sumarið.
Nú em um 100 ár síðan íslend-
ingar flúðu örbirgðina í stórum
hópum og fluttu til þessara næstum
öbyggðu svæða. Byggðu þau upp
af atorku og dugnaði og gáfu
landinu §ölda sona og dætra. Ef til
vill notum við nú tækifærið á hundr-
að ára afmælinu og heimsækjum
ættingja okkar og sýnum þeim að
við höfum nú bara spjarað okkur
sæmilega líka.
Texti og myndir:
ÚLFAR ÁGÚSTSSON
Ef þú vUt vera viss um að finna
réttu viskftegundina, er þetta
sennilega rétti staðurinn. Þeir
bjóða upp á yfir 2.000 tegundir
og segjast bjóða mesta fjtfl-
breytni af þessari vfntegund
allra bara f heiminum. Við barinn
má sjá frá vinstri óla Skagvfk,
Guðjón Guðjónsson og Valdimar
Bjarnason.
Eliiheimilið Stafholt í Blain. Það var upphaflega byggt af Vestur-
íslendingum, en nú búa þar einungis þrjár konur af fslenskum ættum.
Starfsfólkið leggur þó enn rækt við hinn íslenska uppruna.
Chef Val er hann kallaður yfir-
matsveinninn á Mirabeu restaur-
ant í miðborg Seattle. Hann er
fæddur á Flateyri en byijaði f
kokkeríinu á Grindavfkurbátun-
um. Nú er hann orðinn hámennt-
aður í matseld og hótelrekstri
og er ráðinn sem rekstrarráð-
gjafi og yfirkokkur á þessum
fræga veitingastað.
Skipsfélagi Ola Skagvfk stendur
við innganginn á einu af híbýlum
Japana á Kiska. Japönsku her-
mennirnir grófu sig inn í
brekkur meðfram strandlengj-
unni. Að baki mannsins sést í
japanskt herflutningaskip sem
Bandaríkjamenn eyðilögðu.
SALON A PARIS
Hafnarstræti 20 (Laékjarforgi) Sími 91-1 78 40