Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 HEILAGUR ANDI Vopnabúríð geymir bæði bænir og grjót Bíleigendur fé- flettir og mafían komin í fisk Spilling og hneykslismál hafa riðið húsum í New York það sem af er þessu ári og það á ekki af borginni að ganga. Nú hefur orðið uppvíst um milljón dollara stöðumælasvindl og einnig, að Fulton-fiskmarkaðurinn sé í hönd- um mafíunnar. Stöðumælasvindlið þykir mikið áfall fyrir borgaryfirvöld enda er það ekki óalgengt í New York, að fólk láti hendur skipta í barát- tunni um bflastæðin. Er svo að sjá, að fyrirtækið, sem sá um að innheimta stöðumælagjöldin, hafí stungið í eigin vasa nærri milljón dollurum í smámynt. Vegna þess hafa 33 starfsmenn þess verið handteknir á þremur mánuðum. Grunur leikur reyndar á, að innheimtumenn og ökumenn fyr- irtækisins Cosmopolitan Courier Corporation hafí stungið undan rúmlega þremur milljónum dollara á einu ári en það samsvarar 10% af öllum tekjum borgarinnar af 50.000 stöðumælum. Sakbomingamir voru með 13 bfla við innheimtuna og vora tveir innheimtumenn og ökumaður í hveijum. Kemur það fram í ákær- unni, að sumir hópamir hafi stolið allt að 1.500 doliuram á dag. Þá hefur Rudolph Giuliani, sak- sóknari á Manhattan, sem hefur orð á sér fyrir röggsemi, höfðað mál fyrir rétti til að koma Fulton- fískmarkaðnum á Manhattan úr höndum mafíunnar. Segja fulltrú- ar hans, að fiskverðið hafi verið sprengt upp vegna glæpastarf- seminnar og séu bæði markaður- inn og viðkomandi verkalýðsfélag „bandingjar Genovese-glæpaflöl- skyldunnar". Þessi málshöfðun er að sínu leyti mjög söguleg. í fyrsta sinn hefur ríkisstjómin leitað til dóm- stólanna í því skyni að ná heilli viðskiptamiðstöð úr klónum á samtökum glæpamanna. Fyrir þremur áram gekkst Ed Koch, s borgarstjóri í New York, fyrir rannsókn á þessu máli en þá hafði vinur hans, sem rekur sjávarrétta- veitingastað, tjáð honum, að hann væri neyddur til að borga til glæpamannanna. Gerði hann það ekki yrði séð til, að hann fengi engan físk. A hveiju ári fer um milljarður punda af físki og öðra sjávarfangi um Fulton-markaðinn og er síðan dreift þaðan til viðskiptavina um allt landið. - MARK TRAN VÁLEG TÍÐINDl! Seiðkonan átti að sýna þeim í tvo heimana Hætt er við, að sunnudagss- teikin hafí farið misjafnlega í menn f spænska bænum Alaeuas nú fyrir skemmstu, nánar tiltekið á níu heimilum. Þennan eftirminnilega sunnu- dag ráku fjórir heimilisfeðranna augun í ljósmynd á forsíðu eins dagblaðsins og komust þá að raun um, að eiginkonur þeirra höfðu beðið galdranom að koma þeim fyrir kattamef vegna þess, að þær granuðu þá um framhjáhald. Aðr- ir fímm sáu í blaðinu, að konumar þeirra höfðu beðið nomina um að gera þá getulausa. Á ljósmyndinni gat að líta vo- odoo-dúkkur, sem féllu í hendur iögreglunni þegar hún gerði hús- rannsókn hjá nominni. Var hún aðeins nefnd „Teresa" og sagt, að hún hefði sjálf boðist til að hjálpa afbiýðisömu eiginkonunum í Alacuas, 54.000 manna svefnbæ skammt frá borginni Valencia við Miðjarðarhafíð. Einn viðskiptavina Teresu var Maria Blasco Amores, sem í 23 ár hafði verið gift Pelayo Amor- es, lögreglusfjóranum í bænum. Hafði aldrei borið skugga á sam- búð þeirra hjona þar til fyrir þremur áram þegar tvær konur vora ráðnar til lögreglunnar í Alacuas. Eftimafíi lögreglustjórans er Amores, „ástir" á spænsku, en hvort sem það réð nokkra um þá ákvað frúin með sjálfri sér, að eiginmaðurinn ætti vingott við lögreglukonumar og úthúðaði þeim svo í eyra bæjarbúa, að önn- ur þeirra höfðaði mál á hendur henni fyrir rógburð. Sjálf fór eig- inkonan afbrýðisama í mál við tvo einkaspæjara, sem hún hafði ráð- ið til sín, þegar þeir skýrðu henni svo frá, að maðurinn hefði ekki verið henni ótrúr. í janúar á þessu ári fór Pelayo Amores að þjást af flökurleika- köstum, sem læknamir kunnu enga skýringu á fyrr en nú fyrir skemmstu: Konan hans hafði í langan tíma bætt morgunmatinn hans með arseniki að ráði Teresu. Galdrakukl er ekki bannað með lögum á Spáni og er það haft eftir lögreglunni, að Teresa hafí „hjálpað" konunum með voodoo- dúkkum, sem myndir af eigin- mönnunum vora festar á. Var konunum sagt að útvega lokk úr hári mannanna og lítið sýnishom af sæði til að tryggja árangur galdursins. Ef konumar óskuðu þess, að mennimir dræpust vegna ótryggðarinnar átti að festa myndimar af þeim á dúkkumar með svörtum pinnum. Ef það var meiningin að koma í veg fyrir framhjáhald með því að gera þá getulausa átti að nota hvíta pinna. Á ljósmyndinni í blaðinu sást, að íjórar myndanna vora festar með svörtum pinnum, fimm með hvítum. Það er bót í máli fyrir herra Amores, að konan hans vildi að- eins gera hann getulausan, og vegna þess hvað hún gaf honum lítið arsenik í einu þoldi hann að innbyrða á þessum tíma skammt, sem hefði annars nægt til að drepa hann fímm sinnum. Þegar allt hafði komist upp forðaði löreglusljórinn sér úr bæn- um til að hvflast og jafna sig en konan hans var sett beint í fangel- sið í Valencia. Lögreglan í Alacuas er hins vegar að ráðgera að grafa upp lík ýmissa karlmanna í bæn- um vegna grans um, að fyrir þá hafði verið eitrað. - PAUL ELLMAN Að undanfömu hafa fregnir borizt af Alice Lakwena, uppreisnarkonunni mögnuðu, sem hefur sett sér það markmið að steypa Museveni forseta Uganda af stóli. Fréttamenn hittu hana fyrir skömmu í Ibanga, sem er smá þorp í 80 mflna fjarlægð frá höfuðborginni Kampala. Hún féllst á að ræða við fréttamsnn, en fyrir því era fá fordæmi. Með henni vora nokkrir liðsmanna hennar, sem gumuðu mjög af því hve göfugt það væri að hetja á stjómvöld og óskuðu þess að ijöl- miðlar fjölluðu af sanngimi um hreyfingu þeirra. Mamma Alice, eins og fylgis- menn hennar kalla hana, var í grænum hermannajakka, ljós- bleikum bol og dökkbláu pilsi. Um háls hennar hékk ljósblátt talna- band úr plasti og við og við gerði hún krossmark. Hún skildi greini- lega talsvert í ensku en talaði samt acholi, sem er móðurmál hennar. Hún segir, að andinn Lakwena, sem stjómi stríðinu með milligöngu hennar, tali hinsvegar 74 tungumál. Alice staðfesti, að hún væri 27 ára. Faðir hennar er embættis- maður innan biskupakirkjunnar í Gulu í norðurhluta Uganda. Túlk- ur hennar sagði að fjölskylda hennar væri mjög trúrækin. „Á bemskuárum sínum gerði hún fátt annað en taka þátt í guðs- þjónustum og þess háttar," sagði hann fréttamönnunum. „Andinn náði fyrst tökum á henni árið 1985 og sagði henni að taka upp rómversk-kaþólska trú.“ Þegar Alice var spurð hvað hæft væri í því að uppreisnarmenn hennar notuðu hnetuolíu til að bægja frá sér byssukúlum svaraði hún: „Það sem fram fer í raun og vera byggist allt á trú manns og breytni.“ Hún réttlætti mann- fallið í átökunum á þeim forsend- ALICE — Heijar í umboði andanna. um að „stríðið á að losa okkur við slæm öfl í samfélaginu". Hún vísaði á bug upplýsingum frá ríkisstjóminni um alvarlegt mann- fall í liði uppreisnarmanna. „Þegar hermenn mínir lenda í orrustu falla aldrei fleiri en 20 manns hveiju sinni," fullyrti hún. Fréttamenn sáu um það bil 50 uppreisnarmenn „hins heilaga anda“ eins og þeir kalla sig og reyndust þeir illa vopnum búnir og höfðu aðeins nokkra sovéska riffla og skammbyssur. Við fætur þeirra lágu pokar með steinum. „Hermenn stjómarhersins vita að þegar við köstum steinum virka þeir á svipaðan hátt og sprengj- ur,“ segir Pax Ochen Otto, einn af foringjum uppreisnarsveitanna. Isaac Newton Ojoj prófessor, sem á sínum tíma gegndi emb- ætti menntamálaráðherra í ríkis- stjóm Miltons Obote, gekk til liðs við „uppreisnarmenn hins heilaga anda“ fyrr á þessu ári. Hann kvaðst ekki efast um að „með skarpara bænahaldi" þeirra afla sem bæra hag Uganda fyrir bijósti mundu þau sigra að lokum. - CATHERINE BOND Meimingarpost- ulamir biðja um gott veður Tímarit, sem sovéski kommún- istaflokkurinn gefur út um hugmyndafræði, Kommunist, hefur nánast beðið rithöfunda, listamenn og menntamenn í landinu afsökunar á framferði sínu sl. 50 ár. „Því voldugri sem Sovétríkin urðú, því huglausari og tortryggn- ari urðu opinberar stofnanir í garð skapandi listamanna og verka þeirra," sagði í ómerktum leiðara í Kommunist og síðan var haldið áfram og lista- og menntamenn beðnir um stuðning. „Flokkurinn biður ykkur, eins og hann gerði á dögum Leníns: Komið til samstarfs, þið erað velkomnir. Vinnum saman af einlægni og heiðarleik, ýtum til hliðar skriffinnskunni og fyrirskip- anakæknum, smjaðrinu og falsinu." Á leiðarann í Kommunist má næstum líta sem opinbera stefnu fíokksins í lista- og menningarmál- um, opinbert skjal, sem hægt er að vitna til í samskiptum og samn- ingum við menningarmálaráðu- neytið og stofnanir fíokksins í einstökum héruðum. í leiðaranum vora flokksstofnanir úti á lands- byggðinni raunar minntar á, að ljörkippurinn, sem hlaupið hefði í sovéskt menningarlíf, væri mikið undir þeim kominn. í Kommunist er farið hörðum orðum um Stalínstímann en einnig vikið að skriffínnskunni, sem hefur verið menningarlífinu flötur um fót á síðustu árum og áratugum:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.