Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.11.1987, Qupperneq 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987 dýranna góð á leiðinni, ferðin til Hafnarfjarðar tók 20 tíma. Þegar þangað var komið voru dýrin sett í háhymingalaug í Sædýrasafninu og voru þau hress og tóku strax fæðu sem bendir til þess að þeim hafí liðið vel á leiðinni. Löggæsla verður allan sólar- hringinn í Sædýrasafninu og tjáði Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu fréttaritara Morgunblaðsins að þeir hefðu verið látnir vita af tilteknum aðilum sem hann vildi ekki greina frá hveijir eða hvaðan væru, að þama væri hugsanleg hætta á ferðum um skemmdarverk. Hann neitaði því ekki að þeir hefðu einnig heyrt um yfirlýsingar erlendra öfgasamtaka í erlendum fjölmiðlum um að þau létu þessar háhymingaveiðar við Island ekki afskiptalausar. Að sögn Helga Jónassonar verður einn af bandarísku sérfræðingunum, Jim Jeffry, eftir hér á landi og mun hann annast dýrin í Sædýrasafninu og þjálfa þau. Helgi sagði að það stæði til að hafa dýrin til sýnis fyr- Sjö menn stóðu yfír dýnmum alla leiðina Háhyrningamir fangaðir í kerinu á Seyðisfirði. Morgunbiaðið/Magnús Reynir Jónsson Flutningur háhyrninganna frá Seyðisfirði: ir almenning hluta úr degi. Hann sagðist vera mjög ánægður með hvemig tii hefði tekist með flutning- ana suður, einnig sagði hann að öll aðstaða á Seyðisfirði væri mjög góð og öli fyrirgreiðsla og aðstoð heima- manna hefði verið til fyrirmyndar og hann vildi færa björgunarsveit- armönnum á Seyðisfirði sérstakar þakkir fyrir þeirra aðstoð. Helgi sagði að það hefði enn ekki verið sótt um innflutningsleyfí fyrir dýrin vegna þess að ekki væri búið að fá kaupendur og það væri rangt sem komið hefði fram í fjöl- miðlum að búið væri að sækja um innflutningsleyfi einhverstaðar og það ekki fengist. En Helgi sagðist vera í sambandi við kanadískt fyrirtæki sem sér- hæfði sig í sölu á dýmm í dýragarða víðsvegar um heiminn og hann von- aðist til að geta selt þau þar í gegn. Hann sagði að söluandvirðið yrði notað til að greiða upp skuidir þrotabús Sædýrasafnsins og síðan væri fyrirhugað að endurreisa það og koma upp sjávardýrasafni. Fréttaritari Morgunblaðsins hitti Þorvald Jóhannsson bæjarstjóra á Seyðisfirði og sagði hann að það hefði nú sýnt sig að gott væri að stunda háhymingaveiðar við Seyð- • isfjörð og hann vonaðist til að þessir aðilar fengju að vera í friði fyrir öfgasamtökum, því hann sagðist líta svo á að þetta hlyti að vera hvalarannsóknum til góðs. Öll fram- koma og samskipti þessara háhym- ingaveiðimanna við Seyðfirðinga væri til fyrirmyndar, sagði Þorvald- ur. — Garðar Rúnar Seyðisfirði. TVEIR stórir flutningabOar lögðu af stað frá Seyðisfirði upp úr klukkan fimm síðastliðinn mánudag og var ferðinni heitið til Hafnarfjarðar. Farmurinn var fjórir háhymingar og sjö menn, þar af þrír bandarískir háhyrn- ingasérfræðingar sem eru vanir að flytja þessi dýr. Allir voru mennirnir á vegum fyrirtækisins Fauna sem er sjálfseignarstofn- un sem yfirtók þrotabú Sædýra- safnsins í Hafnarfirði. Fauna hafði leyfi sjávarútvegsráðu- neytisins tíl að veiða fjóra háhyrninga á þessu ári og var það Guðrún GK sem veiddi há- hyrningana. Það er um vika síðan háhyming- amir voru veiddir og hafa þeir verið geymdir í þró á Seyðisfírði þar til nú og hafa þrír bandarískir sérfræð- ingar verið á vegum Fauna fyrir austan alveg frá því að dýrin veidd- ust og gætt þeirra, gefið þeim að borða og séð til þess að þeim líði sem best. Auk þess hefur björgun- arsveitin á Seyðisfírði staðið vakt allan sólahringinn vegna þess að forráðamenn Fauna vom hræddir við skemmdarverkastarfsemi öfga- manna. Helgi Jónasson forsvarsmaður Fauna sagði í samtali við fréttarit- ara Morgunblaðsins að þessir bandarísku sérfræðingar hefðu ver- ið fengnir til landsins um leið og fyrsti háhymingurinn veiddist og hefðu þeir verið komnir á Seyðis- §örð sama dag. Það vom þessir Bandaríkjamenn sem undirbjuggu dýrin undir flutningana, þau vom sett í sérsmíðuð háhymingabúr sem smíðuð vom í Hafnarfírði. Dýrin em sett á segldúk sem síðan er hengdur í þessi búr, sjór er settur í búrin upp á mið dýr, þannig að þau em hálf fljótandi í búmnum. Tvö búr vom höfð í hvomm bíl og vom fjórir menn í öðmm bflnum en þrír í hinum sem stóðu yfír dýr- unum alla leiðina til þess að þeim liði sem best. Það þurfti að hella stöðugt sjó yfir þann hluta af dýmn- um sem upp úr stóð og fylgjast með öndun þeirra. Að sögn þessara háhymingasérfræðinga var líðan Dýrunum lyft upp úr kerinu við upphaf flutnings að austan. Landið og umheimurinn - fréttir af hvorutveggja færir Sjónvarpið þér beint og milliliðaiaust. Með gervihnattasambandi við allar heimsálfur er tryggt að fréttir dagsins eru alltaf splunkunýjar. Það er staðreynd að fréttatímar, fréttaskýringa- og umræðuþættir Sjónvarpsins njóta vinsælda og virðingar um allt land og stöðugt er unnið að því að bæta við nýjum og áhugaverðum þáttum. Nú hefurtveimur nýjungum verið hleypt af stokkunum: Nýr fréttatími, kl. 18.50 alla daga. Brotið til mergjar, á laugardögum kl. 19.30. Þar eru teknar fyrir fréttir vikunnar og þau mál sem hæst hefur borið. Fylgstu með, í Sjónvarpinu er alltaf eitthvað títt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.